Morgunblaðið - 03.08.1996, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.08.1996, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Sýrlendingar hafna tillögum ísraela Damaskus. Reuter. Vilja semja fyrst um Líbanon SÝRLENDINGAR höfnuðu í gær samningstillögum ísraela, þ_ar sem gert var ráð fyrir að ísraelar drægju herlið sitt á brott frá suður- hluta Líbanon gegn því að sýrlensk- ir hermenn yrðu á brott og skæru- liðaárásum á Norður-ísrael linnti. Þá neitaði háttsettur, sýrlensk- ur embættismaður því, að Sýrlend- ingar hefðu sent fulltrúa sinn til Israels til viðræðna við Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra, um friðarhugmyndir. Embættismaðurinn tjáði frétta- stofu Reuters að frétt í ísraelska dagblaðinu Haaretz á fimmtudag, þar sem fullyrt var að sendimaður Sýrlendinga hefði farið til Jerúsal- em á laun, væri „algerlega úr lausu lofti gripin og tilgangurinn með henni einungis sá, að rang- túlka skýra afstöðu Sýrlendinga, sem hafna hvers konar leynifund- um og krefjast opinberra við- ræðna.“ Segja tilboðið gildru Sýrlendingar hafa átt í stopul- um friðarviðræðum við ísrael frá því 1991, og fordæmdu harðlega yfirlýsingar Netanyahus um að hann teldi ekki koma til greina að láta af hendi land, sem ísraelar hafa hertekið, í skiptum fyrir frið • við nágrannaríkin. Embættismaðurinn ítrekaði, að Sýrlendingar höfnuðu tillögum um afmarkaða og sértæka friðar- samninga og sagði tilboð Israela um brotthvarf frá Líbanon vera „gildru“. Sýrlendingar hafa tögl og hagldir í Líbanon, þar sem þeir hafa um 35 þúsund manna herlið. Líbanir, sem einnig hafa hafnað tillögu ísraela, hafa haft samráð við Sýrlendinga í friðarumleitun- um frá því friðarviðræður hófust í Madrid 1991. Varnarmálaráðherra ísraels, Yitzhak Mordechai, sagði á mið- vikudag, að ísraelar vildu semja um „Líbanon fyrst“ við Sýrlend- inga til þess að binda enda á skæruhernað gegn ísrael. Hann sagði á fundi utanríkis- og varnar- málanefndar ísraelsþings, að ísra- elar væru reiðubúnir að draga herlið sitt frá suðurhluta Líbanon ef sýrlenskir hermenn hyrfu þaðan og ef líbanski herinn gæti tryggt að ekki yrði ráðist á Israel. Debre látinn FYRRUM forsætisráðherra Frakklands, Michel Debre, lést í gær 84 ára að aldri. Debre var fyrsti forsætis- ráðherra fimmta lýð- veldisins í Frakklandi í forsetatíð Charles de Gaulles, og einn af höf- undum stjórnar- skrár þess. Debre hafði átt við langvinn veikindi að stríða. Hann var virkur í frönsku and- spyrnuhreyfingunni á árum heimsstyijaldarinnar seinni, og hafði gegnt öllum æðstu emb- ættum að forsetaembættinu undanskildu. Hann var forsæt- isráðherra frá 1959 til 1962. Debre var hlynntur frönskum yfirráðum í Álsír, og fór fyrir ríkisstjórninni í harkalegum deilum vegna þeirrar ákvörð- unar de Gaulles að veita land- inu sjálfstæði. Neyðar- ástand á Tævan NEYÐARÁSTANDI var lýst í rúmlega helmingi allra héraða á Tævan í kjölfar þess að fellibyl- urinn Herb gekk yfir eyna. Nítj- án manns fórust og 41 er sakn- að. Eru þetta einhveijar mestu náttúruhamfarir sem gengið hafa yfir Tævan um árabil. Deilur vegna páfaheim- sóknar ÁÆTLANIR um að seilast í opinbera sjóði til þess að standa straum af heimsókn Jóhannesar Páls páfa til Frakklands í næsta mánuði hafa vakið hörð mót- mæli samtaka veraldlega sinn- aðra, sem segja þama vera að engu höfð mörkin milli ríkis og kirkju, sem eru í hávegum höfð í Frakklandi. Formaður sam- bands veraldlegra samtaka á Bretagne-skaga segir að sam- bandið hafi ekkert á móti því að páfi heimsæki Frakkland, en opinber fjármögnun á heim- sókn hans stangist á við lög frá 1905 um aðskilnað ríkis og kirkju. Afneita „upprisu“ Dúdajevs SAMNINGAMENN Rússa í Tsjetsjníjudeilunni sögðu í gær að orðrómur um að leiðtogi aðskilnaðarsinna í héraðinu, Dzokhar Dúdajev, væri á lífi væri þjóðsaga og myndi ekki hafa nein áhrif á friðarviðræð- ur. Þjóðernismálaráðherra