Morgunblaðið - 01.05.1996, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
© Fjölskyldupizza að eigin valí með ókeypis brauðs'
og 1,5 I af Pepsí.
ABURÐARVERKSMIÐJAN HF.
mmmmmmmm
BlAkom
Blákornið er áhrifaríkt við plöntun á
litlum trjám og gott fyrir sumarblóm
og skrautrunna.
Fáðu upplýsingabœkling á nœsta
sölustað.
+
1.
■fla
BARATTUDAGUR VERKALYÐSINS
1. maí ávarp fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Reykjavík
Nýr tónn í
samskiptum
EÐ leiftursókn ríkisstjórnar-
innar gegn réttindum
launafólks kveður við nýjan
tón í samskiptum á þjóðmálasviðinu.
Það er með eindæmum að veigamik-
il frumvörp um breytingar á lögum
um stéttarfélög og vinnudeilur, rétt-
indi og skyldur starfsmanna ríkisins
og lífeyrisréttindi séu unnin í ráðu-
neytum án samráðs við hreyfingu
launafólks. Með frumvörpunum ætl-
ar ríkisstjórnin að þvinga fram
grundvalalrbreytingar á réttindum
og kjörum launafólks og samskipta-
reglum á vinnumarkaði.
Markmiðið með frumvarpinu um
stéttarfélög og vinnudeilur er að
draga úr áhrifum stéttarfélaga, og
þar með launafólks, og beita sam-
takamætti sínum til að hafa áhrif á
kaup sitt og kjör.
Eindregin mótmæli þúsunda fé-
laga innan samtaka opinberra
starfsmanna hafa leitt til þess að
ríkisstjórnin hefur séð að sér hvað
varðar frumvarp til breytinga á lög-
um um Lífeyrissjóð starfsmanna rík-
isins. Það verður ekki lagt fram á
þessu þingi. Frumvörpin til laga um
stéttarfélög og vinnudeilur og rétt-
indi og skyldur starfsmanna ríksins
er hún ráðín í að knýa í gegn.
Það er krafa verkalýðshreyfingar-
innar að eðlilegar samskiptareglur
verði haldnar. Það gerist aðeins með
þeim hætti að ríkisstjómin dragi öll
frumvörpin til baka og snúi _sér að
viðræðum um skipan mála. íslensk
verkalýðshreyfíng hefur ítrekað lýst
sig reiðubúna til samningaviðræðna
en leggst eindregið gegn hvers konar
lögþvingunum.
Aðför ríkisstjórnarinnar að verka-
lýðshreyfingunni minnir á aðgerðir
stjórnvalda á Nýja-Sjálandi og Bret-
landseyjum. Afleiðing þeirra aðgerða
leiddi til aukins atvinnuleysis, aukins
launamunar og annars misréttis.
Að undanfömu hafa helstu fyrir-
tæki landsins birt ársreikninga sína.
Hvert af öðm sýna þau hagnað og
skila eigendum sínum góðum arði.
Samtímis ákveður ríkisstjórnin að
hefja aðför að verkalýðshreyfing-
unni og koma þar með í veg fyrir
að launafólk fái að njóta afrakstus-
ins af batnandi efnahagsástandi.
6-7.000 manns eru nú atvinnu-
lausir. Fjöldaatvinnuleysi er tiitölu-
lega nýtt hér á landi. Atvinnuleysi
er óþolandi böl og smánarblettur á
hverju þjóðfélagi. Hæfilegt atvinnu-1
leysi er ekki til. Baráttan gegn at-
vinnuleysinu hlýtur að vera for-
gagnsverkefni nú þegar rofar til í
efnahagslífi þjóðarinnar.
Ein afleiðing atvinnuleysisins er
landflótti. Þúsundir íslendinga hafa
flust búferlum til nágrannalandanna
þar sem lífskjör eru betri og öryggi
meira fyrir íjölskyldur þeirra. Ætli
íslenskt þjóðfélag að vera annað en
verstöð í norðanverðu Atlantshafi
verður það að standast samanburð
við nágrannalöndin. Því verður að
leita allra leiða til þess að tryggja
að lífskjör og félagslegt umhverfi
hér jafnist á við það sem best gerist
annars staðar.
Á sama tíma og þúsundir íslend-
inga eru atvinnulausir er óunnin
fiskur sendur lítt eða óunninn úr
iandi í stað þess að sinna fullvinnslu
sjávaraflans, sem eykur þjóðartekjur
og fjölgar störfum. Sægreifarnir
eiga fiskinn. Löggjöf um sameign
þjóðarinnar á auðlindum hafsins
EINS og undanfarin ár munu Full-
trúaráð verkalýðsfélaganna í
Reykjavík, Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja og Iðnnemasamband
Isiands standa saman að hátíðar-
höldum í tilefni 1. maí.
Fyrirhugað er að hátíðarhöldin
verði með hefðbundnu sniði. Safnast
verður saman við Hlemm kl. 13.30
og mun ganga leggja af stað kl. 14.
