Morgunblaðið - 10.09.1996, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 10.09.1996, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 41 INGA FANNEY KRISTINSDÓTTIR + Inga Fanney Kristinsdóttir fæddist í Reykjavík 11. júní 1972. Hún lést af slysförum í Svíþjóð 26. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hennar eru Kristinn Valde- marsson og Guð- laug Asta Ingólfs- dóttir, en þau slitu samvistum. Guð- laug giftist Einari Garibaldasyni og á með honum Gari- baida Þorbjörn og Margréti. Kristinn kvæntist Erlu Gerði Matthíasdóttur og á með henni Steinunni Sif, Birg- ittu Dröfn og Valdemar Gest. og góð sál, kærleiksrík og blíð. Hafðu þökk fyrir árin sem við feng- um að eiga með þér. Inga Fanney, við gleymum þér aldrei, Guð blessi þig. Sárt er að kveðja en sólin hníg- ur að viði að síðustu öllum hjá. Þá finnast þau aftur á ókunnu tilveru sviði sem elska vona og þrá. Við þökkum og biðjum, far þú, vina, í friði. (G.Ö.) Þín amma, Inga ólst upp í Svíþjóð frá átta ára aldri hjá móður sinni og stjúpföður, en var þó alltaf í sambandi við sitt fólk á íslandi. Inga Fanney verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku stúlkan okkar, hún Inga Fanney, lenti í slysi úti í Svíþjóð. Hún er dáin, við trúum ekki að þetta gæti verið satt, þvílíkt reiðar- slag, þvílík sorg. Hún var bara tutt- ugu og fjögurra ára og allt lífið framundan, búin að mennta sig og var í góðri vinnu. Inga Fanney hafði verið búsett í Svíþjóð síðan hún var átta ára gömul og bjó núna með móður sinni og tveimur hálfsystkin- um. Ekki þarf að spytja um þá miklu sorg og örvæntingu sem gríp- ur aðstandendur á slíkum stundum. Engin orð fá því lýst. Eg sendi móður og systkinum Ingu Fanneyjar samúðarkveðju. Sár er söknuðurinn hjá þeim sem næst henni standa hér, sem er fað- ir hennar og hans fjölskylda, ömm- ur og annað nákomið frændfólk. Við höfðum alltaf fréttir af þér á þínum uppvaxtarárum því alltaf hafði pabbi þinn samband við litlu stúlkuna sína. Við hringdum og spurðuin: Hvað er að frétta af Ingu? Alltaf vissi hann hvernig þú hafðir það. Þegar þú fermdist fór hann og var við ferminguna og sagði okkur hvernig hún hefði verið. Þeg- ar þú tókst stúdentsprófið fór hann og gladdist með þér. Það var mik- ill dagur í þínu lífí. Hann reyndi að koma við hjá þér ef hann fór út í öðrum erindagjörðum. Alltaf mundi pabbi eftir litlu stelpunni sinni á afmælum og jólunum og alltaf sendirðu mér smápakka um jólin. Alltaf eitthvað fallegt. Einu gleymi ég aldrei: Þegar þú varst tólf ára dó afi þinn. Þá hringd- ir þú í mig grátandi til að votta mér samúð og senda mér styrk og þú gerðir það með tárunum sem þú felldir þá. Mér fannst þetta svo sérstakt af svo ungu barni. Nú seinni árin varstu farin að koma í heimsókn. Og fannst mér það smá- sárabót fyrir að hafa misst þig svo unga frá okkur öllum hér heima. Um síðustu jól varstu hér hjá pabba þínum og hans fjölskyldu. Það var alltaf svo gaman þegar von var á þér í heimsókn. Það hlökkuðu allir til þegar Inga Fanney var að koma. Allir voru svo glaðir að sjá þig og þegar þú komst í jólafjöl- skylduboðið voru allir svo glaðir því þig