Morgunblaðið - 01.05.1996, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ1996 53
FRÉTTIR
V ímuvarnadagur
Lions 4. maí
LIONS-, Lionessu- og Leóklúbbar
um allt land munu laugardaginn
4. maí halda sinn árlega vímu-
varnadag. Þetta er í 11. sinn sem
slíkur dagur er haldinn hér á landi
á vegum Lionshreyfingarinnar
með fjölbreyttri dagskrá víða um
land.
Aðalmarkmið dagsins er að
vekja athygli á vímuvarnastarfi
hreyfingarinnar, einkum kynn-
ingu á námsefninu: Að ná tökum
átilverunni eða „Lions-Quest“.
Námsefnið sem oftast er nefnd
Tilveran meðal nemenda er nú
kennt í flestum grunnskólum
landsins. Nemendur eru á sjöunda
þúsund í 7. og 8. bekk en 900
kennarar hafa nú þegar réttindi
til að kenna námsefnið.
I tilefni dagsins munu Lionsfé-
lagar, unglingar og aðrir, sem
láta sig vímuvarnir unglinga
varða, selja barmmerki, auk þess
sem Lionskiúbbar víða um land
halda upp á daginn með fjöl-
breyttri dagskrá fyrir ungt fólk
og fjölskyldur þeirra. Hagnaður
af sölu merkjanna fer til styrktar
unglingastarfi í landinu og Vimu-
varnasjóði Lionshreyfingarinnar
sem m.a. styrkir kennara til að
sækja námskeið er veitir þeim
réttindi til að kenna unglingum
að ná tökum á tilverunni.
GUÐBERGUR Björnsson nemi
í Foldskóla afhendir Birni
Bjarnasyni menntamálaráð-
herra barmmerki til styrktar
vímuvörnum. Með þeim eru
(f.m.) Þór Steinarsson, for-
maður Vímuvarnadagsins, og
Ólafur Briem, kynningarstjóri
Lions. Minni myndin er úr
kennslustund um vímuvarnir í
Foldaskóla.
Morgunblaðið/Sverrir
Ný dögun í
Gerðubergi
AÐALFUNDUR Nýrrar dögunar
verður í Gerðubergi fimmtudaginn
2. maí nk. kl. 19. Þetta sama kvöld
mun sr. Baldur Rafn Sigurðsson
flytja fyrirlestur sem hefur yfir-
skriftina: Sorg og sorgarviðbrögð.
Þessi fyrirlestur hefst strax að
loknum aðalfundinum kl. 20.
Vegna forfalla getur Páll Ei-
ríksson, geðlæknir, ekki flutt
þennan fyrirlestur. Þessi fyrirlest-
ur er sá síðasti í vetur en opin hús
verða áfram í sumar í Gerðubergi
fyrsta fimmtudag í mánuði.
Allar upplýsingar um dagskrá
Nýrrar dögunar eru á símsvara
samtakanna í síma 562 4844.
Símatími Nýrrar dögunar er á
þriðjudögum kl. 18-19.
Genginn
Flugvallar-
hringurinn
í MIÐVIKUDAGSGÖNGU
Hafnargönguhópsins 1. maí verður
rætt um umgengni á almannafæri
og hvað er til ráða til að bæta hana.
Mæting er kl. 20 við Hafnarhús-
ið. Genginn verður Flugvallar-
hringurinn um Vatnsmýrina,
Öskjuhlíð og niður í Nauthólsvík.
Þaðan út með ströndinni og um
Háskólahverfið og með Tjörninni
til baka. Val um að ganga hluta
leiðarinnar og nýta SVR til baka.
Allir velkomnir.
Kyuningar-
kvöld fyrir
brúðkaup
Á VEITINGAHÚSINU Astró
fimmtudaginn 2. maí kl. 20 stend-
ur Holtablóm fyrir kynningar-
kvöldi fyrir brúðkaup. Þar munu
hinar ýmsu verslanir og þjónustu-
aðilar kynna vörur sínar um allt
er viðkemur brúðkaupi.
Meðal þeirra sem þar verða eru:
Holtablómið, Fataleiga Garðabæj-
ar, Brauðberg, Trimform, Gullsól,
Sveinbjörg V. Lúðvíksdóttir, förð-
unarmeistari, Jónas E. Nordquist,
Bílaleiga Hasso, ískort og Blóma-
miðstöðin. Það sem sýnt verður er
m.a. brúðarvendir og skreytingar,
brúðartertur og kransakökur,
brúðarkjólar og samkvæmisklæðn-
aður, eðalvagnar, boðsmiðar, boðs-
kort o.fl.
Kuran Swing á
Kringlukránni
KURAN Swing kvartettinn leikur
á Kringlukránni í kvöld, miðviku-
dagskvöldið 1. maí.
Á efnisskránni eru sígild djass-
lög í bland við þeirra eigið efni.
Þeir sem skipa Kuran Swing eru:
Symon Kuran, fiðluleikari, Björn
Thoroddsen, gítarleikari, Bjarni
Sveinbjörnsson, kontrabassaleikari
og Ólafur Þórðarson, gítarleikari.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er
aðgangur ókeypis.
■ NÁMSKEIÐ í samkvæmis-
dönsum verður haldið í Dans-
smiðju Hermanns Ragnars á
þriðjudögum og fimmtudögum frá
2. til 23. maí. Námskeið í „kántrýd-
önsum“ verður á þriðjudögum
7--20. maí. Námskeiðin fara fram
að Engjateigi 1. Kennarar verða
Jóhann Gunnar Arnarson, Emel-
ía Sigurðardóttir og Jóhann Örn
Olafsson.
■ AÐALFUNDUR Reykja-
víkurdeildar SÍBS verður haldinn
fimmtudaginn 2. maí kl. 17 í Múla-
lundi, Hátúni lOc. Venjuleg aðal-
íundarstörf og kaffi.
Við viljum samninga um
kjör og réttindi launafólks
- ekki lögþvinganir
Samtök launafólks hafa ítrekað lýst því yfir að þau séu tilbúin til
viðræðna og samninga um réttindi, skyldur, kaup og kjör félags-
manna sinna.
Ríkisstjórnin hyggst skerða réttindi starfsmanna ríkisins.
Dæmi:
Afnám samnings- og verkfallsréttar hjá þúsundum launamanna
Forstjóravaldið aukið
Afnám biðlaunaréttar
Skerðing ráðningarkjara
Verði réttindin skert hljóta launin að hækka. Það er verkefni sem
leysa þarf við samningaborðið, en verður aldrei leyst með lögþving-
unum.
Bandalag
háskólamanna