Morgunblaðið - 09.03.1997, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Skrifað undir tvo kjarasamninga í gær
RSÍ fær 2.667 kr. og
4,7% í upphafshækkun
RAGNHEIÐUR Jóhannesdóttir fulltrúi starfsmanna, Magnús L.
Sveinsson, formaður VR, og Eiríkur Sigurðsson, eigandi 10-11
búðanna, undirrita kjarasamninginn.
VERZLUNARMANNAFÉLAG
Reykjavíkur og verslanirnar 10-11
undirrituðu nýjan kjarasamning á
hádegi í gær. Einnig gerðu Rafiðn-
aðarsamband íslands og Félag ís-
lenskra stórkaupmanna með sér
kjarasamning í gærmorgun, sem
gildir til 29. febrúar árið 2000.
Samningur VR og 10-11 nær til
um 70 starfsmanna og er með nokk-
uð öðru sniði en þeir samningar sem
VR hefur gert við einstök fyrirtæki
að undanförnu. Samið er um svokall-
að jafnaðarkaup sem þýðir að greidd
eru sömu laun fyrir vaktir á tímabil-
inu sem opið er í verslununum og
kveður samningurinn á um fasta
krónutölu á tímakaupið og síðan
prósentuhækkanir frá og með næsta
ári. Samningurinn gildir til 1. mars
1998 en ef honum verður ekki sagt
upp fyrir 1. febrúar framlengist
hann til 29. febrúar árið 2000.
Skv. samningnum verða mánað-
arlaun starfsmanna sem hafa áunnið
sér sex mánaða starfsreynslu komin
í 70 þúsund 1. janúar 1998.
VR ætlar að ræða við forsvars-
menn fleiri fyrirtækja á næstu dög-
um um gerð samninga og í gær átti
samninganefnd VR viðræður við
samtök vinnuveitenda hjá sáttasemj-
ara.
Nær til 200 starfsmanna
í 20 fyrirtækjum
Samningur RSÍ og FIS nær til um
200 starfsmanna hjá 20 fyrirtækjum
og kveður á um að lágmarkslaun
verði 90 þúsund fyrir sveina þann
1. júlí á næsta ári. Öll laun hækka
við undirritun um 2.667 krónur og
auk þess um 4,7%. 1. janúar 1998
hækka laun um 4%, 1. jan. 1999 um
3,5% og 1. jan. 2000 um 1,2%. Þá
falla niður sérstakar orlofs- og des-
embergreiðslur skv. samningnum.
Annað
líf á al-
netinu
HJARTA- og lungnaþeginn
Halldór Bjarni Óskarsson, frá
Krossi í Lundarreykjadal,
kom heim hinn 20. febrúar
síðastliðinn með ný líffæri
eftir 15 mánaða og 10 daga
dvöl í Svíþjóð.
Festi sögu þeirra á filmu
Kjartan Þorbjömsson
(Golli), ljósmyndari Morgun-
blaðsins, kynntist Halldóri og
móður hans, Sigrúnu Eygló
Sigurðardóttur, í Svíþjóð og
festi sögu þeirra á filmu.
Sagt er frá bið þeirra mæðg-
ina, sjúkrahússlegu Halldórs
og heimkomu fjölskyldunnar
í myndafrásögninni Annað líf
í blaðinu í dag.
Þeir sem hafa aðgang að
alnetinu geta skoðað greinina
og myndimar á alnetssíðu
Morgunblaðsins
(http://www.strengur.
is/mbl/). Greinin verður öllum
aðgengileg út þessa viku, en
hinn 14. mars næstkomandi
verður landssöfnun til styrkt-
ar hjartveikum börnum.
■ Annað líf/Bl, Cl-4
Fíkniefni
finnst í fórum
ökumanna
NOKKURT magn af flkniefnum; um
40 til 50 skammtar af LSD, eitthvað
af hassi og meintu amfetamíni, fannst
við húsleit við Tryggvagötu í Reykja-
vík aðfaranótt laugardags. í fram-
haldi af því voru fimm manns færðir
í fangageymslur lögreglunnar þar
sem skýrsla var tekin af þeim í gær.