var svo oft búið að vanta þar. En nú er annað ár og aftur koma jól, en það verða öðruvísi jól. Jól minninga og saknaðar en gleði yfir að hafa átt þig og elskað þig, hugs- að um þig í fjarlægð. Fagnað þegar þú komst og þegar þú fórst að hlakka til að sjá þig aftur. Ég man þegar þú varst hjá mér áður en þú fluttir út, ég var stund- um að passa þig, hvað þú varst stillt og hljóðlátt lítið barn. Þegar ég hitti þig seinna, eldri, fannst mér þú ekkert hafa breyst. Þú varst sama ljúfa stúlkan. Ég heyrði þig aldrei hafa hátt. Þú varst viðkvæm Guðbjörg. Kom, fyll þitt glas! Lát velta á vorsins eld þinn vetrarsnjáða yfirbótafeld! Sjá, Tíminn, það er fugl sem flýgur hratt, hann flýgur máski úr augsýn þér í kveld! Lít þessa rós! Hún segir: Sjá, ég græ og seilist uppí veröldina og hlæ. Frá mínum sjóði ég silkiskúfinn slít og sáldra um lundinn auðlegð minni á glæ. Sú heimsvon öll, sem barmur mannsins ber, hvort bregst hún eða rætist - hvort sem er - sem hrim á dökkri auðnarásýnd skín um eina smástund, kannski tvær, - og fer. í daga og nætur skiptist skákborð eitt. Af skaparvöldum er þar manntafl þreytt. Þau færa oss til og fella oss, gera oss mát og frú og kóngi er loks í stokkinn þeytt. (Magn. Ásg. þýddi.) Síðsumarkvöld í Svíþjóð eru oft notaleg og bjóða upp á útiveru og mannafundi. Að hitta vini, fara í göngutúr eða á kaffihús. Að sigla í skeijagarðinum, tína sveppi úti í skógi eða keyra mótorhjól inn í sólarlagi uppi í sveit. Mánudags- kvöldið 26. ágúst sl. var svona kvöld. Inga Fanney var nýkomin frá Finnlandi, þar sem hún hafði tekið þátt í firmakeppni í róðri, og ætlaði út í stuttan ökutúr á mótor- hjólinu sínu. Hún fór að hitta vini sína í vatnsskíðaklúbbi við Ringsjö- vatn. Við fáum sjálfsagt aldrei að vita hvað fór úrskeiðis á heimleið frá þeim fundi; það gæti hafa verið eitthvert dýr á veginum, kanína eða broddgöltur, sem hún hefur ætlað að sveigja fram hjá, eða kannski bilaði hjólið fyrirvaralaust? Við verðum hins vegar að læra að sætta okkur við að Inga Fanney missti stjórn á hjólinu og fórst. Slysið varð í Ijósaskiptunum, á litlum sveitavegi utan við Höör á Skáni. Þrátt fyrir að sjúkrabíll kæmi á vettvang mjög fljótlega var ekkert hægt að gera til að bjarga lífi henn- ar. Hún Inga Fanney okkar, sem alltaf var svo full af lífí og orku, ók vélhjóli yfir móðuna miklu sem skilur þennan heim og næsta. Foreldrar Ingu Fanneyjar eru systir okkar, Guðlaug Ásta Ingólfs- dóttir, hjúkrunarfræðingur í Eslöv, Svíþjóð, og Kristinn Valdemarsson, framkvæmdastjóri Barka hf. í Kópavogi. Gulla systir var bara 17 ára þegar Inga Fanney fæddist og því fannst okkur systkinum Gullu næstum eins og Inga væri ein litla systirin í viðbót heima hjá Petru mömmu. Inga var fyrsta barna- barnið hennar mömmu og þær voru alla tíð mjög nánar. Gulla giftist seinna Einari Garibaldasyni, og fjöl- skyldan flutti til Marieholm í Sví- þjóð árið 1980. Þar ólst Inga Fann- ey upp með systkinum sínum, Mar- gréti og Garibalda. Gulla og Einar skildu árið 1990, og hefur Gulla búið í Eslöv siðan. Kristinn kvænt- ist Erlu Matthíasdóttur og eiga þau þijú börn, Steinunni Sif, Birgittu Dröfn