Morgunblaðið - 13.06.1996, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMINGAR
FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ1996 45
INGVAR
AGNARSSON
+ Ingvar Ag-narsson fæddist í
Stóru-Ávík í Árneshreppi á
Ströndum 8. júní 1914. Hann
lést á Landakotsspítala í
Reykjavík 23. maí síðastliðinn
og fór útförin fram frá Foss-
vogskirkju 5. júní.
„Góður vinur gulli betri.“ Þetta
sígilda spakmæli geri ég nú að yfir-
skrift fátæklegra minningarorða er
ég kveð hinstu kveðju heiðursmann-
inn Ingvar Agnarsson er lést 23.
maí sl.
Fyrir tæpum þremur áratugum
urðu eiginmaður minn og ég þeirrar
gæfu aðnjótandi að kynnast þeim
sæmdarhjónum Ingvari og konu
hans, Aðalheiði Tómasdóttur, og
öðlast vináttu þeirra. Margar dýr-
mætar perlur eru geymdar í sjóði
minninga frá samverustundum okk-
ar á liðnum árum.
Hátíð var í ranni hvert skipti sem
þau hjónin sóttu okkur heim. Þá
var oft farið að þeirra frumkvæði
í skoðunarferðir um ijölskrúðugar
söguslóðir Reykjanesskagans og
þess notið ríkulega.
Á fallegu heimili þeirra hjóna
áttum við einnig margar hugljúfar
samverustundir þar sem gestrisni
og góðvild sátu í öndvegi. í þeim
heimsóknum buðu þau okkur meðal
annars í ökuferðir og sýndu okkur
ýmsa merka staði, s.s. Árbæjarsafn,
Bessastaði, listasöfn þjóðkunnra
íslendinga og margt fleira sem er
mér ógleymanlegt.
Ingvar var íjölgáfaður listamað-
ur. Ljóðagerð lék honum á tungu
og sköpun fagurra myndverka í
hans höndum. Hann kunni að mæla
á tungu margra þjóða og var einn-
ig víðlesinn og fróður:
Vor eitt málaði hann utan á hús
mitt mynd af æskustöðvum mínum
norður við Húnaflóa, fagurt lista-
verk sem var ekki einungis mitt
HELGA KRISTÍN
JÓNSDÓTTIR
+ Helga Krlstín
Jónsdóttir
fæddist í Reykjavík
18. desember 1955.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
30. maí síðastliðinn
og fór útförin fram
frá Hallgríms-
kirkju 6. júní.
í dag minnist ég
systur minnar, Helgu
Kristínar Jónsdóttur,
sem varð að lúta í lægra
haldi fyrir illvígum
sjúkdómi. Við svona at-
vik eru svo margar minningar, sem
koma upp í hugann og myndir sem
verða ljóslifandi í minningunni. Bros-
ið hennar blíða og milda með glettnis-
glampa í augum, styrkurinn og skap-
festan, sem streymdu út frá Helgu
og ástin ótakmörkuð. í dag finnum
við fyrir lífsstarfí hennar og þeim
áhrifum, sem það hafði á lífshlaup
þeirra sem hún lifði og starfaði með,
ekki síst á dæturnar
hennar ungu og yndis-
legu, þær Lísu okkar og
Lindu. Allir þeir góðu
eiginleikar er Helga
hafði til að bera eru
endurbomir í dætrunum
hennar.
Ástúð hennar og
umhyggja fyrir fjöl-
skyldu sinni var skilyrð-
islaus, hrein og bein og
alltaf til staðar.
Elsku systir, þú barð-
ist hetjulegri baráttu við
banvænan sjukdóm og
gafst aldrei upp. Einnig
það er greypt í minn-
ingu okkar.
Við sjáumst síðar, kæra systir, en
þangað til sé ég þig í sólskini drauma
minna.
Með ástarveðju, elsku systir mín,
og hafðu þökk fyrir allt sem þú varst
mér og mínum.
Minningin lifir þótt lífi Ijúki.
Þín systir,
Hulda.
CLINIQUE
Bónus dagar
í versluninni Söru
dagana 13.-20. júní
CLINIQUE
/'"'Í Snyrtivöruverslunin
Bankastræti 8, síiní 5513140
augnayndi heldur einnig margra
vegfarenda sem áttu leið hjá og
ýmsir festu það á filmu og höfðu
með sér á braut. Já, það er margs
að minnast og mikið að þakka.
Hér að lokum:
ÞORVALDUR
ÞORKELSSON
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi
og gæfa var það öllum er fengu að kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Blessuð sé minning Ingvars Agn-
arssonar.
