Morgunblaðið - 11.07.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1996 41
NOEL KRISTINN
MATTHEWS
+ Noel Kristinn
Matthews fædd-
ist í Jeffersonville í
Indiana 14. desem-
ber 1968. Hann lést
af völdum umferðar-
slyss í Frankfurt í
Þýskalandi 18. maí
síðastliðinn. Fór út-
för hans fram 25.
maí og var hann
jarðsettur í heimabæ
sínum, Charlestown
í Indiana.
Vegna mistaka í
vinnslu féll myndin
af hinum látna niður
við birtingu minningargreinar
um hann á bls. 36-37 í Morgun-
blaðinu í gær, miðvikudaginn
10. júlí, og birtist greinin hér
á nýjan leik. Hlutaðeigendur
eru innilega beðnir afsökunar
á þessum mistökum.
Ég hef sorgarfréttir að segja
þér, sagði mamma við mig í síman-
um, hann Noel litli er dáinn. Kvöld-
ið áður hafði ég talað við Jill og
Dorothy eða Dísu frænku, eins og
við köllum hana, við höfum flissað
og samglaðst yfir ótrúlegu krafta-
verki, Noel hafði vaknað úr meðvit-
undarleysi eftir hræðilegt bílslys og
lífið virtist brosa við honum og þeim
öllum.
Foreldrar og bræður höfðu flogið
til Þýskalands, þar var erfið bið á
meðan beðið var eftir því hvort
Noel myndi vakna og hvað mikið
skaddaður hann væri. Gleðin var
mikil, Noel vaknaði brosti og lék
við hvern sinn fingur. Næstu daga
hresstist hann og gantaðist við
bræður sína, kominn úr lífshættu,
var orðinn rólfær og bræðurnir
kvöddu, sáttir og glaðir og fóru
aftur til Bandaríkjanna. Dísa og
Ronnie ætluðu að vera lengur hjá
Noel og Jill. Þá kom það óvænta,
Noel missti meðvitund og lést
skömmu síðar.
Það er eins og hahn hafi vaknað
til þess eins að kveðja ástvini sína.
Noel var fyrsta barn foreldra
sinna, fjörugur eldrauðhærður
snáði sem ég kynntist fyrst árið
1969 þegar ég dvaldi sumarlangt
hjá Dúdú frænku og passaði Noel
fyrir Dísu og Ronnie.
Eftir sumardvöiina í
Charlestown, í litla
vinalega bænum
hennar frænku
minnar, fór ég heim
til íslands ákveðin í
að fara út aftur strax
næsta sumar, en það
liðu mörg ár þar til
við hittumst aftur.
Árið 1980 kom öll fjöl-
skyldan heim til ís-
lands, Dúdú frænka,
Roger frændi og son-
ur hans, Ronnie og
Dísa með sína íjóra
stráka. Það var gaman þetta sum-
ar. Fjölskyldan dreifðist á heimili
ættmenna hér á Reykjavíkursvæð-
inu og stór bílalest ók til ísafjarðar
að hitta ættingjana þar.
Ronnie, Dísa og strákarnir
bjuggu heima hjá okkur þennan
tíma og Roger frændi og Daimon
hjá Nonna frænda. Það er stutt
milli húsa hjá okkur og við fórum
víða með „körfuboltaliðið“, en
straks þá voru strákarnir farnir að
spila „baseball“ og körfubolta. Mér
leið eins og skátaforingja þegar ég
fór með hersinguna í strætó til að
fara niður að tjörn og gefa öndunum
brauð. Þeir voru ákafir drengirnir
að gefa öndunum, svo ákafir að
Cory, sá yngsti, gekk út í tjörnina
og bamapían varð að hringja eftir
hjálp, þar sem ekki var hægt að
fara með blautan, illa lyktandi
dreng í strætó. Við sögðum þeim
álfa- og tröllasögur, svo miklar að
þeir voru dauðskelfdir í Almannagjá
og sáu tröll alls staðar í hrauninu.
Er þeir fóru frá íslandi þá fóru stór-
ir kassar af hrauni með þeim, sem
þeir ætluðu að sýna og skoða í skól-
anum.
