Morgunblaðið - 10.08.1996, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 25 ;
NU ÞEGAR ís-
lensku ólympíufararnir
hafa lokið keppni á
Olympíuleikunum í
Atlanta er annar hópur
íþróttafólks að leggja
af stað til Atlanta. Þar
verður haldið Ólympíu-
mót fatlaðra dagana
15.-25. ágúst nk. og
verða 10 íslenskir
keppendur á meðal
þátttakenda, 2 í frjáls-
um íþróttum og 8 í
sundgreinum. Þátt-
taka á Ólympíumóti
fatlaðra er hápunktur
á ferli fatlaðs íþrótta-
fólks um heim allan.
Strax að loknu Ólympíumóti fatl-
aðra í Barcelona og í Madrid árið
1992 hófst undirbúningur að þátt-
töku íslands í Ólympíumóti fatlaðra
í Atlanta árið 1996.
Sérstaða Ólympíumótsins í Atl-
anta er sú að þar munu þroskaheft-
ir í fyrsta skipti keppa með öðrum
fötlunarhópum á Ólympíumóti en
greinar verða mun færri en voru á
fyrsta Ólympíúmóti þroskaheftra í
Madrid árið 1992. Ekki verður t.d.
keppt í lengri sundgreinum en þar
hefur þroskahefta íþróttafólkið frá
íslandi verið mjög sigursælt.
í flokki þroskaheftra keppa í
sundi Sigrún Huld Hrafnsdóttir,
Ösp, Bára Bergmann Erlingsdóttir,
Ösp, og Gunnar Þór Gunnarsson,
Sundfélagi Selfoss.
í flokki hreyfihamlaðra keppa í
sundi Ólafur Eiríksson, SH, Kristín
Rós Hákonardóttir, ÍFR, Pálmar
Guðmundsson, ÍFR, og Anna Rún
Kristjánsdóttir, Óðni.
í flokki blindra keppir í sundi
Birkir Rúnar Gunnarsson, Ægi.
í fijálsum íþróttum í flokki
hreyfihamlaðra_ keppa Haukur
Gunnarsson,_ Ármanni, og Geir
Sverrisson, Ármanni.
Haukur Gunnarsson, Ármanni,
er að taka þátt í Ólympíumóti fatl-
aðra í fjórða skipti nú og er hann
fyrsti ísiendingurinn sem það gerir.
Hann mun því bijóta blað í íþrótta-
sögu fatlaðra á Islandi þegar hann
gengur inn á leikvanginn í Atlanta
15. ágúst nk. Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem Haukur Gunnarsson
brýtur blað í þeirri sögu. Hann varð
t.d. fyrstur fatlaðra íþróttamanna
til þess að ná þriðja sæti í kjöri
íþróttafréttamanna um íþrótta-
mann ársins en það var árið 1988.
Á þeim tíma urðu heitar umræður
um val íþróttamanns ársins og það
mat, sem haft var til hliðsjónar.
Mikla athygli vakti t.d. grein sem
Stefán Ingólfsson verkfræðingur
skrifaði þá um kjör íþróttamanns
ársins en hann skrifaði m.a.:
„Það verður að gagnrýna tvö-
feldni íþróttafréttaritara. Annars
vegar hafa þeir Hauk á listanum
til að veita honum viðurkenningu.
Hins vegar segja þeir að íþróttir
fatlaðra verði ekki mældar á sama
kvarða og aðrar íþróttir. Það jafn-
gildir því að afrek hans eru mæld
með öðrum kvarða en hinna.“ (Frb.
ÖB. 1988.)
Frá árinu 1988 hefur enginn fatl-
aður íþróttamaður verið valinn í
fyrstu 3 sæti í þessu kjöri og ennþá
vekja orð Stefáns spurningar.
Þroskaheftir eru sá hópur fatl-
aðra sem hvað mest hafa mætt
fordómum og vanþekkingu sam-
ferðamanna sinna í gegnum tíðina.
Sigrún Huld Hrafnsdóttir, sundkon-
kn glæsilega, hefur á undanförnum
6.rum unnið hug og hjarta þjóðar-
hinar allrar vegna glæsilegs árang-
firs, en ekki síður vegna einlægrar
jpramkomu sinnar og ljúfmennsku.
Hún og annað þroskaheft íþrótta-
■
Anna Karólína
Vilhjálmsdóttir
fólk hefur náð að skapa
jákvæða ímynd og
marka jákvæðara við-
horf í garð þroska-
heftra íslendinga.
Blindi sundmaðurinn
Birkir Rúnar Gunnars-
son hefur sýnt með frá-
bærum árangri jafnt í
sundkeppni, í námi
sínu og á öðrum vett-
vangi að ekkert aftrar
honum frá því sem
hann ætlar sér. Afrek
hans og óbifandi bar-
áttuvilji hljóta að vera
öðrum blindum hvatn-
ing til dáða og án efa
er dugnaður hans
styrkur og hvatning til foreldra
blindra barna. Geir Sverrisson, ein-
hentur fijálsíþróttamaður sem hef-
ur náð því einstæða afreki að hljóta
gullverðlaun í tveimur íþróttagrein-
Þessir einstaklingar,
segir Anna Karólína
Vilhjálmsdóttir, hafa
aldrei gefist upp.
um á Ólympíumóti fatlaðra og að
vera valinn í landslið ófatlaðra í
fijálsum íþróttum, hefur sýnt fá-
dæma baráttuvilja og einbeitni við
það sem hann ætlar sér og hefur
uppskorið árangur eftir því. Sama
má segja um Ölaf Eiríksson, sem
notað hefur gervifót frá fæðingu
en hefur aldrei látið það aftra sér
í lífi sínu og er nú í hópi bestu
sundmanna heims í sínum flokki'.
