Morgunblaðið - 10.12.1996, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1996 65
_________BREF TIL BLAÐSINS___
Borgarholtsskóli málmiðn-
aði á Islandi til skammar
Frá Rúnarí Sigurjónssyni:
ÞAÐ hefur sjálfsagt ekki farið
framhjá neinum að eitt af aðalum-
ræðuefnum þjóðfélagsins að undan-
förnu eru menntamál og þá einkum
undirbúningur
barna fyrir
framhaldsnám.
En hvað með
framhaldsnám-
ið? Jú, ég er
nemandi í hinum
nýja Borgar-
holtsskóla á
málmiðnaðar-
braut og þar er
sko ekki allt með
felldu. Einhvetjum hottintottum
datt það í hug að best væri nú að
byggja einn stóran og mikinn skóla
sem þjónað gæti málmiðnað-
arkennslu fyrir alla nemendur af
Stór-Reykjavíkursvæðinu og hætta
að kenna þessi fög í Iðnskólanum
í Reykjavík, þar sem ég var áður
við nám, og Fjölbraut í Breiðholti.
Sú hugmynd að koma þessari
kennslu undir eitt þak hefði nú
kannski ekki verið svo slæm ef skól-
inn hefði ekki verið staðsettur því
sem næst upp í miðjum Esjuhlíðum
í eins illa skipulögðu hverfi og raun
ber vitni. Skólinn er svo illa stað-
settur og gatnakerfið að honum svo
illa hannað að nánast þarf að aka
í gegnum túnið á Korpúlfsstöðum
til að komast að honum. Umferðar-
hnútarnir á þessu svæði eru kannski
ekki svo óvenjulegir í þessum ný-
byggða borgarhluta. Það virðist
nefnilega vera tíska um þessar
mundir hjá þeim sem teikna og
hanna gatnakerfi borgarinnar að
hafa hverfín svo hlykkjótt og
flækjulega uppsett að ef þessir
menn væru fengnir til þess að gera
nýjan veg frá Reykjavík til Kefla-
víkur lægi hann líklega í gegnum
Kirkjubæjarklaustur. Þetta þýðir
að flestir nemendur í málmiðnaði á
Stór-Reykjavíkursvæðinu hafa yfir
mjög langan veg að fara í skólann.
Það er nú samt ekki það versta,
heldur er það sú staðreynd að skipu-
lagið er ekki betra en svo að tölu-
vert margar stundaskrár skólans
eru eins og gatasigti og líkjast
miklu frekar teikningum af gróf-
sigti fyrir möl en stundaskrám.
Þetta þýðir annaðhvort margar
ferðir þessa löngu leið eða hangs i
skólanum yfir engu og hver nennir
því eða hvaða námsmaður á að
hafa efni á að reka bíl í hitt. Gæti
þetta ekki skapað uppgjöf og brott-
hvarf frá námi og hvaða hagur er
í því fyrir þjóðina að reka slíkan
skóla? Reynt hefur verið að kenna
byijunarörðugleikum skólans um
þessar stundarskrár. En hveijir eru
byijunarörðugleikar Borgarholts-
skóla? Þegar kennsla hófst þar síð-
astliðið haust gat ég ekki betur séð
en skólinn ætti ekki einu sinni svo
mikið sem skrúijárn af handverk-
færum. Þau tól og tæki sem þó
voru komin í skólann voru gömui
tæki úr FB og IR sem búið var að
planta þar sem þau lentu eftir flutn-
ingana í óskipulagðri röð og allt var
í rusli og drasli og allt út um allt.
I flestum tilfellum var búið að taka
ágætis kennslugögn, á meðan þau
voru í áðurnefndum skólum, slíta
þau úr samhengi og gera þau ónot-
hæf til kennslu. Allavega eins og
búið var að koma þeim fyrir þarna.
