Morgunblaðið - 01.05.1996, Page 58

Morgunblaðið - 01.05.1996, Page 58
58 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Utsala - barnaefni Kr. 300 pr. m., úr 100% bómull fyrir sumarið. 200 gerðir í vesturkiallaranum. VIRKA Mörkin 3, 108 Reykjavík. / r • i f I Plt matvæli á kiarabóta verði Grásleppa Reyktur lax Reyktur rauðmagi Nýr og grafinn lax Taðreyktur silungur Útvatnaður saltfiskur Innbakaður fiskur ®grillpinnar kur fiskur Hörpudiskur Siginn fiskur Harðfiskur Grænmeti Svartfugl Sælgæti Rækjur Síld Besta kjarabótin erlágt vöruverð Úr og klukkur Skartgripir Snyrtivörur Austurlensk gjafavara Antikvara Fatnaður Leikföng llmvötn og ótal margt fleira Svo fáið þið ykkur kolaportsís, pylsu eða rjúkandi gott kaffi í JCvfltp^ Frábær leiktæki fyrir alla aldurs- hópa KOLAPORTIÐ ^ MAkKADSTORG ið 1. maí kl. 11-17 I DAG Ókeypis félags- og lögfræbileg ráögjöf fyrir konur. Opib þribjudagskvöld kl. 20-22 og fimmtudaga kl. 14-16. Sími 552-1500. zÚjrrQU Ht-i SKAK Umsjón Margcir Pétursson Svartur leikur og vinnur DREKAAFBRIGÐIÐ í Sik- ileyjarvörn leiðir oft til afar snarprar baráttu þar sem báðir eru í mátsókn. Þessi skák var tefld á opnu móti í Linares á Spáni í janúar: Hvítt: Georg Mohr (2.495), Króatíu, svart: Elizbar Ubilava (2.525), Georgíu, 1. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 — cxd4 4. Rxd4 — Rf6 5. Rc3 - g6 6. Be3 - Bg7 7. f3 - 0-0 8. Dd2 - Rc6- 9. Bc4 - Bd7 10. 0-0-0 - Hc8 11. Bb3 - Re5 12. h4 - h5 13. Bg5 - Hc5 14. g4 — hxg4 15. f4 — Rc4 16. De2 - Dc8 17. f5 - Rxb2 18. Bxf6 - Bxf6 (í skákinni Oll-Topalov, Ólympíumótinu í Moskvu 1994 lék svartur 18. — Rxdl og vann, en Ubilava, sem hefur aðstoðað Anand um nokkurt skeið, hef- ur greinilega óttast endurbót) 19. Dxg4 - Kg7 20. Hhgl - Hh8 21. Bxf7!? - Kxf7 22. Dxg6+ - Kf8 23. Kxb2 - Hxc3 24. e5. Hér höfum við stöðuna á stöðu- myndinni. Hvítur vonast nú eftir 24. — dxe5? 25. Re6-l---Bxe6 26. dxe6 — Hxc2+ 27. Kbl með vinningsstöðu, eða 24. - Bxe5? 25. f6! - Bxf6 26. Hdfl og svartur á ekki góða 1 vörn við hótuninni 27. Hxf6+. En hvíti hafði láðst að taka þriðja möguleikann með í reikninginn: 24. — Bxf5! og hvítur gafst upp. Hann getur aðeins valið á milli 25. Rxf5 — Hxc2+ 26. Kbl — Dc3 og mátar og 25. Dxf5 - Dxf5 26. Rxf5 — Bxe5 og svartur á auð- unnið endatafl. Með morgunkaffinu AF hveiju ekki? Svona kemur pabbi þinn bíln- um oft í gang á morgnana. TRYGGINGIN nær yfir fall þitt af þakinu, en þú ert því miður ekki tryggður fyrir því að detta á jörðina. 546 ^ ÞEGAR hann finnur loks út hvaða klukka hringdi er hann orðinn svo vel vaknaður að hann getur farið á fætur. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: laugaÞmbl.is Hegðunar- skóla, eða hvað? ÉG FINN mig knúna til að viðra skoðun mína á þjóðfélagsmáli sem farið hefur fyrir bijóstið á mér síðustu daga og vikur. Um er að ræða dagskrárlið í Sjónvarpinu, sem er svo- nefndur „Hegðunarskóli Jóns Gnarr og félaga". Mér finnst þessi þáttur ijarska ómerkilegur og umflöllun þeirra kumpána um hin ýmsu efni lágkúru- leg og því fyrir neðan virð- ingu Sjpnvarpsins að sýna hann. Ég legg til að þessi „hegðunarskóli" verði tek- inn út af dagskrá. Oddný Kr. Óttarsdóttir. Ósmekkleg vígsla „MÉR fannst mjög ósmekkleg vígsla nýju dagvistunardeildarinnar fyrir heilaskaðaða. Eins