og Valdemar Gest. Þó þau byggju hvort i sínu landinu hafði Inga Fanney gott samband við pabba sinn og íjölskyldu hans. Hann kom i heimsókn við hvert tækifæri sem gafst og hún heim- MINNINGAR sótti hann á íslandi. Steinunn Sif bjó hjá Ingu í Svíþjóð um tíma á síðasta ári. Inga Fanney las til stúdentsprófs við verslunar- og ritarabraut Berga- menntaskólans í Eslöv. Hún lauk stúdentsprófí vorið 1991. Til að fagna stúdentsprófínu ók hún um götur Eslöv í blómum skrýddum kappakstursbíl sem vinur hennar Magnus Löwgren átti. Inga Fanney og Magnus voru trúlofuð um fímm ára skeið frá 1990 og bjuggu þau lengst af í Lundi. Þó þau hefðu slit- ið samvistum árið 1995 voru þau áfram góðir vinir. Inga Fanney hafði yndi af dýrum og átti lengi skara af páfagaukum af öllum stærðum og litum og lítinn, fjörug- an hund. Síðustu mánuðina bjó Inga Fanney heima hjá mömmu sinni en hún var að bíða eftir að fá nýja íbúð á leigu í Lundi. Inga fékk vinnu sem rannsóknar- ritari við lyfjafyrirtækið Astra- Draco í Lundi í mars árið 1992. Til að byija með var hún ráðin til reynslu en stóð sig svo vel að hún fékk fastráðningu við rannsóknar- deild fyrirtækisins. Það var vel af sér vikið á sama tíma og atvinnu- leysi magnaðist ákaflega meðal ungs fólks í Svíþjóð. Inga Fanney var mjög vel liðin af samstarfs- mönnum sínum, eignaðist meðal þeirra marga vini og tók virkan þátt í frístundastarfí með vinnufé- lögunum. Hún keppti í róðri fyrir hönd fyrirtækisins og það eru marg- ir verðlaunapeningarnir sem hún hefur unnið í firmakeppnum og öðrum íþróttamótum bæði innan og utan Svíþjóðar. Það er erfítt að sætta sig við að Inga Fanney sé ekki lengur á meðal okkar. Við höfum fylgst með henni frá fæðingu, séð hana vaxa úr grasi, þroskast og mótast. Inga Fanney var sjálfstæð og ákveðin ung kona, sem vissi hvað hún vildi, en var jafn- framt ákaflega geðug og prúð. Það er fátt sem manni fínnst jafn til- gangslaust og hörmulegt og þegar ungt fólk ferst af slysförum. Sumir deyja alltof ungir. Inga Fanney var svo full af lífsgleði og ævintýraþrá og vildi upplifa svo margt. Að aka mótorhjóli var eitt af því. Það stend- ur lítill kross utan við smáveg rétt hjá Höör á Skáni. Frá veginum er fallegt útsýni yfir skógarlundi og engi til Ringsjö- vatns. Þangað hafa Ijölmargir vinir Ingu Fanneyjar leitað síðustu dag- ana til að minnast og gráta. Þangað munu þeir leita líka eftir að Inga Fanney hefur verið lögð til hinstu hvílu á íslandi. Um 100 vinir og vandamenn Ingu Fanneyjar í Sví- þjóð söfnuðust til minningarstundar um hana í Kapellu heilags Ólafs í Lundi þann 5. september. Við erum mörg sem syrgjum Ingu en það var ekki á okkar valdi að velja hvenær leiðir skildu. Orð geta ekki lýst söknuði okkar og sársauka. Elsku Gulla systir og Kiddi, megi guðimir gefa ykkur styrk til að halda áfram á lífsins vegi og megi bjartar minn- ingar um yndislega dóttur fylgja ykkur um ókomin ár. Ragnar, Ólafur, Sigríður, Vigdís, fjölskyldur og frændsystkini. Eins og það er nú annars gaman að heyra í móður sinni, hringja til sonar síns yfír hafið; - þá heyrði ég á móður minni þegar hún hringdi að kvöldi 27. ágúst