Rússlands, Vjatsjeslav Mikha- ílkov, sagði að sögur um „upp- risu“ Dúdajevs hlytu að flokk- ast sem þjóðsögur og líkti þeim við 19. aldar sagnir af tsjetsj- ensku hetjunni Imam Shamil, sem barðist gegn tilraunum rússneskra keisara til valdatöku í héraðinu. Shamil mun hafa horfið sporlaust, líkt og Dúdajev, en síðan birst á ný og haldið áfram baráttunni gegn keisurunum. LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1996 .m ta'kifícn til ,,.i HaJívarösson hjá -iunni i síimtali viö sjómenn hafa gagnrýnt engu astieöu fvrir íslemiinga aö vera að aöstoða Norömenn þegar þeir kæmu fram viö okkar menn eins og dæmin heföu sýnt. „Viö munum skoöa máliö þegar skýrsla kafaranna og skipstjórans hreyia *kí. -u.-ir Heigi. spurður hvort íariö yröí þá fram á björgunarlaun, í stað lægri upp- hæöar fyrir heföbundna aöstoö, sagöi Helgi aö ekkert slíkt heföi veriö ákveöið. skröfu sHipsins og var ,> vana. Varöskipiö er nú n er í togi á leiö til hafnar í firöi. Reiknaö var meö ao næöu landi i dag, laugardag. Níu ára drengur slapp á undraverðan hátt eftir harðan árekstur: Hjálmurinn bjargaði lífi stráksins - segir faðirinn sem varð vitni að slysinu DV.Akureyri: „Það var skelfilegt að horta á þetta gerast en strákurinn rankaði fijðtiega við sér og jafnaði sig þegar hann var kominn á slysadeild. Hann er orðinn eins og hann á að sér að vera en er að vlsu nokkuð marinn víða um likmann. Það er þó ekki nokkur hlutur miðað viö sem helði getað gerst hefði hann ekki veriö með hjálm á höfðinu þegar hann lentl I þessum árekstri," segir faðir Vfðis Bjarkasonar, 9 ár drengs á Akureyri. Víðir fór i vikunni ásamt fijöur sínum hjðlandi frá heimili þeirra við Rimasiðu og var ferðinni heitið að verslun viö Lónsbakka sem er í útjaðri Akureyrarbæjar að norðan. Tilgangur ferðarinnar var að kaupa gulisprey sem Víöir hugðist úða á skeifu sem hann fann í Þorvaldsdal i sumar og hefur nú sett upp fyrir ofan dymar á herberginu sínu. Víðir man ekkert eftir því sem gerðist en faðir hans varð vitni að því. „Strákurinn var nokkra metra fyrir aftan mig og hefur farið of langt út í malarkantinn við malbik- ið. Hann sveigði þvi inn á veginn en misstí þá stjðm á hjðlinu og fór alltof langt inn á veginn. Ég heyröi bremsuhljðð bifreiðarinnar sem hann lentí á og sá þegar Víðir kastaðist upp I loftið, skall efst á framrúöunni, sem brotnaði, og síð- an út 1 mölina utan vegar," segir faðir Viðis. Telja má fullvíst að hjdimur sem Víðir var meö á höfðinu hafi bjarg- að lífi hans eða a.m.k. komið í veg fyrir stórslys. Hjálmurinn brotnaði aftan tii og mynduðust í hann tvær sprungur að auki. Hjálminn fékk Viðir að gjöf frá Kiwanisklúbbnum Kaldbakí fyrir þremur árum en klúbburinn hefhr þaö fyrir sið aö gefa 6 ára bömum í bænum hjálma til að nota þegar þau hjðla. -gk EM í bridge: sigrar og ísland í 5. sæti Kvrðpumóti iie. vann tvo stðr- bridgeþjððum i 16. yrst vom Svisslend- og siðan Sviai'. rigri hafrti íslnn'i fimmta sæti með 295 stig en Sviar voru i því sæti fyrir umferðina. Norska sveitin er efst. er nú með 348 stig eftir að hafa hlotíð 39 stig í 1« i'. umi'eií. I!:,ntr,í:rkeriööra ■' jiví þriðja hsfnr Vifiir mefi hjálminn gófia sem e.t.v. bjargafii lifi hans. Eins og sjá má er hjálmurinn brotinn og sprunginn otarlega attan til. Ekki er erfltt afi geta sér til um afleiöingarnar ef Víöir heföi veriö án hjálmsins þegar óhappiö áni sér sfafi. DV-mynd gk ,1-, abréfamarkaðmn: Síðastliðin 6 ár hefur Kiwanisklúbburinn Kaldbakur afhent 7 ára börnum á Akureyri reiðhjólahjálma og notið til þess styrks frá Sjóvá-Almennum. Þar sem einn þessara hjálma hefur nú að öllum líkindum bjargað mannslífi, minnum við enn og aftur á mikilvægi þess að allir í fjölskyldunni séu með hjálm þegar hjólað er - undantekningalaust! w gr SJOVAlSIPaLMENNAR Traustur þáttur í tilverunni Debre
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.