Morgunblaðið - 01.05.1996, Side 46
46 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Bróðir okkar,
SIGURÐUR ADOLFSSON,
Þórufelli 16,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík 24. apríl sl., verður jarðsunginn
frá Fossvogskapellu föstudaginn 3. maí kl. 15.00.
Evelyn Adolfsdóttir,
Hörður Adolfsson,
Karl Adolfsson,
Valgerður Adolfsdóttir,
Sveinbjörg Georgsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MATTHÍAS JÓNSSON
kennari
Jaðarsbraut 37,
Akranesi,
lést 24. apríl síðastliðinn.
Jarðsungið verður frá Akraneskirkju föstudaginn 3. maí kl 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Pernille G. Bremnes,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín,
GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Hraunbæ 103,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 3. maí kl. 13.30.
Þórður Elfasson.
Faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir,
ÁSMUNDUR EINAR SIGURÐSSON
sérleyfishafi,
frá Efstadal
i Laugardal,
Hrafnistu,
Reykjavík,
sem andaðist aðfaranótt 23. apríl sl.,
verður jarðsunginn frá Áskirkju
fimmtudaginn 2. maí kl. 15.00.
Elsa Björk Ásmunsdóttir, Þorsteinn S. Ásmundsson,
barnabörn og systkini hins látna.
t
Alúðarþakkir til ykkar allra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR DANÍELSDÓTTUR,
Grundargerði 31.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Una Sigurðardóttir, Leifur Eiriksson,
Margrét Sigurðardóttir,
Gunnar Sigurðsson, Hulda Vídal,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, vináttu og
hlýhug við andlát ög útför ástkærs eig-
inmanns míns, föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
Óskars PÉTURS EINARSSONAR,
Austurvegi 12,
ísafirði.
Guð blessi ykkur öll.
Guðjörg R. Jónsdóttir,
Reynir Pétursson,
Margrét J. Pétursdóttir,
Þorgeir J. Pétursson, Guðbjörg Þorláksdóttir,
Gunnar P. Pétursson, Halla H. Birgisdóttir,
Dagný R. Pétursdóttir, Guðmundur Fr. Jóhannsson,
afabörn og langafabörn.
KRISTJANA
FRIÐJÓNSDÓTTIR
+ Kristjana Friðjónsdóttir
fæddist í Langhúsum í
Fljótshlíð 25. júlí 1914. Hún lést
á Borgarspítalanum 13. októ-
ber síðastliðinn. Kristjana var
þriðja í röðinni af sjö börnum
þeirra Friðjóns Vigfússonar
bónda þar og konu hans Olínu
Margrétar Jónsdóttur.
Kristana giftist Einari
Bjamasyni skipstjóra 1937. Þau
eignuðust tvö böm, Hjalta, f.
1938, og Margréti, f. 1942. Auk
þess ólu þau upp dótturson sinn,
Einar Kristján Hermannsson.
Útför Kristjönu fór fram í
kyrrþey.
Þó nokkuð sé um liðið þá langar
mig til þess að minnast Kristjönu
Friðjónsdóttur, móðursystur
minnar, nokkrum orðum.
Kristjana fæddist í Langhúsum
í Fljótum 1914 en 1931 flyst fjöl-
skyldan, nema móðir mín sem ólst
upp annars staðar, til síldarbæjarins
Siglufjarðar þar sem þau bjuggu
lengst af síðan. Kristjana og systur
hennar lærðu snemma handtökin
við síldarvinnsluna og voru alla tíð
liðtækar þar sem unnið var að síld.
Kristjana stundaði nám við Kvenna-
skólann á Blönduósi og lauk þaðan
prófi.
Á Siglufirði kynntist Kristjana
manni sínum, Einari Bjarnasyni
skipstjóra. Þau bjuggu lengst af í
Hafnarfirði, áttu fallegt heimili þar
sem alltaf var jafn snyrtilegt. Þar
var gaman að koma og njóta ein-
lægrar gestrisni þeirra. Einar lést
1994.
Ég varð snemma vör við að Krist-
jana hafði næman skiling á erfið-
leikum og erfiðum aðstæðum hjá
fólki. Hún skoraðist ekki undan að
hjálpa þegar veikindi og aðrir erfið-
Crfisdrykkjur
Vcltlngohú/id
Gflpi-mn
Sími 555-4477
ERFI
DKYKKJÍ II
Látið okkur annast
erfidrykkj una.
Fyrstaflokks þjónusta
og veitingar.
Rúmgóð og þœgileg
salarkynni.
Upplýsingar í síma 552-9900
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
HOTEL LÖFTLEIÖIR
leikar voru, t.d. í fjölskyldum systk-
ina hennar, og hún miklaðist aldrei
af því að hafa hjálpað fólki og ætl-
aðist ekki til neins í staðinn.
Það lýsir Kristjönu kannski vel
að hún spurði ekki eins og flestir:
Hvað geta aðrir gert fyrir mig?
