Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 1
104 SÍÐURB/C
205. TBL. 84.ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hyggjast
reisa hæstu
byggingu
Evrópu
NORSKA fyrirtækið Kværner
ASA greindi í gær frá fyrirætl-
unum um að reisa hæstu bygg-
ingu Evrópu í miðju fjármála-
hverfi London, City. Trafalgar
House, útibú Kværner, mun
standa fyrir því að hin 390 metra
háa, 92 hæða bygging risi. Húsið
á að heita Árþúsundaturninn og
er stefnt að því að framkvæmd-
um Ijúki fyrir árið 2001 til að
fagna mótum alda og árþúsunda.
„Þetta ber vitni trú á City á
næstu öld . . . það er mikil
hvatning til þess að þessi bygg-
ing skari fram úr,“ sagði Norman
Foster, arkitekt hússins, sem hér
sést við líkan af sköpunarverki
sínu á blaðamannafundi í gær.
Ekki er mikið um háar bygg-
ingar í Evrópu og turninn myndi
Reuter
gnæfa yfir þá, sem nú ber hæst.
Hún er í Frankfurt, höfuðstöðvar
Commerzbank, 300 metrar á
hæð. Áætlað er að það muni
kosta 400 milljónir punda (um
40 milljarða króna) að reisa Ár-
þúsundaturninn. Búist er við að
það muni taka nokkurn tima að
fá tilskilin leyfi fyrir bygging-
unni.
Netanyahu í Bandaríkjunum
Útilokar ekki eftir-
gjöf Gólan-hæða
Washington, Jcrúsalem. Reuter.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, kom af stað mikl-
um vangaveltum í heimalandi sínu
í gær er hann útilokaði ekki að
ísraelar myndu kalla herlið sitt
heim frá Gólanhæðum til að ná
friðarsamningum við Sýrlendinga.
Fréttamenn ræddu við Netanyahu
á leið til Bandaríkjanna þar sem
hann átti viðræður við ráðamenn.
Eftir þingkosningarnar í vor
hleypti Netanyahu illu blóði í araba
er hann neitaði að fallast á hug-
myndir um að skipta á landsvæð-
um fyrir frið. Því kemur mjög á
óvart nú að hann skuli ekki lengur
þvertaka fyrir að láta Gólanhæðir
af hendi. Er Netanyahu var spurð-
ur hvort útilokað væri að herlið
ísraela yrði kallað heim, sagði
hann mikilvægast að „vinna bug
á því skilyrði Sýrlendinga fyrir því
að hefja samningaviðræður um
Gólan-hæðir, að við látum þær
eftir.“
Netanyahu átti fundi með Bill
Clinton Bandaríkjaforseta, Warr-
en Christopher utanríkisráðherra
og Wiljiam Perry varnarmálaráð-
herra. í lok fundanna með ráðherr-
unum lýsti hann yfir fullum stuðn-
ingi við eldflaugaárásir Banda-
ríkjamanna á hernaðarmannvirki
í Irak.
Shimon Peres, fyri'verandi for-
sætisráðherra ísraels, lýsti þvi yfir
í gær að Netanyahu ætti vísan
stuðning sinn og flokksbræðra
sinna á þingi, ef svo færi að til-
raunir hans til að stuðla að friði
myndu sprengja ríkisstjórnarsam-
starfið.
Átök fylkinga Kúrda í írak valda fólksflótta til írans
Menn Barzanis að
ná Sulaimaniya
Dukan, Diyarbakir, Istanbúl. Reuter.
LIÐSMENN Kúrdaleiðtogans
Massouds Barzanis í írak hertu enn
sókn sína í gær gegn samtökum
Jalals Talabanis og sögðust síðdeg-
is í gær vera komnir inn í borgina
Sulaimaniya, öflugasta vígi hans.
Áður höfðu þeir tekið mikilvægt
raforkuver við bæinn Dukan. Barz-
ani naut aðstoðar írakshers við að
taka Árbil, höfuðstað Kúrdabyggð-
anna í Irak, fyrir rúmri viku.
Talabani hefur að sögn andstæð-
inga_ sinna fengið hernaðaraðstoð
frá íran. Eru tugþúsundir manna
í suðausturhluta Kúrdahéraðanna,
þar sem hann hefur ráðið iögum
og lofum, sagðar ætla að flýja yfir
landamærin til Irans undan heijum
Barzanis.
Ekkert benti til þess að íraskir
hermenn tækju þátt í bardögunum
í gær en her Saddams Husseins
forseta er enn með nokkurn liðs-
afla í Kúrdahéruðunum. Samtök
Talabanis, Þjóðernisbandalag
Kúrdistans (PUK), sendu frá sér
yfirlýsingu í gær þar sem sagði að
hætta væri á að Sulaimaniya, þar
sem um milljón manns býr, félli
og voru Bandaríkjamenn beðnir um
aðstoð.
