Morgunblaðið - 10.08.1996, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.08.1996, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMINGAR MESSUR Á MORGUN ARNY SIGURLAUG JÓHANNSDÓTTIR + Árný Sigurlaug Jóhanns- dóttir fæddist á Stóra Grindli í Fljótum 31. desember 1921. Hún lést á Siglufirði 13. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Siglufjarðar- kirkju 22. mars. Þegar ég nú tek mér penna í hönd til að minnast systur minnar nokkrum orðum, þá sannast það á mér hið fornkveðna að seint koma sumir en koma þó. Allt frá því að hún kvaddi þessa jarðvist hef ég gengið með þá ætlan í kollinum að skrifa nokkur kveðju- orð til hennar, en lítt orðið úr fram- kvæmdum fyrr en nú en afsökunin er sú ein, að andans kraftinn hefur vantað. Allt er breytingum undir- orpið og allt fram streymir enda- laust og menn heilsast og kveðjast. Já, systir kær, ég var fjarstaddur þegar þú háðir þitt helstríð og gat ekki verið viðstaddur kveðjustund þegar hún fór fram. Þó komið hafi fram áður í kveðjuorðum til þín hjá öðrum um uppruna þinn og ætt þá langar mig til að gera nokkra upp- riíjun á því. Foreldrar þínir voru hjónin Sig- rj'ður Jónsdóttir og Jóhann Bene- diktsson. Sigríður var fædd 17. maí 1890, dáin 14. okt. 1939. Jónsdótt- ir Ingimundarsonar, faðir hans var Ingimundur Þorleifsson bóndi á Nefstaðakoti í Stíflu. Móðir Sigríðar var Guðrún Björnsdóttir Þorsteins- sonar bónda á Spáná í Hofshreppi. Jóhann var f. 14. júní 1889, dáinn 9. júní 1964. Benedikt faðir hans var Stefánsson, Sigurðsson bónda í Minni-Brekku, móðir Sigurðar var Marsibil Jónsdóttir bróðir Björns Blöndals sýslumanns. Móðir Jó- hanns var Ingibjörg Pétursdóttir, Jónssonar, Ólafssonar bónda á Sléttu í Fljótum. Þessir stofnar voru harðgerðir og dugandi bændafólk, sem barðist í sveita síns andlits, við kröpp kjör þeirra tíma. Foreldrar þínir voru leiguliðar öll sín búskap- arár og því tíðir flutningar þeirra milli jarða. Það hlóðst fljótt mikil ómegð á þau, því fjölskyldan stækkaði ört. Það var ekkert óalgengt að betur megandi vinir og ættingjar hlypu + Ólafía Margrét Guðjónsdótt- ir var fædd á ísafirði 13. júní 1926. Hún lést 28. júlí síðast- liðinn á Landspitalanum og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 7. ágúst. Magga frænka var sérstök kona. Að henni látinni þjóta minning- arnar gegnum hugann. Magga ung og falleg, há, beinvaxin, hnarreist, djarfeyg, með sítt, þykkt dökkbrúnt hár. Göngulagið hratt og ákveðið. Hún læddist ekkert með veggjum. ,Rg var svolítið montin að eiga svona flotta frænku. Skapmikil, hispurs- laus, svolítið öfgafull var hún og lét ekki annarra álit trufla sig. Væri undir bagga og léttu á barnmörgum heimilum, með því að taka barn í fóstur. Á þessum tíma var ekkert sem hét barnabætur eða önnur að- stoð frá þjóðfélaginu, eins og þekk- ist í dag, því varð hver og einn að vera sjálfum sér nógur. Hvort það hefur verið styttri eða lengri aðdragandi að því að þá varð það okkar hlutskipti að létta á heim- ilinu með því að við vorum send i fóstur á aðra bæi hjá vandalausum og slíta þannig að vissu marki fjöl- skyldurætur okkar við föðurgarð- inn, en við vorum heppin því við lentum á góðum heimilum hjá góðu fólki, ég í Tungu og Árný á Gauta- stöðum. Þó stutt væri milli þessara bæja þá hittumst við furðu sjaldan og vorum jafnvel feimin hvort við annað eða kannski innibyrgð minni- máttar- eða sektarkennd fyrir að vera hafnað af fjölskyldunni. Hér er ég kominn út á hálann ís á sál- fræðilegum skýringum og hætti mér ekki lengra í þeim vangaveltum enda sjálfsagt erfitt að skilgreina, eða útskýra hugarástand bama. En tíminn tifaði og við þroskuð- umst smátt og smátt og gerðum okkur grein fyrir