Morgunblaðið - 10.09.1996, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 9
FRÉTTIR
Sá stærsti úr
Elliðaánum
JÓN Þór Júlíusson, 15 ára gam-
all, veiddi um helgina stærsta lax-
inn sem komið hefur á land úr
Elliðaánum í sumar. Var það 15
punda leginn hængur sem ugg-
laust hefur verið 17-18 pund á
góðum degi fyrr í sumar. Laxinn
veiddi Jón Þór á maðk og stóð
viðureignin í um 15 mínútur.
Faðir Jóns, Júlíus Jónsson
kaupmaður, sem er fengsæll
veiðimaður, sagði í samtali við
Morgunbiaðið að viðureignin
hefði verið snörp, laxinn hefði
tekið agnið í Stórhyl og rokið nið-
ur Skáfossana og niður undir
göngubrú áður en honum var
landað. „Strákurinn er efnilegur.
í fyrra veiddi hann einn 13 punda
í sama veiðistað. Það var á barna-
og unglingadegi SVFR í ánum
og þá fékk 6 ára veiðidaman litla
alla athyglina með 13,5 punda
flugulax. En laxinn hans Jóns var
líka fallegur, grálúsug hrygna,“
bætti Júlíus við.
Rúmlega meðalveiði í Selá
Vífill Oddsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærdag að
veiðin í Selá væri um þessar
mundir milli 860 og 870 laxar.
Enn er veitt á efra svæðinu, en
í hönd fara á neðra svæðinu tvö
tveggja daga holl þar sem leigu-
takarnir, Veiðiklúbburinn Streng-
ur, veiða lax í klak. Meðalveiði í
Selá síðustu 20 árin er um 820
laxar og er veiðin því aðeins yfir
meðalveiði. Sé aðeins miðað við
síðustu tíu árin, þá er veiðin und-
ir meðalveiði sem er rúmlega
1.000 laxar.
Vífill sagði hópinn, sem nú er
á efra svæðinu, hafa dregið 14
laxa á einum og hálfum degi, en
mest sé það leginn lax, lítið hafi
gengið af nýjum fiski nú undir lok
veiðitímans.
Ýmsar tölur ...
Laxá í Dölum er komin yfir
1.000 laxa og eru það heldur en
ekki umskipti frá síðustu mögru
Útijakkar frá DANÍEL D.
með háum kraga.
TBSS
v neö
neöst viö
Dunhaga,
sími 562 2230
Opið virka daga
kl.9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
ítalskir jakkar
ull og kasmír kr. 14.900
ull og tweed kr. 14.900
Hverfisgötu 78, sími 552 8980
v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
Sími 561 1680.
JÓN Þór Júlíusson með 15 pundarann.
sumrum. Fregnir herma að þar
vestra slæðist enn inn nýir laxar,
en mest er verið að veiða úr legn-
um löngu gengnum löxum. Tals-
verður lax er í ánni og vatnsmagn
gott.
Hópur sem var nýverið í Vatnsá
við Vík fékk 9 fiska, blöndu af
laxi og birtingi, á tveimur dögum.
Það fylgdi sögunni að talsvert
hefði sést af fiski en tekið illa.
Laxarnir úr Tungufljóti eru nú
orðnir tuttugu á bakkanum, en
menn bíða enn eftir hvelli í sjóbirt-
ingsgöngum. Aðeins milli 60 og
70 urriðar eru bókaðir og er eitt-
hvað af því staðbundinn fiskur
veiddur fyrr á veiðitímanum. í
fyrra rættist ekki úr fyrr en við
mánaðamót september og októ-
ber.
DRAKTIR |
ÓTTU ÞESS BESTA
MAT OG DRYKK.
reiais &
CHATEAUX.
ÞAÐ KOSTAR EKKI MEIRA.
ÖFNBAKAÐUR HUMAR í
PASTA-UMGjÖRÐ MEÐ
K.RYDDSÓSU „ÉPICE".
XALFAKjÖT MEÐ
HINDBERJASÓSU OG
KREMUÐUM BLAÐLAUK.
Aldsteikt jARÐARBER
MEÐ APPELSÍNUÍS.
BERGSTAÐASTRÆTl 37
SÍMl: 552 57 00, FAX: 562 30 25 SÝNISHORN ÚR MATSEÐLl.
7
7
fl * ^
Nýtt útbob
ríkisbréfa
mibvikudaginn 11. september 1996
Ríkisbréf, 1. fl. 1995,
til 3 ára
Útgáfudagur: 19. maí 1995
Gjalddagi: 10. apríl 1998
Greiðsludagur:
Einingar bréfa:
Skráning:
13. september 1996
100.000. 1.000.000,
10.000.000 kr.
Eru skráð á Verðbréfa-
þingi íslands
Ríkisbréf, 1. fl. 1995,
til 5 ára
Útgáfudagur: 22. september 1995
Gjalddagi: 10. október 2000
Greiðsludagur: 13. september 1996
Einingar bréfa: 100.000. 1.000.000,
10.000.000 kr.
Skráning: Eru skráð á Verðbréfa-
þingi íslands
Sölufyrirkomulag:
Ríkisbréfin verða seld meö tilboðsfyrirkomulagi. Öllum er heimilt að bjóða í ríkisbréf
að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki lægri en 10 milijónir króna að
nafnverði.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóöum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréfasjóðum,
lífeyrissjóðum og tryggingafélögum er heimilt í eigin nafni, að gera tilboö í meðalverö
samþykktra tilboða, að lágmarki 100.000 krónur.
Öll tilboð í ríkisbréf þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14:00 á morgun,
miðvikudaginn 11. september 1996. Útboðsskilmálar, önnur tilboðsgögn og allar
nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 562 4070.