Morgunblaðið - 10.08.1996, Page 39
4
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 39
Í
Í
i
í
!
I
1
:
I
I
I
I
I
3
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
FRÉTTIR
Erindi um
nýtt naut-
gripakyn
KONRAD Kulak, erfðafræðingur frá
háskólanum í Guelph í Kanada, held-
ur tvö stutt erindi á ensku og svarar
fyrirspurnum í fundarsal Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins á
Keldnaholti kl. 10 f.h. mánudaginn
12. ágúst 1996.
Fyrra erindið nefnir hann „Relati-
onships of early performance traits
to lifetime profitability in Holstein
cows“ og það síðara „Importing a
new breed - an opportunity for ge-
netic improvement in Icelandic dairy
cattle?" Erindin eru opin ölum þeim
sem áhuga hafa.
Kulak dvelst hér í tengslum við
samskiptasamninga á milli íslenskra
rannsóknastofnana í landbúnaði og
háskólans í Guelph í Kanada. Hann
er frá Póllandi og lauk þar almennu
háskólanámi í landbúnaði en fór síð-
an til Kanada þar sem hann lauk
mastersnámi og er nú á lokaári í
doktorsnámi.
Morgunblaðið/Golli
Nýtt apótek
í Kópavogi
NÝ lyfjaverslun, Engihjallaapó-
tek.var opnuð í gær í Engihjalla 8
í Kópavogi. Eigendur verslunarinn-
ar eru lyfjafræðingarnir Jón R.
Sveinsson og Guðrún Óskarsdóttir.
Þau koma frá Höfn í Hornafirði þar
sem þau settu á stofn Hafnarapótek
í október 1977 og hafa rekið það
síðan með útibúum á Djúpavogi og
Breiðdalsvík. Á myndinni eru Jón
og Guðrún í nýju versluninni.
Ný altarisklæði
í Grafarvogs-
kirkju
NÝ ALTARISKLÆÐI eftir Sigrúnu
Jónsdóttur listakonu verða vígð við
guðsþjónustu í Grafarvogskirkju
sunnudaginn 11. ágúst.
Síðastliðin jól
var hátíðahökull
eftir Sigrúnu
vígður við há-
tíðarguðsþjón-
ustu í kirkjunni.
Altarisklæðin
sem nú verða
vígð tilheyra
samstæðu við
hökulinn. Það er Safnaðarfélag
kirkjunnar sem gefur altarisklæðin.
í guðsþjónustunni verða stúlk-
urnar Eva Hrund Guðlaugsdóttir,
búsett í Brussel í Belgíu, og Tinna
Hrund Birgisdóttir, búsett í Borde-
aux í Frakklandi, fermdar.
Útsölur á löng-
um laugardegi
LANGUR laugardagur verður í
verslunum við Laugaveginn I dag,
10. ágúst, og verða verslanir á
svæðinu opnar til klukkan 17.
í ágústmánuði eru haustútsölur
í hámarki við Laugaveginn og ná-
grenni, en þar eru rúmlega 300
verslanir. Auk verslana er mikill
fjöldi veitinga- og kaffihúsa á svæð-
inu. Þennan langa laugardag verða
einnig vörukynningar á víð og dreif
um bæinn.
Á laugardögum er frítt í öll bíla-
geymsluhús í miðbænum.
+
Arleg kvenna-
reið í Dalasýslu
SJÖTTA árlega kvennareið Dala-
sýslu verður farin í dag. Nú þegar
hafa 110 konur skráð sig í reiðina
og hafa þær aldrei verið fleiri. Kon-
urnar mæta í Flekkudalsrétt á Fells-
strönd kl. 13 og endar reiðin á grill-
veislu við Staðarfell um kvöldið.
LEIÐRÉTT
24,8% nota tóbak daglega
Tvær villur voru í töflu með nið-
urstöðum neyslukönnunar Félags-
vísindastofnunar sem birtist í blað-
inu 8. ágúst. Þar kom fram að
15,6% svarenda notuðu tóbak dag-
lega en hið rétta er að 24,8% allra
svarenda sögðust nota tóbak dag-
lega. Einnig var ranglega frá því
greint í töflunni að 98,2% svarenda
notuðu ekki tóbak. Hið rétta er að
33,2% svarenda sögðust nota tóbak
en 66,8% sögðust aldrei gera það.
Er beðist velvirðingar á þessu.
