Morgunblaðið - 10.08.1996, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Nýr togari bætist
í fiskveiðiflotann
ANDENES RE 43 heitir nýjasta
skipið í íslenska togaraflotanum.
Það er í eigu Atlantis Fisk ehf.,
nýstofnaðrar útgerðar þeirra Þórar-
ins Guðbergssonar sem er stjórnar-
formaður, Vilhelms Annassonar,
skipstjóra, Jens Hallgrímssonar,
skipstjóra, og Halldórs Haraldsson-
ar, vélstjóra.
Að sögn Þórarins var skipið keypt
frá Noregi og hét það áður Andenes
Fisk 1. Andenes er systurskip Sveins
Jónssonar KE og Haraldar Böðvars-
sonar, smíðað árið 1973 en lengt
um 5 metra árið 1986. Það er búið
frystibúnaði fyrir bolfisk og rækju
auk rækjusuðutækja.
Skipið kom til landsins 28. júlí
og segir Þórarinn að til að byija
með sé ætlunin að gera það út á
rækju á Flæmska hattinum en auk
þess séu úthafskarfaveiðar inn í
myndinni. Skipið kostaði tilbúið til
veiða um 130 milljónir króna.
ANDENES í Reykjavíkurhöfn.
Morgunblaðið/Golli
Enn er mokveiði í Smugunni
Fimm tonna afli
eftir eina mínútu
MOKVEIÐI er nú í Smugunni og
þykir sjómönnum sem til þekkja þar
nyrðra veiðin mun betri en undanfar-
in tvö ár. Vandi skipanna núna er
að fá ekki of mikinn físk því komið
hefur fyrir að trollin springi vegna
aflans og heyrst hefur að skip hafi
tilkynnt um 5 tonna afla á mínútu.
Kristinn Pétursson, stýrimaður á
Þerney RE, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að veiðin væri gríðar-
lega mikil og góð í Smugunni núna.
Þetta væri sérstaklega ánægjulegur
veiðiskapur þar sem fískurinn sé
mjög stór og góður og lítið af smá-
fiski með. Hann sagði að skipin væru
tímunum saman á reki til að vinna
aflann. „Það eru mörg skip á reki
að vinna aflann. Við vorum á reki í
15 tíma í nótt [fyrrinótt] í vinnslu.
Maður hefur heyrt meldingar frá 10
tonnum upp í 40 tonn og sumir
standa bara á öndinni yfír flskiríinu
og melda alls ekki neitt. Það hefur
komið fyrir hjá þó nokkrum að pok-
amir hafa hreinlega sprungið í renn-
unni. Vandinn er að skammta sér í
trollin því ef það kemur of mikið í
getur það sprungið eða hráefnið
skemmst,“ sagði Kristinn.
Jóna Eðvaids SF
JÓNA EÐVALDS SF hélt í vikunni
frá Homafirði áleiðis í færeysku lög-
söguna til að reyna þar makrílveiðar
en skipið hefur tilraunaleyfi til veið-
anna þar, eitt íslenskra skipa. í gær
hafði Jóna fengið um 20 tonn af
makríl en bræla var á miðunum og
minna að sjá en búist hafði verið við.
Jóna Eðvalds reyndi við makrílinn
á sömu slóðum í fyrra en var þá of
seint á ferðini en vonir eru bundnar
við að veiðarnar heppnist í þetta
sinn.
Að sögn Aðalsteins Ingólfssonar,
framkvæmdastjóra Skinneyjar hf. á
Homafirði sem gerir Jónu Eðvalds
út, hafa færeysk skip fengið nokkuð
af makríl inn í færeysku lögsögunni
að undanfömu. í ágústlok á síðasta
ári fór Jóna á svipaðar slóðir en þá
var makríllinn að mestu genginn út
úr lögsögunni og segir Aðalsteinn
að þeir séu mun fyrr á ferðinni í ár
og bjartsýnni á að vel gangi.
Góð makrílveiði í Síldarsmugu
Þá hafa fregnir borist af góðri
makrílveiði Rússa í Síldarsmugunni
en þeir veiða makrílinn í troll. Aðal-
steinn segir að ekki sé loku fyrir það
skotið að Jóna Eðvald fari í Síldar-
smuguna. „Þeir eru með troll um
borð þó að þeir vilji helst veiða makr-
ílinn í nótina. En eins og er hefur
stefnan verið sett á færeysku lög-
söguna en annars er ætlunin að veiða
makríl þar sem einhver veiðivon er,“'
segir Aðalsteinn.
Aðalsteinn segir að makrílum
verði landað þar sem besta verðið
fáist fyrir hann eða þar sem styst er
í land hveiju sinni og ekki sé stefnt
á makrílverkun í Skinney að svo
stöddu.
Smærri möskvi leyfður
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
hefur að fenginni umsögn Hafrann-
sóknastofnunarinnar gefíð út reglu-
gerð um breytingu á reglugerð nr.
548/1995 um þorskfisknet. Breyting
þessi felur í sér að frá 15. ágúst
1996 verður heimilt, á svæði sem
að austan markast af línu sem dreg-
in er réttvísandi suður frá Stokks-
nesi og að vestan að línu, sem dreg-
in er réttvísandi vestur frá Malar-
rifi, að nota þorskfisknet með lág-
marksmöskvastærð 5 ‘A tommu í
stað 6 tommu áður.
Hafrannsóknastofnunin telur að á
þessu svæði sé ekki um að ræða
hættu á veiðum á smáþorski. Góð
ýsuveiði er hins vegar víða á svæð-
inu og getur þessi breyting því orðið
til þess að bátar eigi hægara með
að ná ýsukvótum sínum. Ýsa sem
fæst í 5 'A tommu net er að meðal-
tali um 60 sm samkv. gögnum Haf-
rannsóknastofnunarinnar.
