Morgunblaðið - 01.05.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 43^-
virðats marklaus. Þeir versla með
kvóta, veiða fisk og ráðstafa rétt
eins og þeir eigi fiskinn. Síðan erfa
ættingjarnir, sægreifar framtíðar-
innar, réttinn til að veiða á íslands-
miðum.
Fyrir nokkrum árum afnámu
stjórnvöld með pennastriki húsnæði-
skerfi sem komið hafði verið á fót
af samtökum á vinnumarkaði með
stuðningi lífeyrissjóðanna í landinu.
Við tók markaðskerfi húsbréfanna.
Um leið er sífellt þrengt að hinu fé-
lagslega húsnæðiskerfi þannig að
ungt fólk með lágar og millitekjur á
hvergi höfði sínu að halla í húsnæðis-
málum.
Velferðarkerfið er mikilvægastai
þáttur opinberra þjónusu. Markmiðið
með því er að draga úr misvægi, sem
kann að vera vegna búsetu, efna-
hags, heilsufars eða félagslegs bak-
grunns. Því er niðurskurður síðustu
árin, einkum í heilbrigðiskerfinu og
gjaldtaka þar, hættulegt skref frá
markmiðum velferðarkerfisins. Vel-
ferðarkerfi er umhyggja og jöfnuður
í verki.
í harðri samkeppni í alþjóðavið-
skiptum skiptir gíð verkmenntun
höfuðmáli og gefur forskot í sam-
keppni. Símenntun er forsendagóðr-
ar almennrar verkþekkingar. I kja-
rasamningum hefur verkalýðshreyf-
ingin lagt grunn að nauðsynlegri
símenntun með því að fá framgengt
kröfum sínum um fræðslusjóði. Rík-
isvaldið hefur á hinn bóginn sýnt
skammarlegt tómlæti á því sviði.
Menntun ungmenna geri bókanámi
h’ærra undir höfði en verknámi með-
al annars með greiðari aðgangi að
námslánum. Þessu verður að breyta
og hefja verkmennun til þeirrar virð-
ingar sem henni ber.
Öflug verkalýðshreyfing hefur
gerbreytt íslensku þjóðfélagi í átt til
mannúðar og samhjálpar. Að þess-
um gildum er nú hart sótt að ríkis-
valdinu með sérhyggjuna að leiðar-
ljósi. Þa'ð hefur því aldrei verið jafn
brýnt og nú að launafólk sé vakandi
á verðinum, svo það vakni ekki upp
einn góðan veðurdag í gerbreyttu
þjóðfélagi markaðs- og sérhyggju.
Er aðför ríkisstjórnarinnar að
verkalýðshreyfingunni nær fram að
ganga stefnir ríkisstjórnin gerð
næstu kjarasamninga að friði á
vinnumarkaði í uppnám. Fyrirsjáan-
leg átök á vinnumarkaði munu því
alfarið verða á ábyrgð ríkisstjórnar-
Hátíðarhöldin með hefðbundnu sniði í Reykjavík
Mönnum heitt í hamsi“
Guðmundim Rapt Gemdal
væntanlegur forsetaframbjóðandi
HÁTÍÐARHÖLD í dag, 1. maí,
á baráttudegi verkalýðsins,
verða með hefðbundnu sniði, að
sögn Pálmars Halldórssonar,
sem hefur annast skipulagningu
þeirra undanfarin átta til níu
ár. Hann segir almenning virð-
ast vilja hafa dagskrána 1. maí
í föstum skorðum, ef marka
megi tilraunir sem gerðar hafi
verið liðinn áratug til að breyta
út af veryum.
