Morgunblaðið - 18.10.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.10.1996, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ h BSRB o g ríki gera viðræðuáætlun Samvinnuferðir- Landsýn Júmbóþota fer þrjár ferðir til Dublin JÚMBÓÞOTA fer þrjár ferðir til Dublin á írlandi á vegum Sam- vinnuferða-Landsýnar fyrrihluta nóvembermánaðar. Auður Björns- dóttir sölustjóri segir að mikil eft- irspurn eftir ferðum til írlands teng- ist landsleik íslendinga og íra í knattspyrnu 10. nóvember. Auður segir að ákveðið hafí verið að senda Júmbóþotu í stað Tristar- flugvélar þrjár ferðir til Dublin í fyrrihluta nóvember. Laus sæti eru í fyrstu ferðina 4.-7. nóvember. Nánast fullbókað er í ferð 7.-10. eða 11. nóvember og örfá sæti eru laus í síðustu ferðina 8.-10. eða 11. nóvember. Júmbóþotan tekur 476 manns í sæti og verða farþegar því vænt- anlega um og yfír 1.400. Tristar- flugvél á vegum Samvinnuferða- Landsýnar tekur 360 farþega. Dublin-ferð með þremur gistinótt- um kostar 24.920 kr. með sköttum. Farþegar á sjöunda þúsund Auður sagði að eftirspurn eftir ferðum til Dublin væri jafnvel enn meiri en í fyrrahaust. Áætlað hefði verið að á sjöunda þúsund farþegar færu til Dublin á vegum ferðaskrif- stofunnar fram til áramóta. -----»■■4—♦--- Brotnaði í strætó KONA féll í strætisvagni um miðjan dag á miðvikudag og slasaðist nokkuð. Konan kvartaði undan meiðslum í fæti. Hún var flutt á slysadeild, þar sem í ljós kom að hún var lærbrotin. S AMNIN GANEFND ríkisins, Reykjavíkurborg, launanefnd sveit- arfélaganna og nær öll aðildarfélög BSRB gengu frá viðræðuáætlun vegna komandi kjaraviðræðna í gær. í þeim er stefnt að því að ljúka gerð nýrra kjarasamninga fyrir 21. des- ember. Takist það ekki eru samnings- aðilar sammála um að meta þá stöð- una með tilliti til þess hvort viðræðuá- ætlun verði lengd eða samningsgerð- inni verði vísað til ríkissáttasemjara. Viðræðuáætlunin gerir ráð fyrir að samningsaðilar kynni kröfur sínar og meginsjónarmið á reglulegum fundum frá 28. október til 15. nóv- ember. Jafnframt er gert ráð fyrir að vinnuhópar starfi um réttindamál og almenn kjaraatriði. Frá 18. nóv- FRÉTTIR ember til 6. desember verði fjallað um sérmál einstakra samningsaðila önnur en launaliði. Áætlunin gerir ráð fyrir að frá 9. desember til ára- móta verði rætt um launaliði kjara- - samninga og breytingar á þeim ákvæðum kjarasamninga sem hafa marktæk áhrif á útgjöld. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sagði að aðildarfélög BSRB myndu í komandi kjaraviðræðum semja sameiginlega við ríkið um ýmis sameiginleg réttindi s.s. lífeyr- ismál, fæðingarorlof, veikindarétt, vinnutímamál og fleira. Hvert og eitt félag myndi hins vegar semja um önnur mál sem sneru að félögun- um beint, þ.e. um breytingar á kauptöxtum og önnur kjaraatriði. Morgunblaðið/Kristinn Útför Torfa Hjartar- sonar ÚTFÖR Torfa Hjartarsonar, fyrrverandi ríkissáttasemjara, var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík að viðstöddu fjölmenni. Líkmenn voru Torfi Hjartarson, Jón Mýrdal, Þórarinn V. Þórarinsson, Geir Gunnarsson, Torfi Þórhallsson, Ólafur Helgi Kjartansson, Benedikt Davíðsson og Friðrik Sophusson. Sr. Þórir Stephen- sen jarðsöng. „Fréttir eiga að þjóna hagsmunum almennings“ Páll Magnússon, fyrsti fréttastjóri stöðvarinnar, tekur við að nýju 1. nóvember PÁLL Magnússon, sjónvarps- stjóri Sýnar, hefur verið ráð- inn fréttastjóri Stöðvar 2 frá 1. nóvember næstkomandi. Elín Hirst hefur látið af starfi fréttastjóra, en því hefur hún gegnt frá 1. maí 1994. Sig- mundur Ernir Rúnarsson varafréttastjóri mun gegna starfi fréttastjóra til mánaða- móta. Elín segir að henni hafi verið sagt upp störfum. Hún sé ósátt við málalok en fari frá fyrirtækinu með hreina samvisku. Hún segir að fréttir eigi aðeins að þjóna hagsmunum almennings. „Gerðar hafa verið skipu- lagsbreytingar hjá íslenska út- varpsfélaginu, sem fela í sér að frá og með 1. nóvember næstkomandi verður fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar sérstakt svið innan fé- Iagsins og tilheyrir ekki lengur dagskrársviði eins og núgildandi skipulag kveður á um,“ segir í fréttatilkynningu frá íslenska út- varpsfélaginu. Páll, sem var áður fréttastjóri Stöðvar 2 frá 1986 til 1990, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að það legðist mjög vel í sig að setjast í fréttastjórastólinn á nýjan leik. Hann hefði í raun séð eftir kvæmdastjórn félagsins og sæti ekki fundi hennar, en hana skipa framkvæmda- stjórar markaðssviðs, fram- leiðslusviðs og dagskrársviðs. Á þessa ósk mína var fallist." Páll kvaðst