sl. að fréttirnar væru ekki góðar; andardrátturinn var þungur, gráturinn skammt und- an og þagnirnar langar. Henni var mikið niðri fyrir. Þeir sem misst hafa ástvin þekkja þessa tilfínningu; hrollinn sem hrísl- ast um mann, spurninguna sem aldrei er spurð enda þarf þess ekki, því svarið er á næstu grösum - í næstu eða þar næstu setningu. Svo virðist sem jörðin hætti augnablik að snúast og grasið að gróa. Svo kemur svarið sem reiðarslag yfir mann. Inga Fanney, elsta dóttir Kristins bróður míns, sem hann hafði mátt sjá af til útlanda á unga aldri, hafði farist í hræðilegu slysi í Svíþjóð að kvöldi 26. ágúst. Á augnablikum sem þessum hendist lífshlaupið framhjá á ógnarhraða og maður grípur niður í minning- arnar. Minningarnar um litlu glað- legu, dökkhærðu stelpuna sem Kiddi bróðir var svo stoltur af. Stelpuna sem nú var orðin 24 ára og þekkti sínar rætur og hann hafði vonaö í yfír 20 ár að flytti nú fljót- lega til föðurlandsins. Inga fiuttist ung með móður sinni til Svíþjóðar og því miður naut ég ekki þeirrar ánægju að hitta hana oft eftir að hún sleit barnsskónum. Þó heimsótti ég hana einu sinni og fór þá ekki á milli mála að þar fór glaðleg og myndarleg stúlka en umfram allt hlý og hjartagóð sem átti lífið framundan. Þrátt fýrir aðskilnaðinn og fjar- lægð átti Inga Fanney góðan föður sem lagði mikið upp úr að halda samskiptum við hana. Hann fór til Svíþjóðar og heimsótti hana og hún kom til íslands til að vera með fjöld- skyldu hans, systkinum sínum og hitta ömmur sínar og ættingja. Á stundum sem þessari leita ég oft í speki Kahlils Gibrans, rétt eins og Almítra þegar hún leitaði svara spámannsins við spurningum lífs- ins. Þegar spurt var um gleði og sorg svaraði spámaðurinn: „Sorgin er gríma gleðinnar. Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar, var oft full af tárum. Og hvemig ætti það öðruvísi að vera? Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur það rúmað. Er ekki bikarinn, sem geymir vín þitt, brenndur í eldi smiðjunnar? Ög var ekki hljóðpípan, sem mildar skap þitt, holuð innan með hnífum? Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glað- an. Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. Sum ykkar segja: „í heimi hér er meira af gleði en sorg,“ og aðrir segja: „Nei, sorgirn- ar eru fleiri.“ En ég segi þér, sorg- in og gleðin ferðast saman að húsi þínu, og þegar önnur situr við borð þitt, sefur hin í rúmi þínu. Þú veg- ur salt milli gleði og sorgar.“ Elsku Kiddi, Erla, Gulla og börn, megi Guð styrkja ykkur í sorg ykk- ar yfir missi góðrar dóttur og syst- ur. Einnig færi ég ömmunum báð- um og öllum ættingjum Ingu Fann- eyjar mínar innilegustu samúðar- kveðjur og megi góður Guð gefa að góð stúlka megi hvíla í friði. Jóhannes Valdemarsson, Árósum. Við hlýðum þó að komi hinsta kallið, og kveðjan mikla sumardegi á. Við hnígum eins og blóm til foldar fallið, er fær ei varist sláttumannsins ljá. Nú bljúg við þökkum alla alúð þína, og umhyggju er jafnan kom frá þér. Nú sjálfur Drottinn annist öndu þína, og inn þig leiði í dýrðarvist hjá sér. (Jónína Magnúsdóttir.) Elsku Inga, blessuð sé minning