Gengið verður í skrúðgöngu
frá Hlemmi niður Laugaveg og
að Lækjatorgi, undir tónlist
Lúðrasveitar verkalýðsins og
Lúðrasveitarinnar Svans. Á
Lækjartorgi verða ræðuhöld og
skemmtidagskrá, þar sem Ög-
mundur Jónasson formaður
BSRB og Ingibjörg Guðmunds-
dóttir varaforseti ASÍ flytja
ræður, Jón Mýrdal flytur tvö lög
og síðan skemmta Sigríður
Beinteinsdóttir og Grétar Örv-
arsson, auk þess sem iðnnemar
ávarpa fundinn. Fulltrúaráð
verkalýðsfélaganna í Reykjavík
annast skipulagningu hátíðar-
haldanna, skipar 1. maí nefnd
og ræður framkvæmdastjóra
þeirra.
Væntir góðrar aðsóknar
Pálmar kveðst eiga von á
miklu fjölmenni. „Bæði leikur
veðrið við okkur og einnig hef-
ur ríkisstjórnin beitt aðför sinni
að verkalýðshreyfingunni með
þeim hætti að fólk vill sýna hug
sinn og vilja,“ segir Pálmar.
Hann segir að frumvörpum rík-
isstjórnar um réttindi og skyld-
ur opinberra starfsmanna verði
harðlega mótmælt á fundinum,
þannig að um „raunverulegan
og pólitískan 1. maí verði að
ræða. Mönnum er heitt í hamsi,
að því mér sýnist,“ segir hann.
Pálmar segir algengt að 4-6
þúsund manns haldi upp á bar-
áttudag verkalýðsins, eftir
arskóli Húsavíkur leikur nokkur lög,
Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur, setur
samkomuna, létt sveifla verður í
umsjá Þríundar, Benedikt Davíðs-
son, forseti ASÍ, flytur hátíðarræðu,
Álftagerðisbræður taka lagið, af-
mælis VH minnst og að lokum flyt-
ur Einar Georg Einarsson gaman-
mál.
Kvikmyndasýning verður fyrir
börn í Samkomuhúsinu kl. 14, 16
og 18.
1. maí á Akureyri
VERKALÝÐSFÉLÖGIN halda 1.
maí hátíðlegan með margvíslegum
hætti og verður safnast saman kl.
13.30 við Alþýðuhúsið og lagt upp
í kröfugöngu kl. 14 við undirleik
Lúðrasveitar Akureyrar.
Að lokinni kröfugöngu verður
hátíðardagskrá í Alþýðuhúsinu þar
sem ávörp flytja: Jakobína Björns-
dóttir, formaður STAK, Björn Snæ-
björnsson, formaður Einingar, og
Guðrún M. Antonsdóttir, nemandi
við Menntasmiðju kvenna.
Meðal skemmtiatriða má nefna
að Skalli trúður kemur í heimsókn,
Óskar Pétursson tenór syngur við
undirleik Helgu B. Magnúsdóttur,
ungir fiðluleikarar frá Tónlistarskóla
Akureyrar leika og Freyvangsleik-
húsið sýnir.
Kaffiveitingar verða í boði verka-
lýðsfélaganna.
Hátíðarhöld í Keflavík
HÁTÍÐARDAGSKRÁ verður haldin
í Félagsheimilinu Stapa í Keflavík í
tilefni 1. maí og hefst dagskráin kl.
13.45 með leik Léttsveitar Tónlistar-
skóla Keflavíkur.
Að því loknu flytur Sigfús R.
Eysteinsson, formaður Iðnsveinafé-
lags Suðurnesja, setningarávarp og
ræðu dagsins flytur Grétar Þor-
steinsson, formaður Samiðnar, sam-
bands iðnfélaga. Að því loknu syngja
félagar úr kór Keflavíkurkirkju, bar-
áttumenn verða heiðraðir, Leikfélag
Keflavíkur sýnir o.fl. Kl. 14 er boðið
upp á kvikmyndasýningu í Félags-
bíó.
1. maí hátíðarhöld í
Hafnarfirði
1. MAÍ hátíðarhöid Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði og
Starfsmannafélags Hafnarfjarðar
hefjast kl. 13.30, þar sem safnast
verður saman á Ráðhúsplaninu.