Þá voru fimm manns yfirheyrðir
af lögreglunni í Reykjavík aðfaranótt
laugardagsins eftir að lítils háttar
af ætluðu hassi fannst í fórum þeirra.
Bíll þeirra hafði verið stöðvaður við
Grandagarð vegna hefðbundins um-
ferðareftirlits lögreglunnar.
Einnig fannst eitt gramm af
meintu amfetamíni í fórum öku-
manns bifreiðar um ellefuleytið á
föstudagskvöld.
JRófptoil&tefcifc
BLAÐINU í dag fylgir 40 síðna
blaðauki um fermingar. Þar eru
meðal annars birtar niðurstöður úr
könnun sem Morgunblaðið gerði á
viðhorfum fermingarbarna. Rætt
er við dr. Sigurbjörn Einarsson
biskup um uppruna fermingar.
Einnig eru viðtöl við presta og ferm-
ingarböm fyrr og nú, auk þess sem
fjallað er um hár- og fatatísku ferm-
ingarbama. Birtar eru uppskriftir
að mat og kökum og gefnar hug-
myndir að veisluhlaðborðum.
Rysjótt veður og þungfært víða um land
Morgunblaðið/Golli
UNNIÐ að því að hreinsa frá niðurföllum borgarinnar í gær vegna vatnselgsins sem hafði myndast.
Bíll fauk út af veg-
inum í Hvalfirði
ÞUNGFÆRT var víða um land í
gærdag og lá allt innanlandsflug
niðri vegna ókyrrðar og ísingar í
lofti. í gærmorgun var sunnanátt
og níu til tíu vindstig, rigning og
hlýnandi veður víða um land, en eft-
ir hádegi dró úr vindi.
Á norðanverðu Snæfellsnesi og
um Kerlingaskarð og Fróðárheiði
vom vegir ófærir. Einnig var ófært
um Holtavörðuheiði.
Á sunnanverðum Vestfjörðum var
ófært um Kleifaheiði, Mikladal og
Hálfdán, en á norðanverðum Vest-
fjörðum var ófært um Óshlíð vegna
snjóflóða og beðið átekta með
mokstur þar. Þá var þungfært um
ísafjarðardjúp og Steingrímsfjarðar-
heiði og suður frá Hólmavík í Hrúta-
fjörð. Að öðru leyti voru aðalvegir
landsins færir, þó víða væri hálka.
Fólksbíll fauk út af veginum á
móts við Hvammsvík um sjöleytið í
gærmorgun og endaði á hvolfi um
þrjátíu metra utan vegar; að sögn
lögreglunnar í Reykjavík. Ökumaður
bílsins slapp svo til ómeiddur.
Siyóflóð á Óshlíðarveg
Mikill vatnselgur myndaðist á
götum Reykjavíkur í gær og unnu
borgarstarfsmenn að því fram eftir
degi að hreinsa snjó og rusí úr nið-
urföllum. Slökkviliði Reykjavíkur
barst tilkynning um vatnsleka í tvö
hús í Kópavoginum í gær vegna
vatnselgsins. Skemmdir voru óveru-
legar.
Töluvert stórt snjóflóð og nokkur
lítil féllu á Óshlíðarveg milli ísafjarð-
ar og Bolungarvíkur í fyrrinótt og
gærmorgun. Talið er að fyrsta og
stærsta flóðið hafl fallið skömmu
eftir miðnætti, eða um eittleytið.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Bolungarvík er harla ólíklegt
að nokkur umferð hafi verið á vegin-
um þar sem veður hafi verið mjög
slæmt og færð miður góð.
Vegurinn var ruddur snemma í
gærmorgun en þegar ruðningsmenn
voru á leið aftur til Bolungarvíkur
hafði nýtt snjóflóð fallið. Samkvæmt
upplýsingum Vegagerðarinnar í há-
deginu í gær var óvíst hvenær tæk-
ist að opna veginn.