hafa borið upp þessa ósk, vegna þess að hann teldi það ekki eðlilegt að hann væri í framkvæmdastjórn fé- lagsins. Fréttastofan lyti ekki sömu lögmálum og önnur svið félagsins, því auðvitað væri fyrst og fremst um rit- stjórnarlega starfsemi að ræða á fréttastofu. Ósátt en með hreina samvisku Elín Hirst sagði í samtali við Morgunblaðið að sér hefði verið sagt upp störfum fréttastjóra. Eftir 10 ára starf hyrfi hún ósátt en með hreina samvisku frá fyrirtækinu. „Eg óskaði að sjálfsögðu eftir skýr- ingum, enda hef ég aðeins fengið hól fyrir störf mín hjá fyrirtækinu hingað til. Að mínu mati voru mér aðeins gefnar gerviskýringar, minnst var á óróleika og deyfð inn- an fréttastofunnar. Á móti minni ég á að undir minni stjórn höfum við komið afar vel út úr áhorfskönn- unum,“ sagði Elín og tók fram að Elín Hirst Páll Magnússon starfinu, allar götur frá því að hann hætti, þegar hann var kvaddur til annarra starfa hjá íslenska útvarps- félaginu. „Það er í mínum huga bæði spennandi og ögrandi að koma á ný til starfa á fréttastofunni." Aðspurður hvað það fæli í sér, að fréttastofan yrði gerð að sér- stöku sviði innan félagsins, sagði Páll: „Ég tel að þessar breytingar séu til þess fallnar að auka sjálf- stæði fréttastofunnar. Sviðið er gert sjálfstætt, en ekki viðhangandi annað svið í félaginu eins og nú er. Auk þess óskaði ég eftir því að ég sem fréttastjóri tilheyrði ekki fram- góður mannskapur væri á frétta- stofunni. Ekki væri heldur hægt að saka fréttastofuna um að fara fram úr fjárhagsáætlun og óskir yfirstjórnarinnar um rekstrarum- bætur hefðu ætíð verið uppfylltar. Hún sagði að Jón Olafsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, hefði haft á orði að honum líkaði ekki fréttamat hennar. „Að ég hugsaði ekki nægilega mikið um hvernig fréttamatið gæti skaðað auglýsingahagsmuni fyrirtækisins. Mín skoðun hefur hins vegar alltaf verið sú að fréttir ættu aðeins að þjóna hagsmunum almennings," sagði hún og sagðist heldur aldrei hafa verið hluti af karlaklúbbi stjórnenda fyrirtækisins. „Ég velti því óneitanlega fyrir mér hvort sú staðreynd hafi haft áhrif á ákvörð- un yfirstjómarinnar og ef svo er tel ég það móðgun við konur." Elín segist hafa hafnað tilboði um að verða aðstoðarfréttastjóri Páls Magnússonar. „Ég vildi heldur ekki verða dagskrárgerðarmaður enda taldi ég mig hafa gegnt starfí frétta- stjóra af heiðarleika og samkvæmt kröfum eigenda fyrirtækisins," sagði hún. Elín sagði óráðið hvað við tæki. Hins vegar hefði hún starfað við fréttamennsku frá háskólaámnum og vonandi yrði framhald á því. Fangelsi fyrir mök við sof- andi konu 24 ÁRA maður var í gær dæmdur í 9 mánaða fangelsi, þar af 6 mánuði skilorðsbund- ið, fyrir að hafa mök við konu sem svaf í rúmi sínu. Hann er jafnframt dæmdur til að greiða konunni 250 þús. kr. í bætur. Atburðurinn átti sér stað í Reykjavík í febrúar á heimili konunnar og eiginmanns hennar. Eiginmaðurinn var sofandi í stofunni en hjónin, hinn dæmdi og fleiri höfðu verið þar í samkvæmi og voru öll undir áhrifum áfengis. Konan vaknaði við að mað- urinn var að hafa við hana mök. Dómurinn hafnaði fram- burði mannsins um að samfar- irnar hefðu í upphafi verið með samþykki konunnar. í Héraðsdómi var maðurinn dæmdur í 6 mánaða fangelsi þar af 3 mánuði skilorðsbundið. Stálu golfsetti og tölvu BROTIST var inn í geymslu húss við Skúlagötu í fyrrinótt og þaðan stolið golfsetti, sem metið er á 200 þúsund krónur. Þá var farið inn í fyrirtæki í sama húsi og þaðan stolið ferðatölvu og gögnum, sem metin eru á hálfa milljón. Rannsóknarlögregla ríkisins fer með rannsókn málsins. Braust innum miðjan dag HÚSRÁÐANDI kom að ung- um manni í kjallaraíbúð á Teigunum um miðjan dag á miðvikudag. Hafði pilturinn spennt upp glugga til að kom- ast inn. Pilti varð svo mikið um að vera staðinn að verki að hann kastaði frá sér þýfinu og tók til fótanna. Lögreglan leitaði hans í nágrenninu, en fann ekki. Ölvun í miðri viku ÓVENJU íjölmennt var í fangageymslum lögreglunnar í fyrrinótt, miðað við virkan dag, en tíu sváfu úr sér ölvím- una þar um nóttina. Alls hafði lögreglan afskipti af 15 manns vegna ölvunar á miðvikudagskvöld og fram eft- ir nóttunni. Lögreglan kunni engar skýringar á þessari drykkju. Stal háralit ÞRETTÁN ára piltur var grip- inn í verslun í Kringlunni og reyndist hafa hnuplað háralit. Vörunni var skilað og piltur- inn fluttur á lögreglustöð, þar sem haft var samband við full- trúa barnaverndarnefndar og foreldra hans. Piltur mun enn hafa sama háralit og áður. í i I I I I i i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.