Morgunblaðið - 18.10.1996, Síða 30

Morgunblaðið - 18.10.1996, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Óupplýst lýðveldi? DAGANA 18. og 19. október efna heimspekideild og guðfræði- deild Háskóla íslands til ráðstefnu sem nefnist Milli himins og jarðar. Maður, guð og menning í hnot- skurn hugvísinda. Markmið ráð- stefnunnar er m.a. að gefa almenn- ingi kost á að kynnast rannsóknum á þessu sviði við skólann og munu fimmtíu fræðimenn halda stutt er- indi og svara spurningum áheyr- enda. Einnig verða umræður um stöðu hugvísinda á íslandi og eru þær tilefni eftirfarandi hugleiðinga. Upplýst einveldi Fijáls en skipuleg þekkingarleit vestrænnar vísindahefðar er ein helsta ástæða fyrir miklum upp- gangi Evrópu á 18. og 19. öld og því að Vesturlönd eru enn í dag meðal ríkustu þjóða heims. Þó gleymist oft að þessi árangur hefði ekki náðst nema vegna þess að pólítískur vilji var til þess að efla vísindin. Einvaldar sem ríktu í flest- um löndum Evrópu á 17. og 18. öld vissu að þeir yrðu að styðja við fijálsar rannsóknir til að tryggja eða styrkja stöðu þjóða sinna og hófu fræðimenn til vegs og virðing- ar. Sem dæmi má nefna heimspek- ingana Descaites, sem Kristín Svíadrottning bauð til sín, Voltaire sem var langdvölum hjá Friðriki Prússa- konungi og Diderot sem Katrín mikla Rús- sakeisaraynja fékk til að leggja drög að fyrsta háskólanum í Rússlandi og hélt uppi lengst af ævinnar. I skjóli þessara upplýstu einvalda uxu og döfn- uðu háskólar hvar- vetna í Evrópu og lagður var grunnur að samfélagi sem hefur æ síðan — og í sívaxandi mæli með tilkomu lýðræðis — treyst á háskól- ana til að skapa nýja þekkingu og miðla henni til næstu kynslóða. í þessu samfélagi vita menn hvað vísindin hafa fært þeim og því njóta fræðimenn virðingar, sem m.a. kemur fram í launum þeirra. Háskólakennarar og fræðimenn við rannsóknastofnanir hafa þar sam- bærileg laun og æðri embættis- menn eða meðalstjórnendur fyrir- tækja. Þessar þjóðir ætlast til mik- ils af fræðimönnum en umbuna Torfi H. Tulinius þeim jafnframt fyrir störf sín í samræmi við mat á fræðilegum af- rekum sem er samgró- ið hugsunargangi þeirra. Hjálenduhugarfar ísland stóð utan við þessa þróun. Einvald- urinn var í fjarlægu landi en í hjálendunni ríkti kyrrstaða í tækni- og efnahagsmálum þar til sjálfstæðisbar- áttan hófst. Mikilvæg- ur áfangi hennar var stofnun Háskóla ís- iands 1911. Þeir sem unnu að sjálf- stæði þjóðarinnar vissu að „vísindin efla alla dáð“ og hin mikla upp- bygging og styrking á menningu og menntun þjóðarinnar sem átti sér stað frá fullveldi 1918 til lýð- veldis 1944 er nátengd því að þá festist í sessi stétt atvinnufræði- manna hér á landi. Þótt háskólinn hafi vaxið mjög á þeim fimmtíu og tveimur árum sem liðin eru síðan læðist að manni sá grunur að þrátt fyrir stórhug þeirra sem fylgdu sjálfstæðisbar- Útfararþjónusta sem menning og hugsjón Útfararsiðir og um- búnaður í kirkjugörð- um endurspegla menn- ingu þjóða og samfé- laga. Hér á íslandi hef- ur verið lögð rækt við góða og gamla útfar- arsiði um leið og þeir hafa verið lagaðir að háttum nútímans. Slík aðlögun var verkefni Útfararsiðanefndar, sem skilaði áliti 1947, og í áttu sæti m.a. þeir Sigurbjörn Einarsson og Pétur Sigurgeirs- son, síðar biskupar, og Knud Ziemsen, borg- arstóri. Nefndin átti Þórsteinn Ragnarsson dijúgan þátt í að móta þau viðhorf, sem hafa verið ríkjandi í útfarar- þjónustu síðan. Útfararsiðanefnd