Skólastjóri skólans afsakaði það
reyndar i setningarræðu sinni um
haustið að ekki væri alveg búið
hnýta nokkra lausa enda á vissum
stöðum en bauð hinsvegar þeim
nemendum sem væru til í að rétta
fram hjálparhönd við frágang skól-
ans aukaeiningu fyrir aðstoðina ef
þeir vildu. Fyrstu önn þessa skóla
er nú að ljúka og þrátt fyrir að
verknám nemenda hafi meðal ann-
ars verið fólgið í því að reyna að
klára frágang hússins vantar enn
mjög langt i land að þetta kennslu-
húsnæði _sé tilbúið undir þessa
kennslu. Ég get að vísu á sumum
sviðum ekki séð að það verði það
nokkurntímann. Skipulagsleysið í
uppsetningu tækja og tóla er eins
og áður sagði í algerum hrærigraut
og málmiðnaðardeildin er að verða
starfsþjálfunarsvæði þar sem fyrir-
myndin á að vera sverustu krumma-
skuðaverkstæði á landinu, rusla-
kompa þar sem enginn fínnur neitt
og allir eru að leita að öllu því hlut-
irnir eiga sér flestir engan sama-
stað. Það er alveg ljóst að kennsla
í skólanum hófst alveg ári of
snemma en það hefði ekki veitt af
þessum vetri til þess að klára frá-
gang skólans svo ekki þyrfti að
notast við hann með eintómum
bráðabirgðalausnum í öllum horn-
um þar sem iðnaðarmenn, kennarar
og nemendur eru í vinnu við að
skítredda hinu og þessu hér og
þar. Ég fæ ekki annað skilið en
þetta kosti nú engar smá fjárhæðir
fyrir þjóðarbúið að vera með svona
tvíverknað á öllum sviðum. Borgar-
holtsskóli er skammstafað BHS.
Forsvarsmenn skólans hafa útlagt
skammstöfunina með öðrum hætti.
Bókmennt, handmennt og að end-
ingu siðmennt. Ég tel að þeir ættu
að skammast sín fyrir það síðast-
nefnda. Það er nú meiri siðmenntin
sem felst í því að kynna mönnum
þessa hálfkláruðu og skipulags-
klúðruðu ruslakompu sem rekur
nemendur úr skónum svo öruggt
sé að þeir fái eithvað vinsælt upp
í lappirnar gangandi um á jesús-
kónum sér til varnar þar sem nær
væri að kreíjast að menn væru í
öryggisskóm. Ég minnist þess ekki
einu sinni að hafa þurft að fara úr
skónum í gagnfræðaskóla hvað þá
í framhaldsskólum og/eða öðrum
opinberum stofnunum nema þá
kannski helst sjúkrastofnunum sem
bendir okkur á hversu sjúkt slíkt
reglugerðafár er. Aðrar skólareglur
eru á þann veg að þær henta miklu
frekar sem umgengnisreglur á
Grænuborg frekar en í skóla þar
sem nemendur gætu flestir talist
fullorðið fólk i fijálsu námi. Svona
gæti ég lengi halda áfram, en ég
ætla að ljúka máli mínu hér með
því að segja að mér finnst þessi
gjörningur í menntun í málmiðnaði
þar sem Borgarholtsskóli heitir vera
íslensku menntakerfi til háborinnar
skammar.
RÚNAR SIGURJÓNSSON,
Miðtúni 11, Reykjavík.
Islenskt smyrsl dugði
þegar annað þraut
Frá Svavari Guðna Svavarssyni:
ÉG flýði kuldann og umhleypingana
hér heima á íslandi og bjó mér heim-
ili á Grand Cayman í Karíbahafí,
gifti mig þar og hugðist njóta veður-
lagsins því það
hafði ég fregnað
að verkir og á
stundum kvalir
linuðust við hit-
ann. í fyrstu var
ég eins og fískur
í vatni og leið
vel. Ég var múr-
ari og bak mitt,
háls og lungu
brugðust. En svo
bregðast krosstré sem önnur tré,
þarna var um 40°C og vel yfir því
sem gögn höfðu sagt mér og rakinn
var vel yfir 80% í lofti. Það var
skelfilegt þetta með rakann, það var
nokkuð sem ég hafði hvergi lesið
um eða verið sagt frá. Ég var fyrr-
um rauðhærður og hef þó nokkuð
af því enn þótt gamall sé. Smátt
og smátt fóru að koma á mig upp-
hlaup eða hrúður þar sem skinn
nuddaðist við skinn, undir höndum
og í klofi svo mynduðust sár og í
þetta komst sveppasýking og vafa-
laust einhver önnur sýking því ég
var með hita. Baðvatn það sem
þarna er notað er ekki gott og kom
mér það afar illa. Svo má geta þess
að Caymanar nota mjög sterkar
sápur til þvotta og þykir það eðli-
legt, enda þrifnir, en þeir hafa ekki
húð íslendings. Loftið er kyrrt
þarna, enda eru eyjarnar innarlega
og neðarlega í Karíbahafinu, fyrir
ofan Colombíu og Venesúela og til
vesturs er Panama og þarna er ekki
andvarinn sem eyjarnar í mynni
Karíbahafsins hafa, þessar eyjar eru
alveg sér og það á allan hátt. Nú,
þetta endaði með að ég fékk lyf í
töfluformi sem hét Sporanex að mig
minnir og eitthvað sveið undan því.