Kl. 14 hefst svo kröfuganga þar
sem gengið verður upp Reykjavíkur-
veg, austur Hverfisgötu og vestur
Strandgötu að planinu framan við
Ráðhúsið. Þar hefst svo útifundur
kl. 14.30 þar sem fundarstjóri verð-
ur Unnur Heigadóttir, formaður
Verslunarmannafélags Hafnarfjarð-
ar. Þeir sem flytja ávörp verða: Sig-
urður T. Sigurðsson, Björn Grétar
Sveinsson, formaður Verkamanna-
sambands íslands, og Árni Guð-
mundsson, formaður Starfsmanna-
félags Hafnarfjarðar. Lúðrasveit
Hafnarfjarðar mun leika í göngunni
og á útifundinum. Eitthvað fleira
verður þar einnig til skemmtunar.
Að fundinum loknum um kl. 15
bjóða félögin upp á kaffiveitingar í
Alfafelli og Vitanum og munu 8
Fóstbræður koma í bæði húsin og
syngja.
1. maí í Vestmannaeyjum
FULLTRÚARÁÐ verkalýðsfélag-
anna í Vestmannaeyjum stendur
fyrir 1. maí hátíðarhöldum í Alþýðu-
húsinu, sem hefst kl. 14.30.
Á dagskrá verða ávörp, hljóm-
sveitin Dans á rósum sér um tónlist
milli atriða, Litla lúðraveitin leikur
og Jórunn og Rósa syngja. Einnig
verður boðið upp á kaffihlaðborð.
veðri og vindum, og hann telji
að aðsóknin verði framar von-
um að þessu sinni. Pálmar segir
að á þeim árum sem hann hefur
skipulagt dagskrána hafi orðið
breytingar í þá veru að auka
léttleika á kostnað ræðuhalda,
þannig að hátíðarhöldin höfði
til fjölskyldunnar allrar og fólk
þurfi ekki að sitja undir miklum
langlokum. Aðrar breytingar
séu ekki stórvægilegar.
„Við reyndum eitt árið að
halda hátíðarhöldin í Laugar-
dalshöll og það gafst illa, fólk
vill þá stemmningu sem felst í
að mæta niðri í bæ og fylgjast
með dagskránni þar,“ segir
hann. „Hátíðarhöldin minna
fólk á að vera vakandi gagnvart
stétt sinni og stöðu, en auðvitað
er sá skarpi oddur sem var í
verkalýðsbaráttunni áður fyrr
að mestu horfinn í neysluþjóðfé-
lagi nútímans," segir Pálmar.
Línur lagðar
með fyrirvara
Hann segir undirbúning und-
ir hátíðarhöldin hefjast um
mánuði til hálfum öðrum mán-
uði fyrir þau og þá sé bæði
ákveðin dagskrá og hvernig
ávarpi fulltrúaráðsins verði
háttað miðað við baráttumálin
og boðskapinn sem þurfi að
komast til skila. Kostnaður við
hát.íðarhöldin nemur nokkur
hundruð þúsundum króna, að
sögn Pálmars, og skipta verka-
lýðsfélögin í Reykjavík þeim
kostnaði á milli sín.
Eríu meó bakverkl
Kosmodislc
Kosmodisk er bunaður sem minnkar eða stillir sársauka i hryggnum.
Wlcófuröm lckur yfirleitt um 20 rlaga ul Kosmmlisk liuiiiiriur'inn i:r r.ouióiu ' 3 klst ;i clng
► í fáum orðum sagt: Kosmodiskur er einfaldur í notkun og
hentar í amstri dagsins, í vinnu, heima, í bílnum og í íþróttum.
Upplysingar og pöntun i síma 552 4945
„Ég er tilbúinn til að neita að skrifa
eins oft undir lög og ég og þjóðin
metum það nauðsynlegt burtséð frá
áliti einstakra þingmanna... jafnvel þó
það kunni að þýða að embættið gæti
verið leyst upp í núverandi mynd, ef ý,
marka má orð Davíðs Oddssonar þess
efnis í viðtali við Morgunblaðið
sunnudaginn 14. apríl síðastliðinn.
