Morgunblaðið - 11.07.1996, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1996 47
FRÁ styrkveitingunni: F.v.: Petrína Þorsteinsdóttir, sem veitti
styrknum viðtöku fyrir hönd Stellu Hermannsdóttur, Þjóðbjörg
Guðjónsdóttir, Ásgeir Þorsteinsson, formaður sjóðssljórnar og
Stefán Hreiðarsson, forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafar-
stöðvar ríkisins.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
Uthlutað úr
styrktarsjóði
A XI vornámskeiði Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins í Há-
skólabíói nýverið var í fyrsta sinn
úthlutað úr styrktarsjóði stofnun-
arinnar. Styrk hlutu Stella Her-
mannsdótitr til framhaldsnáms í
talmeinafræði í Svíþjóð og Þjóð-
björg Guðjónsdóttir til framhalds-
náms í sjúkraþjálfun í Bandaríkj-
unum. Ennfremur var veittur
styrkur til að taka saman fræðslu-
efni um sjúkdóminn Tuberous scle-
rosis.
Styrktarsjóður Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins til minn-
ingar um Þorstein Helga Ásgeirs-
son var stofnaður fyrir réttu ári.
Tilgangur hans er að veita styrki
til símenntunar og fræðilegra
rannsókna á sviði fatlana barna
með það að leiðarljósi að efla fræði-
lega þekkingu og faglega þjónustu
við fötluð börn og fjölskyldur
þeirra. Hefur starsfólk Greiningar-
og ráðgjafarstöðvar ríkisins að
jafnaði forgang við styrkveitingar
úr sjóðnum, sem fara munu fram
árlega.
Sjóðnum hefur borist fjöldi
framlaga, bæði frá félögum og ein-
staklingum, en tekna er einnig
aflað með sölu minningarkorta.
Þeim sem vilja styrkja sjóðinn, með
minningargjöfum eða öðrum hætti,
er bent á að snúa sér til Greining-
ar- og ráðgjafarstöðvarinnar,
Digranesvegi 5, Kópavogi eða
Breiðholtsapóteks, Mjóddinni.
Fimm ráð
gegn fíkni-
efnum
SAMSTARF Vímulausrar æsku,
foreldrasamtaka, Fræðslumið-
stöðvar í fíknivörnum (FRÆ) og
IUT - æskulýðssamtaka um átak
til að fyrirbyggja eiturlyíjaneyslu
unglinga á útihátíðum, er að hefj-
ast. Átakið nefnist 5 ráð gegn
fíkniefnum - líf barnsins er í húfi
°g byggir á áskorun og ráðgjöf
til foreldra unglinga. Fjölmiðla-
kynning, auglýsingar og bækling-
ur, sem allir foreldrar 14-15 ára
unglinga fá sent, verður uppistað-
an í átakinu en auk þess mun
væntanleg umræða kalla til fleiri
aðila sem hafa með málefni ungl-
inga að gera, segir í fréttatilkynn-
ingu sem Morgunblaðinu hefur
borist.
Ennfremur segir: „Yfír sumar-
tímann eru ungmenni utan aðhalds
skóla, hafa meira fé milli hand-
anna og leita uppi fjör og ævin-
týri. Þá byija margir unglingar
að ne^rta ólöglegra fíknefna í skjóli
útihátíða sem oft endar með sorg-
legum hætti. Um síðustu áramót
létust tvö ungmenni vegna neyslu
á E-pillunni sem þau komust fyrst
í kynni við á útihátíðum, það sama
ár.
Fjölmiðlar skýrðu frá því að
eftir síðasta sumar hafi „dóp flætt
um landið“ og margir unglingar
prófað þá í fyrsta sinn eiturlyf.
E-pillan er með hættulegustu efn-
um sem seld hafa verið sem fíkni-
efni, líkamlegar og andlegar af-
leiðingar af neyslu hennar eru mun
alvarlegri en talið var í fyrstu. Við
neyslu E-pillunnar verður neyt-
andinn fyrir miklum lifrar-
skemmdum og sálarangist sem oft
endar með sjálfsmorði. Flestir
neytendur E-pillunnar eru ungt
fólk, jafnvel einstaklingar sem
aldrei hafa neytt annarra fíkni-
efna.
Þeir sem selja dóp svífast einsk-
is fyrir ágóðahlut en með
ábyrgðarleysi þeirra og glæpa-
starfsemi valda þeir óbætanlegu
tjóni á lífi og heilsu mörg hundruð
barna og unglinga. Fíkniefnasala
er einn ljótasti bletturinn á okkar
samfélagi.“
Hrif klórblást-
urs á agnir í
álbráð
GUÐRÚN Sævarsdóttir heldur
fyrirlestur um rannsóknarverkefni
sitt til meistaraprófs í eðlisfræði
föstudaginn 12. júlí kl. 15 í stofu
158 í VR II, Hjarðarhaga 2-6.
