Morgunblaðið - 10.09.1996, Síða 57

Morgunblaðið - 10.09.1996, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 57 I ) ) I ) > I 3 5 I I ! 1 I 1 I I I 4 ð 4 4 i ‘1 4 4 indsbanki ★ W W '/ G.EiT.ikti 2 ★ ★★ A.'S föka 2 SANNLEIKURINN UM HUNDA OG KETTI Sýnd kl. 5.7,9 og 11 'IiJÓJJÓLLjí] ŒH3 Sýndkl. 5. 7,9 og 11. ★•★★ A.. I.-Mbi' ★ ★ ★ H.ICDV IHDEPEHDEIICE DAV Sýndkl. 5,7, 9 og 11. bönnuö innan 12 ára. íslensk heimasíða: http://id4.islandia.is Gengið og Náman munið afsláttarmiðana STRIPTEaSE DEMI MOORE THE EREAT WHITE SAMUEL m.mw jackson HlTE JEFF GOLDBLUM CGURAGE --UNDER-- FIRE DENZEL WASHINGTON MEG RYAN DANSINN var fast stiginn og hendurnar fylgdu með. Garðabæjar- busar í Ingólfskaffí NÝNEMAR í Fjölbrautaskóla Garðabæjar brugðu sér ný- busaðir í borgina og skemmtu sér á busaballi skólans sem var haldið á skemmtistaðnum Ing- ólfskaffi. Allir voru í stuði og sýndu tilþrif á dansgólfinu. A efri hæð hélt Stuðbandið Spur uppi fjörinu en plötusnúðurinn Þossi á neðri hæð. Með storminn í fangið Morgunblaðið/Hilmar Þór KAROLÍNA Guðjónsdóttir og Brimrún Hafsteins- dóttir kynna sér veröld fiskanna í Ingólfskaffi. FÉLAGARNIR Kjartan, Óskar, Höddi og Marzelíus glaðlegir á góðri stund. KVIKMYNPIR Iláskðlabíð/Bíóhöll- in/Bíðborgin STORMUR „TWISTER“ ★ ★ Vi Leiksljóri: Jan De Bont. Handrit: Michael Crichton og Anne-Marie Martín. Framleiðend- ur. Kathleen Kennedy, Ian Bryce og Crichton. Kvikmyndataka: Jack N. Green. Aðalhlutverk: Helen Hunt, Bill Paxton, Jami Gertz og Gary Elwes. Universal, Wamer Bros. 1996. MYND um veður og veðurfræð- inga lítur ekki út fyr- ir að vera neitt sérlega spennandi á pappímum. Hvað er skemmtilegt við lægðir og skúraskil? En spennusöguhöf- undurinn Michael Crichton lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna og vissi hvað hann var að gera þegar hann bjó til handrit ásamt konu sinni um veðurfræðinga sem eltast við hvirfílbylji. Stormur eða „Twister“ varð önnur mest sótta sumarmyndin í Bandaríkjunum en aðeins Þjóðhátíðardagurinn var vinsælli. Crichton og frú eiga reyndar í talsverðum brösum með að búa til persónur sem eru ekki hlægilega einfeldningslegar en hollenski leikstjórinn Jan De Bont („Spe- ed“) kemur þeim mjög til bjargar með stór- kostlegum myndum af eyðileggingarafli og ægikrafti hvirfilbyljanna. Mest er það gert í tölvum eins og lunginn af spennumyndum dagsins og áhrifaríkt er það með afbrigð- um, spennandi og skemmtilegt svosem eins og hæfir í sumarsmelli. Innmaturinn er þó ekki á háu plani; per- sónugerð og söguþráður er hvoru tveggja óvenju slappur skáldskapur frá Crichtons hendi. Veðurfræðingar tveir, sem virðast hafa átt í ákaflega stormasömu hjóna- bandi, eru að skilja þegar syrpa hvirfílbylja gengur yfír Oklahóma og þau sameina á ný krafta sína ásamt hópi einstaklega of- leikinna og þreytandi samstarfsfélaga. Munu stormsveipirnir leiða þau saman á ný? Hefur þú séð Hollywoodmynd nýlega? Hinn að því er virðist nauðsynlegi „vondi kall“ í sögunni er einnig veðurfræðingur en ólíkt okkar mönnum er hann og hans lið, sem allt ekur um á svörtum og ógn- andi bifreiðum, styrkt til rannsóknanna af fyrirtækjum og það er alveg látið nægja sem skýringu á því af hveiju þeir eru spillt- ir og ömurlegir. Erindi þeirra í myndina er mjög óljóst. Fráskilda parið er ákaflega fært í sínu starfí og slær um sig með tækni- orðum en allt virkar það fremur hjárænu- legt og alltaf er fólkið í þessari mynd lík- ara Hollywoodhetjum en veðurfræðingum. En ef allt þetta virkar falskt á það sama alls ekki við um hinar eiginlegu aðalpersón- ur myndarinnar, hvirfílbyljina sjálfa. Þeir eru eins raunverulegir og risaeðlumar í Júragarðinum enda unnir með sömu tækni. Það sem virkar í myndinni og virkar vel eru tæknibrellumar og þær gera Storminn að fyrirtaksskemmtun. Brellurnar em sér- staklega vel útfærðar og senda kaldan hroll niður eftir bakinu á manni. Hljóðrásin vinn- ur frábærlega vel með myndefninu svo það er engu líkara en maður sé staddur í mylj- andi hvirfilbyl þegar hann gengur yfir tjald- ið. De Bont tekst að gera skelfilegan ógn- vætt úr fyrirbærinu sem rásar um stefnu- laust og skilur eftir sig slóð eyðileggingar^ - og hörmunga af algjöru handahófi. Og þegar De Bont setur mannskepnuna niður við svona geðveikislegt náttúrufyrir- bæri myndar hann rafmagnaða spennu. Bílar af öllum stærðum og gerðum takast á loft og landbúnaðarvélar og búpeningur skella niður seint og um síðir. Byggingar tætast í sundur spýtu fyrir spýtu og jarðveg- urinn leysist upp í moldrok. Leikararnir gera hvað þeir geta gegn tölvuteiknuðum mótleikurum sínum vind- og veðurbarðir. Helen Hunt leikur ágætlega heillegustu persónuna frá höfundanna hendi, veður- fræðing sem á í einhvers konar hatursam- bandi við hvirfilbyljina eftir að faðir hennar hvarf upp í einn slíkan. Bill Paxton er súper- svalur veðurfræðingur sem þefar upp stefnu strókanna og Gary Elwes er ákaflega mis- heppnaður sem „vondi kallinn". En það eru tölvubrellurnar sem selja þessa mynd og þær svíkja engan. Arnaldur Indriðason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.