Morgunblaðið - 03.08.1996, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sturla Kristjánsson sótti um stöðu skólastjóra Síðuskóla
Skólanefnd er óhætt
að leita til min
Ragnhildur Skjaldardóttir segir sig frá stöðunni
RAGNHILDUR Skjaldardóttir,
hefur verið ráðin aðstoðarskóla-
stjóri Langholtsskóla í Reykjavík
en í síðustu viku var hún ráðin
skólastjóri Síðuskóla á Akureyri.
Ragnhildur sem hefur starfað sem
aðstoðarskólastjóri Síðuskóla síð-
ustu ár, hefur ákveðið að flytja
suður yfir heiðar og taka við starf-
inu í Langholtsskóla og hún hefur
jafnframt sagt sig frá skólastjóra-
stöðunni í Síðuskóla. Hún var ein
þriggja umsækjenda um stöðuna
en auk hennar sóttu um hana þeir
Sturla Kristjánsson og Sveinbjörn
M. Njálsson.
Sturla Kristjánsson, einn um-
sækjenda um stöðu skólastjóra við
Síðuskóla er mjög ósáttur við að
hafa ekki fengið stöðuna og hann
hefur með bréfí til bæjarráðs óskað
eftir rökstuðningi bæjarstjómar
fyrir því að umsókn hans var hafn-
að. „Samkvæmt lögum um stjórn-
sýslu er þeim sem gæta hagsmuna
almennings, t.d. við mannaráðn-
ingar og annað slíkt, skylt að gera
grein fyrir því á hveiju þeir byggi
niðurstöður sínar og það er einung-
is það sem ég er að spyrja um.“
Veit að ég stend mjög vel
Sturla segist vita að hann standi
mjög vel menntunar- og reynslu-
lega og að hann leggi fram mjög
sterka náms- og starfsreynslu,
sterkari en hinir umsækjendurnir.
„Þess vegna vil ég fá skýringu á
því af hveiju minni umsókn var
hafnað.
Aðspurður um möguleika sína á
að hljóta stöðu skólastjóra nú eftir
að Ragnhildur hefur sagt sig frá
henni sagði Sturla. „Ég held að
nú gefíst skólanefnd tækifæri á
að endurskoða þessa afgreiðslu
sína. Tíminn er orðinn naumur og
því komin upp ákveðin vandræði.
Ég er hins vegar tilbúinn að leggja
góðu máli lið og því er skólanefnd
óhætt að leita til mín,“ sagði
Sturla.
Ekki verið tekin ákvörðun um
framhaldið
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvernig farið verður með málið
í Síðuskóla en að sögn Ástu Sigurð-
ardóttur, formanns skólanefndar,
verður það rætt á fundi nefndar-
innar í næstu viku. Ásta segir að
skólanefnd hafi verið kunnugt um
að Ragnhildur hafi einnig sótt um
stöðuna í Reykjavík en ekki vitað
að hún tæki þá stöðu fram yfir
stöðuna í Síðuskóla þegar nefndin
mælti með henni.
Ragnhildur sagðist ekki vita
nákvæmlega hvænær hún tæki við
hinu nýja starfí en eins fljótt og
um semst við forsvarsmenn skóla-
mála á Akureyri. „Samkvæmt lög-
um er þriggja mánaða uppsagnar-
frestur en eftir honum hefur aldrei
verið gengið. Hvaða kröfur Akur-
eyrarbær gerir um að ég starfi hér
áfram veit ég ekki en þp* verður
eitthvað áfram," segir Ragnhildur
sem er enn í starfí aðstoðarskóla-
stjóra við Síðuskóla.
Skólanefnd var kunnugt um
málið
Ragnhildur segir að stöðurnar
í Reykjavík og á Akureyri hafi
verið auglýstar báðar í einu og
hún sótt um þær báðar. „Það hefði
verið erfitt að hætta við að taka
starfið á Akureyri ef ég hefði
ekki fengið stöðuna í Reykjavík
og sitja þá uppi stöðulaus. Ég
ræddi þessi mál bæði við fræðslu-
fulltrúa og skólafulltrúa Akur-
eyrarbæjar og þeim var full kunn-
ugt um hver staðan var. Ég veit
að þetta er ekki skemmtileg staða
sem upp er komin, ekki síst vegna
þeirra mála sem tengjast stöðu-
veitingu minni hér á Akureyri,"
segir Ragnhildur.
