Morgunblaðið - 03.08.1996, Síða 44

Morgunblaðið - 03.08.1996, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ferdinand YES, MAAM..I5 THI5 TME EMERSENCV ROOM? U)ELL, MY ELBOLJ HURT6 FROM PLAVIN6 BASEBALL.. YES, I P CALL IT AN EMER6ENCV. 7-/Z MV TEAM IS ALREAPV TEN RUN5 BEHINP.. Já, frú ... er þetta slysavarðstof- an? Mér er illt í olnboganum eft- ir að hafa spilað hornabolta... Já, ég myndi kalla það neyðartil- felli... Liðið mitt hefur nú þegar dreg- ist langt aftur úr ... JHorgawMfifotíö BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Sittukyrr og vertu sæt Hugleiðing um Sjálfstæðar konur Frá ÞAÐ FER sívaxandi að skoð- anahópar innan samfélagsins beiti auglýsingaherferðum til að breiða út fagnaðarerindið. Þannig hefur hópur kvenna innan Sjálf- stæðisflokksins sem kallar sig „Sjálfstæðar konur" nýtt sér þennan mögu- leika til að koma á framfæri nýj- um áherslum í jafnréttisbar- áttu kynjanna. Auglýsingaher- ferðin byijaði með keðjubréfaskrif- um í Morgunblaðið en hefur nú færst yfír í sjónvarpið þar sem hægt er að líta boðskapinn augliti til auglitis. Ekki er annað að sjá en að hér sé verið að færa kvenna- baráttuna í darwinískar umbúðir með froðuhugtakið „frelsi einstakl- ingsins“ í broddi fylkingar, og í beinni afleiðingu af því verstu mótsetningu sem réttindabarátta af einhveiju tagi getur lent í, - að koma frá hægri væng stjórn- málanna. Fyrsta og sígildasta dæmið um misskiptingu meðal manna er að finna í fjölskyldunni, þar sem kon- an laut yfirráðum heimilisföður- ins. Þegar stéttaskiptingin náði sem hæst í Evrópu í kjölfar iðn- byltingarinnar var mjög svo örð- ugt að vera verkamaður, en að vera „verkakona“ var ennþá öm- urlegra hlutskipti. Þannig var jafnrétti kynjanna lengi vel ab- strakt hugtak sem ekki var gert ráð fyrir í samfélagslegri vitund. Það var ekki fyrr en með vakningu vinnandi stétta á nítjándu öldinni að konur fengu eldmóðinn og ball- ið byijaði hér á landi sem sjálf- stætt framhald af vinstrihreyf- ingu áranna 1880-1890. Konur, verkalýður og aðrir jaðarhópar sýndu sameiginlegt andlit kúgaða aðilans í samfélaginu og kröfðust aukinna réttinda. Þessu til frekari stuðnings nefni ég að konur og verkamenn fengu kosningarétt samtímis árið 1915. Á meðan á þessari þróun stóð lágu hægrimennirnir (auðmennirn- ir) flatmaga á sínum hlutabréfum og vildu sem minnst hlusta á „raus- ið í skrílnum", sannfærðir um að þeim tækist að viðhalda ríkjandi ástandi. Þessir menn voru ekkert einhleypir heldur var viðmót þeirra í garð konunnar bara „sittu kyrr og vertu sæt“. Þetta viðmót er enn til staðar í eðli hægrimannsins og hefur aldrei verið vinsælla innan Sjálfstæðisflokksins en akkúrat núna, með tilkomu Sjálfstæðra kvenna. Fyrir síðustu alþingiskosningar lögðu sjálfstæðar konurnar til ofangreindar jafnréttishugmyndir í umboði flokksins og urðu mjög áberandi hlekkur í kosningabarátt- unni. En þó að karlmaður opni bílhurð fyrir konu getur hún alltaf orðið á milli þegar hann lokar. Eftir glæsilegan sigur flokksins í kosningunum var komið að því að flokksfélagar sannfærðust inn- byrðis um kosti sinnar eigin lífs- skoðunar. Frumskógarlögmálið eða réttara sagt lögmál markaðar- ins í nýjum efnahagslegum skiln- ingi, gekk í gildi í Valhöll. Leikar fóru þannig að sjálfstæðu konurn- ar lentu undir í samkeppninni um áhrifamestu stöðurnar í flokknum. Karlarnir hrifsuðu hinsvegar til sín allt bitastætt, skiptu því bróður- lega á milli sín og þökkuðu konun- um fyrir hjálpina. Sjálfstæðu kon- urnar fóru í stundarkorns fýlu og sögðu að þetta væri svindl! En svoleiðis segir maður ekki um lög- mál markaðarins. Ekkert er svindl í lögmálum markaðarins. Það liðu ekki margir dagar þangað til konurnar höfðu róast og voru orðnar sætar á nýjan leik (eins og þeim var ætlað). En eftir þvílíkan hugsjónabrest er tvennt sem kemur upp í hugann. Annars- vegar það að Sjálfstæðu konurnar hafi vanmetið samkeppnisaðstöðu sína við karlana í flokknum og hinsvegar að þær hafi beðið eftir „kallinu að ofan“. Því fyrra er auðsvarað með frumskógarlögmál- inu og áhrifum þess á samfélags- lega þróun. Samkvæmt því er karl- inn „einfaldlega" sterkara kynið, hvort heldur hann lemur konuna innan heimilisins eða misbýður henni á vinnumarkaði (en auðvitað er rangt að trúa því að svoleiðis viðbjóður geti þrifist í mannlegu samfélagi). Það seinna eru grillur um tillitssemi sem fyrirfinnst hvorki í fijálsri samkeppni né lífs- sýn hægrimannsins. Sem dæmi gengur Hörður ekki út úr Eimskip og býður einhveijum pylsusala stjórnarstöðu í fyrirtækinu, frekar en að Davíð Oddsson tæki upp á því að skipa konu í stöðu forseta Alþingis í stað Ólafs Garðars. Þetta er spurning um forgangsröð, skilj- iði. Ákveðnir einstaklingar eru hæfari en aðrir. Með þessari nýjustu rógsferð, ofan á allt sem á undan hefur gengið og með því að láta sig varða réttindabaráttu á einhvern hátt, eru Sjálfstæðu konurnar að undir- strika tilvistarleysi sitt í flokknum. Stofnun Sjálfstæðra kvenna innan Sjálfstæðisflokksins mætti líkja við það ef stofnuð yrði sjálfstæð eining svertingja innan Ku Klux Klan. Að þessu búnu óska ég Sjálfstæðu konunum farsældar í blekkingu sinni. Góða nótt. GRÍMUR HÁKONARSON, nemi. Grímur Hákonarson Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.