mælti með því að útfarir í höfuðstaðnum yrðu gerðar svo ódýrar sem verða mætti. Það var hugsjón nefndarinnar að ekki væri gerður mannamunur eftir dauðann, einfaldleiki og látleysi skyldi einkenna athafnir. Ávallt starfað í anda Útfararsiðanefndar Kirkjugarðar Reykjavíkurpróf- astsdæma hófu útfararþjónustu ár- ið 1948, þegar þeir keyptu útfarar- fyrirtæki Tryggva Árnasonar og þjónuðu á þeim vettvangi í 45 ár. Kirkjugarðarnir störfuðu ávallt í þeim anda sem mótaði tillögnr Út- fararsiðanefndar 1947. Útfarar- stofa Kirkjugarðanna var sett á stofn síðla árs 1993 og aðskilin frá Kirkjugörðunum sem sjálfstætt fyr- irtæki, eftir setningu nýrra laga um kirkjugarða og nýrra samkeppnis- laga það ár. Útfararstofan tók við þessum hugmyndaarfi og hefur lagt rækt við hann, enda farnast vel á sínum fyrstu starfsárum. Aðstandendur velja Á starfssvæði Útfararstofunnar eru 3 aðrar útfararstofur sem bjóða þjónustu sína. Þessar stofur leitast allar við að bjóða góða þjónustu. Þegar andlát ber að höndum er það oftast hjúkrunarfólk sem tilkynnir andlátið nánustu aðstandendum. Aðstandendur velja sér síðan prest og útfararstofu til að annast þá þjón- ustu sem í vændum er. Þegar val á presti og útfararstofu liggur fyr- ir, er það ýmist fólkið sjálft eða presturinn sem hefur samband við útfararstofuna. Á þessum markaði er því samkeppni milli útfararþjónustuaðila um góða þjónustu á sanngjörnu verði. Þessi skipan, að á þessum vettvangi starfi bæði einkaaðilar og fyrir- tæki í eigu almennings, hefur verið gagnrýnd nokkuð út frá sam- keppnissjónarmiðum. Á það má benda að víða annarsstað- ar, þar sem útfarir eru eingöngu í náð undirtökum í þessum viðskipt- um hefur verð hækkað. Samtök útfararstofa á Norðurlöndum hafa áhyggjur af þessari þróun og telja m.a. að ótakmörkuð markaðsvæð- ing útfararstarfsemi geti spillt þjóð- legum siðum og venjum. Það er afar brýnt að íslendingar láti sér annt um þetta viðkvæma svið þjóðlífsins og gæti sóma síns og þjóðarinnar í þessum efnum fram á nýja öld. Höfundur er framkvæmdnstjóri Útfararstofu kirkjugarðanna. áttunni eftir á fyrri hluta aldarinn- ar stafi vöxtur skólans í seinni tíð fyrst og fremst af almennri þörf tæknisamfélagsins fyrir sérhæf- ingu, en þjóðin hafi að öðru leyti lítinn skilning á mikilvægi rann- sóknarstarfs. Efnahagslíf okkar byggist fyrst og fremst á frumframleiðslu hrá- efna og nýlega hefur verið vakin athygli á því að við erum langöft- ust OECD þjóða í verðmætasköpun Ólíkt upplýstu einvöld- unum, segir Torfi H. Tulinius, umbunar lýðveldið ísland ekki þeim sem leggja stund á vísindi. sem byggist á vísindalegri þekk- ingu. í sjálfu sér hefðu langvarandi velmegun, ágætis grunnmenntun þjóðarinnar framan af og breyttar aðstæður eftir að samgöngur við önnur lönd urðu greiðar átt að gera okkur kleift að hasla okkur völl á einhveiju sviði tækniiðnaðar, en svo hefur ekki orðið. Skýring- anna hlýtur að vera að leita í því sem kalla mætti hjálenduhugarfar þjóðarinnar. Þegar ísland var hjálenda Dana- konungs og iðnbyltingin hafði jafn lítil bein áhrif hér og Upplýsingin má segja að virðing og auður hafi skipst milli þriggja hópa, bænda sem áttu landið, embættismanna sem höfðu valdið og kaupmanna sem fleyttu ijómann af efnahags- kerfinu með því að flytja inn fjöl- breyttan varning frá iðnaðar- og verslunarríkjum án þess að þjóðin áttaði sig á allri þeirri þekkingu og færni sem bjó að baki fram- leiðslu þessara vara né heldur