I fyrirlestrinum fjallar Guðrún
um grasmeðhöndlun á álbráð og
áhrif hennar á agnir og dreifingu
agna í málminum. Þessi atriði
verða æ mikilvægari með auknum
kröfum um gæði áls, til dæmis í
flugvélaiðnaði, segir í fréttatil-
kynningu.
Umsjónarkennari Guðrúnar
hefur verið Þorsteinn I. Sigfússon,
prófessor. Öllum er heimill að-
gangur að fyrirlestrinum meðan
húsrúm leyfir.
LEIÐRÉTT
Una varð Lína
í æviágrip um Einar Jóhannes-
son 10. júlí síðastliðinn slæddist
meinleg villa. Elsta systir Einars
var sögð heita Lína en hið rétta
er að hún heitir Una og er fædd
15. febrúar 1913.
FRÉTTIR
Yfirlýsing frá Starfsmannafélagi Orkustofnunar
Ovissu um framtíð Orku-
stofnunar ekki verið eytt
TILLÖGUR iðnaðarráðherra um
framtíðarskipan Orkustofnunar voru
kynntar á starfsmannafundi hjá
stofnuninni á þriðjudag. Fundurinn
sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Starfsmenn Orkustofnunar eru
fegnir því að loks er áfanga náð í
framtíðarstefnumótun iðnaðarráð-
herra í málefnum Orkustofnunar,
þótt ýmsir starfsmenn hefðu viljað
sjá aðrar útfærslur.
Óvissuástand síðustu 10 mánaða,
ásamt óraunhæfum og fljótfærnis-
legum tillögum nefndar iðnaðarráð-
herra í desember síðastliðnum, hafa
þegar valdið starfsemi stofnunarinn-
ar og orkurannsóknum miklu tjóni,
sem langan tíma tekur að bæta.
Lykilstarfsmenn hafa horfið frá
stofnuninni undanfarna mánuði til
starfa utan orkuiðnaðarins.
Fundurinn vekur athygli á því að
þótt meginatriðin í stefnumótun ráðu-
neytisins liggi nú fyrir, þá fer því íjarri
að búið sé að eyða allri óvissu um
framtíð stofnunarinnar. Áform ráð-
herra um að samdrátt í íjárveitingum
ríkisins til grunnrannsókna í orkumál-
um megi bæta með vaxandi þátttöku
orkufyrirtækja í þróunarvinnu og
gagnavörslu eru enn óljós.
Fundurinn harmar þá afstöðu ráð-
herra að ætla starfsmönnum Orku-
stofnunar ekki að koma að skipu-
lagsmálum næstu mánaða með
formlegum hætti.
Fundurinn vekur athygli á mikil-
vægi grunnrannsókna í orkumálum
og þeirri staðreynd að sá árangur
sem náðst hefur í orkunýtingu á
íslandi byggist á íslensku hugviti
og rannsóknum. Samdráttur í
grunnrannsóknum mun því til lengri
tíma litið skerða möguleika á hag-
kvæmri nýtingu orkulindanna."
Undir yfirlýsinguna skrifar for-
maður Starfsmannafélags orku-
stofnunar, Benedikt Steingrímsson.
Morgunblaðið/Þorkell
Smágerður bílafloti
ÞEGAR veðrið er gott og sólin flotann ót og keppa í hrað-
skín er fátt ánægjulegra ungum akstri og torfærum við góðan
dreng en færa smágerðan bíla- vin.
Hádegisverðar-
fundur um
vímuefni
TÓMSTUND heldur hádegis-
verðarfund í félagsmiðstöðinni Vit-
anum fimmtudaginn 12. júlí í sam-
ráði við Jafningjafræðslu fram-
haldsskólanema undir yfirskrift-
inni Er kúl að vera dópisti?
í fréttatilkynningu segir: „Fund-
urinn er opinn 13 og 14 ára ungl-
ingum í Hafnarfirði sem hafa
starfað við ýmis hugðarefni sín í
verkefninu Tómstund í sumar. Á
fundinum verður borinn fram ilm-
andi hádegisverður og rætt vítt og
breitt um vímuefni og ungt fólk.
Fundurinn hefst kl. 12.05 og að-
gangseyrir er 100 kr.“
STRÁKAR!!! ÞAÐ ER STUNDUM GOTT
AÐ VERA NAKINN EN...
...EKKI ALLTAF!!!
r r
IIANZ
www.centrum.is/hanz