Morgunblaðið - 13.06.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ1996 25
ERLENT
Sljórn Görans Perssons í Svíþjóð
Atvinnuskapandi
aðgerðir kynntar
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Gagnrýna
Iraka
BRETAR og Bandaríkjamenn
hafa lagt fram drög að ályktun
í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna þar sem írakar eru for-
dæmdir fyrir
að hindra
eftirlitsmenn
SÞ í að
kanna hern-
aðarbæki-
stöðvar í
samræmi við
vopnahlés-
samninga.
Tareq Aziz,
aðstoðarfor-
sætisráðherra Iraka, hefur sagt
að eftirlitsmennirnir muni ekki
fá að kanna staði sem taldir
séu skipta sköpum fyrir öryggi
og sjálfstæði landsins. Fyrir
skömmu var ákveðið að slaka
á viðskiptabanninu gegn írak
og leyfa ríkinu að flytja út
nokkurt magn af olíu til að
afla fjár til matvælakaupa.
21 fórst er
hús hrundi
ÍBÚÐARHÚS hrundi í borginni
Hyderabad í Pakistan í gær og
var talið að 21 hefði farist og
25 slasast. Slysið varð um
fimmleytið að morgni og voru
fórnarlömbin flest konur og
börn; karlar sváfu margir á
götunni vegna mikilla sumar-
hita. Um 150 manns bjuggu í
húsinu.
Flestir deyja
úr alnæmi
ALNÆMI er orðið algengasta
dánarorsökin meðal ungra og
miðaldra karlmanna í Kaup-
mannahöfn. Einn af hveijum
íjórum deyr úr alnæmi, að því
er segir í tímariti danskra
lækna. Fram kemur að ástand
þessara mála í Kaupmannahöfn
er nú orðið líkt því sem verst
gerist í bandarískum borgum.
Þrír teknir
fyrir njósnir
ÍRANIR greindu frá því á
þriðjudag að þeir hefðu hand-
tekið þijá menn fyrir „hernað-
arnjósnir“ á vegum bandarísku
leyniþjónustunnar (CIA). Út-
varp í Teheran hafði þetta eftir
yfirmanni íranska herdómstóls-
ins. Sagði hann að mennirnir
kæmu fyrir rétt innan tíðar,
meðal annars ákærðir fyrir að
hafa haft samband við ónefnt,
erlent sendiráð.
600 þúsund
deyja af
barnsförum
EIN af hveijum fjórum konum
í þróunarlöndunum deyr eða
hlýtur varanlegan skaða af
barnsförum, að því er fram
kemur í skýrslu sem Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF) hefur birt. Fram
kemur, að á hveiju ári látist
allt að 600 þúsund konur af
ástæðum sem rekja megi til
barnsburðar eða barnsfæðinga.
Er þetta um 20% hærri tíðni
en áður hefur verið áætlað. í
skýrslunni er hvatt til tafar-
lausra aðgerða svo vekja megi
heimsbyggðina til meðvitundar
um þennan vanda.
GORAN Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, kynnti á þriðjudag nýjar
ráðstafanir til að auka atvinnu og
draga úr atvinnuleysi, en stjórn
hans stefnir að því að það fari úr 8
í 4 prósent árið 2000. Dregið verð-
ur úr umsvifum
ríkiskerfisins sem
hefur umsjón með
atvinnumiðlun og
henni verður sinnt
í bæjarfélögunum.
Skattabreytingar
eiga að létta
skattbyrði lítilla
fyrirtækja, breyt-
ingar verða á at-
vinnuleysisbótum
og menntunartækifæri verða auk-
in.
Tillögurnar hafa verið unnar í
samráði við Miðflokkinn, sem þar
með tengist stjórninni nánar en
áður. Alþýðusambandið sænska
hefur ekki verið haft með í ráðum
og þaðan heyrast gagnrýnisradd-
ir. Hjá samtökum atvinnurekenda
er bent á að hér sé horfið til
tveggja áratuga gamalla hug-
mynda, því þó dregið sé úr ríkis-
umsvifum, séu umsvif bæjarfé-
laga aukin.
