Morgunblaðið - 10.08.1996, Síða 33

Morgunblaðið - 10.08.1996, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ > | W Bk W > i I I I I I i I I i I í I- LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 33 MINNINGAR vonglöð - reiðubúin að leggja undir sig heiminn. Saman áttu þau eftir að velja sér lífsstarf sem þá var harla óvenjulegt. Full hugsjónar gerðust þau með fyrstu brautryðj- endum ylræktar hér á landi. Sveita- stúlkan úr Kjósinni og kaupstaðar- strákurinn af Skólavörðustígnum bundu saman bagga sína, fiuttust austur að Syðri-Reykjum í Biskups- tungum og fóru að bijóta sér nýtt land í bæði eiginlegri og óeiginlegri merkingu, þar sem ræktun við jarð- varma var svo til óþekkt búgrein á fjórða áratugnum. En Stefáni farn- aðist vel. Hann var áræðinn og framsýnn og Áslaug stóð við hlið hans eins og klettur og trúði á bónda sínn. En að þetta átak hafi verið tveggja manna verk og að báðir hafi þurft að leggja hart að sér dylst engum sem til þekkja. Ég kynntist Áslaugu ekki fýrr en dökkhærða stúlkan á fyrrnefndri mynd var orðin að hvíthærðri, ro- skinni konu. En enn var hún eftir- takanlega tíguleg og falleg. Hlé- dræg og traust. Enginn gat ímyndað sér að hér væri á ferð kona sem hefði nokkurn tíma þurft að dífa hendi í kalt vatn. Þó hafði hún fyr- ir utan að standa í því að koma upp stórri gróðrarstöð, haft matarum- sjón með mörgum vinnuhjúum og alið upp fjögur börn og eina dóttur- dóttur. Og nú þegar æviskeið Áslaugar er runnið á enda, langar mig til að þakka henni einkar ljúf kynni. Ég undraðist oft hvað við höfðum líka afstöðu til lífsins og áttum auðvelt með að ná saman, þótt ég hafi ekki fæðst fyrr en um það leyti sem Áslaug var að byija líf sitt á Syðri- Reykjum. Ég finn enga aðra skýr- ingu á því en þá, að við höfum átt líkar rætur. Mamma mín var frá Grafarholti í Mosfellssveit á meðan það var sannkölluð sveit og Áslaug var úr næsta nágrenni, frá Fossá í Kjós. En svo áttum við náttúrulega líka sameiginlegt áhugamál, vel- famað unga fólksins okkar, Sigurð- ar sonar míns og Áslaugar Dóru, dótturdóttur og uppeldisdóttur Ás- laugar. Það var einmitt á þilinu á nýstofnuðu heimili þeirra sem ég fyrir skömmu sá myndina af unga fallega parinu sem átti eftir að leggja allt traust sitt á hverinn á Syðri-Reykjum. Solveig Jónsdóttir. SIGURJON RÓSMUNDSSON MAGNÚS SKARPHÉÐINN RÓSMUNDSSON + Sigurjón Rós- mundsson fæddist 1. desem- ber 1928. Hann lést 14. janúar síðastlið- inn. Magnús Skarphéð- inn Rósmundsson fæddist 20. septem- ber 1920. Hann lést 27. janúar síðastlið- inn. Þeir bræður voru synir hjónanna Rós- mundar Jóhanns- sonar og Jónínu Guðbjargar Sigurð- ardóttur á Gilsstöðum í Selár- dal og eru þeir jarðsettir í heimagrafreit á Gilsstöðum. Mig langar til að minnast, þótt seint sé, föðurbræðra minna Sigur- jóns Rósmundssonar og Magnúsar Skarphéðins Rósmundssonar. Ég minnist Siguijóns fyrst sem bónda á Grænanesi, þar sem systir hans Guðbjörg, sem einnig er dáin, hélt bú með honum. Ég var í sveit eitt sumar hjá þeim systkinum og leið mjög vel. Gaman var að vitja silungsnetanna með frænda og læra að hekla og pijóna fyrstu pijónana hjá frænku. Siguijón hafði mjög gaman af söng. Yndi hafði hann af ferðalögum, og þar sem hann var með þeim fyrstu, sem eignaðist jeppa í sveitinni, fór hann oft til Hólmavíkur og rak þar erindi sveit- unga sinna, því hann var greiðvik- inn og glaðlyndur. Hann brá búi að Grænanesi og fluttust þau systkinin þá að Geir- mundarstöðum, sem er innar en Grænanes í Selárdal á Ströndum. Þangað