Morgunblaðið - 18.10.1996, Side 28

Morgunblaðið - 18.10.1996, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLUN Fijáls fjölmiðlun er með tengsl við mörg fyrirtæki í upplýsingaiðnaði Dagsprent mun fara á al- mennan hlutabréfamarkað EYJÓLFUR Sveinsson, fram- kvæmdastjóri Ftjálsrar fjölmiðlun- ar, segir að þau upphafsmarkmið sem sett voru þegar dagblöðin Dag- ur og Tíminn voru sameinuð í Dag- ur-Tíminn, það er að halda í áskrif- endur beggja blaðanna, hafí náðst. Það sé nægilega sterkur grunnur til að byggja á og markmiðið sé að byggja hægt og rólega á þessum grunni og flýta sér ekki þó hægt gangi, dagblað verði ekki byggt upp á einni nóttu. Þeir myndu hafa það úthald sem til þyrfti. Nýja dagblað- inu yrðu lagðar til 20-30 milljónir króna í stofnkostnað og hann gerði ráð fyrir að fyrirtækið bæri sig miðað við þessa áskrifendur þegar sá kostnaður væri frátalinn. Þetta kom meðal annars fram á hádegisverðarfundi Félags við- skipta- og hagfræðinga á miðviku- dag undir heitinu Sviptingar á dag- blaðamarkaði, þar sem Eyjólfur flutti erindi um íslenskan dagblaða- markað, sameiningu Tímans og Dags og fleira og svaraði spuming- um að því loknu. Hann hóf mál sitt á því að segja að miklu eðlilegra væri að tala um hægfara þróun á íslenskum dag- blaðamarkaði á síðustu tveimur áratugum heldur en sviptingar þeg- ar farið væri yfir þær breytingar sem orðið hefðu. Það hefði ekki verið stöðnun á þessum markaði heldur hefði hann þróast skref fyrir skref, þó 5-7 ár hefðu orðið á milli atburða. Rakti hann nokkra helstu áfangana í þessari þróun og þær breytingar sem verða samhliða á fjölmiðlamarkaði og öllu frekar megi kalla byltingar með frelsi í útvarpsmálum, tilkomu myndbanda og endurvarpi gervihnattaefnis. Kallar á viðbrögð Eyjólfur sagði að þessar breyt- ingar á fjölmiðlamarkaði hefðu kall- að á viðbrögð. Fyrirtæki þyrftu að breytast í takt við tímann ef þau vildu ekki staðna og dragast aftur úr og Fijáls fjölmiðlun hefði brugð- ist við í samræmi við það og hefði þróast yfir í það að vera þjónustu- og stuðningsaðili við þá sem væru í upplýsingaiðnaði. Meðal þeirra fyrirtækja sem Fijáls fjölmiðlun ætti að fullu eða hluta til eða tengd- ist með einum eða_ öðrum hætti nefndi hann DV, Isafoldarprent- smiðju, Dag-Tímann, Vísir-Nýmiðl- un, sem væri þróunarfyrirtæki, út- gáfufélagið Úrval, Viðskiptablaðið- Framtíðarsýn, Askur-Skýrr, Fjar- hönnun, Litróf, Flatey, o. fl. Ástæð- an fyrir þessu væri að með þessu móti væri verið að nýta fjárfestingu í húsum, þekkingu og tækjum eins vel og mögulegt væri. Allir þessir miðlar gætu þrifist í þessu sam- starfi með ólíkar skoðanir, því eng- in ritstjórnarleg tengsl væru milli þeirra. Tengslin væru eingöngu rekstrarlegs eðlis. Eyjólfur rakti síðan rökin og að- dragandann að því að ákveðið var að sameina Dag og Tímann. Fijáls fjölmiðlun hefði tekið við útgáfu Tímans i ársbyijun 1994 og í byijun þessa árs hefðu þeir talið að ákveðn- um upphafsmarkmiðum væri náð og tímabært væri að huga að því hvert framhaldið skyldi vera. Þeir hefðu skoðað markaðinn til að at- huga hvar væru sóknarfæri og í ljós hefði komið þegar dagblaða- neysla á landinu væri skoðuð eftir landshlutum að hún væri hæst í Reykjavík og á Reykjanesi, eins og búast hefði mátt við eingöngu vegna auðveldari dreifingar. Einnig hefði komið fram mjög mikil notkun dagblaða á Norðurlar.di eystra og á Suðurlandi, tii dæmis umtalsvert meiri en á Vestfjörðum og Aust- fjörðum og þeir hefðu tatið að ástæðan fyrir þessu væru sterk hérðasfréttablöð á Suðurlandi og Norðurlandi eystra. Tengsl lesandans við nánasta umhverfi mikilvæg Af því hefðu þeir dregið þá álykt- un, sem raunar hefði ítrekað komið fram í fjölmiðlafræðirannsóknum að tengsl lesandans við sitt nánasta umhverfi væru mjög mikilvæg. í framhaldinu hefðu hafist þreifíngar um sameingu dagblaðanna sem lyktað hefði með tilurð Dags- Tímans, þar sem Fijáls fjölmiðlun ætti 50,06% í útgáfufélaginu Dags- prenti, KEA 