Morgunblaðið - 10.09.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 13
AKUREYRI
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Velheppnuðu Listasumri á Akureyri lokið í fjórða sinn
Sex leiksýningar, átta myndlist-
arsýningar og tónlistarviðburðir
Landið
fýkur
burt
ENGU er líkara en landið sé
að fjúka burt á þessari mynd
sem tekin var við svokölluð
Börð suðvestur af Sellanda-
fjalli í Mývatnssveit. Bændur
í sveitinni hafa dreift áburði
á svæðið og er vonandi að
það beri árangur þótt síðar
verði.
Forstöðumaður Sund-
laugar Akureyrar
Mælt með
Gísla Kr.
Lórenzsyni
ÍÞRÓTTA - og tómstundaráð
Akureyrar hefur mælt með því að
Gísli Kristinn Lórenzson verði ráð-
inn í stöðu forstöðumanns Sund-
laugar Akureyrar.
Gísli Kr. Lórenszonar er vara-
slökkviliðsstjóri Slökkvilið Akur-
eyrar en hann hefur látið iþrótta-
mál til sín taka um áratuga skeið,
m.a. verið formaður Andrésar and-
arnefndarinnar sem stenfur fyrir
fjölmennasta skíðamóti landsins
ár hvert og þá hefur hann setið í
skíðaráði.
Ellefu sóttu um stöðuna, en
bæjarráð og bæjarstjórn eiga eftir
að taka málið til endanlegrar af-
greiðslu. Sigurður Guðmundsson
sem gengt hefur stöðunni síðustu
ár hefur verið ráðinn íþróttafull-
trúi Mosfellsbæjar og mun láta af
störfum innan skamms.
Viltu
endilega
borga
meira
en þú
þarft
fyrir
gleraugun?
EF SVO ER - ÞÁ ERUM
VIÐ EKKI RÉTTA GLER-
AUGNAVERSLUNIN
FYRIR ÞIG
LISTASUMRI á Akureyri lauk
um helgina þegar lokahátíð Lista-
sumars var haldin í Ketilhúsinu.
Aðsókn að viðburðum var með
ágætum og hefur Listasumar sem
nú var haldið í fjórða sinn skapað
sér sess í menningarlífi bæjarins.
Að sögn Hafliða Helgasonar
framkvæmdastjóra var boðið upp
á fjölbreytta og sérlega vandaða
listviðburði. Sex leiksýningar af
misjöfnum toga voru í boði, átta
myndlistarsýningar og vel á ann-
an tug tónlistarviðburða, auk
djasskvölda sem voru haldin einu
sinni í viku. „Það var einkar
ánægjulegt að við fengum mikið
af ungu og efnilegu tónlistarfólki
sem fram kom á tónleikum sum-
arsins,“ sagði Hafliði.
Kostnaður um 2 milljónir
Ýmsir fastir liðir Listasumars,
eins og djasskvöld á fimmtudög-
um voru vel sóttir og sagði Haf-
liði að djasskvöldin hefðu öðlast
þann sess að djassleikarar sætu
um að fá að koma fram.
„Listasumar hefur vakið at-
hygli á bænum, en við urðum vör
við áhuga innlendra ferðamanna,
t.d. þeirra sem dvöldu í bænum
eða nágrenni hans í orlofshúsum
en það fólk var duglegt að sækja
viðburði þá sem í boði voru,“ sagði
Hafliði. „Ég tel að Listasumar sé
verðmætt fyrir bæinn og hafi
styrkt ímynd hans.“
Áætlað er að kostnaður við
Listasumar verði um 2 milljónir
króna. Framlag Akureyrarbæjar
er 1,2 milljónir og þá hafa fyrir-
tæki einnig lagt hönd á plóginn
„Við höfum notið góðvilja þeirra
sem fram hafa komið, margir
ekki tekið annað fyrir en ánægj-
una og það er okkur sérstaklega
mikilvægt,“ sagði Hafliði. „Miðað
við þá vönduðu dagskrá sem í
boði var er kostnaðurinn hlægi-
legur.“
v a
Margmiðlunartö
Reiknaðu dæmið til enda
Einstakt tækifæri til að eignast öfluga More tölvu og Microsoft Office Pro
100 Mhz örgjörvi
16MB vinnsluminni.
8 hraða geisladrif
Þú færð líka:
Word 6.
Schedule.
• Öfluga hátalara
• Windows 95 stýrikerfi
á geisladiskum
• Músarmottu
• 10 vinsæla leiki
Powerpoint.
15" ViewSonic litaskjár
-850MB harður diskur
Excel
Access
Windows 95
samhæft lyklaborð
___Þriggja hnappa mús
Ein meö öllu! kr. 189.900,-
eða kr. 152.530,- án vsk. Verðlistaverð á þessum búnaði er kr. 288.780,-
Frítt mótald og Internetaðgangur í 1 mánuð fyrir 10 fyrstu kaupendurna*
*Kynntu þér möguleika ISDN BOÐEIND VievtSonic MORE
Mörkinni (i • Sfmi S8S 20KI • Fax 588 2002
KvKug: buitiiind@mnwdia.is
Lækiaruölti 6
Reykjavík
Sími 5S l 6505
- kjarni málsins!