Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Sven-Gör-
an til Lazio
ÍTALSKA blaðið Corríere
dello Sport sagði frá því á fors-
íðu í gær, að sænski þjálfarinn
Sven-Göran Eriksson væri bú-
inn að skrifa undir samning
við Lazio, einnig að fyrirliðinn
Roberto Mancini ætli að fara
með honurn til liðsins. Eins og
kunnugt er hætti Sven-Göran
við að fara til Blackburn. Blað-
ið segir að hann hafi skrifað
undir samning til 30. júní 1999,
árslaun hans verða 64 millj.
ísl. kr., en hann átti að fá 180
miiy. ísl. kr. í árslaun hjá
Biackburn.
Gascoigne
frá keppni
ENSKI landsliðsmaðurinn
Paul Gascoigne mun ekki
keppa meira með Glasgow
Rangers á keppnistímabilinu.
Hann meiddist á ökkla á dög-
unum á móti í Amsterdam. I
gær var sett gifs á ný á ökkla
kappans og verður hann með
það tiu daga. Eftir það má
hann ekki reyna á ökklann í
þijár vikur. Gascoigne mun
missa af tveimur leikjum Eng-
lendinga i undankeppni HM,
gegn Georgíu 30. apríl og Pól-
landi 31. mai.
„ÞegarAI-
freð beit í
peninginn,,
ÍSLENDINGAR eiga góðar
minningar úr hinni glæsilegu
Bercy-íþróttahöll í París. Það
var þar sem iandsiiðið í hand-
knattleik sigraði Pólveija í
úrslitaieik B-heimsmeistara-
keppninnar snemma árs 1989,
einum eftirminniiegasta lands-
leik Isiands frá upphafi.
Vala Flosadóttir var ellefu
ára og bjó enn á ísiandi þegar
íslendingar hlutu gullið í
Bercy, en segist mima vel eftir
því. „ Já, þegar Alfreð beit í
peninginn,“ sagði hún í gær-
morgun, er blaðamaður minnti
hana á að mótið nú færi fram
í þeirri söm höii og íslendingar
hefðu lagt Pólverjana að velli.
Sjónvarpsáhorfendiun er
eflaust vei í mrnni þegar Al-
freð Gísiason, sem kjörinn var
besti ieikmaður keppninnar,
beit í gulipening sinn á verð-
launapaiiinum — enda hefur
það atvik verið margsýnt í
sjónvarpinu.
3,5 milljónir
fyrir sigur
VERÐLAUNAHAFAR fá nú í
fyrsta sinn greitt fyrir árangur
sinn á fijálsíþróttamóti. Sigur-
vegarar í hverri einustu ein-
stakiingsgrein á HM í París fá
50.000 bandaríkjadali, sem
jafngildir ríflega 3,5 miiljónum
króna. Silfurverðlaunahafar fá
20.000 daii — um 1,4 miiljónir
— og þriðja sæti gefur 10.000
dollara, um 700.000 krónur.
Ein undantekning er frá
framansögðu; stangarstökk
kvenna. Þar sem um nýja grein
er að ræða á heimsmeistara-
móti er verðlaunahöfum í
henni greitt helmingi minna en
öðrum og einnig heimingi
minna fyrir heimsmet. Fast-
lega er reiknað með því að
ástralska stúlkan Emma Ge-
orge sigri og bæti eigið heims-
met. Takist henni hvort tveggja
fær hún samtals 50.000 doilara,
3,5 milljónir króna.
ÍÞRÓTTIR
Glæsileg byrjun Jóns Arnars á HM í París
Með forystu
eftir þvjár
greinar
JÓN Arnar Magnússon var með forystu eftir þrjár fyrstu greinarn-
as^' sjöþrautarkeppni heimsmeistaramótsins innanhúss í París
í gær. Hann hljóp 60 m á 6,85 sek., stökk 7,56 m í langstökki
og kastaði kúlunni 16,27 m. Þessi glæsilegi árangur færði honum
alls 2754 stig - 85 stigum meira en í íslandsmetþraut sinni á
sænska meistaramótinu ífyrra. Jón hafði hins vegar byrjað enn
betur á Evrópumeistaramótinu í Stokkhóimi, var þá með 2767
stig eftir þrjár greinar (6,89 í 60 m hlaupi, 7,70 í langstökki og
15,92 í kúluvarpi) en brást svo bogalistin í grindahlaupinu og
náði ekki að bæta metið. Fjórðu og síðustu grein gærdagsins,
hástökki, var ekki lokið þegar Morgunblaðið fór í prentun.