á því að þær breytingar sem urðu smám saman á lífsskilyrðum henn- ar byggðust fyrst og fremst á upp- götvunum vísindamanna úti í heimi. Svo virðist sem verðmætamat þjóðarinnar sé enn að verulegu leyti mótað af þessum gamla tíma og kemur það fram í því hvernig hún telur rétt að umbuna ólíkum starfsgreinum á talsvert annan hátt en í öðrum löndum OECD. Þjóðin virðist telja það eðlilegt að æðstu embættismenn, kaupmenn og eigendur hráefnisins (áður bændur en nú kvótagreifar) og nokkrir aðrir litlir hópar, búi við kjör sem teldust góð eða mjög góð fyrir sambærilega hópa í öðrum löndum. Aftur á móti sér hún eft- ir hverri krónu sem fer til þeirra sem miðla þekkingu eða skapa nýja. Að þetta vandamál sé samof- ið íslenskri þjóðarsál má ráða af því að þegar við slitum endanlega sambandi okkar við Danaveldi 1944 hafði háskólaprófessor sömu grunnlaun og dómari í undirrétti. Hálfri öld síðar eru laun dómarans liðlega tvöfalt hærri en laun pró- fessorsins, sem nægja til nauð- þurfta en eru allt of lág miðað við þær kröfur sem gerðar eru til þess- ara_ starfa. Olíkt upplýstu einvöldunum um- bunar lýðveldið Island ekki þeim sem leggja stund á vísindi, enn síð- ur nú en fyrir fímmtíu árum. Fá- dæma lítil virðing er borin fyrir þeirri þekkingarleit sem þó hefur lagt grunninn að velmeguninni sem við njótum í dag. Gegn stöðnuðu hugarfari Á nýliðnu Menntaþingi sagði Björn Bjarnason, menntamálaráð- herra, að menntun væri vanmetin hér á landi og skilaði sér ekki nægilega í launum. Ég man ekki eftir að forystumaður í stjórnmál- um hafí tjáð sig svo skýrt um þenn- an vanda. Satt að segja kveiktu orð hans hjá mér von um að loks væru skilyrði til að vinna bug á meinsemd þessari. Efnahagshorfur eru góðar og stjórnin er föst í sessi og þó ekki hafi komið fram hvaða skoðanir aðrir í forystusveit stjórnarflokk- anna hafa á þessum málum vil ég leyfa mér að vona að Björn sé þar ekki einn á báti. Því skora ég á stjórnvöld að nýta sér nú sögulegt tækifæri til að losa vísindastarf hér á landi úr viðjum staðnaðs hugar- fars og lagfære kjör háskólakenn- ara og annarra fræðimanna, svo vaxandi kynslóðir sjái sér hag í að afla sér þekkingar og öðlast getu til að skapa nýja. Nú er lag en einn- ig þarf hugrekki til að breyta trén- uðu verðmætamati hins óupplýsta lýðveldis. Höfundur er bókmenntafræð- ingur og dósent í frönsku við heimspekideild HÍ. Það er afar brýnt, að íslendingar láti sér annt um þetta viðkvæma svið þjóðlífsins, segir Þór- steinn Kagnarsson, og gæti sóma síns og þjóð- arinnar í þessum efnum fram á nýja öld. höndum einkafyrirtækja, sem hafa viðskiptasjónarmið ein að leiðar- ljósi, dofnar verulega yfir þjón- ustunni sem menningu og hugsjón. Varasöm þróun Kostnaður við útfarir, þar sem þjónustan er eingöngu í höndum einkaaðila, er allt að þrefalt hærri en hér á landi. íslensk útför kostar að meðaltali 140 þúsund krónur meðan algengt verð í Bandaríkjun- um er 300 þúsund krónur og í Þýskalandi um 250 þúsund krónur. Á Norðurlöndunum, þar sem þjón- ustan er bæði í höndum hálfopin- berra aðila og einkaaðila, er hún svipuð og hér, en hærri þar sem hún hefur að fullu verið einkavædd. Á Bretlandi og í Mið-Evrópu hafa alþjóðlegir hringir verið að kaupa útfararstofur og þegar þeir hafa í TILEFNl ÁRA' BJÓÐUM VIÐ ALLAR VÖRUR MEÐ AFMÆLIS A F S LÆTT1 í DAG OG Á MORGUN Búsáhöld & Gjafavörur Kringlunni og Miöbæ Hafnarfiröi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.