Reuter
ALEXEI II patríarki og yfirmaður rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar flytur Jeltsín heillaóskir sín-
ar. Þegar hann sór eiðinn sem næsti forseti Rússlands hét hann því að standa vörð um stjórnar-
skrána og borgaraleg réttindi.
Jeltsín sór forsetaeiðinn í Kreml
Innsetningarathöfnin
látlaus en virðuleg
- segir Gunnar Gunnarsson, sendiherra íslands í Moskvu
BORÍS Jeltsín sór
embættiseið sinn sem
forseti Rússlands í
Kremlarhöll í gær. í
viðtali við Morgun-
blaðið sagði Gunnar
Gunnarsson, sendi-
herra íslands í Moskvu,
að sjálf innsetningarat-
höfnin, sem tók aðeins
20 mínútur, hefði verið
látlaus en virðuleg en
upphaflega hafði verið
áætlað að hafa hana
utandyra á kirkjutorg-
inu í Kreml. Við það
hefði verip hætt að ósk
Jeltsíns. Áætlaði Gunn-
ar, að gestir hefðu á
bilinu fjögur til fimm þúsund.
Gunnar sagði, að
athöfnin hefði hafist
með því, að yfirmaður
kjörstjórnar greindi frá
úrslitum forsetakosn-
inganna og formaður
rússneska stjórnar-
skrárdómstólsins lýsti
yfir, að þær hefðu farið
vel fram og lögum
samkvæmt. Þá hefði
patríarkinn í Moskvu,
yfirmaður rússnesku
rétttrúnaðarkirkjunn-
ar, flutt Jeltsín heilla-
óskir sínar og að því
búnu hefði hann svarið
embættiseiðinn.
„Að lokinni athöfn-
inni var stutt hlé en síðan var borð-
hald fyrir gestina. Tók Jeltsín þátt
í því í 40 mínútur eða svo og í skála-
ræðu, sem hann flutti, kvaðst hann
hafa fengið umboð frá þjóðinni til
að móta skýra stjórnarstefnu. Við
athöfnina og í þessu hófi voru allir
þjóðhöfðingjar Samveldis sjálf-
stæðra ríkja og utanríkisráðherrar
þeirra og meðal annarra, sem ræð-
ur fluttu, má nefna þá Víktor
Tsjernomyrdín, forsætisráðherra
Rússlands, og forseta Kasakstans
og Hvíta Rússlands," sagði Gunnar.
Gunnar sagði, að búist væri við,
að Jeltsín tæki sér enn langa hvíld
frá störfum en sér hefði þó virst
sem hann væri við sæmilega heilsu.
Hefði það til dæmis komið á óvart,
að hann skyldi taka þátt í borðhald-
inu.
Gunnar
Gunnarsson
Alríkislögreglan
biður óvenju-
legrar afsökunar
New York. Reuter.
Levy
mætti
ekki
Jerúsalem. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRA
ísrael, David Levy, sem á í
valdabaráttu við forsætisráð-
herrann, Benjamin Netany-
ahu, mætti ekki til vinnu í gær.
Levy kom ekki á vikulegan
ríkisstjórnarfund, sem haldinn
var á skrifstofu Netanyahus í
Jerúsalem. Hann var heldur
ekki á skrifstofu sinni í utan-
ríkisráðuneytinu.
Deilur hafa staðið milli Lev-
ys og Netanyahus frá því
stjórn Likudbandalagsins tók
við völdum í ísrael í júní. Fyrr-
um varnarmálaráðherra, Mos-
he Arens, sagði enga ástæðu
til að taka ósætti þeirra Levys
og Netanyahus alvarlega.
Aðstoðarmenn Levys hafa
kvartað yfir því að forsætisráð-
herrann sniðgangi utanrík-
isráðuneytið, og þá sérstaklega
í málefnum er varða frið-
arsamninga við Palestínumenn.
BANDARÍSKA alríkislögreglan var
í gær sögð undirbúa afsökun-
arbeiðni sem á enga hliðstæðu í
sögu lögreglunnar, að sögn sjón-
varpsstöðvarinnar CBS. Verður ör-
yggisvörðurinn Richard Jewell
opinberlega beðinn afsökunar á því
að hafa verið bendlaður við
sprengjutilræðið í miðborg Atlanta
meðan á ólympíuleikunum stóð.
Jewell, sem er 33 ára, var hvorki
handtekinn né kærður í tengslum
við sprenginguna en hann fann
fyrstur poka í Ólympíugarðinum
sem sprengjan var falin í og aðstoð-
aði við að rýma næsta nágrenni.
Grunur rannsóknarlögreglu
beindist að Jewell þegar nokkrir
fyrrverandi samstarfsmenn hans
bentu á hversu ofurkappsamur
hann hefði venjulega verið á vakt
sinni.
Töldu yfirmenn lögreglunnar á
tímabili líklegt að hann hefði sjálfur
komið sprengjunni fyrir til þess að
verða síðan talin hetja fyrir að fínna
hana og koma í veg fyrir manntjón,
en tveir menn biðu bana af völdum
sprengingarinnar og 110 slösuðust.
Hefur ætíð haldið
fram sakleysi sínu
Jewell heftur ætíð haldið fram
sakleysi sínu og CBS segir rödd
hans ekki passa við rödd þess er
hringdi í neyðarnúmerið 911.
Nákvæm lögregluleit á heimili
hans leiddi heldur ekki í ljós neinar
vísbendingar er nota mætti til að
bendla hann við tilræðið.
Sagði CBS, að kæmi ekkert nýtt
fram á næstu dögum yrði Jewell
hreinsaður af áburði og beðinn af-
sökunar.