Morgunblaðið - 04.12.1996, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Vatn á
tunglinu?
Útlendingar flýja átakasvæði í Zaire af ótta við morð og misþyrmingar
Tútsar segjast
ná tveimur bæj-
um á sitt vald
Reuter
RÚANDÍSKUR flóttamaður á heimleið skammt frá landamærun-
um að Zaire þar sem harðir bardagar geisa milli stjórnarhers-
ins og uppreisnarmanna.
Goma, Genf.
TALSMENN uppreisnarmanna
tútsa í Zaire sögðu í gær, að tveir
bæir enn hefðu fallið þeim í hend-
ur, Bunia og Walikale. Hafa út-
lendingar flúið þá og svæðin um
kring af ótta við morð og misþyrm-
ingar. Mannréttindafulltrúar Sam-
einuðu þjóðanna í Rúanda hafa
fengið fréttir um, að flóttafólk, sem
snúið hefur heim, hafi verið myrt
við komuna.
Jean Kabongo, öryggisráðgjafi
Laurents Kabila, leiðtoga upp-
reisnarmanna, sagði í Goma í gær,
að zaírskir stjómarhermenn hefðu
verið hraktir frá Bunia og Walik-
ale og í fyrradag sagði hann, að
uppreisnarmenn hefðu náð á sitt
vald hluta Kisangani, stærstu
borgarinnar í landshlutanum. Full-
trúar hjálparstofnana í borginni
vísuðu því á bug en Kabongo ítrek-
aði í gær, að uppreisnarmenn tútsa
væru við borgarmörkin. Spáði
hann miklum bardögum um borg-
ina en þar er stór herflugvöllur og
borgin mjög mikilvæg fyrir stjórn-
arherinn reyni hann að snúa vöm
í sókn.
Flóttamenn frá Zaire, sem komu
til nágrannaríkisins Úganda í gær,
sögðu að stjórnarhermenn hefðu
látið greipar sópa um hús í Bunia,
barið íbúana og nauðgað mörgum
konum áður en uppreisnarmenn-
imir náðu bænum á sitt vald.
„Hermenn Zaire-stjórnar hafa
flúið frá svæðinu og við vitum
ekki hvert þeir fóru,“ sagði kona
á meðal flóttafólksins. „Við ákváð-
um að fara til Úganda vegna þess
að stjórnarhermennirnir rupla og
ræna og nauðga konum á flóttan-
um undan uppreisnarmönnum."
Ottast uppreisnarmenn
Nokkrar hjálparstofnanir hófu að
flytja sitt fólk frá Kisangani í gær
og fréttir vora um, að komið hefði
til átaka milli deilda innan stjómar-
hersins. Erlendur trúboði hafði það
eftir hermönnunum, að þeir óttuðust
uppreisnarmenn og íbúana almennt
á þessum slóðum og hermt er, að
deild úr forsetalífverðinum í Zaire
hafi verið send til Kisangani til að
afvopna stjómarhermennina.
Flóttafólk myrt
Uppreisnarmenn hafa að eigin
sögn náð á sitt vald bænum Kamit-
uga í sunnanverðri Austur-Zaire en
þar er mikil gull- og demantavinnsla.
Javier Zunica, talsmaður SÞ í
Rúanda, sagði í gær, að fréttir
væru um, að flóttafólk hefði verið
myrt þegar það sneri heim aftur
og raunar er sagt, að eitthvað sé
um, að flóttamenn hafi við komuna
myrt fólk, sem hugsanlega gat
vitnað um þátttöku þeirra í morð-
æðinu fyrir tveimur áram.
Washington. Reuter.
RÁÐUNEYTI vamarmála í
Bandaríkjanna segir að upplýs-
ingar sem borist hafi frá gervi-
hnetti á vegum þess bendi til þess
að verulegt magn af ís sé að f inna
í djúpum gíg á tunglinu. Reynist
þetta rétt er talið að mun auðveld-
ara en ella verði að koma á fót
fastri bækistöð manna á mánan-
um, m.a. vegna þess að nýta
mætti vatnið til að búa til elds-
neyti.
Lengi hefur verið deiltum það
hvort vatn sé á tunglinu. Útvarps-
bylgjum var beint úr gervi-
hnettinum niður í gíg er nefnist
Suðurpóls-Aitkin til að kanna
hvaða efni væri þar að finna.
Vatnið, sem er allt gaddfreðið,
er talið vera svo mikið að það
dygði í tjörn eða lítið stöðuvatn.
Áður hefur fundist tunglgijót sem
er svo þurrt að það hefur aðeins
getað myndast þar sem ekki er
neitt vatn að finna. Vísindamenn
geta sér þess til að vatnið á tungl-
inu hafi borist þangað með hala-
stjömum.
Ráðuneyti segir að hægt væri
að nota vatnið til að búa til elds-
neyti fyrir eldflaugar, til drykkj-
ar og framleiðslu á mat og súr-
efni fyrir íbúa í sjálfbæmm mann-
virkjum er reisa mætti á tunglinu.
Aðalfundur norskra ESB-andstæðinga
ESB og norrænar reglur um áfengis- og tóbaksinnflutning
Ætla að berjast
gegn Schengen
NORSKU samtökin „Nei við ESB“
héldu aðalfund sinn um síðustu
helgi og strengdu þess heit að beij-
ast gegn fyrirhugaðri aukaaðild
Noregs að Schengen-vegabréfa-
samkomulaginu. Samtökin líta svo
á að í aðild að samningnum felist
fullveldisafsal.
Markmiðið með aðild Noregs og
íslands að Schengen-samstarfinu
er að unnt reynist að viðhalda nor-
ræna vegabréfasamstarfinu, sem
væri úr sögunni ef norrænu ESB-
ríkin gerðust aðilar að Schengen
án þess að hin fylgdu með. Norskir
ESB-andstæðingar telja hins vegar
að Schengen sé hluti af þróun ESB
í átt til æ nánara sambands, og að
með aðild að samstarfinu færist
Noregur inn undir jaðar Evrópu-
sambandsins.
Beiti neitunarvaldi í EES
í Aftenposten segir að landsfund-
ur „Nei við ESB“ hafi einnig gert
kröfu um að norsk stjórnvöld beiti
neitunarvaldi gegn nokkrum tilskip-
unum ESB, sem áformað er að taka
inn í EES-samninginn. Beiting slíks
neitunarvalds getur orðið tilefni
gagnaðgerða af hálfu ESB og telja
ýmsir lögfræðingar að hún myndi
í raun stefna EES-samningnum í
hættu.
Andstæðingar Maastricht
Stofnun samtaka
í undirbúningi
ANDSTÆÐINGAR Maastricht-
sáttmálans, stofnsáttmála Evrópu-
sambandsins, hyggjast stofna evr-
ópsk samtök, TEAM, til að veita
upplýsingar og samræma aðgerðir
sínar. Gert er ráð fyrir að stofnfund-
ur samtakanna verði haldinn í
Kaupmannahöfn í byijun marz á
næsta ári.
Vaxandi efasemdir og
andstaða á hægri væng
Andstæðingar Maastricht úr öllum
flokkahópum á Evrópuþinginu héldu
ráðstefnu í Brassel í síðustu viku.
Til ráðstefnunnar var boðið fulltrúum
frá ýmsum ríkjum utan ESB, þar á
meðal Hjörleifí Guttormssyni, þing-
manni Alþýðubandalagsins.
í fréttatilkynningu frá Hjörleifi
segir m.a.: „Ráðstefnan endur-
speglaði m.a. að þeim fer fjölgandi
á hægri væng stjórnmálanna sem
hafa efasemdir eða snúast gegn
þeirri stefnu að breyta Evrópusam-
bandinu í ríkjasamband með sam-
eiginlegri mynt og sameiginlegri
utanríkis- og öryggismálastefnu. I
þessum hópi eru m.a. Charles de
Gaulle, sonarsonur fyrrum Frakk-
landsforseta, James Goldsmith,
sem fer fyrir nýstofnuðum flokki
í Bretlandi sem krefst þjóðarat-
kvæðagreiðslu um afstöðu Breta
til ESB, og Bill Cash þingmaður
brezka íhaldsflokksins, en allir
þessir töluðu á ráðstefnunni.“
Frestur til aðlögunar
- ekki undanþága
Norrænu ESB-ríkin
munu á endanum þurfa
að samræma reglur um
innflutning áfengis því,
sem gerist annars stað-
ar í sambandinu, skrifar
Sigrún Davíðsdóttir
frá Kaupmannahöfn.