27% og nokkrir aðrir aðilar svo sem ÚA og Höldur 2-5% hvert. Markmiðið væri að hafa þetta opið almenningshiutafélag sem færi á almennan hlutafjármarkað í síð- asta lagi eftir tvo ár og það væri ekki útgangspunktur hjá Fijálsri fjölmiðlun að eiga meirihluta í fé- laginu. Eyjólfur sagði að í upphafi hefði það markmið verið sett útgáfunni að halda áskrifendum beggja blað- anna. Það væri nægilega sterkur grunnur til að byggja útgáfuna á. Þannig yrði ekki ráðist í neitt mark- aðsátak á höfuðborgarsvæðinu vegna blaðsins á næstunni, þó pressa væri á að fara út í slíkt. Þó útbreiðsla Morgunblaðsins væri mikil væru þó engu að síður tæp- lega 50 þúsund heimili í landinu sem ekki keyptu það. Markmiðið væri að byggja blaðið upp hægt og ró- lega, því nýr fjölmiðill yrði ekki byggður upp á einni nóttu. Stefnan væri að höfða til landsbyggðarinnar að einhveiju leyti og til þeirra sem fyndist skoðanir Morgunblaðsins ekki falla saman við sínar. Eyjólfur sagði í svari við fyrir- spurn að það væri alveg rétt að það væri ákveðin innibyggð togstreita í útgáfunni, annars vegar á milli þess að vera héraðsblað og hins vegar að vera landsblað. Þeir hefðu verið með mikið markaðsstarf í gangi á Akureyri eftir sameiningu blaðanna og þeir hefðu komið ágæt- lega út úr könnunum þar nú eftir mánaðarmótin, en væru þó ekki sloppnir ennþá. Þeir fyndu einnig fyrir því að áhugi væri fyrir blaðinu á höfuðborgarsvæðinu. Blaðið væri í stöðugri þróun og þeir hefðu gef- ið það út innanhús hjá sér að upp- hafsmarkmiðin hefðu náðst um að halda áskrifendum beggja blað- anna. Það væri nauðsyn á einhveiju mótvægi við Morgunblaðið og þeir ætluðu sér að valda þá glufu á markaðnum. Hann giskaði á að blaðið gæti farið í 20 þúsund eintök á 2-3 árum. Þeir myndu ekki sætta sig við að vera á þeim stað sem þeir væru nú, en það yrði að taka sinn tíma að þróa blaðið áfram. Telegraph Dregur sig út úr verðstríði Toronto. Reuter. FYRIRTÆKI blaðakóngsins Conrads Blacks, Hollinger Int- ernational, hefur opinberlega dregið sig út úr síðasta verð- stríði brezkra blaða og mun eintakið af Daily Telegraph hækka í verði. Verðhækkunin verður eins mikii og nýleg hækkun á verði The Times, blaðs fjölmiðla- kóngsins Ruperts Murdochs, fimm pens eintakið frá þriðju- degi til föstudags, en verðið á laugardagsblaði The Te- legraph hækkar um fimm pens samanborið við 10 pensa hækkun á verði laugardags- blaðs The Times. Lagður verður niður sá háttur að þeir sem safni kvitt- unum geti fengið þriðjudag- seintakið á 10 pens og fer The Telegraph að dæmi The Times í því efni. Eykur rekstrartekjur stórlega Með hækkuninni segir Holl- inger að sölutekjur verði nærri því þær sömu og áður en verð- stríðið hófst. Árlegur hagnað- ur The Telegraphs fyrir skatta muni aukast um næstum því 20 milljónir punda. Ásamt verulega auknum auglýsinga- tekjum muni verðhækkunin auka rekstrarhagnað svo mjög að hann hafi aldrei verið meiri í sögu fyrirtækisins. „Eftir þessa hörðu sam- keppni, sem á sér varla hlið- stæðu, eykst fjöldi seldra ein- taka The Daily Telegraph stöðugt og eru lesendur blaðs- ins yngri og betur stæðir en nokkru sinni síðan áreiðanleg upplýsingaöflun hófst,“ sagði stjórnarformaður Hollingers, Conrad Black, í yfirlýsingu. Black sagði að útbreiðsla The Telegraphs hefði náð há- marki á síðari árum. Hollinger Inc. á 57,8% í Hollinger International sem á The Telegraph. Hagræðing eftir samruna Time Warners og Turners Starfsemi IHT i endurskoðun Ihugar flutning að hluta frá París New York. Reuter. TIME WARNER hefur tekið við stjórn Tumer Broadcasting Sy- stem, greitt 6.7 milljarða dollara til að geta á ný kallað sig stærsta fjölmiðlafyrirtæki heims, og boðað skjótar aðgerðir til að draga úr kostnaði. Yfirmenn hins sameinaða fyrir- tækis, þar á meðal stofnandi Turn- er Broadcasting, Ted Turner, hafa sagt fjárfestum í einkasamtölum að niðurskurður sé í uppsiglingu og eyðslusemi Time Warners á enda. Stjórnarformaður