og þetta er stórkostlegt framtak fannst mér hræðilegt að sj| fólk þarna skála í áfengi og alls ekki hæfa tilefninu." Ingibjörg Arný. Anægð með skrif um kynvillu GUÐBJÖRG Karlsdóttir hringdi til að þakka þeim Daníel Þorsteinssyni, Snorra Óskarssyni og Kristni Ásgrímssyni fyrir þeirra skrif í Morg- unblaðið um kynvillu og hvetur fleiri til að láta í sér heyra. Gæludýr Keli er týndur KELI týndist 10. apríl sl. Hann er ekki með ól og ekki merktur. Ef einhver hefur séð til hans vinsamlegast hringið í síma 587-5905 eða á Dýraspítalann í Víðidal. Týndur köttur SNÚÐUR úr Kópavogi er týndur. Hann átti að veiða mýs í hlöðu á hest- húsasvæði Gusts að- faranótt 30. apríl en slapp þaðan. Snúður er dökkgrábröndóttur með hvítt trýni og kvið, ólar- laus en eyrnamerktur. Þeir sem hafa orðið hans varir eru vinsamlega beðnir að láta vita í síma 554-1039. HOGNIHREKKVISI v/ LiéAJ^upö!' Yíkverji skrifar... ÞAÐ var ýmislegt skemmtilegt og fróðlegt sem kom fram í sænsku heimildamyndinni í Ríkis- sjónvarpinu á sunnudagskvöld um ævi og störf Jóns Kadetts, öðru nafni Jóns Kristófers Sigurðssonar. Raunar finnst Víkveija það heldur klént, að það skuli hafa þurft frænd- ur okkar Svía til þess að ráðast í gerð þessarar myndar, því auðvitað stóð slík myndgerð okkur íslending- um nær. Lýsingar þeirrar Jónasar Ámasonar og Ragnars Amalds á Jóni Kadett voru um margt ágætar, en þó fannst Víkverja vera einn al- varlegur galli á frásögnum beggja, þótt Víkverji viti ekki hvort skrifa beri þann galla á ábyrgð framleið- enda eða þeirra Jónasar og Ragnars. VÍKVERJI telur það sem sé óboðlegt með öllu að þessir tveir herramenn, sem virðast gjör- þekkja ævi og feril Jóns Kadetts, skuli koma fram í viðtölum við framleiðendur myndarinnar og hafa allar frásagnir sinar af Jóni á ensku. Ef þeir Jónas og Ragnar voru ófser- ir um að tjá sig um Kadettinn á sænsku, dönsku eða norsku, hvers vegna í ósköpunum notuðu þeir þá ekki íslenskuna, sem báðir kunna og kunna vel? Það hefði verið minnsta mál fyrir Svíana að fá frá- sagnir þeirra á íslensku þýddar á sænsku og þannig hefðu þeir auð- veldlega getað textað á sænsku, eða jafnvel hljóðsett á sænsku, hlut þeirra tvímenninganna í myndinni. Víkverja fannst það vægast sagt ósmekklegt að þeir skyldu velja þann kostinn að klæmast á ensku, í svo norrænum þætti sem þessum, því ekki verður því haldið fram að enskan hafi beinlínis leikið á vörum þeirra og tungu. SÉRSTAKLEGA hafði Víkverji gaman. af frásögn Jónasar Árnasonar af því hvernig leiðir hans og Jóns Kadetts, sem síðar varð góðvinur hans, lágu saman í Hverfi- steininum. Jónasi var stungið inn fyrir að lenda í slagsmálum á kennderíi og þáði hann gistingu í Hverfisteininum. Þegar hann vakn- aði morguninn eftir og gægðist út, þá var Kadettinn þar að skúra gólf og gerði sér lítið fyrir og opnaði fyrir Jónasi og hleypti honum út úr klefanum. Hann var sem sé góð- vinur lögreglunnar og fékk sérstaka meðhöndlun þegar hann var nætur- gestur hennar. Fékk að fara frjáls ferða sinna, skúra gólf og fá sér afréttara, sem hann deildi með Jón- asi þessa morgunstund! Sennilega eru tímarnir mikið breyttir að þessu leyti og því enn skemmtilegra að fá myndskreytta frásögn Jónasar af þessari lífsreynslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.