Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997 ERLEIUT MORGUNBLAÐIÐ Fjáröflunaraðferðir Clintons og demókrata harðlega gagnrýndar BAKSVIÐ Fréttir úr bandarísku stjómmálalífí hafa undan- famar vikur snúist um fátt annað en gáröflun Demókrataflokksins og Bills Clintons forseta undanfarin ffögur ár. Fréttaritari Morgnnblaðs- ins í Bandarflqunum, Bjöm Malmquist, allar um áhrif peninga í bandarísku stjómmálalífí og tilraunir til að draga úr þeim. Reuter BILL Clinton Bandaríkjaforseti og A1 Gore varaforseti ganga á blaðamannafund í Hvíta húsinu. Um fátt er meira fjallað í bandarískum fjölmiðlum en fjárreiður demókrata í kosningabar- áttunni á liðnu ári og daglega birtast fréttir af vafasömu fram- ferði æðstu ráðamanna, þar á meðal Als Gores og helsta aðstoð- armanns Hillary Clintons. SÍÐAN Clinton var endur- kjörinn forseti, í nóvember á síðasta ári, hefur hann og Demókrataflokkurinn setið undir stöðugum ásökunum um að hafa aflað fjár á ósæmileg- an hátt fyrir forsetakosningamar. Forsetinn hefur verið gagnrýndur fyrir að halda kaffiboð fyrir efnaða stuðningsmenn í Hvíta húsinu og fyrir skömmu var greint frá því í fjölmiðlum að Clinton hefði per- sónulega tekið þátt í að skipu- leggja aðgang ijársterkra stuðn- ingsmanna að Hvíta húsinu með boðum um að sofa eina nótt í svefn- herbergi Lincolns, leika golf með forsetanum, eda fara út að skokka með honum, svo fátt eitt sé nefnt. Komið hefur í ljós að hátt í þúsund manns hafa verið næturgestir í Hvíta húsinu síðan Clinton varð forseti, á meðal þeirra frægir leik- arar á borð við Barbra Streisand og Tom Hanks, leikstjórinn Steven Spielberg, og fjöldi fólks úr við- skiptalífinu, sem gefið hefur fé til Demókrataflokksins. Gore einnig undir grun Fyrir viku komu síðan fram ásakanir á hendur varaforsetan- um, A1 Gore, um að hafa notfært sér aðstöðu sína í embætti til að hala inn peninga fyrir kosningarn- ar á síðasta ári. Gore viðurkenndi að hafa notað skrifstofu sína í Hvíta húsinu til að afla fjár, en hélt því fram að framferði sitt hefði ekki brotið í bága við kosn- ingalöggjöfina. Repúblikanar krefjast þess nú hins vegar að dómsmálaráðuneytið skipi sak- sóknara til að rannsaka málið. í liðinni viku bárust böndin að starfsliði forsetafrúarinnar, Hillary Clinton, þegar starfsmannastjóri hennar, Maggie Williams, viður- kenndi að hafa tekið við 50 þúsund dollara (3,5 milljóna króna) fram- lagi frá kaupsýslumanninum Johnny Chung í kosninjgasjóð demókrata í Hvíta húsinu. I sömu viku kom Chung, sem er banda- rískur ríkisborgari fæddur á Taiw- an, með hóp kínverskra embættis- manna í Hvíta húsið þar sem þeir fengu að fylgjast með Bandaríkja- forseta flytja útvarpsávarp. Demó- kratar tilkynntu fyrir rúmri viku að þeir hefðu skilað 366 þúsund dollurum (um 25 milljónum króna), sem Chung hefði gefið, vegna óljóss uppruna fjárins. Greiði gegn greiða? Þar sem lög um kosningar hér í landi banna starfsmönnum alrík- isstjórnarinnar að afla fjár fyrir stjórnmálaflokka innan veggja Hvíta hússins og annarra opin- berra bygginga, spyija sig nú margir hvað hafi farið fram á fund- um með stuðningsmönnum og í tilfelli Maggie Williams hvort hún hefði mátt taka við fénu í bústað Bandaríkjaforseta. Clinton hefur sagt að enginn gestanna hafi verið beðinn um peninga á meðan þeir voru í Hvíta húsinu, en gagnrýnendur hafa einnig varpað fram þeirri spurn- ingu hvort ákvarðanir um stefnu stjórnarinnar hafi að einhveiju leyti ráðist á fundum með fjár- sterkum stuðningsmönnum. Aðrir benda á að flestir þeir sem gist hafi í Hvíta húsinu hafi í raun einungis verið að borga fyrir að fá teknar myndir af sér með forset- anum. Þrátt fyrir að enn hafi ekk- ert komið fram sem sannar ólög- legt athæfi forsetans, hefur ein af nefndum fulltrúadeildar þingsins hafíð rannsókn á íjáröflunarað- ferðum Demókrataflokksins fyrir síðustu kosningar. Einnig er í burðarliðnum stór nefnd á