Litabækur
verðlaunaðar
EGGERT Kristjánsson hf. heild-
verslun, Sundagörðum 4, umboðs-
aðili Prince Lu kex á Islandi, efndi
til samkeppni meðal barna þar
sem börn luku við gerð ævintýra-
sögu um Prince Lu.
Börnin urðu að ljúka við að lita
teikningar í litabók og semja
framhald sögu og ævintýraferðar
um Prince Lu við að bjarga prins-
essu frá eldspúandi dreka.
Yfir 400 börn frá öllum lands-
hlutum tóku þátt í samkeppninni
og sendu inn litabækur. Dómnefnd
valdi 46 lita- og sögubækur er
þóttu skarafram úr. Vinningshaf-
ar hlutu að launum ævintýr-
akubba frá Lego.
Af þessu tilefni bauð Eggert
Kristjánsson hf. heildverslun vinn-
ingshöfum til samsætis í húsa-
kynni sín að Sundagörðum 4. Þar
hittu vinningshafarnir Prince Lu
sem þakkaði þeim kærlega fyrir
aðstoðina við bjarga prinsessunni,
og afhenti þeim verðlaunin.
Sölusýning
á Garðatorgi
GARÐATORG, Garðabæ, býður
handverksfólki að vera með sölu-
sýningu í dag, laugardag, og mánu-
daginn 11. ágúst. Áður voru sýning-
ar með sama sniði í apríl og maí.
Raðganga FI
og Útivistar
hefst að nýju
RAÐGANGA Ferðafélagsins og Úti-
vistar hefst að nýju eftir sumarfrí á
morgun, sunnudaginn 11. ágúst.
Þetta verður sjötti áfanginn Blá-
ijöll-Sleggjubeinsdalir.
Mæting í ferðina er við Umferð-
armiðstöðina kl. 10.30. Stansað
verður við Mörkina 6 og Árbæjar-
safn. Boðið verður upp á sætaferðir
frá SBK, Keflavík kl. 10.00. Frá
Bláfjallaskála verður gengið suður
fyrir Bláíjöll og yfir Kerlingarhnjúk
að Fjallinu eina. Þaðan eftir gamla
Ólafsskarðsveginum að eldstöðinni
Leitin, Syðri- og Nyrðri-Eldborg og
Lambafelli og áfram að Litla Reykja-
felli. Áfanganum lýkur í Sleggju-
beinsdölum. Þetta er falleg, tiltölu-
lega greiðfær leið og á henni er
margt skoðunarvert. Öll leiðin er
yfir 20 km en að venju verður gef-
inn kostur á að stytta gönguleiðina.
í Gæðagarni
og lopa
MYND af eigendum verslunarinnar
Gæðagarn og lopi í Glæsibæ féll
niður með frétt Morgunblaðsins á
föstudag. Eigendur eru Ólafía
Magnúsdóttir og Guðlaug Magnús-
dóttir. Eins og nafnið bendir til eru
garn og lopi til sölu, en einnig verð-
ur rekin póstþjónusta við lands-
byggðina, haldin námskeið og
pijónað fyrir þá, sem ekki hafa tíma
til þess sjálfir.
KÓNGALJÓS
(Verbascum longifolium)
FYRIR stuttu var
haldin árshátíð Garð-
yrkjufélags íslands,
garðaskoðunardag-
urinn. Til fróðleiks
þeim sem ekki eru
félagar er rétt að út-
skýra þetta nánar.
Garðaskoðunardag-
urinn er haldinn síð-
degis seinni hluta júlí.
Þá opna nokkrir fé-
lagsmenn í Reykjavík
eða nágrannabyggð-
um garða sína fyrir
félagsmönnum og
þeirra gestum svo
færi gefst á að ganga
um, skoða bæði gróð-
ur og skipulag og fræðast. Þátt-
taka í garðaskoðuninni er mjög
mikii en mörg hundruð áhuga-
samir ræktendur notfæra sér
þetta einstaka tækifæri. Þarna
hittast félagar víðs vegar að af
landinu, skoða, velta vöngum og
rabba saman um sameiginlegt
áhugamál og alltaf kemur maður
fróðari heim og ósjaldan sér mað-
ur eitthvað, sem maður blátt
áfram „verður“ að eignast. Það
var einmitt garðaskoðunin sem
varð kveikjan að þessum blóma-
pistli. í einum garðanna sá ég
nokkrar gerðir kyndla eða kónga-
ljósa eins og ættkvísl-
in Verbascum er köll-
uð. í ættkvíslinni eru
nálægt 250 tegundir
og þær vaxa villtar
bæði í Norður-Afr-
íku, Litlu-Asíu og
Suðaustur-Evrópu.