Aftur skildu leiðir í mörg ár,
enda langt á milli okkar en við hitt-
umst aftur í Charlestown og þá var
Noel orðinn táningur sem passaði
fyrir mig. Það var gaman að fylgj-
ast með því hve samheldin fjölskyld-
an var og er. Noel var leiðtoginn
og yngri bræðurnir virtu stóra bróð-
ur sinn og elskuðu. Ef einn átti að
spila leik þá mætti öll fjölskyldan
til að hvetja sinn mann. Engin und-
anbrögð og það hvarflaði aldrei að
MÁNEY
KRISTJÁNSDÓTTIR
+ Máney Kristj-
ánsdóttir var
fædd í Reykjavík
16. maí 1961. Hún
lést þann 29. júní.
síðastliðinn. Máney
var dóttir hjónanna
Rósu Kristínar
Stefánsdóttur og
Kristjáns Röðuls
skálds, þau eru
bæðin látin.
Máney giftist
Garðari Hlíðari
Guðmundssyni f.
16. maí 1962. Börn
þeirra eru Sig-
mundur Bjarki, f. 9. mars 1981
og Rósa Kristín, f. 24. okt.
1985.
Útför Máneyjar fer fram frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn
11. júlí kl. 15.
í dag kveðjum við þig, Máney
mín, okkar hinstu kveðju, þótt ör-
lögin hafi hagað því svo að kynni
okkar hafi ekki verið löng í árum
talið, þá urðum við þeirrar gæfu
aðnjótandi að kynnast þér og börn-
unum þínum, Sigmundi og Rósu
litlu. í þeim skilur þú eftir dýrmæt-
an sjóð. Minningin um þig mun
því lifa áfram í hugum okkar.
Við vitum að þú fékkst ekki
þann tíma sem þú hefðir sjálf kos-
ið til þess að sjá börn-
in þín vaxa úr grasi
og komast til manns.
Sá tími sem þú
hafðir með þeim mun
verða þeim dýrmætt
veganesti, því bæði
með umhyggju þinni
og forsjálni hefur þú
búið þeim það öryggi
er greiða mun götu
þeirra. Verki þínu náð-
ir þú að skila þrátt
fyrir nauman tíma.
Það sem upp í huga
okkar kemur nú er við
minnumst þín er það
hversu lífið er brothætt. Ekki hefð-
um við trúað því að við myndum
sitja hér nú og skrifa um þig minn-
ingargrein. Þú sem ert yngst af
okkur systkinunum. En enginn
veit hvenær kallið kemur.
Kveðjum við þig nú með þínum
orðum „það á ekki að velta sér
upp úr fortíðinni. Það sem er liðið
er liðið og við lifum í nútíðinni og
nútíðin er í raun það eina sem við
höfum“.
Við þökkum þér fyrir liðnar
samverustundir. Sigmundi og
Rósu litlu viljum við að lokum
votta okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Þínar systur,
Stefanía og Björk.
neinum þeirra að vera ekki á staðn-
um til að hvetja bróður.
Það var erfitt fyrir strákana þeg-
ar Noel fór í skóla alla leið til Santa
Barbara, stóri bróðir var allt í einu
farinn að heiman; þar hitti ég Noel
síðast. Hann var orðinn fullorðinn
maður, sem kynnti mig fyrir kær-
ustu sinni, Jill. Ronnie og Dísa voru
í heimsókn með yngsta og nýjasta
meðlim fjölskyldunnar, sem að
sjálfsögðu er enn einn drengur.
Vitaskuld fórum við, ég og sonur
minn, og horfðum á einn leik.
Leið Noels og Jill lá til Þýska-
lands sama ár og þau giftu sig.
Noel hafði verið boðinn árs samn-
ingur. Þessi árs samningur varð svo
til þess að Noel var ráðinn til
Eintrach Frankfurt og var þar á
samningi síðastliðin fjögur ár.
Noel var fæddur leiðtogi, ekki
bara bræðra sinna heldur og ann-
arra unglinga. Hann starfaði mikið
innan kirkjunnar og þar fann hann
sig í leiðtogahlutverki. Útgeislun
og persónuleiki hans höfðuðu til
unga fólksins og hann náði góðum
árangri með unglinga bandarískra
hermanna í Darmstadt, sem áttu
við fíkniefnavandamál að stríða.
Það standa margir í þakkarskuld
við Noel. Margir sem hafa tjáð í
orði og verki þakklæti sitt fyrir störf
hans.
Síðastliðið sumar var ég hjá Dísu
og fjölskyldu, þar voru allir nema
Noel og Jill sem voru í Þýskalandi.
Við Dísa spjölluðum mikið um fyrir-
hugaða íslandsferð í sumar og gæld-
um við þá tilhugsun ef Noel og Jill
gætu komið frá Þýskalandi. I vor
var þó ekki búist við að þau kæmu
þar sem Jill gengur með barn þeirra
sem von er á í nóvember.
