Morgunblaðið - 10.09.1996, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
ERLEIVIT
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
Heildarframleiðsla SH fyrstu átta mánuði ársins
20.000 tonna aukning
frá sama tíma í fyrra
Brottflutningur
hermanna hafinn
Moskvu. Reuter.
HEILDARFRAMLEIÐSLA SH
fyrstu átta mánuði ársins varð
tæplega 90.000 tonn, en var á
sama tíma í fyrra rúm 70.000
tonn. Framleiðslan hefur því auk-
izt milli ára um 22%. Heildarfram-
leiðsla á síðasta ári varð tæplega
110.000 tonn, en það ár var annað
bezta árið í sögu SH, þegar litið
er til framleiðslunnar. Aðeins
vantar framleiðslu upp á 20.000
tonn það sem af er ári til að ná
sama magni og þá.
Innlend framleiðsla SH jókst um
22% milli ára og er nú tæp 77.000
tonn. Framleiðendur halda hlut
sínum í bolfiski, en heildarfram-
leiðsla á honum er rúm 40.000
KRISTJÁN Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, hefur farið þess á leit við
fjármálaráðherra að hann upplýsi
hvar hafi komið fram að Eftirlits-
stofnun EFTA geri kröfu um að
samræma tryggingagjald á sjávar-
útveg og annan atvinnurekstur.
Heimildir LÍÚ væru á þann veg að
engin slík krafa hefði komið fram
enda ekki samið um sjávarútvegs-
mál í EES-samningnum.
Kristján telur þá fullyrðingu fjár-
málaráðuneytisins sem fram kemur
í fréttatilkynningu dagsettri 25.
júní sl. ranga, en þar segir m.a.:
„Að undanförnu hafa átt sér stað
viðræður milli Eftirlitsstofnunar
EFTA (ESA) og íslenskra stjórn-
valda um samræmingu trygginga-
gjalds. Hefur stofnunin látið í ljósi
það álit sitt að mismunandi álagn-
ing tryggingagjalds geti talist ríkis-
styrkir til þeirra atvinnugreina sem
greiða lægra tryggingagjald."
Enginn, sem þekkir til þessa
máls, lætur sér til hugar koma að
Eftiríitsstofnun EFTA geti gert
þessa kröfu þegar fyrir liggur að
Evrópusambandið styrkir sjávarút-
veg bandalagsríkjanna í bak og
fyrir. Nýjar álögur á sjávarútveginn
virðist eiga að réttlæta með kröfu
frá Eftirlitsstofnun EFTA, að sögn
Kristjáns. „Það veldur íslenskum
sjávarútvegi ómældu tjóni að þurfa
að keppa á erlendum mörkuðum
við ríkisstyrktan sjávarútveg Evr-
ópubandalagsríkjanna og svo virðist
sem íslensk stjómvöld stefni að því
að gera þessa samkeppnisstöðu enn
erfiðari.“
Tryggingagjald fjármagnar líf-
Framleiðslan alls
orðin tæplega
90.000 tonn
tonn. Aukin framleiðsla á karfa,
steinbít og öðrum veigaminni teg-
undum vegur upp samdrátt á
framleiðslu á ýsu-, ufsa- og grál-
úðuafurðum.
Framleiðsla á þorski jókst um 1%
milli ára, þrátt fyrir samdrátt í
veiðum. Framleiðsla á rækju og
humri hefur aukizt um rúmlega
50%. Heildarframleiðsla skelfisk-
afurða er um 9.000 tonn. Fram-
eyristryggingar Tryggingastofn-
unar ríkisins og Átvinnuleysis-
tryggingasjóð. Bætur úr þessum
sjóðum eru jafnar til hvers einstakl-
ings. „Ef áform eru uppi um að
jafna tryggingagjöld væri eðlilegt
að gera það með því að hver vinnu-
veitandi greiddi sama gjald fyrir
unna vinnuviku. Þá væri gjaldtakan
í samræmi við kostnað af hveijum
launþega. Nú greiðir útgerðin 2.447
kr. fyrir hveija vinnuviku meðan
verslunin greiðir 2.333 kr. Þessi
niðurstaða liggur fyrir þótt útgerðin
greiði 3,55% af launum, en verslun-
in 6,85%. Miðað við hugmyndir ijár-
málaráðherra um ,jöfnun“ gjaldsins
mun útgerðin greiða 3.794 kr. fyrir
hvern launþega á viku, en verslunin
1.874 kr. Ef þetta er jöfnun miðað
við að hver launþegi fær sömu
krónutölu í bætur frá lífeyristrygg-
ingum og í atvinnuleysisbætur, þá
er þetta aukinn ójöfnuður," segir
Kristján.