Þeir sem geta leyst forsetaembættið
upp eru þingið. Ég spyr: Treystir
þingið sér til að ganga gegn vilja þjóð-
kjörins forseta sem kann að hafa alla
þjóðina á bakvið sig?! Við erum lýð-
veldið fsland. Hér ríkir lýðræði.
Þingræði er aðeins hugmynd runnin
frá baráttu við einveldi konunga á
miðöldum og ekkert sem segir að Al-
þingi leysi mái betur af hendi en meiri-
Íiluti þjóðarinnar, einkum og sér í lagi
ekki ef það heldur áfram að iðka sín
sífelldu rifrildi út af litlum málum og
tefja afgreiðslu jreirra sífellt og einatt...
og reyna að taka sér kauphækkun á
svörtu á rneðan alþýða manna þarf að
láta sér nægja saltið í grautinn!"
KYNNINGARMIÐSTOÐ
EVRÓPURANNSÓKNA
Fiindur um umhverfis-
og fjarkönnunarmál
Sameiginlegar rannsóknarstofnanir
Evrópusambandsins
(Joint Research Centre - JRC)
Kynningarfundur á vegum Kynningarmiðstöðvar Evrópu-
rannsókna verður haldinn föstudaginn 3. maí
á Scandic Hótel Loftleiðum kl. 8.30-12.00.
Sameiginlegu rannsóknarstofnanir ESB, sem í daglegu tali eru nefndar JRC, eru tengdar
4. rammaáætluninni um rannsóknir, þróun og nýsköpun. Samkvæmt EES-samningnum eiga
íslenskir aðilar fullan aðgang að sjóðum áætlunarinnar og einnig aðgang að þeim möguleikum
sem JRC býður upp á. Þar má nefna sameiginlegar umsóknir í 4. rammaáætlunina, önnur
samvinnuverkefni, dvalarstyrki fyrir vísindamenn og möguleika til doktorsnáms í tengslum við
háskóla.
Sameiginlegu rannsóknarstofnanirnar eru sjö talsins í fimm löndum, sem reknar eru af
Evrópusambandinu. Rannsóknirnar sem stundaðar eru á þessum stofnunum eru á sviðum
umhverfismála, fjarkönnunarmála. iðnaðarefna, mælinga ogprófana og kjarnorkumála.
Á kynningarfundinum verða sérstaklega kynnt unhverfis- og ijarkönnunarmál og áhersla lögð á
að kynna nýtt verkefni um miðlun ognotkunf]arkönnunargagna(Center for Earth Observation -
CEO). Vakin er athygli á að auglýst hefur verið eftir styrkumsóknum í CEO verkefnið og
rennur umsóknarfresturinn út 14. júní nk.
Dagskrá:
8.30 Ávarp - Ingimar Sigurðsson, umhverfisráðuneytinu.
9.00 Um fjarkönnun á íslandi - Magnús Guðmundsson, Landmælingum íslands.
9.20 Fjarkönnunarmál - Peter Churchill, CEO Unit Head ff, CEO, Ítalíu.
10.00 Kaffi
10.20 Hafrannsóknir - N. Hoepffner, Marine Environment Unit Head, JRC, Ítalíu.
11.00 Umhverfismál - J. Kanellopoulos, Image Understanding Group, Institute for
Remote Sensing Applications, Ítalíu.
11.40 Fyrirspurnir.
Eftir hádegi gefst mönnum tækifæri á að ræða hugsanleg samvinnuverkefni íslendinga og JRC
við fulltrúa JRC og aðra mögulcika, s.s. sameiginlegar umsóknir íslendinga og JRC í 4.
rammaáætlunina, rannsóknaraðstöðu við stofnanir JRC, námsmöguleika o.fl.
Fundarstjóri: Axel Björnsson.
Fundurinn fer fram á ensku.