í dag er útlit fyrir suðvestanátt
og slydduél um sunnan- og vestan-
vert landið en léttskýjað á Norðaust-
urlandi.
F e r m
■p p rjlTJ ] ]Tá Guð, íödur al-
T—' X J\ wL X nuíttugan, skap-
jra og tarðar. Ég trúi ri Jcuú Krisl, h;rns
cinkason, Drotttn vwn, scm gctfnn cr af
HcUögum amia, lardúur af jNtaríu mcy, pínJur
á dögttm Pontíusar P/latusar, fcrossfestur, da-
inn eg graftnn, sfctg nfður tif hdjar. irís á
jnidjo dcgl attur upp frá dauúum, stdg upp lil
httrtna, sftur vfð hícgrí hond Guðs föður aJ-
mattugs eg mun þadon Jcema að Jxma Ifícnd-
ur og iiauöa. Ég frút j hcflagon anda, Hctlaga,
almerma kfrfcju, samfc'Jflg hcilagra, tyrlrgdn-
tngu syndanna, ui’prísu' A Tl yf TJ '\T
matmsins og cUtft Jff. IVi JZ/JLN
A
Hanes-hjónin og
ættleidingin
►Dóttirin afsalaði sér öllum rétti
en taldi sig hafa verið blekkta.
/10-13
Ógnaráætlanir
Varsjár-bandalagsins
►Skjöl í austur-þýskum skjala-
söfnum hafa veitt innsýn inn í
áætlanir Varsjárbandalagsins um
óhefta notkun kjarnavopna í þriðju
heimsstyijöldinni. /14
Vill nokkurfá
mig ívinnu?
►Nemar við Háskóla íslands
stóðu í þriðja sinn fyrir svonefnd-
um Framadögum í liðinni viku en
þar kynna fyrirtæki starfsemi sína
fyrir stúdentum. /20
Gerum það sem
við gerum best
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Halldór
Hreinsson, framkvæmdastjóra
Skátabúðarinnar. /24
B
► 1-32
Annað líf
► Halldór Bjarni Óskarsson fékk
ný lungu og hjarta við ígræðslu í
haust. Biðin eftir líffærum, sjúkra-
húslegan og heimkoman er efni
myndafrásagnar Golla. /1 og Cl-4
Ertu orðin snarhringl-
andi vitlaus, Anna?
► Eftir þrjátíu og fimm ára búsetu
í Bandaríkjunum, fluttist Anna
Tryggvadóttir aftur heim til ís-
lands, keypti sér hús við Smára-
götuna og rekur þar nú gistihús
með tíu herbergjum. /4
U2
►írska rokksveitin U2 stendur á
hátindi frægðarinnar eftir sautján
ára starf. Hér er rakin saga sveit-
arinnar í tilefni af elleftu breið-
skífu hennar sem kom út í liðinni I
viku. /24
FERDALÖG
► 1-4
Nazca
►Línumar í eyðimörkinni við I
Nazca í Perú eru meðal umfangs- |
mestu mannvirkja fornaldar. /2
Ánægður ferðamaður
er besta auglýsingin
►Ráðstefna um móttöku ferða-
manna á skemmtiferðaskipum í
Reykjavlkurhöfn. /4
E BÍLAR
► 1-4
Audi A6 með
sídrifi og V6
►Sigurður Pálmason flutti inn
einn glæsilegasta Audi landsins frá
Orlando. /3
Reynsluakstur
►Mazda 323 LX Practical -
hrekklaus og notendavænn. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Stjömuspá 42
Leiðari 28 Skák 42
Helgispjall 28 Fðlk í fréttum 44
Reykjavíkurbréf 28 Bió/dans 46
Skoðun 30 Útvarp/sjónvarp 60
Minningar 32 Dagbók/veður 55
Myndasögur 40 Hugsað upphátt 2b
Bréf til blaðsins 40 Gárur 6b
fdag 42 Mannllfsstr. 6b
Brids 42 Dægurtónl. 26b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6