Morgunblaðið - 31.05.1996, Page 27

Morgunblaðið - 31.05.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ1996 27 LISTIR Ljósmyndir af látnum TVÆR ljósmyndasýningar á Lista- hátíð í Reykjavík verða opnaðar mánudaginn 3. júní undir yfírskrift- inni Eitt sinn skai hver deyja þar sem ætlunin er að „bijóta dauðann til mergjar". Á Sjónarhóli,_ Hverfisgötu 12, eru það ljósmyndir Ur líkhúsi eft- ir Andres Serrano. Á Mokka-kaffí hefur hins vegar verið sett upp sýning á ljósmyndum í eigu Þjóðminjasafns Islands og er hún samvinnuverkefni myndadeildar safnsins við Mokka, en sýningarstjóri, umsjónarmaður og frumkvöðull að þessum sýningum er Hannes Sigurðsson listfræðingur. Af þessu tilefni hefur Mokka-Press gefið út 182 blaðsíðna bók með rit- gerðum eftir íslenska fræðimenn og er viðfangsefni þeirra dauðinn í ís- lensku samfélagi fyrr og nú. Ritstjóri er Siguijón Baldur Hafsteinsson mannfræðingur, sem rannsakað hefur ljósmyndir af látnum, húskveðjum og jarðarförum hér á landi. í bókinni má fmna greinar eftir Hannes Sig- urðsson („I minningu dauðans"), Sig- uijón Baldur Hafsteinsson („Dauðinn í mynd lífsins: Ljósmyndir af látn- um“), Hjáimar Sveinsson heimspek- ing („Andres Serrano: Ásýnd dauð- ans“), Vilhjálm Ámason heimspeking („Vitundin um dauðann“), Elínu M. Hallgrímsdóttur hjúkrunarfræðing („Þegar ástvinur deyr“), Vilhjálm Vil- hjálmsson myndlistarmann („Vinur er líkn, dauðinn er friður"), Guðrúnu B. Kristjánsdóttur og Arndísi Þor- geirsdóttur („In memoriam“), Eddu Kristjánsdóttur sagnfræðing („Hinsta hvílurúmið" og „Utfararsiðir ásatrú- armanna“), Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld og Þórir Kr. Þórðarson guð- fræðing („Canto: Tónlist í stormi samtíðar"), Garðar Baldvinsson bók- menntafræðing („í von um eilíft iíf: Um dauðann í íslenskri ljóðagerð"), Sigurð Gylfa Magnússon sagnfræð- ing („Dauðinn er lækur, en lífið er strá: Líf og dauði á 19. öld“), Gunn- ar Kristjánsson guðfræðing („Af jörðu ertu kominn"), Margréti Egg- ertsdóttur íslenskufrfæðing („Listin að deyja“) og Guðrúnu Nordal ís- lenskufræðing („Dauðasvipir mið- alda“). Að auki eru í bókinni fjöl- margar áður óbirtar ljósmyndir úr fórum Þjóðminjasafnsins af látnum íslendingum. Mokka Myndirnar á Mokka, sem spartna frá 1886 til 1956, hafa flestar aldrei komið fyrir almenningssjónir og voru sérstaklega stækkaðar upp fyrir sýn- inguna af ívari Brynjólfssyni við myndadeild Þjóðminjasafns ísiands, en Inga Lára Baldvinsdóttir sagn- fræðingur, Sigutjón Baldur Haf- steinsson og Hannes Sigurðsson sáu um valið. Sjónarhóll Sýningin á Sjónarhóli var tekin saman af Paulu Cooper galleríinu í New York með aðstoð Serranos, hef- ur verið í undirbúningi í tæp tvö ár og eru verkin á henni komin frá þrem- ur heimshornum. Hér er enda á ferð- inni þekktasta sería Serranos fram til þessa. Myndirnar (The Morgue Series) er úr líkhúsi í nágrenni New York. Tímarit • TÍMARIT Máls og menningar, 2. hefti 1996 er komið út. Meðal efnis er grein um tónskáld af yngri kynslóðinni, Þorstein Hauksson, og viðtal við ungan jazzgítarleikara, Hilmar Jensson. Ljóðskáld sem birta efni í TMM nú eru Nína Björk Árnadóttir, Kjart- an H. Grétarsson, Guðbrandur Sigla- ugsson og Árni Bergmann, auk sló- vensku skáldkonunnar Makarovic og bandarísku skáldanna Patchen og Creeley. Landi þeirra, bandaríska skáldkonan Alice Walker, á smásögu í tímaritinu og einnig Guðbergur Bergsson. Gyrðir Elíasson ritar grein um blindan ritsnilling, Skúla Guðjónsson frá Ljótunnarstöðum, Ólafur Sveins- son skrifar grein um menningará- standið í Þýskalandi eftir sameining- una og Gísli Sigurðsson fjallar um strauma og stefnur í bókmennta- gagnrýni undanfarinna ára. Jóhann Páll Árnason er íslenskur heimspekingur sem hefur verið bú- settur í Ástralíu undanfarna áratugi. í nýrri grein veltir fyrir sér því sem hann kallar „20. öldina hina styttri". Ágúst Þór Árnason ritar stutta kynn- ingu um Jóhann Pál. Steinunn Sigurðardóttir segir í viðtali við Úlfhildi Dagsdóttur frá tilurð bókarinnar Hjartastaðar og hugmyndum sínum um skáldskapinn og rithöfundarstarfið. Loks eru umsagnir um bækur. Tímarit Máls og menningar, 2. hefti 1996 er 136 bls. Sigurborg Stefánsdóttir gerði kápumyndina. TMM kemur út fjórum sinnum á ári og kostar árs áskrift 3.300 kr. auk þess sem það er selt ílausasölu. Rit- stjóri TMM er Friðrik Rafnsson. Allir hafa að utboðum vegum ríkisi aðgang Sum á tekUt U' ' ríVásTe^st^ .-.no'va ^ e'UkaVS Vegan undti^6 oiaðsa^a t.6intWVg^'að tíaitftússvjón'ls ****rZ~>~**~ tyttf reg\UfO«'ítan , . _..rtós' áantvanhaf’ . rn6ut af ,hefuta"n öðfunvte^- 'VV umevn^-ð'’,g"U,u\stó.Gó^f Wka 1 stóef 06 slaðfesva ^ svtg,vð svótv stó að f'j"va svai fdumei-'^ðÍn8M' FramW'ndanet" m lítboð á ríkisrekstri Kynntu þér rétt þinn við útboð á rík ‘íum í ríkiseign, tryggja rekstri. jafnan rétt og jafnt Verkiagsreglurnar fást hjá fjármáfa* ráðuneytinu og verðbréfafyrirtækjuni. Reglurnar eyða jafnframt þeirri óvissu sem oft heftir fylgt mismunandi aðferð um við útboð. tækifæri til þát I n - ,*C t Jt. , - «- “'*>* m ... m __ Jatn retlur - pitt taektfæri FRAMKVÆMDANEFND UM EINKAVÆÐINGU Símaskráin 1996 er komin út föstudaginn 31. maí. lUýfa símaskráin tekur gildi Mundu eftir afhendingarmidanum og náðu í nýju símaskrána strax í dag I wýi a símaskráin -útbreiddasta bók á íslandi POSTUR OG SÍMI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.