Lífið tekur enda, en það er erfitt
að sætta sig við þegar ungur maður
er kvaddur frá konu og ófæddu
barni. Það er sárt fyrir foreldra og
bræður að sjá á eftir ungum, efni-
legum manni. En minningarnar
hjálpa og trúin og þakklætið fyrir
þær samverustundir sem Noel gaf
okkur öllum.
Ég bið algóðan Guð að styrkja
Jill, foreldrana, bræðurna, ömmu
Dúdú, Roger frænda, föðurömmu
og afa, sem og aðra aðstandendur.
Ég kveð hann litla frænda minn
með þakklæti fyrir stundirnar sem
við áttum.
Fyrir hönd ættingja hér heima á
íslandi,
Kolbrún frænka.
í dag kveð ég kæra vinkonu og
mágkonu sem andaðist 29. júní síð-
astliðinn. Margar góðar minningar
á ég um Máneyju sem ekki verða
tíundaðar hér. Eitt stendur þó ofar-
lega í huga mér, hún hafði frá svo
mörgu skemmtilegu að segja og
gerði ávallt mikið grín að sjálfri sér.
Ávallt var Máney tilbúin að
hjálpa öðrum. Hún var vinur vina
sinna.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Með þessum orðum kveð ég þig,
elsku Máney. Hafðu þökk fyrir allt.
Nú hefur þú hitt foreldra þína
aftur og ég trúi því að þér líði vel
hjá þeim.
Elsku Garðar, Sigmundur og
Rósa, ég bið góðan Guð að styrkja
ykkur í ykkar sorg. Megi Guð blessa
minninguna um góða vinkonu.
María Kristín (Maja-Stína).
HALLDORA ELIN
MAGNÚSDÓTTIR
+ Halldóra Elín
Magnúsdóttir
fæddist á Heina-
bergi við Breiða-
fjörð 5. desember
1912. Hún lést á
heimili sínu, Frosta-
skjóli 4 í Reykjavík,
27. júní síðastliðinn.
Utför Halldóru
hefur farið fram í
kyrrþey.
Elsku Dóra. Með
þessum orðum kveð ég
þig eftir stutt en
ánægjuleg kynni. Það
var alltaf gaman að koma til Rósu
og sjá þig sitja við gluggann eins
og drottningu með glettnissvipinn
þinn og ávallt var stutt í húmorinn
og kímnina. Nokkur olnbogaskot
fékk ég frá þér þegar
vel lá á þér og glatt
var á hjalla.
Þú átt góða dóttur
sem umvafði þig hlýju
og væntumþykju alla
tíð og var samband
ykkar sérstaklega náið
síðustu 16 árin og á
hún þakkir skildar.
Nafna Dóru og dóttur-
dóttir hefur verið
hennar augasteinn alla
tíð, enda var Cherie
Dóra henni alveg sér-
staklega góð og skein
væntumþykja frá
henni þegar þær nöfnurnar voru
saman. Þær mæðgur eiga nú um
sárt að binda, en ég veit að Guð
er með þeim og veitir þeim styrk.
Eva Hjalta.
t
Elskulegur bróðir, mágur og frændi,
TÓMAS JÓNSSOIM
frá Arnarstöðum,
lést í Texas, Bandaríkjunum, þar sem hann bjó, þann 9. júlí sl.
Systkini hans
og fjolskyldur á íslandi.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSTRÍÐUR TORFADÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
laugardaginn 6. júlí.
Jarðsett verður frá Akraneskirkju föstu-
daginn 12. júlí kl. 14.00.
Birgir Hannesson, Laufey Kristjánsdóttir,
Jón Hannesson, Birna Kristjánsdóttir,
Svala ívarsdóttir,
börn og barnabörn.
t
Sambýlismaður minn,
ÁSVALDUR STEINGRÍMSSON,
Dvergabakka 12,
andaðist í Landspítalanum mánudaginn 8. júlí.
Útförin fer fram frá Breiðholtskirkju miðvikudaginn 17. júlí
kl. 13.30.
Anna Sólveig Gunnarsdóttir.
t
EINAR KRISTJÁNSSON
frá Hermundarfelli,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 15. júlí
kl. 16.00.
Guðrún Kristjánsdóttir,
Angantýr Einarsson, Auður Ásgrímsdóttir,
Óttar Einarsson, Jóhanna Þorsteinsdóttir,
Bergþóra Einarsdóttir, Eyjólfur Friðgeirsson,
Einar Kristján Einarsson,
Steinar Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minnismerki úr steini
Steinn ér kjörið efni í allskonar minnismerki. Veitum
alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki.