Morgunblaðið - 10.08.1996, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.08.1996, Blaðsíða 37
• MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 37 ... 1 ..... 'N v 1 J I Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson MARGIR góðir sprettir sáust á mótinu í gær og fara hér Viðar Halldórsson, Fáki, og Prins frá Hvítárbakka mikinn þótt ekki kæmust þeir i úrslit. ÞAÐ sjást víðar góðir hestar en í opna flokknum eins og til dæmis þessi, Fjöln- ir frá Meðalfelli sem Berglind Sigurþórsdóttir situr í töltkeppni unglinga. Sigurbjörn stefnir á enn einn titilinn í fimmgangi HESTAR Varmárbakkar í Mosfcllsbæ ÍSLANDSMÓT í HESTA- ÍÞRÓTTUM KEPPNI hófst á íslandsmótinu í hestafþróttum í gær á slaginu níu og þar með gefinn tónninn fyrir mikla stundvísi í dagskrá gærdags- ins. Mótið hófst með fímmgangi í opnum flokki og tölti ungmenna hvort á sínum vellinum. SIGURBJÖRN Bárðarson, Fáki, stendur efstur í fimmgangi á Dyni frá Hólum að lokinni for- keppni með 7,10 og hefur hann nokkuð gott forskot í næstu þrjá keppendur sem eru jafnir með 6,77 en þau eru Sveinn Jónsson á Bassa frá Stokkseyri, Sigurður Sigurðarson, Herði, á Prins frá Hörgshóli og Elsa Magnúsdóttirj Sörla, á Demanti frá Bólstað. I fimmta sæti er Hinrik Bragason, Fáki, á Drottningu frá Skriðu en þessir fimm keppendur hafa tryggt sér sæti í A-úrslitum en við bætist sigurvegari B-úrslit- anna en þar munu berjast Atli Guðmundsson á Hróði, Sigurður V. Matthíasson á Nirði, Sigurður Sæmundsson á Sögu og Erling Sigurðsson sem þurfti að sigra bráðabana við þá Gunnar Arnars- son og Siguijón Gylfason til að komast inn fyrir gullna hlið úr- slitanna. Þeir Gunnar og Sigurjón urðu jafnir og munu keppa aftur í dag um tíunda sætið. Telja verður Sigurbjörn og Dyn mjög sigurstranglega í baráttunni um meistaratitilinn en enginn hef- ur unnið þennan titil eins oft og Sigurbjörn. Vert er þó að minna á að ekkert er sjálfgefið og skemmst að minnast ófara þeirra félaga á hvítasunnumóti Fáks á dögunum þegar sýning misheppn- aðist stórlega og kostaði þá sæti á íjórðungsmótinu. Sigfús og Þórdís deila toppnum Sigfús B. Sigfússon, Smára, bætti sér upp slæmt gengi í tölt- inu með því að fara á toppinn í fimmgangi unglinga sem hann deilir þó með Þórdísi E. Gunnars- dóttur, Fáki, en þau hlutu 5,50 í einkunn. Sigfús keppir á Hlýju frá Vestra-Geldingaholti en Þórdís er á Gosa frá Auðsholtshjáleigu. Næst koma Davíð Matthíasson, Fáki, á Gusti frá Reykjavík með 5,30, Erlendur Ingvarsson, Geysi, á Diljá frá Skarði með 5,27 og Gunnhildur L. Arnbjönsdóttir, Mána, á Vini frá Mykjunesi með 4,60. Ragnar E. Ágústsson, Sörla, er efstur í tölti ungmenna á Hrafni frá Hrafnagili með 6,97, Sölvi Sigurðarson, Herði, annar á Gandi frá Fjalli með 6,67, Marta Jóns- dóttir, Mána, á Sóta frá Vallanesi þriðja með 6,23, Sigríður Th. Kristinsdóttir, Geysi, §órða á Vöku frá Strönd með 6 og Victor B. Victorsson, Gusti, á Nökkva frá Bjarnastöðum fimmti með 5,93. í ungmennaflokki er efstur Guðmar Þ. Pétursson Herði á Draupni frá Sauðárkróki með 6,27. Þóra Brynjarsdóttir Mána, kemur næst á Fiðringi frá Ing- veldarstöðum með 5,97, Ragnar E. Ágústsson Sörla er þriðji á Óskadís frá Akranesi með 5,80, ísólfur L. Þórisson Þyti, er fjórði á Svarta-Svani frá Leirárgörðum með 5,67 og Þorgeir Ó. Margeirs- son Mána, er fimmti á Funa frá Sauðárkróki með 5,50. HEIÐURSGESTUR mótsins er Harðarfélaginn Andreas Trappe frá Þýskalandi, marg- faldur heimsmeistari í gegn- um tíðina og er hann hér á tali við Sigurbjörn Bárðarson. Hörkukeppni í tölti unglinga í tölti unglinga urðu efst Ásta K. Victorsdóttir, Gusti, á Herði frá Bjarnastöðum með 7,03, Dav- íð Matthíasson, Fáki á Prata frá Stóra-Hofi með 7, Magnea Rós Axelsdóttir, Herði, á Vafa frá Mosfeilsbæ með 6,37, Sigurður Halldórsson, Gusti, á Krapa frá Kirkjuskógi með 6,10 og Birgitta D. Kristinsdóttir, Gusti, á Ósk frá Refsstöðum með 5,80. Efst barna í tölti urðu Viðar Ingólfsson, Fáki, á Fiðringi frá Ögmundarstöðum með 6,17, Berglind R. Guðmunds- dóttir, Gusti, á Maístjörnu frá Svignaskarði með 6,03, Sylvía Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á Hauki frá Akureyri með 5,87, Karen L. Marteinsdóttir, Dreyra, á Manna frá Vestri-Leirárgörðum með 5,77 og Jóna M. Ragnarsdóttir Fáki, á Safír frá Ríp. Valdimar Kristinsson Morgunblaðið/Valdimar Kristinssoi MÆÐGURNAR Marlise og Laura Grimm voru ánægðar með veru sín á íslandsmótinu og þótti samstarfið við íslensku dóm- arana með ágætum. Aðstaðan og skipu- lag í góðu lagi ÞÝSKI dómarinn Marlise Grimm sem dæmir með íslensku dómur- unum var hin ánægðasta með að dæma á íslandsmóti þegar blaða- maður ræddi við hana í miðjum klíðum í gær. Fannst henni að- staðan á Varmárbökkum mjög góð og eins allt skipulag er viðkæmi starfi dómaranna. Þá taldi hún mun léttara að dæma með þessum íslensku dómurum heldur en dómurum frá öðrum löndum á ýmsum alþjóðlegum mótum því þar gæti maður átt von ýmsum tölum út í hött hjá sumum dómurum. Hér væri sam- ræmið í góðu lagi. Aðspurð hvernig henni félli þetta skipulag að hafa þijá kepp- endur inni á velli í einu í for- keppni sagðist hún vön slíku þvf svipað fyrirkomulag væri í lægri flokkum í Þýskalandi þótt ýmis- legt smálegt væri með öðrum hætti. Hún sagði íslensku reglurn- ar mjög svipaðar alþjóðlegu regl- unum FIPO og hefði verið farið vel ofan í það sem skilur á milli á góðum dómarafundi fyrir mótið. Hestakostinn taldi hún góðan hér á mótinu í heildina séð, einnig væru þarna mjög góðir toppar inni á milli. í samanburði við hross í Þýska- landi sagði hún það helst skilja á milli að hér væri fetið áberandi lélegt í mörgum fimmgangshest- unum og brokkið ekki eins mikið mótað og þjálfað og almennt gerist í Þýskalandi. „Enda er ég líklega lægst með brokkið hér af öllum dómurunum" sagði hin sí- brosandi og glaðlynda Marlise Grimm sem hafði dóttur sína Lauru Grimm sér við hlið sem ritara og var greinilegt að þær hafa einhveiju sinni unnið saman áður. Morgunblaðiö/Valdimar Kristinsson Hollur er heimafenginn baggi VERÐLAUNIN sem veitt eru fyrir efstu sætin á íslandsmót- inu í Mosfellsbæ þylga nokkuð sérstök og ekki alveg í hefð- bundnum stíl. Þeir Harðarmenn sem sjá um mótshaldið að þessu sinni fóru ekki yfir lækinn til að sækja vatnið í þessum efnum heldur fengu einn félagsmann Barböru Meyer til að hanna og smíða gripina sem eru saman- settir úr íslensku fjörugijóti og útsöguðum málmplötum sem sýna útlínur á hesti og knapa á skeiði, tölti, brokki eða hest og knapa að fara yfir hindrun, allt eftir því hvað á við. Barbara lítur hér yfir gripina ásamt syn- inum Sebastian Sævarssyni sem vafalítið hefur lijálpað mömmu við smíðarnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.