Jón Arnar byijaði á því að hlaupa
60 metrana á 6,85 sek. - sama
tíma og hann fór á þegar hann setti
Íslandsmetið í sjö-
Skapti þraut á sænska
Hallgrímsson meistaramótinu í
skrífarfrá fyrra. Jón hljóp mjög
Paris vel. Virtist reyndar
ekki fara sérlega hratt af stað, en
þegar tími sigurvegarans kom í ljós
var sýnt að ekki var alveg að marka
hvernig viðbragðið sýndist úr áhorf-
endastæðunum. Chris Huffms frá
Bandaríkjunum hljóp nefnilega frá-
bærlega - á 6,61 sek., sem er besti
tími sem nokkru sinni hefur náðst í
þessari grein í sjöþraut. Heimsmet-
hafinn Dan O’Brien frá Bandaríkjun-
um hafði áður hlaupið vegalengdina
best á þessum vettvangi (6,67 sek.
árið 1993) en Huffins sló honum við
með glæsibrag.
Jón Arnar varð annar í fyrri riðl-
inum á eftir Huffíns og mótheijarnir
í seinni riðlinum náðu ekki að bæta
árangur hans. Jón var því í öðru
sæti eftir fyrstu grein. Huffíns fékk
1.026 stig, Jón 936, Erki Nool frá
Eistlandi, sem hljóp á 6,86 í seinni
riðlinum, fékk 933 stig og Tékkinn
Tomas Dvorak hljóp á 6,99 sem gaf
honum 886 stig. Tékkinn Robert
Zmelik náði fimmta besta tímanum,
7,00 sek., sem færði honum 882 stig
og heimamaðurinn Christian Piaziat
hljóp á 7,11 og fékk fyrir það 844
stig. Aðrir voru: Steve Fritz Banda-
ríkjunum 7,15 (830), Javier Benet
Spáni 7,21 (809), Sebastan Levicq
Frakklandi 7,25 (796) og Sebastian
Chmara Póllandi 7,34 (765).
Jón í fyrsta sætið
Erki Nool, sem er mjög góður
langstökkvari, var talsvert frá sínu
besta er hann hóf keppni í þeirri
grein. Stökk 7,44. Tékkinn Tomas
Dvorak var næstur og fór 7,47 en
síðan kom Jón Arnar og sveif 7,52
metra. Náði þar með forystu í lang-
stökkinu. Það var auðvitað gríðar-
lega mikilvægt að byija á góðu
stökki, þar með voru taugarnar
komnar í lag hvað þá grein varðaði,
enda bætti hann sig enn í annari
tilraun - fór þá 7,56. Lengi vel leit
út fyrir að Jón sigraði jafnvel í grein-
inni en í þriðju og síðustu umferð
skutust tveir fram úr honum. Dvorak
stökk 7,69 og Frakkinn gamalk-
unni, Plaziat, náði öðru sæti. Fór
tveimur sentímetrum lengra en Jón,
7,58 m, eftir að hafa gert tvær fyrstu
tilraunirnar ógildar. Enda var hon-
um létt og fagnaði mjög. Dvorak
fékk 982 stig, Plaziat 955 og Jón
950.Zmelik fékk 942 fyrir 7,53 m,
Nool 920 stig fyrir 7,44 (sem var
eina lögiega stökk hans), Steve Fritz
883 stig fyrir 7,29, Huffins 857 fyr-
ir 7,18, Chmara 840 fyrir 7,11 og
Levicq 830 fyrir 7,07 metra.
Eftir langstökkið var Jón kominn
í fyrsta sæti sjöþrautarinnar með
1886 stig, Huffins var annar með
1883 og Dvorak þriðji. Hafði náð í
1868 stig.
