Morgunblaðið - 10.12.1996, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.12.1996, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Ámi Sæberg HORN stöpulsins undir brúnni í Kópavogi er nokkuð hvasst, eða um 60 gráður. Kannað verður hvort setja eigi vörn framan við það og framan við klöppina. Vegríð eða styrktarsteinar við Kópavogsbrú JÓNAS Snæbjörnsson, forstöðu- maður Vegagerðarinnar i Reykja- nesumdæmi, kannaði í gær að- stæður við umferðarbrú í Kópa- vogi, en alvarlegt slys varð þar á föstudag, þegar bíll skall á brú- arstöpli. Jónas segir að kannað verði hvort minnka megi hættu á svo alvarlegum slysum með því að setja vegrið eða styrktarsteina meðfram akbrautinni. Horn brú- arstöpulsins, sem bíllinn skall á, er óvenju hvasst. „Nú er frost í jörðu og því gæti verið að við settum styrktar- steina við akbrautina fram á vor- ið, þegar hægt væri að ganga frá vegriði til frambúðar,“ segir Jón- as. „Við lítum þá sérstaklega til hornsins á brúarstöplinum, auk þess sem setja þarf vörn norður með kiöppinni sem þarna er.“ Horn brúarstöpulsins er nokk- uð hvasst, eða um 60 gráður, að mati Jónasar. „Brúin var teiknuð upp úr 1970 og mér vitanlega hefur aldrei verið gerð athuga- semd við þetta horn. Það er hins vegar óheppilegt að hafa jafn hvasst horn á svona stað.“ Formaður VR um breytingar á lífeyrismálum ríkisins Stefnumarkandi ákvörð- un og forskrift fyrir aðra MAGNÚS L. Sveinsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, segir að mjög alvarleg staða sé að koma upp viðræðunum um gerð kja- rasamninga vegna frumvarps fjár- málaráðherra um breytingar á lífeyr- isrétti opinberra starfsmanna. „Þar er gert ráð fyrir að lífeyris- prósentan verði hækkuð upp í 15,5% og framlag vinnuveitandans hækkar úr 6% í 11,5%. Við verðum að líta á þetta sem stefnumarkandi ákvörð- un og forskrift fyrir aðra lífeyris- sjóði,“ segir hann. Magnús segir að félög á almenna vinnumarkaðinum hljóti nú að stoppa og spyija sig hvort ekki sé eðlilegt að aðrir launa- menn geri kröfu um hliðstæð rétt- indi, enda séu það þeir sem muni þurfa að greiða reikninginn vegna aukinna útgjalda ríkisins af þessum sökum. „Þetta mun tvímælalaust hafa áhrif á viðræðurnar um gerð kjarasamninga. Þetta eru stórtíðindi í kjaramálum." Ekki samið fyrir áramót Nær allir kjarasamningar í landinu eru lausir frá og með næstu áramót- um. Aðspurður um stöðuna í kjaravið- ræðunum sagði Þórarinn V. Þórarins- son, framkvæmdastjóri VSÍ, að til- fínning flestra væri nú sú að menn næðu ekki saman fyrir jól og það setti sitt mark á ganginn í viðræðun- um þessa dagana. Þórarinn á ekki von á að línur fari að skýrast fyrr en eftir áramót. „Menn gera sér almennt grein fyrir því að samningar takast ekki fyrir áramót,“ segir Magnús L. Sveinsson. Hann kveðst gera ráð fyrir að viðræðum við atvinnurek- endur verði haldið áfram fram í miðjan desember. Þeim verði síðan frestað fram yfir áramót en verði þó ekki vísað formlega til ríkissátta- semjara. Nýtt kortatímabil hefst á fimmtudag NÝTT kreditkortatímabil hefst fimmtudaginn 12. desember hjá þeim verslunum og þjónustuað- ilum sem hafa svonefnt breytilegt kortatímabil. Mest verslun er á þessu tímabili ár hvert, endá þurfa viðskiptavinir ekki að borga reikninginn fyrr en í febrúar. Að sögn Andra Vals Hrólfs- sonar, forstöðumanns þjónustu- sviðs söluaðila hjá VISA ísland eru tvenns konar timabil í gildi í kreditkortaverslun hérlendis, föst og breytileg. Föst tímabil miðast við 18. hvers mánaðar en breytileg tímabil færast þessir dagar fram fyrir helgi. Meirihluti verslunar með breytileg kortatímabil Að sögn Andra Vals Hrólfs- sonar er meirihluti verslunar í landinu, að magni til, í höndum fyrirtækja með breytileg korta- tímabil, en ef litið er til Qölda verslana eru þær fleiri sem nota föst tímabil og miða ávallt við 18. hvers mánaðar. Þær verslanir sem nota breyti- leg tímabil koma, að sögn Andra, fyrir í húsakynnum sínum áber- andi skiltum frá kreditkortafyrir- tækjunum tveimur þar sem til- kynnt er að nýtt kortatímabil sé hafið. Litlar breytingar á bensín- verði TILKOMA þriggja nýrra sjálfsaf- greiðslubensínstöðva ÓB, sem stendur fyrir Ódýrt bensín, hefur ekki valdið verðstríði á bensínmark- aði. Stöðvarnar, sem hófu starfsemi síðastliðinn fimmtudag, selja lítrann af 95 oktana blýlausu bensíni á 72 krónur. Eina breytingin sem orðið hefur síðan er sú að sjálfvirkar bensín- stöðvar Orkunnar hafa lækkað verð á 95 oktana bensíni um 40 aura, eða úr 72 