Morgunblaðið - 10.08.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 15
VIÐSKIPTI
Olís með skulda-
bréfaútboð
Brezkir
bankar
skila met-
hagnaði
London. Reuter.
SEX helztu bankar Bretlands
skiluðu samtals 6 milljarða
punda hagnaði fyrir skatta á
fyrri árshelmingi og þar sem
líklegt er að afkoma þeirra
haldi áfram að batna er um
það rætt að lagður verði á
sérstakur hagnaðarskattur.
Sérfræðingar gera ráð fyrir
áframhaldandi vaxtarstefnu
og að hagnaður bankanna á
árinu í heild verði rúmlega
tvöfalt meiri og um 15 mill-
jarðar punda eða ríflega það
árið 1997.
Góð afkoma bankanna hef-
ur leitt til bollalegginga um
sérstakan skatt, sem hefði
virzt óhugsandi á samdráttar-
árunum í Bretlandi í byijun
áratugarins.
Bankaasérfræðingurinn,
David Poutney, telur greinina
í hættu. Kenneth Clarke ijár-
málaráðherra sé á atkvæða-
veiðum og því hljóti hugmynd-
ir um bankaskatt að skjóta
aftur upp kollinum áður en
langt um líði.
Þótt einkennilegt sé er talið
ólíklegra að Verkamanna-
flokkurinn stingi upp á slíkum
skatti af ótta við mótaðgerðir
fjármálamanna, sem flokkur-
inn hefur reynt að fá til fylgis
við sig á síðari árum.
Fyrrum for-
stjóra Vulkan
sleppt
Bremen. Reuter.
FRIEDRICH Hennemann,
fyrrverandi forstjóri hins
gjaldþrota þýzka skipafyrir-
tækis Bremer Vulkan AG, sem
ákærður var fyrir íjárdrátt,
hefur verið látinn laus úr
gæzluvarðhaldi gegn sex mill-
jóna marka tryggingu.
Hennemann vildi ekkert
segja þegar hann var látinn
laus úr sex vikna varðhaldi
annað en að hann væri við
góða heilsu.
Hennemann hefur sætt
rannsókn vegna ásakana um
að hann hefði dregið sér fé
úr 750-850 milljóna marka
sjóði, sem var ríkisstyrkur til
að endurreisa austur-þýzka
skipasmiðjur sem Vulkan
keypti eftir sameiningu Þýzka-
lands.
Ákveðið var að sleppa hon-
um þegar dómsyfirvöld kom-
ust að þeirri niðurstöðu að
hann mundi ekki reyna að
eyða sönnunargöngnum.
HABItAT-ÚTSALAN
AHt aí 70% afíláttur
af •útsö'l-uvó'r-uin.
Barcelona glas kr. 158
(smáfcrol af úrva]ih-u!)
0pi3 til M. I7 í <íag.
habitat
Uugivegl I) Jlml 541MJO
ImnkHuiHkttnu iiMwMlM
-kjarni málsins!
OLÍUVERZLUN íslands hf. hefur
hafið sölu á skuldabréfum að and-
virði 350 milljónir króna. Bréfin
bera 5,85% fasta vexti og eru til
10 ára með árlegum afborgunum.
Landsbréf hefur umsjón með sölu
skuldabréfanna.
Að sögn Thomasar Möller, fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs Olís,
hefur fyrirtækið heimild til að
greiða bréfin upp eftir þrjú ár og
á hveiju ári eftir það. „Vaxtapró-
sentan er okkur hagstæð og hefur
salan gengið vel síðan hún hófst í
síðasta mánuði."
í frétt frá Olís kemur fram að
tilgangurinn með útgáfu og sölu
bréfanna er að fjármagna umfangs-
mestu framkvæmdir í sögu félags-
ins á einu ári. Nú þegar hefur félag-
ið lokið byggingu nýrrar þjónustu-
stöðvar við Sæbraut í Reykjavík og
í þessum mánuði lýkur byggingu
veitingaskála á sama svæði. Einnig
standa yfir breytingar á þjónustu-
stöð fyrirtækisins við Álfheima.
Ódýrara bensín í september
Á þjónustustöðvum Olís í
Reykjavík er verið að innrétta
verslanir með neyslu- og ferðavörur
og hefur sú fyrsta verið opnuð á
Sæbrautinni.
Olís opnar í september tvær
sjálfvirkar, ómannaðar bensín-
stöðvar undir heitinu „ÓB - ódýrt
bensín“. Önnur verður staðsett hjá
Fjarðarkaupum í Hafnarfírði en hin
við verslunina Engjaver í Grafar-
vogi.
„Við áformum að opna síðar á
árinu tvær ÓB-stöðvar til viðbótar,
en markmiðið með stöðvunum er
að vera samkeppnisfærir við ódýr-
asta bensínið á markaðnum.
Ætlunin er að stöðvarnar verði
staðsettar hjá verslunum á fjölförn-
um stöðum og er uppsetning bens-
ínstöðvanna í samvinnu við viðkom-
andi verslanir," segir Thomas.
Fáðu þér miða fyrir kl. 20.20 í kvöld.
HVfTA HÚSID I SfA