Heldur spurði hún sig: Hvað get
ég gert fyrir aðra? Ég og foreldrar
mínir nutum góðs af þessu. Þegar
ég var barn og foreldrara mínir
höfðu tækifæri til að ferðast til
útlanda að sumarlagi þá buðu þau
Einar og Kristjana mér að dveljast
hjá þeim á meðan. Frá þessari dvöl
er margs góðs að minnast, betja-
ferða í nágrenni Hafnarfjarðar,
ferðar á sólskinsdegi í Hellisgerði,
heimsóknir í Karmelklaustrið og
síðast en ekki síst gaf Sjana, eins
og hún var oft kölluð, sér tíma til
að tala við börn og unglinga og gat
sett sig í þeirra spor og talað við
þá eins og jafningja. Ég segi að
hún hafi gefið sér tíma til þess
vegna þess að það var mikið að
gera á heimilunum á þessum árum
þegar sjálfvirku heimilstækin, sem
eru svo algeng í dag, voru ekki
komin til sögunnar.
Kristjana var alla tíð í miklu sam-
bandi við foreldra sína, afa minn
og ömmu, eins og systkinin reyndar
öll. Þegar þau voru orðin öldruð og
lasin aðstoðaði Kristjana þau af
skyldurækni og ósérhlífni, en þó
með því að virða sjálfsákvörðunar-
rétt þeirra að fullu. Amma dó 1967,
en afi lifði til 1981. Hann var mjög
sjóndapur síðustu árin sem hann
lifði, en Kristjana gerði allt sem í
hennar valdi stóð til þess að gera
honum lífið bærilegra eins og hin
systkinin reyndar líka.
Seinna meira, þegar barnabörn
komu til sögunnar í fjölskyldu Ein-
ars og Kristjönu, stóð heimili Ein-
ars og hennar þeim ávallt opið.
Þegar ég heimsótti Kristjönu á
sjúkrahúsið, þar sem hún lá síðustu
ævidagana, var hún sárþjáð, þó hlý
og æðrulaus eins og hún hafði allt-
af verið.
Með þakklæti bið ég guð að
blessa minningu góðrar konu.
Margrét Sigurmundsdóttir.
MARGRET
JÓHANNSDÓTTIR
■+■ Margrét Jóhannsdóttir
■ fæddist á Eyrarbakka 29.
desember 1918. Hún lést á
Landspítalanum 10. apríl síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Fossvogskirkju 18.
apríl. í minningargreinum um
Margréti á blaðsíðu 46 í Morg-
unblaðinu 18. apríl var rang-
lega farið með fæðingarár eig-
inmanns hennar, Halldórs Ein-
arssonar. Hann var fæddur 6.
12. 1913 og lést 15.12. 1981.
Hlutaðeigendur eru innilega
beðnir afsökunar á þessum mis-
tökum.
Elsku amma.
Ég vildi aldrei hugsa til þess
dags þegar þú færir frá okkur. Nú
er hann runninn upp. En ég veit
að þú ert ekki horfin. Þú lifir í verk-
um þínum og hugum okkar sem
eigum minningarnar.
Ég man þegar þú, fyrir mörgum
árum, þurftir að dvelja á spítalanum
í rannsóknum. Ég hjólaði til þín frá
ísaksskóla.og hugsaði alla ieiðina:
Skyldi hún muna eftir að standa
við gluggann? Á hveijum degi þeg-
ar ég beygði upp tijágöngin, full
eftirvæntingar, þá stóðst þú við
gluggann og veifaðir, og fylltir
hjarta lítillar stelpu af gleði. Þannig
sýndir þú í verki, eins og alltaf, að
þér þætti vænt um mig og mótaðir
mig, eins og þú mótaðir okkur öll
sem nutum þín.
Skilningur þinn á þörfum okkar
barnanna og þolinmæðin gagnvart
öllum okkar brekum var sérstakur.
Þú brást aldrei.
Haukur litli bróðir skilur ekki
alveg hversu langt þú ert farin. Það
er erfitt að útskýra fyrir honum að
þú sért samt svo nærri okkur.
Lítill drengur lófa strýkur,
létt um vota móður kinn,
-augun spyrja eins og myrkvuð
ótta og grun í fyrsta sinn:
Hvar er amma, hvar er amma,
hún sem gaf mér brosið sitt,
yndislega og alltaf skildi
ófullkomna hjalið mitt?
Lítill sveinn á leyndardómum
lífs og dauða kann ei skil:
hann vill bara eins og áður
ömmu sinnar komast til,
hann vill fá að hjúfra sig að
hennar bijósti sætt og rótt.
Amma er dáin - amma finnur
augasteininn sinn í nótt.
Lítill drengur leggst á koddann
-lokar sinni þreyttu brá,
uns í draumi er hann staddur
ömmu sinni góðu hjá.
Amma brosir - amma kyssir
undurblítt á kollinn hans.
Breiðist ást frá öðrum heimi
yfir beð hins iitla manns.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Ég leita skjóls í fallegri minningu
um þig, sem mun lifa með mér alla
ævi.
Margrét Hilmisdóttir.
Opið kl. 13-18 alla virka daga og laugardaga kl. 13-17.
Nýbýlavegi 30, Dalbrekkumegin, Kópavogi, sími 564 3555.