Kristín Rós Hákonardóttir, sem
fékk hettusóttarvírus í höfuðið 18
mánaða gömul og hefur verið spast-
ísk síðan þá, hefur lagt á sig gífur-
lega vinnu við að yfirvinna fötlun
sína með stöðugri og markvissri
sundþjálfun sem hefur skilað henni
KEPPENDUR á ÓL-móti fatlaðra í Atlanta ’96 og sundþjálfarinn Kristín Guðmundsdóttir. Á
myndina vantar Hauk Gunnarsson, Ármanni.
árangri á heimsmælikvarða. Fyrir
spastíska einstaklinga er mikilvægt
að fylgjast með þessari glæsilegu
sundkonu og félögum hennar í sama
fötlunarhópi, þeim Hauki Gunnars-
syni og Pálmari Guðmundssyni, sem
er einn efnilegasti sundmaðurinn af
^mgri kynslóðinni í okkar hópi. Anna
Rún Kristjánsdóttir, yngsti keppand-
inn í hópnum, er nýkomin í þennan
keppnishóp og á framtíðina fyrir sér.
Iþróttafólkið, sem nú heldur til
Atlanta, hefur flest verið í framlínu
íþrótta fatlaðra í u.þ.b. áratug.
Þessir einstaklingar hafa aldrei gef-
ist upp þrátt fyrir að stundum hafi
komið tímabil þar sem allt virtist
vonlaust í baráttu þeirra fyrir því
að vera viðurkenndir sem íþrótta-
menn. íþróttasamband fatlaðra ber
mjög mikla virðingu fyrir þessu
fólki og öðru því íþróttafólki sem
hefur rutt brautina fyrir þá sem á
eftir koma.
Að fá gullverðlaun um hálsinn
og heyra þjóðsönginn leikinn hlýtur
að vera stærsti sigurinn og eftir-
minnilegasta stund hvers þátttak-
anda á Ölympíumóti. Að bijóta blað
í sögu íþrótta fatlaðra á einhvern
hátt, vegna frábærs árangurs og
óbifandi baráttuvilja, hlýtur einnig
að vekja mjög sérstakar tilfinningar
hjá þeim sem það gera og skapa
þannig öðrum fötluðum farveg til
betri framtíðar. íþróttafólkið hefur
unnið stóra sigra á íþróttavettvang-
inum en sigrar þeirra í brautryðj-
endastarfinu eru ekki síður glæsi-
legir. Þrátt fyrir að mörgum þyki
sem hægt gangi í baráttu fatlaðra
fyrir mörgum mikilvægum málum
þá má ekki gleyma því að hver lít-
ill sigur er skref fram á við. Fram-
lag íþróttafólksins verður ekki met-
ið í fjölda verðlaunapeninga á þessu
sviði en það er í Atlanta sem barátt-
an um verðlaunapeningana fer fram
og þar verður ekkert gefið eftir.
Alls taka um 3.500 keppendur frá
um 125 þjóðum þátt í mótinu og
verður keppt í 17 greinum, auk
þess sem tvær sýningargreinar
verða í gangi. Árið 1992 sendi ríkis-
sjónvarpið í fyrsta skipti fulltrúa
sína á Ólympíumót fatlaðra og þá
fyrst fékic almenningur á íslandi
tækifæri til þess að sjá hvað fer
fram á slíkum mótum. Ríkissjón-
varpið verður með hópnum í Atl-
anta og mun senda heim fréttir af
íslensku keppendunum og annað
myndefni frá mótinu.
Mjög strangar reglur gilda um
íjölda fararstjóra og aðstoðar-
manna á mótið og verða aðeins 5
fararstjórar og þjálfarar í Ólympíu-
þorpinu með keppendunum 10. Far-
arstjórar munu því hafa lítinn tíma
til þess að sinna fjölmiðlum en reynt
verður að senda samantekt frá Átl-
anta í lok hvers keppnisdags. Það
boðleiðakerfí, sem tölvutæknin býð-
ur upp á í dag, ætti að auðvelda
fjölmiðlum á Islandi að fylgjast með
mótinu og gera því góð skil.
íslenski keppnishópurinn mun
leggja sig allan fram og reyna að
verða landi og þjóð til sóma.
Fjölmargir aðilar hafa styrkt
íþróttasamband fatlaðra vegna
undirbúnings og þátttöku íslands í
Ólympíumóti fatlaðra í Atlanta
15.-25. ágúst 1996.
íþróttasamband fatlaðra og
Ólympíuráð ÍF senda öllum þessum
aðilum bestu kveðjur og innilegar
þakkir fyrir ómetanlegan stuðning.
Höfundur er frkvstf. íþrótta- og
útbreiðslusviðs IF.
HABITAt-útSALAW
AIH a$ 7o% afsláll-ur
af ú.tsó'luvó'r-uln.
Bilfcao JsahHa Jsr. 315
(■fcrot af úrvalinuí)
Opií til hb 17 í <íag.
iuibixat
L»ogav»si 13 SMniM3S870
>111»» Lmii n iitkmii ImMiu íh< l ku4
Verð aðeins frá 849.000 kr.
Verð aðeins 695.000 kr. án vsk.
1300 cc vél, styrktarbitar i hliðarhurðum, höfuðpúðar í fram- og aftursætum, barnaiæsingar.
Skoda Felicia
Þýsk gæði - frábært verð
Nýbýtavegur 2
Sími: 554 2600
Fatlað íþrótta-
fólk á leið
til Atlanta