Síðar, þegar þetta virtist ekki hafa
nægjanleg áhrif, var farið með mig
til annars læknis sem gaf mér ann-
að og nú keyrði allt um þverbak.
Nú ákveð ég að fara til íslands
til alvöru læknis að leita mér alvöru
hjálpar eftir þennan ósigur minn
fyrir veðurfarinu og tókst eftir langa
mæðu að komast hingað. Heimilis-
læknir minn, Stefán Finnsson,
reyndist mér hin mesta hjálparhella
eins og allt starfsfólk sem er á þeirri
heilsugæslu. Stefán vísaði mér svo
til Rannveigar Pálsdóttur húðsjúk-
dómalæknis og henni sýndi ég
smyrsl, sem ég hafði borið á mig
kvölds og morgna, því ég hefði mik-
inn kláða í útbrotunum, en um miðj-
an dag bar á ég mig Lamisil 1%.
Rannveig sagði mér að ljúka við
Lamisilið, en hiklaust bera á mig
hitt smyrslið, sem í rauninni er selt
sem snyrtivara og að miklum hluta
búið til úr lýsi, þetta er SD sjávar-
og jurtasmyrsl.
Nú ég var nærri búinn með Lami-
silið og lauk því, síðan hef ég borið
á mig SD-smyrslið og það hefur
hreint og beint gert kraftaverk.
Myndir voru teknar í upphafi með-
ferðar og núna í lokin. Frá unga
aldri hef ég tekið lýsi og oft í seinni
tíð þegar háls, herðar og bak hafa
verið sem verst í kuldum hef ég
aukið aðeins skammtinn. Lýsi er
meira en fæðu- og bætiefni, það
gefur vörn við kuldanum og eins
og allar meiriháttar uppgötvanir
bíða þær bara eftir að þær séu
notaðar. Fyrst þetta var svona gott
innvortis, því þá ekki útvortis?
Þessu hafa þeir velt fyrir sér sem
gerðu þetta smyrsl. Auk þess eru
í þessu smyrsli jurtir sem bæta og
efni svo hægt sé að nota þetta út-
vortis. Mér þótti mjög vænt um að
þetta er 100% náttúruafurð og
Hollustuvernd ríkisins hefur sam-
þykkt þetta til dreifingar. Ég hef
frétt að einnig séu til afurðir frá
SD sjávar- og jurtasmyrslum, sem
hægt er að nota í hár fólks og
smyrsl og vökvar fyrir hesta og
ýmis húsdýr. Þegar áhugi minn óx
á þessu komst ég að þvi að það
hefur líknað og hjálpað psoriasis-
og exem-fólki. Sé þetta það sem
ég held að það sé mun fólk kalla
þetta „kraftaverkið mikla“ í fram-
tíðinni.
SVAVAR GUÐNISVAVARSSON,
Freyjugötu 38, Reykjavík.
^emantaúÚMð
Handsmíðaðir silfurskartgripir
Ti’íihæit luuð O0. úrttal.
Kringlunni 4-12, sími 588 9944
^EfiemciMtaAúóið
Handsmíðaðir 14kt gullhringar
'h Slhvi t tu'i'J.
Kringlunni 4-12, sími 588 9944
í
OLYMPUS
Þegar hvert orð
skiptir máli!
OLYMPUS
DIKTAFÓNAR
Notaöir af læknum, lögreglu, 1S% afs/át*
blaðamönnum, skólafólki o.fl. Urf,1/ó/a/
Margar gerðir fáanlegar. Verð frá kr. 4.990.
t
t
Borgartúni 22, Rvík.
Sími 561 0450.
raðgreiðslur
Þar sem
vandlátir
versla.
GjÖFIN SEM VERMIR
Pelskápur, jakkar, húfur, lúflur og treflar i miklu úrvali
Ullarkápur
ogjakkar
með loðskinni
Rúskinnskápur
ogjakkar
með loðskinni
PEISINN
Kirkjuhvoli, sími 552 0160