Morgunblaðið - 10.08.1996, Side 2
2 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Borðar þú fisk / pasta?
Nei, 1,8%
95,4% |
Daglega 10,5%
4-5 s. í viku
2-3 s. í viku
Vikulega
2-3 s. í mán.
Sjaldnar |jf83 5,0%
Aldrei Q 1,8%
10,2“/
30,5%
10,6“/,
41,3%
15,6% I
22,3% |
Hvaða fisk? (oftast og stundum) 25,71
Annar fiskur
Lúða
Lax/silungur
Ýsa
Pasta,
já
Daglega y 0,5%
4-5 s. í viku □ 3,7%
2-3 s. í viku I
Vikulega I
2-3 s. í mán. I
Sjaldnar I
Aldrei 1
17,0%
| 27,6%
25,3%
9,8%
] 16,3%
NEYSLUKÖNNUN FÉLAGSVISINDASTOFNUNAR1996. Úrtak 1,200 manns, 882 svöruðu.
ÞÝÐI neyziukönnunarinnar, þ.e. sá hópur þjóðarinnar sem úrtakiö var tekið úr.eru allir íslendinaar
á aldrinum 14-80 ára. Þetta eru 185.173 einstaklingar, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Is I
Hvert prósentustig í könnuninni samsvarar því um 1.850 manns. Taka verður tiliit til skekkjumarka,
sem eru á niðurstöðum í könnun sem þessari, þegar prósentustig eru umreiknuðjjiTannfj^
Gausdalmótið
Viðræður ríkis og heilsugæzlulækna
Efstu menn
gerðu
jafntefli
Gausdal. Morgunblaðið.
JAFNTEFLI varð í skákum efstu
manna í gær á skákmótinu í Gaus-
dal í Noregi þannig að staðan
brejdtist ekkert.
Margeir Pétursson og Norðmað-
urinn Djurhuus gerðu jafntefli og
sömuleiðis Hannes Hlífar Stefáns-
son og Helgi Ólafsson og Þröstur
Þórhallsson og Tékkinn Jansa. Jó-
hann Hjartarson vann Bator frá
Svíþjóð.
Margeir, Hannes, Helgi, Þröstur
og Djurhuus hafa allir 5,5 vinninga
en næstir koma Jóhann, Jansa og
Norðmennirnir Ögaará og Gausel
með 5 vinninga. Helgi Áss Grétars-
son gerði jafntefli í gær og er með
4.5 vinninga. Torfi Leósson hefur
2.5 vinninga.
Í 8. og næstsíðustu umferð í dag
tefla Margeir og Hannes, Þröstur
og Djurhuus, Helgi og Gausel og
Jóhann og Ögaard.
Báðir sitja yfir
„heimaverkefni“
SAMNINGANEFNDIR ríkisins og
heilsugæzlulækna sátu í gærkvöldi
báðar yfir „heimaverkefni", þ.e.
tillögum og upplýsingum frá gagn-
aðilanum, sem vonazt er til að
geti sameiginlega skapað grund-
völl fyrir áframhaldandi viðræður,
að sögn Þóris Einarssonar ríkis-
sáttasemjara. Hvorugur samnings-
aðili hefur þó lagt fram nýtt tilboð.
Samningafundi lauk á níunda
tímanum í gærkvöldi og er annar
boðaður í húsnæði ríkissáttasemj-
ara klukkan tvö í dag. Utkoman
úr „heimaverkefnunum“ verður þá
væntanlega ljós og staðan skýrari.
Breyttur tónn
í viðræðunum
„Tónninn hefur breytzt í stórum
dráttum og við erum farin að ræða
málin efnislega og mjög ýtarlega.
Það má segja að við séum í tækni-
legum fangbrögðum,“ segir Jón
Sæmundur Sigurjónsson, sem situr
í samninganefnd ríkisins. Hann
segir að í fyrradag hafi sér fundizt
sem samkomulag væri víðs fjarri,
en samninganefndirnar hafi nálg-
azt eitthvað í gær, þótt enn sé
óralangt á milli.
Skýrist í dag hvort
flötur hefur skapazt
Gunnar Ingi Gunnarsson, for-
maður samninganefndar heilsu-
gæzlulækna, segir að staðan sé
óljós. Hins vegar hafi læknum þótt
full ástæða til að leggja vinnu í
„heimaverkefnið“ frá samninga-
nefnd ríkisins. „Þetta karp um
mál, sem ekki snerta hið eiginlega
verkefni, er nú úti,“ segir Gunnar
Ingi. „Nú hafa báðir heimavinnu
og sennilega kemur í ljós þegar
við hittumst aftur hvort flötur hafi
skapazt. Það er enn óvissa, en við-
ræðurnar eru ekki strand."
Hvorki læknar né fulltrúar ríkis-
ins vilja tjá sig um efnisatriði við-
ræðnanna eða nefna tölur.
■ Ástandið/6
Hollensk
skúta
í hrakn-
ingum
HOLLENSK skúta lenti í hrakn-
ingum 130 mílur suður af Þor-
lákshöfn í fyrrinótt. Skútan, sem
heitir Gloem, var á leið til Hol-
lands eftir viðdvöl á íslandi. Um
nóttina var mikið rok og öldu-
hæð sex til sjö metrar. Um fjög-
urleytið um nóttina brotnaði
bugspjót skútunnar og fram-
seglið rifnaði. Bugspjótið styrk-
ir mastrið og því óttuðust skip-
verjar að það gæti brotnað í
óveðrinu. Ákveðið var að snúa
við og skútan sigldi fyrir vélar-
afli til Þorlákshafnar. Þangað
kom hún um níuleytið í gær-
kvöldi.
Þessi sama skúta lenti I
hrakningum í fyrra um fimm
hundruð sjómílur suður af land-
inu. Þá brotnuðu tvö rifbein í
skipstjóranum, Aart van der
Toom, í hamaganginum. Hann
starfar hjá hollensku siglinga-
tímariti. Áhafnarmeðlimir eru
samtals fjórir, þrír karlmenn og
ein kona.
Fjármálaráðherra um áskorun VSÍ um afgang á ríkissjóði
Morgunblaðið/Hallgri'nur Erlendsson
HOLLENSKA skútan Gloem kom í gærkvöldi til Þorlákshafnar.
Eins og sjá má vantar bugspjótið.
Útför danska
aðmírálsins
Landhelg-
isgæslan
sendir
fulltrúa
HELGI Hallvarðsson, verður
fulltrúi Landhelgisgæslunnar
við útför Hans Garde aðmír-
áls, æðsta yflrmanns danska
hersins og Ánne Garde eigin-
konu hans. Þau verða jarðsett
með æðstu viðhöfn á mánu-
daginn nk. frá Holmenskirke
í Kaupmannahöfn.
Hans Garde og Anne Garde
létust af slysförum þegar flug-
vél danska flughersins, sem
þau voru farþegar í, brotlenti
í aðflugi að flugvellinum í
Vogum í Færeyjum. Auk Hans
Garde og eiginkonu hans fór-
ust sjö danskir hermenn í slys-
inu.
Helgi verður einnig við
minningarathöfn, sem haldin
verður á sunnudag um borð í
danska eftirlitsskipinu Vædd-
eren, en skipið var statt í
Færeyjum þegar slysið varð
og flutti hina látnu tii Dan-
merkur.
Ríkið borgi ekki
næstu samninga
VINNUVEITENDASAMBAND ís-
lands sendi Friðrik Sophussyni fjár-
málaráðherra bréf í gær, þar sem
hvatt er til að fjárlög næsta árs
verði afgreidd með umtalsverðum
afgangi til að draga úr viðskipta-
halla og hamla á móti þensluein-
kennum í hagkerfmu. „Verði það
ekki gert hlýtur þrýstingur á vaxta-
hækkanir að fara vaxandi til að
verja gengi krónunnar og draga úr
verðbólguþrýstingi," segir Olafur
Ólafsson, formaður VSÍ, í bréfinu.