Time Warn- ers, Gerald Levin, sagði á fundi með fjárfestum að með fyrirhuguð- um niðurskurði mundi hið samein- aða fyrirtæki spara um 600 milljón- ir dollara á ári að sögn fundar- manna. Talið er að fyrirtækið hafi fengið ráðgjafafyrirtækið McKins- ey & Co. til að kanna sparnaðarleið- ir. Dýrt kaplasjónvarp Búizt er við að Time Warner reyni aftur að draga sig út úr rekstri kaplasjónvarpskerfa. Slíkur rekstur er mjög kostnaðarsamur og ein meginskýringin á 17.5 millj- arða dollara skuld fyrirtækisins. Turner, sem verður varastjórnar- formaður Time Warners og stærsti hluthafi, sagði á fjárfestafundinum að hann vildi minnka skuldir fyrir- tækisins um helming. Þessi ummæli hafa ýtt undir bollaleggingar um að Time Wamer muni reyna að draga sig út úr rekstri kaplasjónvarpskerfa, að minnsta kosti að einhverju leyti. Fyrirtækið hefur verið annar vold- ugasti aðilinn í þessum geira í Bandaríkjunum. Time Warner og U S West Me- dia eru samstarfsaðilar í kaplasjón- varpsrekstri og líklegt er talið að það samstarf verði endurskipulagt. U S West Media fór í mál við Time Warner þegar skýrt var frá yfirtöku Tumers, en dómari í Delaware dæmdi U S West í óhag fyrr á þessu ári. „Allir eru samtaka í þessu máli,“ sagði Gordon Crawford, sjóðsstjóri hjá Capital Research Group, sem á stóran hlut í Time Wamer og Turn- er Broadcasting. „Enginn vill 17-19 milljarða dollara skuld.“ Þrátt fyrir tap ár eftir ár hefur rekstrarafkoma Time Warners ver- ið góð að sögn sérfræðinga í Wall Street. Niðurskurður hjá Turner Turner hefur þegar skýrt frá ýmsum niðurskurði, meðal annars lokun vídeómarkaðsdeildar, sem sonur Teds Turners hefur starfað við. Atlantic Group, plötudeild Time Warners, hefur boðað að allt að 500 starfsmönnum verði sagt upp. Ár er síðan stungið var upp á samrunanum og hann hefur verið endurskipulagður í samræmi við alríkisreglur, sem miða að því að koma í veg fyrir hringamyndun í fjölmiðlageiranum. Samruninn var samþykktur á aðskildum hluthafa- fundum í Time-Life byggingunni á Manhattan. Verð hlutabréfa í Time Warner hækkaði um 25 sent í 41,375 doll- ara í kauphöllinni í New York. Verð hlutabréfa í Turner hækkuðu um 25 sent í 31 dollar. París. Reuter. STÓRBLAÐIÐ International Her- ald Tribune, sem hefur verið gefið út í París síðan 1887, íhugar að flytja hluta starfseminnar frá Frakklandi til að draga úr kostnaði að sögn yfirmanna blaðsins. Tillagna er að vænta í marz eða apríl. Ef ákveðið verður að flytja flyzt aðeins hluti starfseminnar, lík- lega ritstjórnarstörfin, frá París, annað hvort til New York eða Was- hington eða ef til vill Asíu. „Þetta stendur alls ekki fyrir dyrum og er sennilega ekki einu sinni líklegt," sagði Michael Getler, einn ritsjóra blaðaisns. Rekstrar- kostnaður væri hins vegar svo hár í Frakklandi að vert væri að kanna flutning á hluta starfseminnar. „Hvað sem því liður verður Tribune eftir sem áður með fjölmennt lið fréttamanna og ritstjórnarstarfs- manna í París,“ sagði hann. Blaðið, sem er í eigu New Ýork Times og Washington Post „er í sömu aðstöðu og öll dagblöð um þessar mundir. Við þurfum að draga úr kostnaði," sagði talsmaður Herald Tribune, Bruce Singer. Times stendur fyrir rannsókninni með stuðningi Post. Hluthafar Tim- es hafa lagt hart að blaðinu að bæta fjárhagsafkomu sína. Útgefendurnir virðast einkum hafa áhyggjur af háum sjúkrabóta- og orlofsgreiðslum. Starfsmenn blaðsins i París eru um 250, þar af um 100 á ritstjórtn. „Nokkurt tap varð á blaðinu í fyrra, en útkoman er góð á þessu ári,“ sagði Singer. Auglýsingatekj- ur aukast og fjöldi seldra eintaka hefur aukizt um 1,5% síðan 1994 í 192.000. Blaðið er prentað á fimm stöðum í Evrópu, þremur í Asíu, New York og þremur öðrum stöðum. Prentun hefst bráðlega á 13. staðnum. Upphaflega var blaðið útibú New York Herald. Haldið var áfram að gefa blaðið út í Paris þegar útgáfu bandaríska blaðsins var hætt 1966.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.