og skildum, fjár- hagslega erfiðleika foreldra okkar, og ástæðuna fyrir því að þau létu okkur frá sér. Að því leið að við urðum það þroskuð að við náðum saman, sem góð systkini og sú taug slitnaði aldrei og ég á margar góð- ar minningar um þessa systur mína sem ég mun geyma innra með mér. Árný var bráðþroska og mun fljótt hafa byrjað að létta undir með í allskyns snúningum sem til féllu á heimilinu, svo og öðrum verkum eftir því sem aldur og geta leyfðu. í stuttu máli má segja að lífshlaup hennar hafi verið slétt og fellt. í fyllingu tímans steig Arný stórt gæfuspor er hún 1942 gekk að eiga eftirlifandi mann sinn Guðmund Antonsson, mikinn mannkosta- og gæðamann. Fyrstu fjögur hjúskap- arár sin bjuggu þau í Fljótunum, en um haustið 1946 fluttu þau til Siglufjarðar, þar sem þau áttu heima æ síðan, og lengst af á Há- vegi 26, í húsi sem þau af stórhug byggðu sjálf nokkru eftir að þau fluttu til Siglufjarðar. En eftir að henni misboðið sparaði hún ekki stóru orðin. Hún gat líka verið blíð- ust allra. Magga ólst upj) í foreldra- húsum á Vegamótum á Isafirði. Ung að árum fór hún á sumrin til Siglu- fjarðar í síld ásamt móður sinni. Þar kynntist hún æskuunnusta sínum, Braga Friðrikssyni. Samband þeirra bar ávöxt og eignuðust þau tvíbura, dreng og stúlku. Drengurinn lést skömmu eftir fæðingu og stúlkan lifði aðeins í nokkra mánuði. Þessi lífsreynsla setti mark sitt á tvítuga stúlku. Leið Möggu frænku lá nú í Hjúkrunarkvennaskóla íslands. Að námi loknu hélt hún til hjúkrunar- starfa norður í landi. Magga starf- aði síðan óslitið við hjúkrun norðan- húsbóndinn missti heilsuna fluttu þau að Skálahlíð, dvalaheimili aldr- aðra á Siglufirði. Á Siglufírði tók Árný allmikinn þátt í félagsstörfum, hún var sönn félagshyggjumanneskja og studdi Framsóknarflokkinn leynt og ljóst. Réttlætiskennd var rík í hennar huga og gat hún verið ómyrk í máli þegar hún sá eða heyrði að menn voru beittir rangindum eða órétti, því sárari var hún ef lítil- magnanum var sýndur óheiðarleiki, hún var föst á sínum skoðunum og fylgdi þeim fast. Hjónaband þeirra Ámýjar og Guðmundar var farsælt og bar ríku- legan ávöxt, þar sem þau eignuðust fjögur mannvænleg börn, og eru þau öll búsett á Siglufirði. Lengst af vann Árný, auk heimil- isstarfa, utan heimilis, fyrst á síld- arplönum meðan síldin var og hét, síðan í mörg ár hjá Sigló-Síld, hún var ósérhlífm til allra starfa og því eftirsóttur vinnukraftur. Árný var hrókur alls fagnaðar í góðra manna hópi. Meðan Árný og Guðmundur bjuggu á Háveginum var það fastur dvalarstaður okkar hjónanna þegar við vorum á ferð norðanlands, og var alltaf jafn ánægjulegt að vera gestir þeirra. Þó systir mín legði alla sína alúð til að gera okkur dvölina sem ánægjulegasta, fannst henni hún geta gert betur. Henni var þessi gestrisni eðlislæg, og var hennar gleði og ánægja að taka á móti vinum og vandamönnum og gera þeim sem best til. Við hjónin eigum margar og góð- ar minningar af heimsóknum á Háveginum svo og öðrum samveru- stundum, sem við geymum, og fyr- ir þær eru þakkir færðar. I vissu minni veit ég að Árný hefur fengið góða lendingu og mót- tökur á hinni ókunnu strönd á bak- við móðuna miklu. Um leið og við hjónin sendum þessari systur minni alúðarkveðjur og þakkir fyrir langa og góða sam- fylgd, óskum við henni Guðs bless- unar og sendum fjölskyldu hennar fyllstu samúðarkveðjur. Enginn skilur lífsins leiðir lögmál tímans hulið er. Vonin ein hún birtu breiðir birtu lífs á móti þér. (O.E.) Þinn bróðir, Guðmundur. lands og sunnan uns hún lét af störf- um vegna aldurs fyrir fáum árum. Á Akureyri kynntist hún fyrri eig- inmanni sínum Kára Jónssyni prent- ara. Ein skýrasta myndin í minning- unni