Morgunblaðið - 31.05.1996, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
T j i I i é" .A f w ([>&/ (yj s ÆL....I \ tSfe Jfr ^SMACKl 0 T
2 § 0 J?M PAVfð 11-26
Tommi og Jenni
Ljóska
i'flrrO) ( þAP £(? HANPA-'
m/S LA USAe T/L AO OSKfl
flCUfl/ T/L HAM/NGTU MBO
svesw FJÓXA /HAUU0/NA t „
e/S/N WbS/c/PTUM /flTÍJL
WOAT V/LTV L/TLAFOSL
FCA V/NALE6AK /HÝS eOA
SÆTAK KA/Zl'NU/9 P j7/i
Ferdinand
Smáfólk
r PIPWHAT YOU
SAlP, 016 BROTHER..
I'VE 0EEN W0RRVIN6
ABOIIT EVERVTHIN6
Ég gerði eins og þú
sagðir, stóri bróð-
I EVEN
UJORRIEP
A0OUT
VOU..
I WORRIEPTHAT VOULL
NEVER AMOUNT TO ANVTHIN6,
ANP VOU'LL MARRV THE
UIR0N6 6IRL ANP ALL
VOUR KID5 UJILL 0E 5TUPIP..
WELUITHWK
l'M 5TARTIN6
TO GET A
LITTLE 5LEEPV..
I 6UE55 I LL
JU5T LIE HERE
ANP LUORRV..
meira að Ég hafði áhyggjur af því að Jæja, ég held að
segja af það yrði aldrei neitt úr þér, ég sé að byija
Ég ligg víst bara hér
og hef áhyggjur ...
ir . . . ég hef verið að þér ... og að þú giftist rangri stelpu að verða dálítið
hafa áhyggjur af og að öll börnin þín yrðu syfjuð...
öilu ...
aular...
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329
• Netfang: laugaÞmbl.is
Reykjavíkurlistinn
stendur sig vel
Frá Bergþóri Bjarnasyni:
ÉG LAS það á dögunum þegar
mér barst Morgunblaðið hingað til
Parísar að Árni Sigfússon oddviti
D-listans í borgarstjórn boðaði það
að ef Sjálfstæðisflokkurinn kæm-
ist aftur til valda myndu skattar
lækka, skuldir borgarinnar
minnka, þjónustan batna og ráð-
stöfunartekjur heimilanna aukast.
Síðan hef ég nokkuð velt fýrir
mér hagspeki sjálfstæðismanna og
dottið í hug að reyna að fá aðstoð
þessara manna við heimilisbók-
haldið hjá mér!
En svo talað sé í alvöru þá er
í raun varla boðlegt að hlusta á
fulltrúa D-listans tala með þessum
hætti, flokkurinn réði ríkjum hér
í borginni í hálfa öld og skildi
þannig við að fjárhagur borgarinn-
ar var ein rjúkandi rúst þrátt fyr-
ir að allar forsendur hafi verið
hagkvæmar og borgin átt að geta
blómstrað ef rétt hefði verið á
málum haldið. Nú koma þessir
menn fram og tíunda allt sem
þeir vildu gert hafa en gerðu bara
ekki. Hversu trúverðugur er þessi
boðskapur í ljósi þess að á síðasta
kjörtímabili jukust skuldir borgar-
innar að jafnaði um 2,2-2,4 millj-
arða á ári. Borgarstjóri, Ingibjörg
Sólrún, hefur upplýst að tekist
hafi að draga verulega úr skulda-
söfnun borgarinnar og að ný
vinnubrögð eru viðhöfð í Ráðhús-
inu en áður tíðkaðist. Hver hefði
trúað þvi að allt til ársins 1994
hafi nútíma lánastýring ekki
þekkst hjá þessu stærsta fyrirtæki
landsins, Reykjavíkurborg, og
meira og minna verið keyrt á yfir-
drætti í bönkum á hæstu vöxtum?
Ótrúlegt en þó satt. Ég er hrædd-
ur um að þetta sé einkennandi
fyrir þá fjármálastjórnun sem
Sjálfstæðisflokkurinn viðhafði og
leiddi til þess viðskilnaðar sem
raun ber vitni. Þess vegna er
ástæða til þess að láta ekki glepj-
ast af lýðskrumi og fögrum orð-
um. Reykjavíkurlistinn var sann-
arlega ekki öfundsverður af því
að taka við svo skuldsettu búi og
vel hefði mátt búast við að erfitt
gæti reynst að standa við kosn-
ingaloforð og hugsjónir við þessar
aðstæður. En það verður að segja
meirihlutanum í borgarstjórn til
hróss að honum hefur tekist að
taka vel til hendinni og stórnar-
hættir hans lofa góðu um fram-
haldið. Sjálfstæðismenn ættu að
sjá sóma sinn í því að láta áfram
lítið fyrir sér fara eins og mér
virðist af því að fylgjast með
umræðunni í dagblöðum, en hér á
norræna bókasafninu í París ligg-
ur Morgunblaðið frammi og stund-
um DV.
BERGÞÓR BJARNASON,
Chez Roggeri, 72, rue Louis Blanc,
75010 París, Frakklandi.
Oryggislykla-
kippur VARA
Frá Viðari Ágústssyni:
VARI hefur frá árinu 1992 selt
lyklaklippur með skráningarnúm-
eri sem eru þannig að skilvís
finnandli slíkrar lyklakippu getur
látið VARA vita eða skilað henni
í næsta póstkassa og berst hún
þá VARA. Skráningarnúmerið í
gagnagrunni VARA vísa svo á
réttan eiganda lyklakippunnar,
VARI lætur hann vita og eigand-
inn getur vitjað hennar til VARA
eða finnanda. Yfir 1.000 lykla-
kippur bera nú merki VARA og
hver sitt skráningarnúmer sem í
tölvuskrám VARA vísar til eig-
anda og staðgengils í fjarveru
hans. Margar lyklakippur hafa
þannig komist til skila og endur-
fundirnir orðið til að gleðja eigend-
urna.
Þessi gangur mála er þó því
aðeins virkur að eigandi lyklakipp-
unnar hafi skilað VARÁ upplýs-
ingum um hvert á að hringja ef
lyklakippan berst VARA. A því
er nokkur misbrestur að eigendur
lyklakippanna hafi látið VARA
vita hver er eigandi hvers skrán-
ingarnúmers en þar sem þær
lyklakippur týnast jafnt og aðrar
og berast með póstinum til VARA,
hafa safnast nokkrar lyklakippur
sem ekki er hægt að koma til skila.
Eigendum VARA-lyklakippa, sem
nú sakna þeirra, er bent á að
mögulegt er að þær hafi borist til
VARA. Þeir geta hringt í VARA
í síma 552-9399 til að spyijast
fyrir um hvort þeirra lyklakippa
hafi skilað sér.
Þeir eigendur VARA-lyklakippa
sem (enn) hafa ekki týnt þeim en
eiga eftir að skila skráningarblaði
til VARA er hér með bent á að
gera það hið fyrsta. Jafnframt er
þeim bent á að eigi þeir ekki
skráningarblaðið geta þeir fengið
það sent eftir beiðni í síma
552-9399.
VIÐAR ÁGÚSTSSON,
framkvæmdastjóri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.