Morgunblaðið - 18.10.1996, Page 20

Morgunblaðið - 18.10.1996, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ VALDAB ARÁTT A í KREML Jeltsín tekur áhættu með því að reka Lebed Friður í Tsjetsjníju í hættu og Lebed gæti reynst skeinuhættur utan sljórnar Reuter ANATOLÍ Tsjúbaís, skrifstofustjóri Rússlandsforseta (t.v.), Anatolí Kúlíkov innanríkisráðherra og Alexander Lebed, yfirmajur rússneska öryggisráðsins, á fundi rússnesku sljórnarinnar í gær. Kúlíkov herskár í Tsjetsjníju-málinu Taldi eina ráðið að beita hervaldi Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, tók mikla áhættu þegar hann vék Alexander Lebed úr stöðu yfir- manns öryggismála í landinu í gær. Var leitt að því getum að með brottvikningunni hefði hann tekið einn best þokkaða stjórn- málamann Rússlands og gert hann að áhrifamesta leiðtoga stjórnar- andstöðunnar. Einnig er friðinum í Tsjetsjníju stefnt í hættu. Jeltsín rak Lebed eftir að Ana- tolí Kúlíkov innanríkisráðherra sakaði hann um að leggja á ráðin um að stofna sitt eigið herlið í því skyni að ræna völdum. Jeltsín hefur lítið verið í Kreml á meðan hann hefur beðið skurðaðgerðar á hjarta og því haft takmarkaða getu til að hafa hemil á Lebed. Að lokum varð hann að velja milli þess hvort Jeltsín væri honum þyngri byrði í stjórninni eða utan hennar. Verðum að vinna eins og hnefi „Við þurfum að vera sameinað lið, liðsmenn verða að snúa bökum saman og vinna eins og hnefi,“ sagði Jeltsín í ávarpi, sem var sjón- varpað um allt Rússland. Sakaði hann Lebed þar um að reyna að nota stöðu sína til að sölsa undir sig forsetaembættið. „Nú er komin upp sú staða að Lebed er að sundra liðinu og grípa til aðgerða, sem hann fékk ekki samþykki forsetans fyrir,“ sagði Jeltsín. „Ekki er hægt að sætta sig við þetta.“ Hert öryggiseftirlit Öryggiseftirlit hafði verið hert í Moskvu áður en Jeltsín gaf út tilkynninguna um brottrekstur Lebeds og er talið að það hafi verið gert af ótta við að hersveitir hollar herforingjanum mundu grípa til vopna. Gennadí Zjúganov, leiðtogi kommúnista, sem beið lægri hlut fyrir Jeltsín í forsetakosningunum í sumar, sagði að ágreiningur þessi gæti „endað með borgarastyijöld og einnig gereyðilagt herinn". Skjót ganga Lebeds upp met- orðastigann var ýmsum valda- mönnum í Kreml þyrnir í augum. Jeltsín leist greinilega ekki heldur á blikuna og hætti við þá áætlun sín að nota Lebed til að slá á von- ir annarra undirmanna sinna um að setjast í forsetastól. Yrði öflugur stj órnarandstæðingur „Lebed á mesta möguleika á að komast í forustu stjórnarand- stöðunnar takist honum að sýna að Jeltsín hafi snúið við sér baki og þvo hendur sínar af skrifræðinu í Kreml,“ sagði Andrei Kortúnov stjórnmálaskýrandi nýverið í sam- tali við Reuter-fréttastofuna. Sumir stjómmálaskýrendur segja að framganga Lebeds í Kreml hafi verið til þess ætluð að honum yrði vísað úr embætti þannig að myndaðist bil milli hans og forustu landsins og hann liti út eins og fórnarlamb. Annar sérfræðingur sagði að brottvikning Lebeds væri ,jóla- gjöf“ handa stjómarandstöðunni og væri hún „snemma á ferðinni". Ógerningur er að segja hvort Lebed gæti tekist að sameina stjórnarandstöðuna, sem býr við djúpan ágreining, en víst er að það yrði erfítt fyrir hann. Hann er ekki vanur að vera hluti af póli- tískri liðsheild og að auki hefur hann