Glæsileg köst
Jón Arnar hélt sannarlega sínu striki
í þriðju greininni, kúluvarpinu. Sagð-
Morgunblaðið/Ásdís
HEPPNIN var ekki meó Völu Flosadóttur í París í gærmorg-
un. Hér á myndlnnl er hún að fella 4,10 m í Bercy-hölllnnl,
en hún komst þó í úrslitakeppnina.
ist fyrir mótið vera sterkur og sann-
aði það í verki í kúluvarpshringnum;
gerði reyndar ógilt í fyrstu tilraun,
en Gísli þjálfari Sigurðsson klappaði
í áhorfendastúkunni eftir annað
kast, sem hlaut að lofa góðu. Enda
mældist kastið 16,05 metrar, sem
var það lengsta sem Jón Arnar hafði
náð í sjöþraut. Hann kastaði 15,70
í metþrautinni í fyrra og 15,92 á
EM í Gautaborg. Eftir annað kast
Jóns dunduðu sumir andstæðinga
hans við að setja persónuleg met -
Dvorak t.d með kasti upp á 16,25
metra, Zmelik með 14,51 (!) og Erki
Nool bætti sig einnig. En Jón var
ekki á þeim buxunum að láta Dvor-
ak hafa betur í kúluvarpinu, kastaði
16,27 í síðustu umferðinni og
tryggði sér þar með sigurinn. Þar
með bætti hann enn besta árangur
sinn í sjöþrautstökk en Jón kastaði
16,37 í kúluvarpskeppni íslands-
meistaramótsins innanhúss um dag-
inn og sýndi nú að það var ekki til-
viljun.
Staðan eftir þtjár fyrstu greinarn-
ar var þannig að Jón var efstur með
2754 stig, Dvorak var annar með
2735, Huffíns þriðji með 2707, Nool
fjórði með 2624, Zmelik kom næstur
með 2584 og Plaziat var með 2533
stig.
Tólf voru skráðír til leiks í sjö-
þrautinni en tíu mættu. Tveir Þjóð-
veijar létu ekki sjá sig.
Vala fór yfir fjóra metra og
komst í úrslrtakeppnina
Vala Flosadóttir fór yfir 4 metra
í stangarstökkinu í París í gær-
morgun og komst í úrslitakeppnina
sem verður í dag. Stúlkurnar
þurftu að fara yfir 4,10 metra til
að vera öruggar áfram, en 12 fóru
í úrslitin þó svo sá fjöldi næði ekki
lágmarkshæðinni. Daniela Bartova
frá Tékklandi, sem setti Evrópumet
í Laugardalshöll fyrir skömmu (4,31
m), sigraði í fyrri riðlinum í gær-
morgun, fór auðveldlega yfir 4,10
metra í fyrstu tilraun, kínverska
stúlkan Sun Caiyun fór einnig yfir
4,10 í fyrstu tilraun (eftir að hafa
farið yfir rána í fjögurra metra hæð
í þriðju tilraun) og Svetlana
Abramova fór líka yfir 4,10 en
þurfti tvö stökk til. Þrjár fóru svo
yfir fjóra metra, Eszter Szemeredi,
Evrópumethafi (4,32) frá Tékk-
landi, Amandina Homo frá Frakk-
landi og Vala.
KAPPAKSTUR / FORMULA 1
Villeneuve í sterkri stöðu
Fyrsta keppnin í heimsmeistara-
mótinu í Formula 1 kapp-
akstri verður á Melbourne kapp-
akstursbrautinni í
Gunnlaugur Ástralíu í dag.
Rögnvaldsson Heimsmeistarinn
skrifar Damnon Hill ekur
með nýju liði,
Arrows Yamaha, og er talinn eiga
litla möguleika á að veija titil sinn.
Sigurstranglegastur í heimsmeist-
arakeppninni þykir vera Jacques
Villeneuve frá Kanada, sem varð í
öðru sæti í meistarakeppninni í
fyrra á Williams. Hann hélt sæti
sínu hjá liðinu, en samningur
heimsmeistarans var ekki end-
urnýjaður.