vegum öldungadeildarinnar, sem ætlað er að rannsaka fjáröflun beggja stjómmálaflokka, bæði vegna for- seta- og þingkosninga. Deilur í þinginu um starfssvið og fjárþörf nefndarinnar hafa hins vegar seinkað þeirri rannsókn. Grunur um ólögleg framlög Önnur hlið á þessu máli snýr að framlögum til Demókrata- flokksins, frá aðilum sem í mörgum tilvikum hafa reynst vera erlendir ríkisborgarar. Einnig hefur vaknað grunur um að erlend fyrirtæki og jafnvel erlendar ríkisstjórnir hafi reynt að leggja fram fé til demó- krata. Starfsmenn flokksins til- kynntu fyrir skemmstu að síðan í október á síðasta ári hefði flokkur- inn skilað tæplega þremur milljón- um dollara (rúmlega 200 milljónum króna) sem komu frá vafasömum gefendum, sem sumir eru taldir hafa tengsl við kínversku ríkis- stjómina. Um helmingi þessa fjár var aflað af einum manni, John Huang, sem vann í viðskiptaráðuneytinu og síð- ar sem háttsettur starfsmaður Demókrataflokksins við fjáröflun. Bandaríska dómsmálaráðuneytið og alríkislögreglan era nú að rann- saka hvort Huang hafí brotið lög um kosningaframlög með því að gefa, í sínu nafni, fé sem talið er að komið hafí frá indónesískum viðskiptaaðilum og kínversku ríkis- stjóminni. Botnlaus hít Rótin að þessum vandræðum forsetans og demókrata er auðvit- að sú gríðarlega fjárþörf sem stjórnmálamenn hér á landi þurfa að horfast í augu við þegar þeir ákveða að fara í framboð. Fyrir síðustu kosningar sáu demókratar einnig fram á harða baráttu sem heíjast myndi löngu fyrir kjördag og háð yrði að mestu leyti með kostnaðarsömum sjónvarpsauglýs- ingum. Þörfín fyrir rífleg framlög var því fyrir hendi og samkvæmt upp- lýsingum frá alríkisstofnun sem fylgist með fjármálum stjórnmála- flokka urðu demókratar sér alls úti um rúmar 330 milljónir dollara (um 23 milljarða króna) á tímabil- inu frá janúar 1995 þar til eftir kosningar á síðasta ári. Á sama tíma öfluðu repúblikanar álls tæp- lega 550 milljóna dollara (um 38 milljarða króna). En þrátt fyrir að kosningaherferðir hér í landi séu að mestu leyti háðar fyrir augum almennings í sjónvarpi virðist sem peningaaustur flokkanna hafi ekki skilað sér í auknum áhuga fólks á stjórnmálum; aðeins helmingur kjósenda sá ástæðu til að greiða atkvæði í síðustu kosningum. Veik kosningalöggjöf Að nafninu til gilda strangar reglur um fjárframlög til stjórn- málaflokka og frambjóðenda. Samkvæmt lögum sem sett vora 1974, í kjölfar Watergate-hneyksl- isins, mega einstaklingar ekki gefa meira en 2.000 dollara (um 140 þúsund krónur) á ári til frambjóð- enda og 20 þúsund dollara (1,4 milljónir króna) til stjórnmála- flokka. Lögin takmörkuðu einnig hversu miklu frambjóðendur máttu eyða af eigin fé til baráttunnar, en Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi þau takmörk hins vegar úr gildi nokkrum áram síðar þegar dóm- stóllinn komst að þeirri niðurstöðu að slíkar reglur brytu í bága við ákvæði stjórnarskrárinnar um mál- frelsi. Þannig eru nú engin tak- mörk fyrir því hversu miklu fé auðugir einstaklingar mega eyða í eigið framboð, eins og kom í ljós þegar Steve Forbes tók þátt í próf- kjöri repúblikana til forsetakosn- inga á síðasta ári. Forsetaframbjóðendum er einn- ig úthlutað af almannafé sem jafn- gildir þeirri upphæð sem þeir afla sjálfir, á meðan á prófkjöri stend- ur. Eftir að þeir eru tilnefndir fá frambjóðendur aðra útborgun, sem á síðasta ári nam 62 milljónum dollara (4,3 milljörðum króna). Með því að taka við þessu fé, skuld- binda þeir sig jafnframt til að tak- marka útgjöld sín, en vegna reglna um svokölluð óbein framlög („soft money“), er auðvelt að komast í kringum þau ákvæði. Óbein framlög Fyrirtækjum og hagsmunahóp- um er bannað að styrkja frambjóð- endur beint, en mega hins vegar gefa ótakmarkað til stjórnmála- flokkanna sjálfra, með þeim skil- yrðum að því fé sé ekki beint til frambjóðenda, heldur varið til al- menns flokksstarfs. Fyrirtæki, þrýstihópar