Elsku Aðalheiður mín, Sigurður,
Ágústa og íjölskylda, ég votta ykk-
ur mína dýpstu samúð. Algóður guð
blessi ykkur öll og styrki á sorgar-
stund og um framtíð alla;
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Vöktu fyrrum
hjá vöggu þinni
himins heilladísir,
lögðu þér í lófa
ljúfar gjafir
og skópu örlög ævi.
Lögðu þér í lófa
ljúfar gjafir
dísir hulins heima:
Ljóðstafi á varir,
líknstafi á tungu,
fljóta hönd til hjálpar,
ástúð í augu,
eld í hjarta,
styrk og mildi í muna,
samúð í sál
og sólarbirtu,
dáð í dagsins önnum.
Bind ég blómsveig
bestu óska
völdum dreng og vini.
Hjartans þakkir:
Heillir allar
varði þinn veg og greiði.
Ólöf J. Jónsdóttir.
+ Þorvaldur Þor-
kelsson var
fæddur á Rauðanesi
á Mýrum 10. janúar
1911. Hann lést á
Sjúkrahúsi Akra-
ness 3. júní síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Þorkell Þor-
valdsson frá Litlabæ
á Mýrum og Ing-
veldur Guðmunds-
dóttir frá Ferju-
bakka. Systkin Þor-
valds voru sex tals-
ins og tvö hálfsystk-
in. Ein systir hans
er á lífi, Jórunn, f.
1. okt. 1913, búsett í Reykjavík.
29. desember 1947 kvæntist
Þorvaldur Sigríði Ingólfsdóttur,
frá Grænanesi í Norðfirði, f. 23.
júní 1912, d. 4. júlí 1991. Bjuggu
þau að Lundi í Þverárhlíð í
Borgarfirði og síðar
að Presthúsabraut
22 á Akranesi. Börn
þeirra eru: 1) Torf-
hildur, f. 11. júlí
1942, d. 4. des. 1993,
maki Ragnar Guð-
mundsson, búsettur
í Vestmannaeyjum,
eiga þau fjögur
börn. 2) Arndís, f.
24. apríl 1945, maki
Sæbjörn Eggerts-
son, búsett á Egils-
stöðum, eiga þau
fjögur börn. 3) Val-
borg, f. 6. maí 1947,
maki Hörður Ósk-
arsson, búsett á Akranesi, eiga
þau fjögur börn. Barnabarna-
börnin eru 14 talsins.
Utför Þorvalds verður gerð
frá Akraneskirkju í dag og hefst
athöfnin kl. 14.
Hjá mætum manni er nú ævin öll
og er kominn til efri heima, til konu
sinnar Siggu og Tollu dóttur sinnar.
Langar mig með fáum orðum að
minnast Valda gamla, afa Valda
mannsins míns, sem ólst upp að
hluta hjá honum og ömmu sinni á
Presthúsabrautinni.
Þegar við Valdi yngri vorum að
rugla okkar reytum saman, bjuggum
við úti á landi og hafði ég þá ekki
verið kynnt formlega fyrir fjölskyld-
unni. Þegar sá gamli fékk einhvern
pata af því varð hann ekki í rónni
fyrr en hann frétti nafn mitt. Sendi
hann Valda sínum lítið vélritað bréf,
sem mikil vinna lá í fyrir marga
þumla, og þar var ættartré mitt
komið á blað.
Þetta litla bréf snerti okkar innstu
rætur og opnaði sjálfkrafa hjarta
mitt fyrir hans einföldu dyggðum,
hugsun og heiðarleika.
Valdi var viskubrunnur um ætt-
fræði landans og viðræðuglaður,
enda stálminnugur og forvitinn að
eðlisfari. Hann var stoltur maður af
sér og sínum, en stór upp á sig ef
því var að skipta.
Matur skipti hann miklu máli og
fékk hann aldrei nóg af góðum ís-
lenskum mat, sérstaklega þorramat.
Því er engin tilviljun að niðjar og
skyldmenni hans hafi menntað sig
í þeirri mætu grein.
Valdi minn, hafðu þökk fyrir góð
kynni og að gefa Valda mínum þau
lífsins gildi er prýða góðan mann.
Megi friður vera með þér.
Fanney Einarsdóttir.
m
Kæru viðskiptavinir,
í tilefni afmælisins
veitum við 20%
staðgreiðsluafslátt á
allri vöru, fimmtudag,
föstudag og laugardag.
TISKUVERSLUN
Kringlunni 8-12
sími 553 3300