Gengið verður niður Laugaveg út
Austurstræti að Ingólfstorgi til úti-
fundar.
Hátíðarhöld í
Borgarnesi
1. MAÍ hátíðarhöldin í Borgarnesi
fara fram í Hótel Borgarnesi. Sam-
koma verður sett kl. 14. Hátíðar-
ræðu flytur Guðmundur Þ. Jónsson,
formaður Landssambands iðnverka-
fólks.
Halli og Laddi skemmta, Snorri
Hjálmarsson og Dagný Sigurðar-
dóttir syngja, Barnakór Borgarness
syngur, félagar úr leikdeild Umf.
Skallagríms sýna atriði úr Ævintýri
á gönguför og að lokum syngur
Grundartangakórinn.
Ávörp flytja Berghildur Reynis-
dóttir og Júlíus Árni Rafnsson.
Verkalýðsfélagið býður börnum
til ókeypis kvikmyndasýningar í
Samkomuhúsinu kl. 13 og 15.
Kaffisala
kristniboðskvenna
KAFFISALA Kristniboðsfélags
kvenna verður í Reykjavík í dag,
miðvikudaginn 1. maí, í Kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut 58, 3. hæð,
frá kl. 14-18 síðdegis.
Samband íslenskra kristniboðsfé-
laga hefur sent fjölda íslendinga til
alhliða kristniboðsstarfa í Eþíópíu
og Kenýju þar sem tekið er mið af
margvíslegum þörfum fólks sem
flest býr við þröngan kost. Störf ís-
lenskra kristniboða hafa reynst
tímabær hjálp í neyð, en vaxandi
umfang kallar samhliða eftir aukn-
um framlögum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Allur ágóði af kaffisölu kristni-
boðskvennanna rennur óskiptur til
þessa málefnis.
1. maí kaffi í Þjóð-
leikhúskjallaranum
1. MAÍ kaffi verður í Þjóðleikhús-
kjallaranum kl. 15 og eru allir jafn-
aðarmenn hvattir til að mæta.
Opið hús hjá Miðstöð fólks í
atvinnuleit
OPINN kynningardagur og kaffisala
verður miðvikudaginn 1. maí hjá
Miðstöð fólks í atvinnuleit, Tryggva-
götu 17. Miðstöðin er þjónustumið-
stöð fyrir fólk í atvinnuleit með það
að markmiði að koma til móts við
margvíslegar þarfir fólks sem er án
atvinnu.
Hjá Miðstöðinni eru m.a. veittar
upplýsingar, boðið upp á námskeið
og handverks- og tómstundaaðstöðu
sem býður upp á marga möguleika
s.s. til að smíða, sauma, gera upp
gömul húsgögn og margt fleira.
Einnig er aðstaða fyrir börn í Mið-
stöðinni, boðið upp á hönnunarráðg-
jöf í tengslum við handverk þar sem
fólk fær aðstöð í sambandi við hrá-
efnisval, hönnun og útfærslu hug-
mynda og markaðssetningu á vör-
um, útveguð viðtöl við sérfræðinga
og margt fleira.
Þrátt fyrir að Miðstöðin kenni sig
við atvinnuleitendur er þjónusta
hennar opin öllum og æskilegt að
sem flestir geti nýtt sér hana.
Miðvikudaginn 1. maí verður opið
hús hjá Miðstöðinni frá ki. 14-17
þar sem hægt verður að kynna sér
starfsemina og fá sér kaffi og með
því á vægu-verði.
Hátíðar-
höld á frí-
(legi verka-
lýðsins
Rauður 1. maí í Þjóð-
leikhúskjallaranum
SKEMMTIDAGSKRÁ verður í Þjóð-
leikhúskjallaranum í tilefni 1. maí
og hefst hún kl. 20.
Meðal þeirra sem flytja ávörp eru:
Jóhannes Sigursveinsson, verka-
maður, Páll Svansson, ritstjóri Iðn-
nemans, og Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB.
Á dagskrá verður einnig tónlist,
upplestur og spaug þar sem fram
koma: Hörður Torfason, Kristinn
Sigurpáll Sturluson, Pétur Bjarki
Pétursson, Steinunn Sveinbjarnar-
dóttir, Magnús Einarsson, Tinna og
Sóley Þorvaldsdætur, Einar Ólafs-
son, Vigdís Grímsdóttir, félagar úr
leiklistarklúbbi Iðnskólans í Reykja-
vík og Davíð Þór Jónsson. Kynnir
verður Helgi Seljan, félagsmálafull-
trúi.
Þeir sem standa að skemmtuninni
eru Iðnnemasamband íslands,
Menningar- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna, Samtök herstöðva-
andstæðinga og Sósíalistafélagið.
Hátíðarhöld á Húsavík
VERKALÝÐSFÉLAG Húsavíkur
varð 85 ára II. apríl sl. Þessara
tímamóta verður minnst samhliða
hátíðarhöldunum á 1. maí í Félags-
heimili Húsavíkur kl. 14.
Meðal dagskráratriða er: Tónlist-