gagnrýnt kommúnista, stærsta stjórnarandstöðuaflið, harkalega. Hann gæti reynt að stofna eigin flokk og beijast upp á eigin spýt- ur. En óvíst er hvort hann getur nýtt sér víðtæka óánægju vegna vangoldinna launa og annarra harðinda í kjölfar efnahagsumbóta til pólitísks ávinnings. Þess ber einnig að gæta að Lebed þyrfti að vinna aftur sæti á þingi því að hann fór af þingi þegar hann tók til starfa í stjórn- inni. Leiðtogar aðskilnaðarsinna í Tsjetsjníju kváðust ekki í nokkrum vafa um að brottför Lebeds væri skref aftur á bak og yrði vatn á myllu harðlínumanna í Moskvu, sem vilja að átökin haldi áfram. Tsjetsjenar óánægðir „Ef þeir losa sig við Lebed verð- um við að búa okkur undir stríð því að á öllu er von á móti manni á borð við Kúlíkov," sagði Aslan Maskhadov, herstjórnandi Tsjetsj- ena, við Reuter-fréttastofuna áður en Jeltsín gaf út yfírlýsingu sína. Ekki er þó öll von úti um frið í Tsjetsjníju, því að bæði Jeltsín og Víktor Tsjernomýrdín forsæt- isráðherra hafa skuldbundið sig til að halda friðarsamkomulagið, sem Lebed undirritaði, þrátt fyrir gagnrýni keppinauta hans, en þeir segja að það jafnist á við uppgjöf. „Hættan er hins vegar sú að Kúlíkov líti á þetta sem sigur sinn og stríðsflokksins, sem hann er fulltrúi fyrir,“ sagði stjórnmála- skýrandi einn. Moskvu. Reuter. ANATOLÍ Kúlíkov, innanríkisráð- herra Rússlands, sem gerði harða hríð að Alexander Lebed áður en honum var vikið frá, hefur getið í sér orð fyrir vígamóð og átti stóran þátt í tilraunum Rússa til að kveða ' niður uppreisn aðskilnaðarsinna í | Tsjetsjníju með hervaldi. Kúlíkov er fimmtugur, fjögurra stjarna hershöfðingf óg þegar hann kemur fram opinberlega er hann yfírleitt klæddur herbúningi, skreyttur orðum fyrir störf sín í þágu hersins. Her- og lögreglu- sveitir innanríkisráðuneytisins þykja þó ekki hafa staðið sig sér- j lega vel undir hans stjórn. Lögreglusveitirnar mega sín lít- ils í baráttunni við skipulagða I glæpahópa. Hersveitirnar hafa yfir þungavopnum að ráða en léttvopn- uðum aðskilnaðarsinnum tókst þó hvað eftir annað að auðmýkja þær í stríðinu í Tsjetsjníju. Tekist á við Lebed Borís Jeltsín forseti skipaði Kúl- íkov innanríkisráðherra í júlí í ) fyrra, en á þeim tíma stjórnaði } hann hersveitum Rússa í Tsjetsjníju. „Ég er sannfærður um að deil- una um Tsjetsjníju verður að leiða til lykta með hervaldi,“ sagði Kúl- íkov í sumar. Nokkru síðar var Alexander Lebed skipaður yfirmað- ur rússneska öryggisráðsins og honum tókst að binda enda á átök- in með friðarsamningi við Tsjetsj- ena innan tveggja mánaða. Lebed kenndi Kúlíkov um ófarir ) hersins í stríðinu og krafðist þess ) að honum yrði vikið frá. Kúlíkov bauðst til að segja af sér en Jeltsín hafnaði því. Kúlíkov varð aðstoðarinnanríkis- ráðherra árið 1992 og studdi Jelts- ín í uppreisn kommúnista og þjóð- ernissinna á þinginu í október 1993. Hann er frá Stavropol, fijó- sömu landbúnaðarhéraði í suður- i hluta Rússlands, þar sem Tsjetsjen- ar eru í litlum metum. Tsjetsjensk- í ir aðskilnaðarsinnar tóku þar gísla ) í fyrra og sá atburður varð til þess að Kúlíkov var gerður að innan- ríkisráðherra í stað Viktors Jeríns. Hylli og traust almennings í Rússlandi öflugasta vopn Alexanders Lebeds Litríkur stjórnmála- ferill er vart á enda Moskvu. Reuter. ALEXANDER Lebed nýtur sam- kvæmt könnunum