Hugmyndir fjármálaráðherra um
fyrirhugaðar breytingar, sem ríkis-
stjórnin hefur lýst vilja sínum til,
fela í sér nýjar byrðar á sjávarút-
veginn að fjárhæð 640 milljónir
króna, þar af 420 milljónir kr. á
útgerðina og 220 á fiskvinnsluna,
en greiðslur ríkis og sveitarfélaga
af eigin atvinnurekstri munu lækka
um 710 milljónir króna, að sögn
Kristjáns. „Það er því augljóst að
hér er ekki verið að tala um jöfnun
heldur ívilnun fyrir verslun og þjón-
ustu og atvinnurekstur hins opin-
bera á kostnað sjávarútvegsins og
samkeppnisiðnaðar. Á þessu ári
hefur ríkisstjórnin lagt á sjávarút-
veginn nýja skatta sem nema um
leiðsla á síld jókst um 169% og í
loðnu er framleiðsluaukningin
131%. Þar fór framleiðslan úr rúm-
um 10.000 tonnum í 24.000.
Ef litið er til erlendu framleiðsl-
unnar, kemur í ljós að hún eykst
um 20%. Fer úr 10.000 tonnum í
rúm 12.000. Framleiðsla og sam-
starf við hina erlendu framleiðend-
ur er komin á nokkuð fastan grunn
og er aukning framleiðslunnar til-
tölulega stöðug. Þessi framleiðsla
fellur vel að núverandi sölu- og
markaðskerfi SH og styrkir það
verulega. Hinum erlendu aðilum
hefur til dæmis tekizt að bæta upp
að nokkru samdrátt í innlendri
framleiðslu á grálúðu.
630 milljónum króna. Er þar um
að ræða 500 milljóna króna framlag
í Þróunarsjóð og 130 milljónir króna
til Tryggingastofnunar ríkisins í
formi sérstaks launaskatts er nem-
ur 0,65% af greiddum launum."
Formaðurinn hefur eindregið
farið þess á leit við íjármálaráð-
herra að horfið verði frá þessum
hugmyndum enda væri hann þess
fullviss að þessar nýju byrðar
myndu valda ómældu tjóni á at-
vinnustarfsemi á landsbyggðinni,
sem í dag ætti mjög í vök að verj-
ast.
Kristján bendir sömuleiðis á í
bréfi sínu til fjármálaráðherra að
launagreiðslur útgerðar ættu sér
enga hliðstæðu í launakerfum hér
á landi. Um væri að ræða hluta-
skipti þar sem útgerð og sjómenn
skiptu með sér aflaverðmæti. Auk-
in hlutfallsleg gjöld á hlut útgerðar
skekktu því hlutaskiptin og yllu
varanlegum breytingum á skiptum
milli útgerðar og sjómanna. Ef
leggja ætti gjöld á með þeim hætti,
sem áformað hefur verið, ætti ekki
annað að koma til greina en að
leggja þau á aflaverðmætið áður
en til hlutaskipta kæmi, að mati
formanns LIU.
Útgerðarmenn telja að allur fyr-
irhugaður „jöfnuður“ felist fyrst
og fremst í því að ríkið sé að koma
kostnaði af sér og yfir á sjávarút-
veginn. „Við erum alls ekki að hlífa
okkur við því að borga sama hlut-
fall og aðrir, en menn eiga þá líka
að fá greiðslur úr sjóðum þessum
í samræmi við þær upphæðir, sem
greiddar hafa verið í trygginga-
gjald.“
BROTTFLUTNINGUR rússneskra
hermanna frá Tsjetsjníju hófst á
sunnudag eins og gert var ráð fyrir
í friðarsamkomulagi Rússa og
tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna.
Herhljómsveit lék fjörug lög við
kveðjuathöfn á rússneskum herflug-
velli skammt frá Grosní þar sem
brottflutningurinn hófst. Vjatsjeslav
Tíkhomírov, yfirmaður rússnesku
hersveitanna í héraðinu, óskaði her-
mönnunum velfarnaðar og afhenti
orður.
Tíkhomírov sagði að friðarsam-
komulagið, sem Alexander Lebed,
yfirmaður rússneska öryggisráðsins,
náði við leiðtoga aðskilnaðarsinna,
væri síðasta tækifærið til að leiða
deiluna um Tsjetsjníju til lykta með
friðsamlegum hætti. „Þetta er þriðja
og síðasta tilraunin til að binda enda
á átökin í Tsjetsjníju með friðsam-
legum hætti. Mistakist þessi tilraun
verður málið Ieyst með öðrum að-
ferðum."