er af Möggu og Kára nýgiftum og hamingjusömum, gangandi á götu á ísafirði. Þar fór glæsilegj. par, sem allir tóku eftir. Á mennta- skólaárum mínum á Akureyri bjuggu Magga og Kári einmitt þar. Hjá þeim hjónum áttu Jóna Margrét frænka og undirrituð sannkallað at- hvarf. Gestrisnin var mikil og þau tóku vel á móti vinum sínum. Magga elskaði söng og gleði. Hvar nema hjá Möggu frænku hefði maður lent í því að tvista við hinn þeldökka Herbie Stubbs, á náttfötunum. Fyrstu námsárin sóttum við þau heim næstum hveija helgi. Magga var óþreytandi við að bera í okkur stórsteikur og „stríðstertur". Hvílík tilbreyting frá heimavistarfæðinu, þó að gott væri. Oftast var mjög glatt á hjalla, mikið hlegið sungið og spilað. Síðasta námsárið í MA bjuggum við Jóna Margrét hjá Möggu og Kára. Okkur leið vel, átt- um þar heima og Möggu fannst að hún ætti svolítið í okkur. Þar leigðu síðan fleiri nemendur í MA næstu árin. Seinna fluttu Magga og Kári til Reykjavíkur og svo fór að þau slitu samvistum. Síðari eiginmaður Möggu frænku var Sigurður Skúlason frá Keflavík. Þau skildu eftir nokkurra ára sambúð. Undanfarin ár bjó hún ein og heilsan tók að gefa sig. Magga var ekki eins snör í snúningum og áður. Sínu sérstaka fasi og orðalagi hélt hún fram á síðasta dag. Blessuð sé hennar minning. Friðgerður Samúelsdóttir. Guðspjall dagsins: Jesús grætur yfir Jerúsalem. (Lúk. 19.) ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks Áskirkju er minnt á guðsþjónustu í Laugarneskirkju. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Pretsur Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson, Pálmi Matthías- son. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Altarisganga. Prestur sr. María Ágústsdóttir. Organisti Marteinn H. Friðriksson. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Árni Arinbjarnarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Orgeltónleikar kl. 20.30. Lenka Mátéová organisti Fella- og Hóla- kirkju í Reykjavík. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.00. Sr. Jón Bjarman. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Organisti Pavel Manasek. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Engin guðsþjón- usta vegna sumarleyfa starfsfólks. Minnt á þjónustu í Bústaðakirkju. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11.00. Félagar úr Kór Laugarneskirkju syngja. Organisti Gunnar Gunnarsson. Ólafur Jó- hannsson. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Halldór Reynisson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11.00. Prestur sr. Hildur Sigurð- ardóttir. Organisti Kristín Jóns- dóttir. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðs- þjónusta kl. 11.00. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Organleikari Þóra Guðmundsdóttir. Prestarnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Samkoma Ungs fólks með hlutverk kl. 20. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. Organisti Smári Óla- son. Sóknarprestur. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 20.30. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Org- anisti Bjarni Jónatansson. Prest- arnir. GRAFARVOGSKIRKJA: Messa kl. 11. Ferming. Fermdar verða Eva Hrund Guðlaugsdóttir, 8 los de la Tramontane, 1200 Brussel, Belgíu, p.t. Berjarima 6, 112 R., og Tinna Hrund Birgisdóttir, 19 Rue des Tourterelles, 17110 St. Georges de Didonne, Frakklandi, p.t. Salt- hamra 16, 112 R. Vígð verða ný altarisklæði eftir Sigrúnu Jónsdótt- ur listakonu. Organisti Bjarni Þór Jónatansson. Vigfús Þór Árnason. HJALLAKIRKJA: Kvöldmessa kl. 20.30. Altarisganga. Þorgils Hlyn- ur Þorbergsson guðfræðinemi prédikar. Kór kirkjunnar syngur. Organisti OddnýJ. Þorsteinsdóttir. Kristján Einar Þorvarðarson. KÓPAVOGSKIRKJA: Helgistund kl. 11 í umsjón sr. Þorbergs Krist- jánssonar. Órganisti Örn Falkner. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Guðsþjónustur falla niður í ágústmánuði vegna sumarleyfa starfsfólks kirkjunnar. Sóknarprestarnir. KVENNAKIRKJAN: Ágústmessa Kvennakirkjunnar verður í Digra- neskirkju í Kópavogi sunnudag kl. 20.30. Séra Diana Lee Beach frá Bandaríkjunum prédikar og verður prédikunin þýdd á íslensku. Kirkju- konur syngja gamla og nýja sálma undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur. Kaffi í safnaðar- heimilinu eftir messu. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Sunnudagur: Hámessa kl. 10.30, messa kl. 14, messa á ensku kl. 20. Kl. 17 flytur Gijsen biskup messu í kapellu Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði. Mánudaga til föstudaga: messur kl. 8 og kl. 18. Laugardaga: messa kl. 8, messa á þýsku kl. 18 og messa á ensku kl. 20. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl. 11 á sunnudögum. MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár- stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl. 20. Altarisganga öll sunnudags- kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn Ragnarsson. ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al- menn samkoma kl. 11. Ræðumað- ur Guðlaugur Laufdal. Fyrirbæna- þjónusta/bænaklútar. Allir hjartan- lega velkomnir. GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Bragi Friðriksson. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Bragi Frið- riksson. Sigurður Helgi Guð- mundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Kl. 11 gregorísk messa með altaris- göngu. Hörður Bragason organisti og Einar Jónsson básúnuleikari annast tónlistarflutning. Þórhallur Heimisson. FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Guðs- þjónusta kl. 11. Organisti Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir. Einar Eyjólfsson. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl. 8. Allir velkomnir. KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur: Sigfús Baldvin Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti: Einar Örn Ein- arsson. Prestarnir. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messa kl. 14. SELFOSSKIRKJA: Messa sunnu- dag kl. 10.30. Sóknarprestur. ÞORLÁKSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Ester Hjartardóttir. Sva- var Stefánsson, VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa: Messa sunnudag kl. 13.30. Krist- inn Á. Friðfinnsson. STÓRA-NÚPSKIRKJA: Guðsþjón- usta sunnudag kl. 21. Sóknar- prestur. SKÁLHOLTSPRESTAKALL: Messa í Skálholtsdómkirkju kl. 17 sunnudag. Organisti Halldór Ósk- arsson. Fluttir verða þættir úr sumartónleikum helgarinnar og stólvers eftir síra Ólaf Jónsson á Söndum. Tónleikar kl. 15 og 17 á laugardag og kl. 15 á sunnudag. Sóknarprestur. ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Messa sunnudag kl. 14. Guðsþjón- usta á Dvalarheimilinu Lundi á Hellu kl. 13. Sóknarprestur. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end- urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl- . unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur- eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi í númer 5691181. Framvegis verður við það miðað, að um látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd en lengd annarra greina um sama einstakling er miðuð við 2.200 tölvuslög eða um 25 dálksentimetra í blaðinu. Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skfmamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR I Seltjarnarneskirkja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.