flutti svo Skarphéðinn bróðir þeirra systkina til þeirra, þá eftir langa og erfiða legu á Vífils- stöðum vegna berkla og seinna á Kristneshæli, þar sem hann var tvíhöggvinn, sem kallað var. Þrátt fyrir þær aðgerðir náði hann ekki fullri heilsu aftur. Eftir það var hann æfinlega í skjóli Siguijóns eða svo gott sem til dauðadags. Það liðu aðeins 13 dagar frá dauða Sigur- jóns þar til Skarphéðinn lést. Siguijón og Skarphéðinn voru synir bændahjónanna Rósmundar Jóhannssonar og Jónínu Guðbjarg- ar Sigurðardóttur að Gilsstöðum í Selárdal. Á það heimili var gott að koma og minningar þaðan eru um lestur góðra bóka, ljóðlist, tafl- mennsku, friðsemd, góðmennsku og ást á jörðinni og dalnum. Sigur- jón ólst þar upp, en Skarphéðinn fluttist að Sundal í Bjarnafirði með móðurömmu sinni Ingibjörgu þegar hann var fimm ára. Hann var þar til fullorðinsára eða þar til hann veiktist. Enginn skal þó halda að Héðinn hafi verið öðrum byrði því hann var vinnusamur og hjálpsam- ur og gekk að bústörfum, innan húss sem utan, þrátt fýrir mikinn heilsubrest. Á Gilsstöðum er heimagrafreitur, þar sem bræðurnir tveir voru born- ir til hvílu hjá foreldrum sínum og skyldmennum ungum og öldnum, sem farin voru á undan heim. Selár- dalurinn og sérlega Gilsstaðir eru ættfólkinu heilög jörð. Því læt ég að endingu tvær vísur úr löngu lof- kvæði eftir elsta bróðurinn frá Gils- stöðum, Sigurð Rósmundsson, mæla fyrir munn þeirra og okkar allra hveijum augum ættfólkið leit dalinn sinn. Til er dalur í faðmi fjalla fagur vaxinn um brún og hjalla, gróa þar víða grösin smá. Hann er litfögrum skógi skrýddur skærum rósum og stráum prýddur, niður hann elfa bunar blá. Litrik fegurð i friði og gleði, fullkomna skapar ást í geði, gott er að mæta svoddan sjón. A ári hveiju hún er til boða öllum sem vilja dalinn skoða, tíð þá vefur í vori frón. Fyrir hönd systkina og systkina- barna, Fanney Sigurðardóttir. Fáðu Moggann til þín í fríinu Morgunblaðið þitt sérpakkað á sumarleyfisstaðinn Viltu fylgjast með í allt sumar? Morgunblaðið býður áskrifendum sínum þá þjónustu að fá blaðið sitt sérpakkað og merkt á sölustað nálægt sumarleyfisstaðnum innanlands. Hringdu í áskriftardeildina í síma 569 1 1 22 eða sendu okkur útfylltan seðilinn og þú fylgist með í allt sumar. - kjarni málsins! Já takk, ég vil nýta þjónustu Morgunblaósins og fá blaðiö sent á eftirfarandi sölustað á tímabilinu frá__________________________til_ Hvert viltu fá blaðið sent? Merktu við. □ Esso-skálinn, Hvalfirði □ Ferstikla, Hvalfirði □ Hyrnan í Borgarnesi □ Baula, Stafholtst., Borgarfirði □ Munaðarnes, Borgarfirði □ Bitinn, Reykholtsd., Borgarfirði □ Sumarhótelið Bifröst □ Hreðavatnsskáli □ Brú í Hrútafirði □ Staðarskáli, Hrútafirði □ Varmahlíð, Skagarfirði □ Illugastaðir □ Hrísey □ Grímsey □ Grenivík □ Reykjahlíð, Mývatn NAFN_________________________ KENNITALA____________________ SUMARLEYFISSTAÐUR____________ PÓSTNÚMER_____________________________SÍMI_____________________ Utanáskriftin er: Morgunbla&i&, áskriftardeild, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. □ Laufið, HallormsstaÓ □ Söluskálar, Egilsstöðum □ Skaftárskáli, Kirkjubæjarklaustri □ Víkurskáli, Vík í Mýrdal □ Hlíðarlaug, Úthlíð, Biskupstungum □ Laugarás, Biskupstungum □ Bjarnabúð, Brautarhóli □ Verslunin Hásel, Laugarvatni □ Minni Borg, Grímsnesi □ Verslunin Grund, Flúðum □ Árborg, Gnúpverjahreppi □ Þrastarlundur □ Ölfusborgir □ Shellskálinn, Stokkseyri □ Annaö_______________________

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.