og hinar ýmsu hreyf- ingar geta einnig sett upp hags- munanefndir (political action com- mittees), sem styrkja ákveðna frambjóðendur. Bæði demókratar og repúblikanar hafa á undanförn- í um árum notað þessar glufur í lögunum ótæpilega og sem dæmi má nefna að fyrir síðustu kosning- ar urðu flokkarnir sér samanlagt úti um 270 milljónir dollara (18 milljarða króna) í óbeinum fram- lögum frá fyrirtækjum, hagsmuna- hópum og einstaklingum. Frjálslega túlkaðar reglur Flokkarnir hafa farið fijálslega með reglur um hvernig megi nota óbein framlög; í síðustu forseta- kosningum eyddu báðir flokkar tugum milljóna í sjónvarpsauglýs- ingar sem sagðar voru fjalla um ákveðin málefni, en voru í raun illa dulbúnar auglýsingar um fram- bjóðendur. Á sama hátt gátu hags- munahópar eins og verkalýðsfélög og trúarsamtök einnig varið millj- ónum dollara í auglýsingar, sem beint og óbeint hvöttu fólk til að I kjósa ákveðinn frambjóðenda. Eins og búast má við af þessu, hefur peningamagnið sem eytt er til að vinna hylli kjósenda hér í landi vaxið með hveijum kosning- um; talið er að á síðasta ári hafi stjórnmálaflokkar og aðrir hags- munahópar alls varið rúmum tveimur milljörðum dollara (140 milljörðum króna) til að beijast um | forsetaembættið og þau þingsæti | sem í boði vora. Undanfarnið hafa þær raddir orðið æ háværari sem segja að stjórnmálamenn séu orðnir of háð- ir hagsmunahópum og auðugum stuðningsmönnum. Allen Gerber, prófessor í stjórnmálafræði við Yaie háskólann, segir að áhrif pen- inga í stjómmálum séu ekki eins i augljós og margir haldi. „Það er ekkert sem bendir til þess að pen- ' ingaframlög kaupi á beinan hátt } atkvæði þingmanna, þegar kemur að lokaafgreiðslu frumvarpa," seg- ir Gerber. „Áhrifanna gætir helst í þingnefndum, þar sem lögin verða til, og einnig í tilraunum hags- munaaðila til að ýmist hraða eða seinka breytingum á lögum.“ Tillögur til úrbóta Núverandi ástand kosningamála k hér í landi og nýjar fréttir af að- ferðum demókrata við fjáröflun • hafa valdið því að tillögur um end- urbætur á kosningalögum hafa orðið meira áberandi. Sú tillaga sem fengið hefur hvað mesta um- fjöllun er frumvarp tveggja öld- ungadeildarþingmanna, repúblik- anans Johns McCains og demó- kratans Russ Feingolds. í því framvarpi er meðal annars * lagt til að óbeinir styrkir til stjórn- } málaflokka verði bannaðir, fram- i lög til hagsmunanefnda verði tak- mörkuð enn frekar og stjórnmála- mönnum verði úthlutað ódýrum tíma í fjölmiðlum til að koma skila- boðum sínum á framfæri. Clinton hefur sagt að hann styðji frumvarpið og vilji sjá það verða að lögum fyrir sumarið, en nú virð- ist sem stuðningur við það í þing- | inu fari minnkandi. Meginvanda- málið segir Gerber vera að erfitt * sp -að fá þingmenn til að greiða | atkvæði gegn sínum eigin hags- munum. „Núverandi kerfi gagnast sitjandi þingmönnum betur en áskorendum," segir Gerber, „þann- ig að endurbótum verður sennilega ekki komið á, fyrr en stuðningur við þær skapast hjá almenningi.“ Samkvæmt nýlegum skoðana- könnunum virðist sá stuðningur I nú vera fyrir hendi að einhveiju | leyti, en Gerber segir hins vegar k að mörg önnur málefni séu framar * á forgangslista almennings. Clinton nýtur enn mikilla vin- sælda í embætti, þrátt fyrir nei- kvæðar fréttir undanfarnar vikur, enda sér ekki fyrir endann á efna- hagslegum uppgangi hér í landi, atvinnuleysi og verðbólga eru lítil og viðskiptalífið fjörugt. „Þegar | allt kemur til alls eru þetta málefn- in sem varða fólk mestu,“ segir J Gerber, „endurbætur á kosninga- | lögum eru neðar á listanum.“ JEILSUVÖRUR ÚR ÍSLENSKUM F)ALLAGRÖSUM - f>VÍ AÐ HEILSAN ER F|ÁRS|ÓÐUR Fjallagrasa- og ginsenghylki Fjallagrasa-, sólhatts og engiferhylki Fjallagrasahylki m ':S'V » I m % ÍSLENSK FIALLÁGRÖS H F. PRÓFAÐU FjALLAGRASAHYLKI - ÞALI ERU MARGRA MEINA BÓT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.