Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997 17 LISTIR Matarveisla Þorra „EINHVERN tímann um sumarið 1993 laustþess- ari hugmynd niður í kollinn á mér: Af hveiju ekki að mála það sem maður hefur mestan áhuga á, mat?“ upplýsir Þorri Hringsson um elleftu einka- sýninguna sína sem opnuð hefur verið á Sjónar- hóli við Hverfisgötu 12. Matur, matargerð, matarsaga og vinsmökkun er það skemmtilegasta sem listamaðurinn segist komast í tæri við. Þorri var í heimsókn hjá kunn- ingjafólki þetta umrædda sumar og meðan hann beið eftir að hellt væri upp á könnuna renndi hann í gegnum nokkrar bækur í bókahillunni. Þar var lítil matreiðslubók sem hann greip og fletti: „Skyndilega blöstu við mér alveg ótrúlegar myndir. Ég fletti upp á útgáfuárinu. Það reyndist vera 1944. Þar með small eitthvað saman í heilabú- inu sem ég hafðiekki velt fyrir mér áður. Matur fyrir sjálfstæða íslendinga!“ Með því að skoða hugmyndir fyrri kynslóða um útópíuna og hinn fullkomna lífsstil trúir Þorri að við getum ef til vill fengið einhvern botn í það af hverju við erum eins og við erum. Þessar hugmynd- ir endurspegli veruleika sem sé mun nátengdari manni en viðburðir og ártöl. „Hver matreiðslubók og hvert heimilisblað er eins og fingrafar eftir ákveðið ástand eða löngun. Bækurnar og blöðin birta hvernig okkar jarðneski veruleiki geti orðið ef við fylgjum bara uppskrift- „HRÍSGRJÓNARÖND með tómatsósu, rækjum og humar,“ eftir Þorra Hringsson. inni. Það sama gildir um listtímaritin. Þau eru allt- af að sýna okkur nýjar uppskriftir að myndlistar- útópíunni," segir Þorri. Sigurður Fáfnisbani í Norræna húsinu RICHARD Wagner félagið á Islandi sýnir óperuna Siegfried, öðru nafni Sigurður Fáfnisbani í Norræna hús- inu í dag kl. 15. Ópera þessi er hin þriðja í röðinni úr fjórleik Richards Wagner Nifl- ungahringnum. Við samningu Nifl- ungahringsins, sem frumfluttur var í Bayreuth 1876, leitaði Richard Wagner mjög fanga í íslenskum fornbókmenntum svo sem Eddu- kvæðum, Snorra-Eddu og Völsunga- sögu. Útkoman varð lengsta verk óperusögunnar, sem í raun er fjórar óperur og taka þær samanlagt um 16 tíma í flutningi. A undan sýningunni halda þau Anna M. Magnúsdóttir og Reynir Axelsson stuttan fyrirlestur með tóndæmum þar sem leiðarfrymi (Leitmotiv) úr óperunum verða kynnt. Sýnt verður af laserdiski á stórum sjónvarpsskermi og verður enskur skjátexti. Uppfærslan sem sýnd verður gekk í Bayreuth á árunum 1988-1992. Hljómsveitarstjóri er Daníel Barenboim en leikstjóri Harry Kupfer. I helstu hlutverkum í Sieg- fried eru John Tomlinson, Siegfried Jerusalem, Graham Clark og Anne Evans. Aðgangur að sýningunum er ókeypis og öllum heimill. glðfrðliiliikiíinn nkknr kynnir vornimskeii sem haldin uerða í mars og apríl 1997 10 mars Gerð páskaeggja (4 ki»t.) Leiðbeinandi er Jón Arelíusson kökugerðarmeistari. Almennt verð: 3.500, félagsverð: 2.500. Nómskeiðið er fró kl. 18. til 22. 11. mars Sykursuða (4 kist.) Leiðbeinandi er Jón Arelíusson kökugerðarmeistari. Almennt verð: 3.500, félagsverð: 2.500. Nómskeiðið er fró kl. 18 til 22. io., ii., i2. mars Matreiðsla fyrir karia (12 kist.) Leiðbeinandi er Ingvar Guðmundsson matreiðslumeistari. Almennt verð: 9.000, félagsverð: 7.000. Námskeiðið er frá kl. 18 til 22. 13., 14. mars Indversk matargerð (8 ki*t.) Leiðbeinandi er Walter Ridel matreiðslumaður. Almennt verð: 5.000, félagsverð: 4.000. Námskeiðið er frá kl. 18 til 22. 17., 18. mars Kfnversk matargerð (8 kist.) Leiðbeinandi er Nings DeJesús matreiðslumeistari. Almennt verð: 5.000, félagsverð 4.000. Námskeiðið er frá kl. 18 til 22. 7., 9., 11. apríl Vínnámskeið (12 kist.) Leiðbeinandi er Friðjón Árnason vínfræðingur. Almenntverð: 12.000, félagsverð 10.000. Námskeiðið er frá kl. 19. til 23. 14., 15., 16., 17., 19. apríl Smurbrauðsnámskeið (20 ki*t.) Leiðbeinandi er Marentza Poulsen smurbrauðsjómfrú. Almenntverð: 12.000, félagsverð 10.000. Nómskeiðið er frá kl. 18 til 22. Félagsmenn Matvíss og Rafiðnaðarskölans ásamt mökum geta nýtt sér félagsverðið. Starfsmannafélag Hafnarfjaríar fær 10% afslátt af almennu veríi. Innrihjn fer fram í síma 565 3850 eða fax 565 3851 alla daga vikunnar. Bæjarhrauni ló, 220 Hafnarfirði. j'/lni'Ab VORTILBOÐ! Vorið kemur með SAS Sumaráætlun SAS á íslandi hefst 5. apríl SAS fagnar vorkomu meö tilboði á feröum til nokkurra borga í Evrópu ef ferðast er á tímabilinu frá 5. apríl til 13. júní. Flogið er til Kaupmannahafnar á laugardögum og til íslands á föstudögum. Hámarkstími er 1 mánuöur og lágmarkstími er 6 dagar. Barnaafsláttur er 50%. Allar nánari upplýsingar færðu á feröaskrif- stofunni þinni eða söluskrifstofu SAS. Kaupmannahöfn 21.060 Mílanó 30.480 París 30.130 Vín 31.040 Ziirich 30.590 Amsterdam 29.340 Flugvallarskattar eru innifaldir í verði. M/S4S Laugavegi 172 Sími 562 2211
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.