Báðar stöðurnar auglýstar
aftur
Ingólfur Ármannsson, skóla- og
menningarfulltrúi Akureyrarbæjar
segir að skólanefnd hafi heimild
til að ákveða hvemig haldið verði
á málum í framhaldinu þar sem
hér sé um að ræða ráðningu til
eins árs. Hver ákvörðunin verður
liggur hins vegar ekki fyrir fyrr
en eftir skólanefndarfund.
Ásta Sigurðardóttir segir að
búið hafi verið að taka ákvörðun
um að auglýsa stöðu aðstoðar-
skólastjóra innan skólans en í ljósi
þeirrar stöðu sem upp er komin
þurfí að endurskoða málið. „Það
er þó ljóst, hvemig sem að málum
verði staðið nú að báðar stöðurnar
verða auglýstar aftur næsta vor.“
Þrír á
slysadeild
ÞRIR voru fluttir á slysadeild,
en ekki alvarlega slasaðir eftir
árekstur tveggja fólksbifreiða
við gatnamót svonefnds Leiru-
vegar og Eyjafjarðarbrautar
eystri um miðjan dag í gær.
Óðrum bílnum var ekið norður
Eyjafjarðarbrautina en öku-
maður hans virti ekki stöðvun-
arskyldu, þannig að bifreiðin
fór í veg fyrir aðra sem var á
leið austur Leiruveginn. Bíl-
arnir skemmdust mikið.
Þrefaldur
1. vinningur!
-vertu viðbúintw vinningi
l iuhi /><’/ //!/<)<i f yrir kl. 20, ’() i kvöhi
Morgunblaðið/Kristján
MIKILL fjöldi fólks er saman kominn á Akureyri. Unglingum
er beint á aðaltjaldsvæðið við Sundlaug Akureyrar og áttu Ijald-
verðir von á að um 800 unglingar yrðu þar um helgina.
Mikill fjöldi fólks á Halló Akureyri
Viðbúnaður þre-
faldur á við
góða helgi
MIKIL umferð var á Akureyri í
gærdag og þungur straumur lá til
bæjarins, að sögn Daníels Guðjóns-
sonar yfírlögregluþjóns. Umferðin
gekk að mestu óhappalaust fyrir sig,
en nokkur erill var hjá lögreglu og
þeim sem sjá um gæslu á hátíðinni
Halló Akureyri aðfaranótt föstu-
dags. Daníel sagði ómögulegt að
giska á hversu margt fólk væri kom-
ið á hátíðina, en allur viðbúnaður
væri þrefaldur á við það sem tíðkað-
ist um góða helgi.
„Við höfum búið okkur undir mik-
ið fjölmenni og mér sýnist að hér
verði afar margt fólk, það Iiggur
þungur straumur hingað norður,"
sagði Daníel.
Mikil gæsla á tjaldstæðinu
Um 200 unglingar gistu á tjald-
stæðinu á Akureyri aðfaranótt föstu-
dag en þeir voru orðnir tvöfalt fleiri
um miðjan dag í gær. „Það hefur
verið stöðugur straumur hingað, en
verslunarmannahelgin hér á Akur-
eyri hófst sólarhring fyrr en vant
er,“ sagði Iris Guðmundsdóttir tjald-
vörður á Tjaldstæðinu á Akureyri.
Starfsmenn tjaldstæðisins áttu
von á því að allt að 800 unglingar
yrðu á svæðinu um helgina sem
þýðir að nánast verður tjaldað hvar
sem tjaldi verður niðurkomið.
Mikil gæsla er á tjaldstæðinu,
vaktirnar eru þrefaldar miðað við
það sem venja er til. Þá munu félag-
ar úr Hjálparsveit skáta á Akureyri
aðstoða fólk í nauðum og félagar í
Flugbjörgunarsveitinni munu flytja
ofurölvi unglinga burt af svæðinu.
Fjölskyldufólki hefur verið beint í
Kjamaskóg og á svæði íþróttafélags-
ins Þórs við Skarðshlíð, sem og á
Húsabrekku, handan Akureyrar. Um
miðjan dag í gær voru um 800 manns
í Kjamaskógi og straumurinn þungur.
Fólk var að byrja að tínast inn á
tjaldsvæði á Þórsvellinum eftir há-
degi í gær, en að sögn forsvars-
manna þess renndu menn algjörlega
blint í sjóinn með hversu margt fólk
kæmi til með að dvelja þar um helg-
ina.
ð ,
%mnsEE
IflM Qtillinn bílahorn®
ULIIIIIIU varahlutaverslun Hafnarfíarðar
SKEIFUNN111 • SlMI:5889797ReykjavfkurveaI 50 • SlMI: 555 1019