Arbetsmarknadsstyrelsen, sem
er ríkisstofnun er hefur yfirumsjón
með atvinnumiðlun um allt land,
verður skorin niður um helming,
eins og þegar var ákveðið, en þess
í stað verða umsvif bæjarfélaganna
á þessu sviði aukin til að draga
úr miðstýringu. Um leið verður
bætt við störfum í bæjarfélögunum
og því eiga atvinnuleysingjar eldri
en 55 ára að njóta góðs af, en fjöru-
tíu þúsund þeirra eiga að fá vinnu
í bæjarfélögunum.
Boðið verður upp á aukin mennt-
unartækifæri og nám á bótum, en
um leið verða hertar kröfur til að
bætur fáist úr atvinnuleysissjóð-
um, svo ungt fólk fái sér annað-
hvort vinnu eða fari í nám, líkt og
gert hefur verið í Danmörku. Til
að auka atvinnu og bæta umhverfi
stendur til boða að greidd verði
15-30 prósent kostnaðar vegna
umhverfisbætandi aðgerða, eink-
um hvað varðar skólplagnir. Á
stærri mælikvarða verður fé veitt
til samvinnu við Eystrasaltslöndin
og umhverfisbætandi aðgerða þar,
en enn er óljóst hvernig því verður
háttað.
Til að auka eftirspurn eftir bílum
verða skattar á nýjum bílum lækk-
aðir, en jafnframt hækkar þunga-
skattur. Stimpilgjöld verða lækkuð
til að örva fasteignamarkáðinn.
Tóbaksskattur verður hækkaður
um 15 prósent. Atvinnurekenda-
skattur verður lækkaður að vissu
marki og kemur það einkum litlum
fyrirtækjum til góða.
Miðflokkurinn meðábyrgur
Hið síðastnefnda hefur verið
hjartansmál Miðflokksins og lýsti
formaður hans Olof Johannsson
ánægju með tillögurnar. Hingað
til hefur flokkurinn aðeins stutt
stjórn jafnaðarmanna, en var nú
hafður með í ráðum, svo flokkurinn
er einnig meðábyrgur.
Gagnrýnisraddir heyrast bæði
frá samtökum atvinnurekenda og
frá Alþýðusambandinu, þar sem
menn eiga því að venjast að stjórn
jafnaðarmanna hafi þá með í ráð-
um. í þingflokknum hefur einnig
verið nokkur ólga vegna ráðstafan-
anna, því hann telur sig ekki hafa
haft nægilega mikið um þær að
segja. Persson forsætisráðherra
heldur fast við að annað sé ekki
að gera í stöðunni og að allir finni
eitthvað við sitt hæfi í ráðstöfunun-
um.
Nýja Sjáland
Mega sofa í
stjórnklef-
anum
Auckland. Reuter.
FLUGMÖNNUM hjá Flugfélagi
Nýja Sjálands hefur verið veitt
leyfi til þess að leggja sig í stjórn-
klefanum þegar þeir fljúga milli-
landaflug, að því er fram kemur
í blaðinu New Zealand Herald.
Á minnisblaði frá yfirmönnum
félagsins til starfsfólks þess segir,
að betra sé að „einn flugmaður
sé sofandi þegar lítið er að gera
í stjórnklefanum heldur en að
tveir, eða allir séu sofandi."
Þá segir að hjá öllum flugfélög-
um gerist það stöku sinnum, án
þess nokkuð eftirlit sé haft með
því, að flugmenn fái sér blund í
stjórnklefanum. Flugfélag Nýja
Sjálands vilji fremur veita leyfi til
slíks og að það verði þá gert und-
ir eftirliti.
Flugmönnum verður heimilt að
sofa í hálfa klukkustund á leiðum
til áfangastaða sem eru fjarlægari
en Ástralía, eða um þriggja stunda
flug. Ætíð skuli að minnsta kosti
einn flugmaður vera vakandi.
Stéttarfélag flugmanna hefur
látið í ljósi áhyggjur af hættu sem
af þessu kunni að stafa. Bendir
formaður þess á, að það taki
mann nokkurn tíma að vakna til
fulls. í hugmynd flugfélagsmanna
er gert ráð fyrir að mönnum gef-
ist fimmtán mínútur til þess að
vakna vel.
Aziz
Göran
Persson