Tuttugu og fjórir ökumenn munu
kljást á brautinni í Melbourne,
margir á nýjum eða endurbættum
bílum. Williams Renauit bílarnir
verða sprækir undir stjórn Villene-
uve og nýja ökumannsins, Heinz
Harald Frentzen sem á árum áður
Iagði landa sinn Michael Schum-
acher oft að velli í kappakstri á
kartbílum og í Formula 3. Bróðir
Schumachers, Ralf, mun aka í
Formula 1 í fyrsta skipti í Melbo-
urne. Hann ekur hjá Jordan liðinu
þar sem eldri bróðirinn hóf einnig
ferilinn áður en hann fórtil Bennet-
ton og síðan Ferrari. En launamun-
urinnn á milli bræðranna er mikill,
Michael hefur 30 milljónir dollara
í árslaun en Ralf eina milljón doll-
ara. Ralf er yngstur keppenda,
aðeins 21 árs gamall.
Sextán mót gilda til heimsmeist-
aratitils ökumanna og bílahönnuða.
Fyrir sigur í móti fær ökumaður
10 stig, annað sætið gefur 6, síðan
fá ökumenn 4, 3, 2 og 1 stig fyrir
næstu sæti á eftir. Öll mótin gilda
til lokastiga og því liggur mikið við
að byija keppnistímabilið vel. Vil-
leneuve er staðaráðinn í að næla í
titil ökumanna. „Ég keppi til að
vinna, en það er samt varasamt
að vera of sigurviss. Ég iærði mik-
ið í fyrra á mína fyrsta ári í Form-
ula 1. Núna þekki ég brautirnar
vel og get stillt bílnum upp fyrir
hveija braut af meiri nákvæmni
ásamt aðstoðarmönnum mínum,"
segir Villeneuve. „í fyrra þurfti ég
að aka bíl sem hentaði Hill betur
en mér, nema í síðustu mótunum
og það var erfitt. í fyrra biðu þess
allir að ég gerði mistök, af því ég
var nýgræðingur, en núna eggja
mig allir til sigurs. Það er mun
þægilegri tilfinning. Ég get sætt
mig við sigur eða tap, allt eftir því
hveijar aðstæður í hverri keppni
eru. En sigur er náttúrlega mark-
miðið í hverri keppni," segir Vil-
leneuve.
Schumacher og Ferrari hefur
ekki gengið of vel á æfíngum. Bil-
anir hafa plagað bíl Þjóðveijans
snjalla. McLaren liðið hefur ekki
riðið feitum hesti frá viðureignum
síðustu ára og hefur ekki unnið
mót síðan 1993. Finninn Mika
Hakkinen og Bretinn David Coult-
hard aka bílum McLaren með Benz
vélum. Benz hefur sett hundruð
milljóna í þróun kappakstursvéla
síðustu ár og vilja sjá árangur erf-
iðsins í ár. A æfingum hefur Hakk-
inen sýnt aukinn eldmóð og er
ánægðari með bílinn núna en í
fyrra. Þá hafa Austurríkismaður-
inn Gerhard Berger og Frakkinn
Jean Alesi náð góðum tíma á æf-
ingum á Benetton. Benetton hefur
hinsvegar misst tvo af helstu
tæknimönnum sínum til Ferrari.
Þeir unnu báðir með Schumacher
þegar hann varð heimsmeistari
með Benetton. Ekki veitir Ferrari
liðinu af, því bíll liðsins hefur ekki
komið vel undan vetri.
Kappaksturinn í Melboume
stendur í tvo kiukkutíma og aka
keppendur rúmlega 300 kílómetra,
samtals 58 hringi um brautina sem
nefnist Albert Park. Sigurvegari í
ástralska kappakstrinum í fyrra
varð Damon Hill, en þá var keppt
á Adelaide brautinni. Hill vann
einnig árið 1995, en það er talin
borin von að hann vinni í ár. Vil-
leneuve, Frentzen, Alesi, Berger,
Hakkinen, Coulthard, Michael
Schumacher, Eddie Irvine, Ralf
Schumacher og Giancarlo Fisic-
hella eru allir með talsvert betri
bíla. Titilvörnin verður því erfið
fyrir Hill.