krónum í 71,60 á lítrann. Bensínstöðvar Olís, Skeljungs og Esso selja lítrann af 95 oktana blý- lausu bensíni eftir sem áður á 75 krónur í sjálfsafgreiðslu og 77 krón- ur með þjónustu. EES-reglur um umbúðamerkingar teknar upp á íslandi um mitt næsta ár Þekkt vörumerki hverfa úr verslunum eða hækka STEFÁN Guðjónsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra stórkaup- manna, segir að svo virðist sem ís- lensk yfirvöld og eftirlitsaðilar ætli sér að verða kaþólskari en páfinn og ganga lengra en Eftirlitsstofnun EFTA krefst til þess að framfylgja reglum EES. Hann telur t.d. hæpið að íslenskt gvendarbrunnavatn frá íslenska fyrirtækinu Thorspring fái að óbreyttu að standa í íslenskum verslanahillum þar sem það er fram- leitt fyrir bandaríkjamarkað og með bandarískum innihaldslýsingum. Meðal þess vamings sem EES- reglurnar ná til éru niðursuðumatur, Op ið í dag 10- ld:30 Sumar verslanir opnar iengur KRINGMN frci niorgni líl kvölcls Hætt er við að ýmiss konar bandarísk mat- vara hækki talsvert í verði eða hverfí jafn- vel úr hillum íslenskra verslana í kjölfar þess að reglur EES um umbúðamerkingar matvæla verða teknar upp hér á landi um mitt næsta ár. pakkamatur, ávaxtasafi og barna- matur. Margar bandarískar fram- leiðsluvörur undir vörumerkjum á borð við Hunt’s, Gerber, McCormick og Uncle Ben’s, uppfylla ekki kröfur um næringarinnihaldslýsingar miðað við 100 gramma skammta sem gerð- ar eru á Evrópska efnahagssvæðinu. Sumar bandarískar vörur eru framleiddar undir bandarískum vöru- merkjum á Evrópska efnahagssvæð- inu og uppfylla kröfurnar, t.d. Heinz- barnamatur. Sumar þeirra, t.d. Cheerios morg- unkorn og Hunt’s tómatsósa, eru sér- staklega merktar fyrir íslenskan markað en Stefán Guðjónsson segir að það liggi fyrir að flestir aðrir fram- leiðendur en þeir sem þegar merkja vaminginn sérstaklega muni ekki taka á sig kostnað til að vemda hlut- deild sína á íslenskum markaði; til þess sé hann of lítill og í hugum margra þeirra sé jafnvel Norðurlanda- markaður of lítill til að slíkt borgi sig. Kaþólskari en páfinn? Reglurnar leiða til þess, að sögn Stefáns, að annaðhvort íslenskir inn- flytjendur verða að greiða hærra verð fyrir vörurnar sérstaklega merktar eða þá að innflutningur leggst af. Hann segir að sér virðist íslensk stjómvöld og eftirlitsaðilar ætla sér að ganga mun lengra við túlkun þeirra reglna sem taka eiga gildi á næsta ári hér en eftirlitsaðilar ann- ars staðar á EES. Hann segist síðast í gær hafa fengið þær upplýsingar hjá Birni Friðfínnssyni eftirlitsfulltrúa hjá Eftirlitsstofnun EFTA, að ESA mundi sætta sig við hillumerkingar í verslunum með innihaldslýsingum fyrir bandarísk matvæli ef íslensk eftirlitsyfirvöld teldu það fullnægj- andi. Hins vegar hafi komið fram hjá Guðmundi Bjarnasyni, umhverf- isráðherra, í Morgunblaðinu á laug- ardag að hillumerkingum væri hafn- að hér á landi. „Okkur finnst að þarna eigi að ganga fulllangt. Við hefðum viljað sjá hvort ekki mætti setja tvöfaldar reglur sem viðurkenna bæði evrópsk- ar og bandarískar umbúðareglur að gefnu því skilyrði að það sem er flutt inn til Islands verði ekki endurútflutt innan EES,“ segir Stefán. Evrópskir iðnaðarhagsmunir? „Það eru undanleg neytendasjón- armið að útrýma fjölmörgun tegund- um úr verslunum sem hafa verið hér áratugum saman á markaði og hafa náð markaðsfestu og vinsæld- um út á gæði og hagstæðara verð en vörur frá Evrópu.” Stefán sagði að málið snerist ekki um það að engar reglur giltu í Bandaríkjunum; þarlendar reglur um innihaldslýs- ingar væru strangar og nýlegar og gefnar út af Matvæla- og lyfjaeftir- liti Bandaríkjanna (FDA) í samræmi við neytendahagsmuni sem væru í hávegum hafðir í Bandaríkjunum. Þess vegna séu ekki sjáanlegir aðrir hagsmunir í húfi en hagsmunir evr- ópskra iðnaðarfyrirtækja af því að útiloka bandaríska samkeppnisaðila. „Mér finnst með ólíkindum að ís- lensk stjórnvöld ætli sér að ganga svo langt í að veija iðnaðarhags- muni Evrópuþjóðanna," sagði Stef- án. 1,1 milljardur í inn- flutningsverðmæti Hann segir að innflutningur mat- væla frá Bandaríkjunum sé 18% af veltu innfluttra matvæla í smásölu- verslun. Innflutningsverðmæti við- skiptanna, þ.e. án virðisaukaskatts, tolla og annarra gjalda, nam 1,1* milljarði króna árið 1994. Af um 70t fyrirtækjum sem eru skráðir matÁ vælainnflytjendur flytja 35 inn fra Bandaríkjunum, allt frá broti af veltu sinni og upp í 60% af veltu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.