meiri hylli og trausts rússnesks almennings en nokkur annar stjórnmálaleiðtogi þar i landi en nú hefur Borís Jeltsín forseti ákveðið að hann verði að víkja, sakar hann um valdagræðgi og jafnframt að hann grafi undan góðu samstarfi ráðandi manna. Ólíklegt er að stuttur en litríkur stjórnmálafer- ill Lebeds sé á enda og menn bíða nú framhaldsins með eftir- væntingu. Hann er maðurinn með djúpu röddina er minnir á fallbyssu- drunur, uppgjafahershöfðinginn sem keðjureykir sígarettur og notar munnstykki. Hann er kvæntur og á þrjú börn, konan segir hann blíðan og umhyggju- saman. Oðrum finnst hann helst minna á óveðursský. Lebed hefur sagt að skrifræði kommúnismans hafi verið gróðr- arstía spillingar og skilið eftir sig í Rússlandi samfélag með ofvaxinn hergagnaiðnað og her- varnir en úreltar og ónýtar verk- smiðjur á öðrum og hagkvæmari sviðum. Hann var vitni að því er uppreisn almennings var kæfð i blóði í borginni Novotsjerkassk árið 1962. Lebed segist hafa orð- ið andstæðingur kommúnista eft- ir þessa Iífsreynslu. Fyrir nokkrum dögum heim- sótti Lebed aðalstöðvar Atlantss- hafbandalagsins, NATO, í Bruss- el og hlaut í krafti embætta sinna móttökur er hæfðu þjóðhöfð- ingja. Ráðamönnum bandalags- ins kom á óvart hve Lebed, sem hefur stundum tekið stórt upp í sig um Vesturveldin, reyndist málefnalegur, íhugull og sáttfús. Þessi fyrsta heimsókn hans til útlanda tókst vel, myndir af rúss- neska birninum í jakkafötum og með bros á vör skreyttu blaðsíð- ur vestrænna dagblaða. Stríðshetja af kósakkaættum Lebed er 46 ára gamall og rekur ættir sínar til kósakka. Hann varð hermaður fyrir tveim áratugum, barðist í Afganistan og varð að lokum hershöfðingi í liði fallhlífahermanna. Hann var yfirmaður setuliðsins í Moldovu er Sovétríkin liðuðust í sundur 1991 og tókst að koma í veg fyr- ir alvarleg átök þar milli Moldova og rússneska þjóðabrotsins í austurhluta landsins þar sem harðlínu-kommúnistar voru alls- ráðandi. Lebed hikaði ekki við að gagn- rýna opinskátt æðstu yfirmenn landvarna og Jeltsín sjálfan. Honum var vikið úr stöðu yfir- manns setuliðsins í fyrra, var kosinn á þing og bauð sig fram í forsetakosningunum fyrr á þessu ári. í kosningabaráttunni lagði hann áherslu á baráttu gegn glæpafárinu en sagði mestu skipta að binda enda á Tsjetsjnjjustríðið. Lebed lýsti frá upphafi andstöðu við að herlið yrði sent gegn uppreisnarmönn- um í Kákasushéraðinu. í fyrri umferð kosninganna og Jeltsín ákvað umsvifalaust að fá ) hann til liðs við sig í von um að kjósendur Lebeds styddu þá fremur forsetann en frambjóð- anda kommúnista, Gennadi Zjúg- anov, í seinni umferðinni. Lebed var gerður að yfirmanni öryggis- ráðsins og helsti ráðgjafi forset- ans í öryggismálum. Dæmi Jeltsíns gekk upp, hann f vann en eftirleikurinn varð erfið- i ur, ekki síst eftir að Lebed stóð við fyrirheit sín um að koma á * friði í Tsjetsjníju. Keppinautum hans um völdin leist ekki á blik- una, vinsældir Lebeds uxu enn og hann sagði hispurslaust að hann hygðist verða forseti þegar Jeltsín léti af embætti. Hafin var áróðursherferð gegn Lebed í fjölmiðlum, á þingi sögðu komm- únistar að hann hefði svikið þjóð- ! ina með undanlátssemi við Tsjetsjena. í Kreml brýndu k keppinautarnir kutana og hafa nú fengið Jeltsin á sitt band.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.