Meira að segja vaxa
villt kóngaljós í Dan-
mörku. Sameiginlegt
einkenni kóngaljósa
eða kyndla er blað-
hvirfing loðinna, heil-
renndra laufblaða
sem langur blóm-
stöngull vex upp úr.
Þau eru ýmist tvíær
eða fjölær og eru
venjulega allstórvaxin, en þó
flokkast nokkrar gerðir kónga-
ljósa með steinhæðaplöntum.
Kóngaljós eru frekar sjaldgæf í
görðum á íslandi og ekki algeng
í gróðrarstöðvum, en þó er a.m.k.
blámannsljós stundum á boðstól-
um. Blámannsljós er fjölært og
mun fíngerðara en önnur kónga-
ljós sem ég þekki, blómstöngulinn
60-80 cm hár. Blómlitur þess er
breytilegur, hvítur, bleikur, rós-
rauður eða fjólublár. í garðaskoð-
uninni sá ég balkankyndil, Ver-
bascum chaixii, sem var að búa
sig undir blómgun, en því miður
BLÓM
VIKUNNAR
338. þáttur
Hmsjón Ágústa
Björnsdóítir
KÓNGALJÓS - verbascum longifolium.
ekki útsprunginn, en flestir kyndl-
ar eða kóngaljós blómstra í ágúst-
byijun. Balkankyndill er allstór,
þar sem blómstöngullinn verður
liðlega metri á hæð og blómin eru
ljósgul á lit. Þó er til hvítt af-
brigði, sem er mjög fallegt, með
fjólubláum fræflum, en það var
einmitt hvíta afbrigðið sem þarna
dafnaði vel. Eitt sinn sáði ég til
ólympíukyndils sem myndaði
mjög glæsilega blaðhvirfingu og
upp úr henni teygði sig síðan 2 m
hár marggreinóttur blómstöngull,
lýsandi gulur á lit. Ótrúlega glæsi-
leg jurt sögðu ýmsir sem sáu dýrð-
ina, en mér varð ekki um sel. í
mínum augum líktist þetta mest
einhveijum óskapnaði og minnti
mig helst á blómstrandi rófu, enda
var ólympíukyndillinn á kolvit-
lausum stað í garðinum, framar-
lega í litlu beði. Fegin varð ég
þegar hann visnaði niður og ekki
saknaði ég hans þegar hann
reyndist aðeins tvíær, en það eru
þær jurtir kallaðar, sem deyja að
aflokinni blómgun, hvort heldur
hún verðúr á öðru eða tíunda ári
eftir að jurtin spírar. Uppáhalds
kyndillinn minn er hins vegar
sjálft kóngaljósið - Verbascum
longifolium - sem ég hef átt í
mörg ár. Blöðin í hvirfingunni eru
sannarlega löng eins og latneska
nafnið segir, eða allt að 60 cm,
svo loðin að þau virðast nánast
silfurhvít, einkum á neðra borði,
lensulöguð, jaðrarnir nánast alveg
sléttir en blöðin bylgjuð. Blóm-
stöngullinn vex síðan allt að 1,5
m upp úr hvirfingunni. Hann ber
einnig blöð, sem verða gisnari og
minni eftir því sem ofar dregur,
og er allur gráhvítur áður en
blómin springa út, sem er venju-
lega seint í júlí. Krónublöðin eru
5, skærgul að lit en fræflarnir
rauðgulir og setja mikinn svip á
blómið. Neðstu blómin í ógreindri
blómskipuninni springa fyrst út,
en brátt stendur allur stöngullinn
í gullnum loga. Blómin standa
lengi, en þegar þau eru fallin,
opnast eitt og eitt blóm upp eftir
stönglinum, sem þroskast hefur
seinna en hin. Kóngaljósið hefur
reynst mér mjög harðgert og
myndar smám saman fleiri blað-
hvirfingar þannig að í sumar ber
það 8 blómstöngla. Kyndlar eða
kóngaljós almennt vilja helst
mikla sól og kjósa fremur þurran
jarðveg, en þrífast vel í venjulegri
garðmold. Venjulega er fræ af
ýmsum gerðum kóngaljósa á fræ-
íista G.I.
S.Hj.