Fjármálaráðherra segist taka bréf-
inu fagnandi, en segir mikilvægast
að aðilar vinnumarkaðarins sendi
ekki ríkinu reikning næstu kjara-
samninga.
í bréfi Ólafs segir að VSÍ fagni
því að ríkisstjórnin stefni að halla-
lausum fjárlögum fyrir árið 1997.
„Þetta er þó ekki nægjanlegt því
öll efni ættu að vera til þess að
stefna að afgangi í rekstri ríkisins
og byrja að greiða niður gríðarleg-
ar lántökur síðustu ára. Þetta er
ekki sízt mikilvægt með hliðsjón
af reynslunni af framkvæmd fjár-
laga þessa árs, þar sem óvæntur
tekjuauki ríkissjóðs hefur ekki
megnað að draga úr áætluðum
rekstrarhalla vegna aukinna út-
gjalda."
Hægt að draga úr opinberum
umsvifum
Ólafur bendir á að á samdráttar-
skeiði síðustu ára hafi ríki og sveit-
arfélög haldið uppi framkvæmdum
með miklum lántökum, en þær að-
gerðir hafi réttlæzt af því einu að
í næstu uppsveiflu yrði dregið úr á
móti. Þær aðstæður séu nú fram-
undan. Ólafur vekur jafnframt at-
hygli á að vextir séu enn hærri hér
en í nágrannalöndunum og vaxta-
hækkanir myndu því bitna á at-
vinnulífinu og möguleikum þess til
að byggja upp til framtíðar.
Loks segir Ölafur Vinnuveitenda-
sambandið tilbúið til hvers konar
samstarfs til að tryggja stöðugleika
og varanlegan hagvöxt.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra segist geta tekið undir allt,
sem fram komi í bréfi VSÍ. Rétt
sé að ríkið hafi tekið lán til að halda
uppi framkvæmdum og lækkað
skatta, hvort tveggja í mörgum til-
vikum til þess að koma á hóflegum
kjarasamningum og koma í veg
fýrir verðbólgu. „Mikilvægast er að
í næstu kjarasamningum verði þess
ELDUR kom upp í parhúsi við
Krosshamra í Grafarvogi í gær-
kvöldi. Slökkviliðið kom á stað-
inn um stundarfjórðungi fyrir
níu og þá logaði út um tvo eldhús-
glugga. Eldurinn var mikill og
að sögn Guðmundar Halldórsson-
ar, vaktstjóra hjá Slökkviliðinu,
var óttast að hann bærist í þak
og þaðan i hina ibúðina í húsinu.
gætt af hálfu samningsaðila, nú j
þegar betur árar og fyrirtækin eru
betur í stakk búin að hækka laun,
að senda ekki reikning á ríkisvald-
ið, hvorki í formi óska um fjárfram-
lög né skattalækkanir," segir Frið-
rik. „Stjórnvöld og aðilar á vinnu-
markaði verða að sameinast um að
styrkja stöðu ríkissjóðs, ná jafnvægi
milli tekna og gjalda og skila síðan
afgangi þannig að hægt sé að lækka
skuldabyrði komandi kynslóða.“ I
Slökkvistarf tók tæpan klukku-
tíma. Allt brann sem brunnið gat
í eldhúsinu og annað innbú er
að mestu leyti ónýtt af reyk og
hita. Hjón eru búsett í íbúðinni
sem brann og voru þau í kaffi
hjá nágrönnum sínum þegar
skyndilega kvað við sprenging.
Eldsupptök eru ókunn en upp-
þvottavél var í gangi í eldhúsinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eldsvoði í húsi
við Krosshamra