Morgunblaðið - 13.06.1996, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Útflutningsskólinn
settur á Sauðárkróki
Sauðárkróki - Sumarskóli Út-
flutningsskólans var settur í fyrsta
sinn síðastliðinn mánudag í fyrir-
lestrarsal Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra á Sauðárkróki.
I ræðu sinni gerði Sigurður
Ágúst Jensson verkefnisstjóri
skólans grein fyrir stofnun og til-
urð skólans, og rakti undirbúning
að því að þessu verkefni var hrund-
ið í framkvæmd.
Frá upphafi hefur danski Út-
flutningsskólinn í Herning á Jót-
landi verið til ráðuneytis og í sam-
starfi við heimamenn varðandi
uppbyggingu skólans og er
kennsluefni frá honum að megin-
hluta til uppistaðan í námsefni
skólans, auk þess sem skólastjóri
og aðstoðarskólastjóri, ásamt
þremur af aðalkennurum þess
skóla, mun koma að kennslunni.
Morgens Blume-Schmidt skóla-
stjóri Danska skólans iýsti ánægju
með að hafa tekið þátt í að koma
skólanum af stað og einnig því
að vera nú hingað kominn við
upphaf skólastarfs, en hann mun
kenna næstu þrjá daga og er hann
fyrstur hinna erlendu fyrirlesara
sem að skólanum koma að þessu
sinni.
Aðrir kennarar og fyrirlesarar
eru flestir tengdir atvinnulífínu og
fræðslugeirum þess, og má þar
nefna til dæmis Jón Asbergsson
frá Útflutningsráði, Pál Gíslason
Morgunblaðið/Bjöm Björnsson
MORGENS Blume-Schmidt
ávarpaði nemendur við setn-
ingu Útflutningsskólans.
frá IceCon, Karl Friðriksson frá
Iðntæknistofnun, Þór Sigfússon
hagfræðing og Árna Sigfússon frá
Stjómunarfélaginu svo einhveijir
séu nefndir.
Þórólfur Gíslason kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Skagfirðinga
ávarpaði gesti, en Þórólfur er einn
af frumkvöðlum þess að koma
Útflutningsskólanum á laggirnar
og hefur frá upphafi verið í undir-
búningsnefnd um stofnun skólans
ásamt þeim dr. Þorsteini I. Sigfús-
syni prófessor og dr. Vilhjálmi
Egilssyni alþingismanni og fram-
kvæmdastjóra Verslunarráðs ís-
lands. Megináhrsla í skólastarfinu
verður lögð á kennslu í alþjóðleg-
um samskiptum, markaðsstarf al-
mennt og starf á ólíkum menning-
arsvæðum. Jafnramt mun verða
sinnt þáttum eins og viðskipta-
bréfum, kynningarmálum, mark-
aðsrannsóknum, funda- og samn-
ingatækni svo nokkuð sé nefnt.
Fjölmargir aðilar hafa stutt
stofnun skólans og má þar nefna
Búnaðarbankann, Verslunarráð
íslands, Íslenskar sjávarafurðir,
Kaupfélag Skagfirðinga, Sölumið-
stöð Hraðfrystihúsanna, Stein-
ullarverksmiðjuna, Fiskiðjuna
Skagfirðing auk þess sem Sauðár-
krókskaupstaður og Héraðsnefnd
Skagfirðinga hafa verulega lagt
málinu lið, og síðast en ekki síst
ber að geta um þátt Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra, sem auk
þess að leggja skólanum til hús-
næði og allan búnað sem þarf til
skólahaldsins þar með talið mjög
fullkomið tölvuver, hefur veitt
ómetanlega aðstoð á flestum svið-
um.
Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir
SVANDÍS Jóhannsdóttir, formaður sóknarnefndar Drangsneskap-
ellu, tekur við gjafabréfi fyrir nýjum altarisdúk úr hendi Guðbjarg-
ar Einarsdóttur.
Drangsneskapellu færð-
ur nýr altarisdúkur
Drangsnesi - Guðbjörg Einars-
dóttir hefur saumað og gefið
Drangsneskapellu altarisdúk til
minningar um foreldra sína, Helgu
Soffíu Bjarnadóttur og Einar Sig-
valdason, en þau hefðu bæði orðið
100 ára á þessu ári.
Guðbjörg hefur varið miklum
hluta síðasta vetrar við að sauma
dúkinn, sem er hinn vandaðasti
af allri gerð, saumaður út í harð-
angur og klaustur sem kallað er.
Dúknum hefur verið komið fyrir á
altari Drangsneskapellu.
FORSETAKOSNINGAR 1996
„ Tökumfotystum
IÞÁGU FRIÐAR
Friðarvaka
í Ráðhúsi Reykjavíkur
í kvðld kl. 21.00
ÁstþórMagnússon og stuðningsmenn friðar halda
friðarvöku iRáðhúsi Reykjavíkur ikvöldkl. 21.00.
Blysför verðurað Dómkirkju Reykjavíkur og stutt
athöfn þarað fundi loknum.
Allir velkomnir.
Stuðningsmenn friðar.
^SA Sð ^
.ui'OFA: TKYGGVA0TU;6,2. IIÆD. 101 REYpÍK,
SIMI552-2009. SIMBREF 552-2024.
NETFANG: httpy/www.peace.isy/forseti.html
;■ i \(: H | i ;; 1 I