þín. Björgvin Pétur, Birgitta Rós, Karitas Ósk. Elsku systir mín, ég minnist þeirra stunda sem ég hef átt með þér og þó að þú byggir í Svíþjóð komst þú reglulega í heimsókn og var það mjög ánægjulegt. Við vor- um alltaf svo spenntar þegar Inga Fanney systir var að koma í heim- sókn og okkur fannst þú ekki koma nógu oft. Við hefðum viljað fá þig oftar í heimsókn og hafa þig lengur. Síðasta heimsókn þín til okkar var um jólin í vetur. Það var svo gaman og við vorum alltaf að kynn- ast betur og betur og vonuðum að áframhald yrði á því. Elsku Inga Fanney, ég þakka þér fyrir hvað þú varst góð systir og fyrir allar skemmtilegu stundimar sem við áttum saman. Ég mun aldr- ei gleyma þér. Þín systir, Birgitta Dröfn. Elsku systir mín, ég er svo sorg- mædd yfir því að þú skulir vera farin frá okkur. Ég minnist liðinna stunda sem við áttum saman úti í Svíþjóð í fyrra er ég var þar í nokkra mánuði. Það var svo skemmtilegur tími. Við gerðum svo margt saman, fórum í bíó, töluðum saman um líf- ið og tilveruna, skemmtun okkur saman. Mér fannst svo gaman að eiga svona stóra systur. Við töluðum alltaf saman í síma og síðasta sam- tal okkar var 16. ágúst og þá varstu svo hress og kát og ánægð með líf- ið. Þó þú hafir búið í Svíþjóð höfðum við alltaf samband og þú komst oft í heimsókn, en best kynntist ég þér meðan við vorum saman í Svíþjóð. Ég fann hvað ég átti trausta systur þar sem þú varst. Við reynd- um alltaf að gera eitthvað skemmti- legt þegar við vorum í fríi. Ég var svo stolt af þér en nú ertu horfin mér og ég sit hér hljóð og sorg- mædd og skil ekki hvers vegna svona hlutir gerast. Það var svo gaman þegar þú komst um jólin. Þá fórum við saman að kaupa jólá**- gjafír og svo fórum við að kaupa okkur föt. Við gátum alltaf fundið eitthvað til að gera sem var skernmtilegt. Ég man eftir litla hundinum sem þú áttir úti. Hann var eins og hann væri barnið þitt. Þú hafðir svo mik- ið dálæti á honum. Elskulega systir mín, Inga Fann- ey, ég sakna þín og ég þakka þér fyrir hvað þú varst góð. Ég mun alltaf minnast þess tíma sem við áttum saman._ Guð geymi þig, elsku stóra systir. Ég mun aldrei gleyma þér. Þín systir, Steinunn Sif. Elsku systir, ég minnist þessa hroðalega atburðar sem gerðist 26. ágúst síðastliðinn er þú lést í bif- hjólaslysi í Svíþjóð. Ég sá þig ekki oft, en þú varst systir mín fyrir því. Þú komst um síðustu jól til okkar. Það var ánægjuleg stund. Alltaf sendir þú jóla- og afmæli- spakka en komst með þá um síð- ustu jól. En næstu jól verða öðru- vísi, engin Inga Fanney systir og engir pakkar frá henni! Elsku systir, mér þótti svo vænt um þig og var stoltur af að eiga þig fyrir systur. Ég mun aldrei gleyma þér. Þinn bróðir, Valdemar Gestur. Islenskur efniviður Islenskar steintegundir henta margar afar vel í legsteina og hverskonar minnismerki. Eigum jafnan til fyrir- liggjandi margskonar íslenskt efni: Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró. kauxn onoitv ‘HM Áralöng reynsla. Leitið upplýsinga. II i S. HELGAS0N HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 . SÍMI 557 6677

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.