„SVÍÞJÓÐ neyðist ekki til að sam-
þykkja eitt eða neitt. Málstað okkar
var sýndur skilningur í þetta skiptið
og sama verður vafalaust einnig síð-
ar,“ sagði Erik Ásbrink, fjármála-
ráðherra Svía, glaðbeittur eftir að
starfsbræður hans í Evrópusam-
bandinu höfðu tekið tillit til sérnor-
rænna aðstæðna hvað varðar tak-
markanir á áfengis- og tóbaksinn-
flutningi einstaklinga. Allt stefnir
þó í þá átt að Svíar, jafnt og Finnar
og Danir, muni þurfa að laga sig
að ESB-reglum á þessu sviði í árs-
byijun 2004. Fýrir Svíum og Finnum
er takmörkunin hluti áfengisstefn-
unnar, en málið snertir landamæra-
verslun Dana í Þýskalandi.
Ofuráhersla
á áfengisstefnu
í Svíþjóð hefur stjórn jafnaðar^
manna sett málið mjög á oddinn. í
Svenska Dagbladet er niðurstaðan
sögð dæmigert niðurstöðuleysi í
anda jafnaðarmanna, þar sem aðeins
sé um frest á ESB-aðlögun að ræða.
Aðrir segja málið auka enn tor-
tryggni Svía í garð ESB, því að fyr-
ir þjóðaratkvæðagreiðsluna hafi
Svíum verið talin trú um að þeir
gætu ákveðið áfengisstefnu sína um
aldur og ævi, þrátt fyrir ESB-aðild.
Sænska stjórnin hótaði upphaf-
lega að koma í veg fyrir ákvörðun
í málinu, ef hún fengi ekki fullnægj-
andi niðurstöðu að eigin mati. Svíar
vora því tilbúnir til að hindra að
Finnar og Danir leystu málið, en
buðu á endanum málamiðlun um að
þeir fengju lengri frest. Nú er Svíum
lofað að málið verði athugað árið
2000, en Finnar og Danir sam-
þykkja að laga sig að ESB-reglunum
fyrir árslok 2003. Þeim er þó lofað
að þeirra aðstaða verði ekki lakari
en Svía. Því er sennilegt að á endan-
um að gefist Svíum í raun aðeins
kostur á að bíða með frekari ákvarð-
anir til 2000, en muni þá þurfa að
samþykkja þá aðlögun, sem Finnar
og Danir hafa nú samþykkt. Þó
sænska stjómin hafi lagt ofurá-
herslu á málið, er áfengisstefnan
Finnum ekki minna mál. Þeir munu
því ekki sætta sig við rýrari hlut en
Svíar, þegar að endanlegum ákvörð-
unum kemur.
Snýst um krónur og
aura í Danmörku
Fyrir Dani snýst takmörkun inn-
flutnings ekki um áfengisstefnu,
heldur krónur og aura. Vöraverð,
þó einkum áfengis- og tóbaksverð,
er lægra í Þýskalandi en Danmörku,
svo Danir streyma suður eftir til
innkaupa og að sama skapi missir
dönsk verslun spón úr aski sínum.
Til að stemma stigu við því er í gildi
svokölluð 36 tíma regla, sem kveður
á um að Danir geta ekki tekið með
sér fullan skammt af sterku víni og
tóbaki, 1,5 lítra af brenndum diykkj-
um og 300 sígarettur, nema þeir
hafi verið lengur í burtu en 36 tíma,
en borðvín og bjór fylgir evrópsku
reglunum, 90 lítrar af víni og 110
lítrar af bjór. Um áramótin lækka
tímamörkin niður í 24 tíma og verða
væntanlega í gildi fram til 30. júní
1999, þegar tollfijáls verslun á að
leggjast af í Evrópu. Samhliða þeim
breytingum munu Danir endurskoða
reglur sínar og stefna að hægfara
aðlögun að ESB-reglunum. Hvort
sem Finnum og Svíum líkar betur
eða verr munu þeir á endanum þurfa
að laga áfengisneyslu sína að neyslu-
siðum vínræktarsvæða ESB.
*
i
i
i
I
>
I
I
i
I
i
i
i
i