Menn Barzanis voru vígreifir en
þeir náðu á sitt vald miklu af her-
gögnum er þeir tóku Arbil, þ.á m.
fallbyssum og brynvögnum. „Tala-
bani verður að gera upp við sig
hvort hann viðurkennir ósigur,"
sagði Barzani i gær. Hann bætti
við að hann vildi efna til nýrra
kosninga en síðast, árið 1992,
fengu flokkur hans, Lýðræðisflokk-
ur Kúrdistans (KDP), og PUK jafn-
marga þingmenn og skiptu um
hríð með sér völdum.
Ljóst þykir að forsendur loft-
verndar sem Vesturveldin hafa
veitt Kúrdum í írak frá 1991 séu
nú breyttar vegna samstarfs Barz-
anis við Saddam. Vestrænn stjórn-
arerindreki taldi þó óveijandi að
átök Barzanis og Talabanis yrðu
til þess að ofurselja saklausa borg-
ara í héruðunum stefnu íraksfor-
seta. Flugvélar sem annast vernd-
ina hafa bækistöðvar i Tyrklandi
og vilja Tyrkir að skipulag aðgerð-
anna verði í auknum mæli í þeirra
höndum.
írakar mótmæla
varnarbelti
Tyrkir sögðust í gær hafa á
nokkrum dögum fellt 26 liðsmenn
kúrdískra skæruliðasamtaka er
beijast fyrir auknu sjálfstæði
Kúrda í Tyrklandi og hafa komið
sér upp búðuin handan við landa-
mærin í írak. írösk sendinefnd er
á förum til Ankara til að mótmæla
áformum Tyrkja um að koma upp
10 km breiðu varnarbelti á írösku
landi handan landamæranna til að
reyna að hindra aðgerðir skærulið-
anna, að sögn opinberu írösku
fréttastofunnar INA í gær.
Fyrrverandi erkibiskup af Kantaraborg ræðir hjónaskilnað aldarinnar
Lýsir Díönu
sem leikkonu
I.ondon. Reutcr.
ROBERT Runcie, fyrrverandi
erkibiskup af Kantaraborg og yf-
irmaður ensku biskupakirkjunnar,
lýsir Díönu prinsessu sem „leik-
konu“ og „ráðabruggara“, en
kveðst hafa áhyggjur af framtíð
hennar. Runcie kveðst einnig hafa
vitað af sambandi Karls Breta-
prins, fyri'verandi eiginmanns Dí-
önu, og Camillu Parker-Bowles
áður en það varð altalað í fjölmiðl-
um.
Runcie kveðst telja að ráðahag-
ur Karls og Díönu hafi verið
ákveðinn án samráðs við þau og
Karl hafi verið mjög þunglyndur
fyrir vegna þess. í nokkrum við-
tölum, sem tekin voru upp á segul-
band í tilefni af ævisögu Runcies,
segist hann hafa séð bresti í
hjónabandi þeirra snemma, löngu
áður en hjónabandsörðugleikar
Karls og Díönu urðu opinberir.
Karl þunglyndur
Runcie segir um ömniu Díönu,
lafði Ruth Fermoy, að hún hafi
haft „miklar áhyggjur af hegðun
Díönu. . . Hún var í einu og
öllu á bandi Karls . . . og leit
á Díönu sem leikkonu, ráða-
bruggara - sem auðvitað er allt
satt“.
Runcie minnist þess að hafa
hitt Karl og Díönu ásamt presti
þeirra, Richard Chartres, til að
ræða brúðkaupið. „Richard sagði
við mig: „Hann [Karl] er mjög
þunglyndur. Þú getur heyrt það
á röddinni." Við töldum að hjóna-
bandið hefði verið ákveðið fyrir-
fram, en ég var þeirrar hyggju
að þau væru geðugt par og hún
myndi aðlagast hlutverkinu,“ seg-
ir Runcie.
Bókin um Runcie kemur út
síðar á árinu, en viðtölin, sem
voru tekin fyrir þremur árum,
voru birt í gær. Runcie, sem var
erkibiskup af Kantaraborg frá
1980 til 1991, kveðst óánægður
með það að ýmis ummæli, sem
hann ætlaðist til að færu ekki
lengra, muni birtast í bókinni,
sem er eftir Humphrey Carpent-
er.
I bókinni verða prentuð eftir-
farandi orð Runcies: „Ég hef gert
mitt ýtrasta til að deyja fyrir út-
komu þessarar bókar.“
Reuter
„Hjarta
Sarajevo
slær aftur“
ÚRSLITIN voru áhorfendum
ekki efst í huga á opnunardegi
fyrsta alþjóðlega frjálsíþrótta-
mótsins sem haldið er í Sarajevo
í Bosníu frá því að stríðið braust
út þar í landi. „Hjarta borgar
okkar slær aftur," sagði Enver
Jiga, einn af skipuleggjendum
mótsins en það er haldið á
Kosevo-leikvanginum, þar sem
setningar- og lokaathöfn vetr-
arólympíuleikanna í Sarajevo
1984 fóru fram. Um 100 milljón-
um ísl. kr. hefur verið varið í
uppbyggingu vallarins.