Friðarsamkomulagið kveður á um
að Rússar flytji á brott alla þá her-
menn sem hafa verið sendir tíma-
bundið til Tsjetsjníju en deilt er um
hvað í þessu felst. Áðskilnaðarsinnar
segja að engir rússneskir hermenn
NEFND sérfræðinga mun taka um
það ákvörðun í lok mánaðarins hver
skuli annast hjartaaðgerðina á Borís
Jeltsín Rússlandsforseta, að sögn
hjartalæknisins Jevgenís Tsjasovs í
gær. Jeltsín hefur gefið í skyn að
aðgerðin muni fara fram á stofnun
Tsjasovs í Moskvu en alls eru íjórar
slíkar á höfuðborgarsvæðinu.
Haft var eftir Tsjasov á föstudag
að yrði forsetinn lagður inn á stofn-
un hans myndi prófessor Renat
Aktsjúrín, yfirmaður skurðdeildar,
skera hann upp. Jeltsín mun lengi
hafa hafnað því að láta skera sig
upp og þar að auki neituðu margir
af bestu skurðlæknum landsins að
annast aðgerðina af ótta við að gera
mistök, að sögn Sergeis Parkhomen-
kos, ritstjóra vikuritsins Ítogí á
föstudag. Um Aktsjúrín gegndi öðru
máli. „Eg skal gera þetta, ég annað-
ist sams konar aðgerð á [Viktor]
ILL A farin mynd af Maó for-
manni prýðir veggi einnar af
fjörutíu Maó-matstofum í Pek-
ing. Á matstofunum er á boðstól-
um dæmi um þann mat sem menn
urðu að gera sér að góðu í „Stóra
stökkinu fram á við“ en þá íétu
um 28 milljónir Kínveija lífið í
hungursneyð sem varð vegna
hafi verið í héraðinu áður en átökin
hófust í lok ársins 1994 og því beri
Rússum að flytja allar hersveitir sín-
ar á brott. Rússar segja hins vegar
að hluti herliðsins eigi að vera í
héraðinu til frambúðar.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
jók óvissuna um friðarsamkomulagið
á fimmtudag þegar hann tjáði sig í
fyrsta sinn um friðarsamkomulagið.
Hann kvaðst þá styðja samkomulag-
ið en vera andvígur tafarlausum
brottflutningi hermanna.
Boltaspark í stað vopnaskaks
Bardögunum í Tsjetsjníju linnti
eftir að vopnahléssamningur _tók
gildi 21. ágúst og fréttastofan ítar-
Tass skýrði frá því að efnt hefði
verið til knattspyrnuleiks milli rúss-
neskra hermanna og aðskilnaðar-
sinna á sunnudag. Hermennirnir
fóru með sigur af hólmi, með þrem-
ur mörkum gegn einu.
Zelimkhan Jandarbíjev, leiðtogi
aðskilnaðarsinna, fer til Grosní í dag
til að sitja þing tsjetsjenskra stjórn-
málahreyfinga. Þetta verður í fyrsta
sinn sem hann fer til borgarinnar
frá því rússneski herinn náði henni
á sitt vald í febrúar 1995.
Tsjernomýrdín [forsætisráðherra]
árið 1992“, sagði hann.
Heiður og byrði
Ítogí birti í gær viðtal við Jeltsín er
svaraði spumingum ritsins skriflega.
Hann segist þar hafa fengið að vita
að hann yrði að taka lífinu með ró
en hafa ákveðið að fara í aðgerð
vegna þess að hann teldi Rússa ætl-
ast til þess að hann hlífði sér hvergi.
„Enginn eðlilegur maður er hrifínn
af því að rætt sé opinberlega um
krankleika hans“, segir Jeltsín. „En
borgarar Rússneska sambandsríkis-
ins hafa treyst mér fyrir embætti
forseta ... Það er geysilegur heið-
ur... en einnig mikil byrði“. Forset-
inn segir að sá sem taki við embætt-
inu verði þar með almenningseign,
„það er ekki lengur um að ræða nein
persónuleg vandamál, þau verða öll
pólitísk“.
stefnu stjórnvalda í efnahags-
málum. Á matseðlinum er m.a.
gras, trjábörkur, sporðdrekar og
maurar. í gær voru tuttugu ár
liðin frá láti Maó Zedong, sem
var leiðtogi kinverska alþýðulýð-
veldisins í tæp 30 ár og helsti
hugmyndasmiður „Stóra stökks-
ins fram á við.“
„Nýjar álögur á að rétt-
læta með EFTA-kröfu“
640 milljóna króna útgjaldaauki á sjávarútveginn
Óljóst hver muni skera Jeltsín upp
Hræddir við að
gera mistök
Moskvu. Reuter.
Reuter
Tuttugu ára ártíð Maós