Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 53
morgunblaðið
SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997 53
______\_______
MYIMDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
Ljóshærð og vit-
laus - eða hvað?
HEIMSK ljóska, gráðugur milljóna-
mæringur og fágaður blaðamaður.
Þetta eru aðaipersónumar í kvik-
myndinni Fædd í gær (Bom Yest-
erday) sem Stöð 2 sýnir kl. 13.00 á
morgun. Stöð 2 er blessunarlega að
sýna eldri útgáfuna frá 1950 með
Judy Holliday, Broderick Crawford
og William Holden en ekki hrikalega
slappa endurgerð frá 1993 með Mel-
anie Griffith, John Goodman og Don
Johnson.
Söguþráður kvikmyndarinnar er á
þá leið að milljónamæringur nokkur
BRODERICK Crawford og Judy Holliday í hlutverkum sínum
í Fædd í gær.
MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU
Daudi og djöfull
(Diabolique) k
Barnsgrátur
(The Crying Child) k
Riddarinn á þakinu
(Horseman on the Roof)
-kifk
Nœr og nœr
(Closer and Closer) k k'/i
Til síðasta manns
(Last Man Standing) k k'/i
Geimtrukkarnir
(Space Truckers) k k
Börnin á akrinum
(Children ofthe Corn) k
Powder
(Powder) * k'h
Innrásin
(TheArrival) kk
Umsátrið á
Rubyhryggnum
(The Siege at Ruby Ridge)
kk -
Draumur
sérhverrar konu
(Every Woman ’s Dream)
kk'h
Ríkharður þriðji
(Richardlll) kkk'h
Bleíka húsið
(La Casa Rosa) k k
Sunset llðið
(SunsetPark) k'h
í móðurleit
(Flirting with Disaster)
kkk
Banvænar hetjur
(Deadly Heroes)
Dauður
(DeadMan) k
Frú Wlnterbourne
(Mrs. Winterboume) kk'h
Frankle stjörnuglit
(Frankie Starlight) k k'h
heldur til Washington DC ásamt ást-
konu sinni, Billie Dawn, fyrrverandi
dansara. Hann hefur áhyggjur af því
að ófáguð framkoma hennar geti
fælt frá rétta fólkið og ræður þess
vegna blaðamann til_ að kenna dö-
munni rétta hegðun. Ástin hristir upp
í blaðamanninum og ástkonunni og
samvinnan fer að sjálfsögðu öll í hnút.
Judy Holliday hafði slegið í gegn
á Broadway árið 1946 í hlutverki
Billie Dawn og fyrir að endurtaka
rulluna í kvikmyndaútgáfunni fékk
hún Óskarsverðlaun. Holliday var
gríðarlega vinsæl gamanleikkona á
árunum eftir seinna stríð en hún dó
því miður fyrir aldur fram úr krabba-
meini. Henni hefur oft verið líkt við
aðra fræga ljósku, sjálfa Marlyn
Monroe, en báður léku oftast hálf
vitgrannar en mjög kynþokkafullar
konur.
George Cukor, leikstjóri „Fædd í
gær“, þótti sérstaklega laginn við
að leikstýra kvenstjömum Holly-
wood. Hann vann t.d. oft með Kathr-
ine Hepbum, leikstýrði henni m.a. í
„Little Women“ frá 1933. Cukor
starfaði jafnframt með stjörnum eins
og Gretu Garbo (Camille, 1937),
Ingrid Bergman (Gaslight, 1944),
Judy Garland (A Star is Bom, 1954)
og Audrey Hepbum (My Fair Lady,
1964) svo aðeins nokkrar séu taldar
upp.
Cukor væri líklega enn þekktari | f -
dag ef hann hefði fengið að leikstýra
Á hverfanda hveli (Gone With the
Wind, 1939) eins og til stóð en hann
var rekinn frá myndinni. Kjaftasagan
segir að það hafi verið Clark Gable
sem fékk brottreksturinn í gegn
vegna þess að honum var í nöp við
Cukor vegna kynhneigðar hans.
Cukor var semsagt hommi.
UIMGLINGAKLÚBBUR SPARISJÓDANNA, FYRIR 12-15 ÁRA
skráðu þig í
-klúbbinn
mars!
Þú getur unnið:
* ferð fyrir tvo á leik með Chicago Bulls [ NBA-deildinni,
* frímiða á úrslitaleik í DHL-deildinni
*
* og rétt til að reyna að skora 100 þúsund króna körfu í
hálfleik,
* flotta Jordan körfuboltaskó, körfubolta, Nike
íþróttagalla, vandaðan bakpoka og fleira.
10 nöfn verða dregin út á FM 957 þann 13. mars.
Allir START-félagar eru sjálfkrafa með í leiknum og
nýir félagar fá að auki bakpoka, veski og bol að gjöf.
Hringdu í næsta sparisjóð og fáðu upplýsingar um START.
n SPARISJÓÐIRNIR
-Jyrírþig og þína
www.spar.is
* 7
0
relsi tíl að dvelja
• ••
Verð frá:
19.550«-
...þar sem þú vilt.
Þú siglir með þína fjölskyldu og þinn bíl til Danmerkur á tveimur
sólarhringum með Norrænu á ótrúlegu verði. Síðan hefur þú
ótakmarkað frelsi til að velja ferðamöguleika. Þú skoðar Norðurlöndin
og Evrópu á eigin hraða og siglir svo aftur heim í rólegheitum
með Norrænu frá Bergen. Þetta er hið eina sanna
frelsi í ferðalögum.
Börn yngri en 3 ára ferðast ókeypis.
*Verð á mann miðað við fjögurra manna fjölskyldu á eigin bíl til Evrópu i 2 vikur. Siglt frá Seyðisfirði þann 0S.06. Sigic heim 18.06.
NORRÆNA
FE RÐAS KRIFSTO FAN
Laugavegur 3, sími: 562 6362
Austfar ehf. Seyðisfirði, slmi: 472 1111 og umboðsmenn.