Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÁRNI er að spyija hvort hann megi ekki bara skipta um mynd strax, frú borgarstjóri????
SH festir kaup á þriðju
hæðinni í Aðalstræti 6
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur
samþykkt að ganga að kauptilboði
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í
eignarhluta bæjarsjóðs í Aðalstræti
6 í Reykjavík, en eignarhlutinn var
á sínum tíma tekinn sem greiðsla
Sölusambands íslenskra fiskfram-
leiðenda upp í húsnæði í Miðbæ
Hafnarfjarðar.
Tilboð Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna í eignarhlutann hljóðaði upp
á 40 milljónir króna og greiðast 3
milljónir við útborgun og eftirstöðv-
amar, 37 milljónir, greiðast með
skuldabréfí til 25 ára með 5,5% árs-
vöxtum. Húsnæðið sem um ræðir er
þriðja hæð hússins Aðalstrætis 6 en
SH er með skrifstofur á fjórðu hæð
hússins. Að sögn Friðriks Pálssonar,
forstjóra SH, er hæðin 600 fermetrar.
„Það hafa verið hjá okkur aukin
umsvif og þess vegna var orðið mjög
þröngt hjá okkur. í annan stað vild-
um við ekki þrengja meira að okkur
í húsinu og okkur fannst ótækt að
hafa ekki einhveija stækkunarmögu-
leika,“ sagði Friðrik.
Hefur þú
reynsluekiö bíl
frá Honda nýlega?
Láttu sannfœrast
Honda er öörum
bílum fremri.
Vel útbúinn
Civic kostar frá
rt'e9“'
C.V/C1.5 LS/VTEC
115hest öfleyöir
aöeíns 4.81 á 100 km.
o9
SP'
SP
Sp
jv
Ci\i\c
1.349.000
Verið velkomi"
(H)
Vatnagarfiar 24 • s.568 9900
Verndun hálendis Austurlands
Landið er mun
verðmætara án
stórvirkjana
AKVEÐIÐ hefur verið
að stofna formleg
samtök um vemdun
hálendis Austurlands.
Stofnfundur verður 16.
mars nk. Tildrögin em þau
að fyrir hálfu öðm ári hitt-
ust á Egilsstöðum fjórir ein-
staklingar sem em á móti
stórvirkjunum á þessu
svæði. Þeir fóru að hittast
reglulega og hópurinn
stækkaði. Hefur fólkið haft
með sér óformleg samtök,
Félag áhugahóps um há-
lendi Austurlands. Einn af
forystumönnum hópsins,
Þórhallur Þorsteinsson, seg-
ir að örlað hafi á gagnrýni
á að þetta væri lokaður
klúbbur og því hafi verið
ákveðið að stofna formleg
samtök.
Nú hafa lengi verið uppi
áform um virkjanir á hálendi
Austurlands, heimild er í lögum
um Fljótsdalsvirkjun og um tíma
hafa verið uppi hugmyndir um
„LSD“ sem stendur fyrir lang-
stærsta drauminn, eða ennþá
stærri virkjanaáform. „Kannski
má rekja upphafið til þess hvað
kynningin á þessum virkjanaá-
formum hefur verið einhliða, hún
hefur eingöngu tekið mið af virkj-
anahagsmunum,“ segir Þórhallur.
- Samtökin eru alfarið á móti
umræddum stórvirkjunum. En
hver eru rökin?
„Við teljum að landið verði
miklu verðmeira án virkjana og
jafnframt að þær stangist á við
alþjóðlegar skuldbindingar okkar.
Eyjabakkalón Fljótsdalsvirkj-
unar teljum við brot á RAMSAR-
sáttmálanum um vemdun votlend-
issvæða. Jafnframt vil ég geta
þess að framkvæmdir við virkjun-
ina myndu ná langleiðina hringinn
í kringum Snæfell þrátt fyrir ein-
dregin mótmæli fjölda aðila gegn
því.
Hvergi er að fínna eins marga
fossa á stuttum kafla og þar sem
Jökulsá fellur niður í Fljótsdal og
þar væri hægt að gera mjög
áhugaverða gönguleið. Þess má
einnig geta að skurðir og stíflur
eiga að ná inn í friðlandið á Lóns-
öræfum.
Þrátt fyrir mikla andstöðu við
LSD eru þau virkjunaráform enn
til sem hugmynd á blaði. Þau gera
m.a. ráð fyrir að sökkt verði hluta
af friðlýstu svæði í Kringilsárrana
og þrengt að hreindýrunum. Þótt
búið sé að friðlýsa Dettifoss eru
þessi virkjanaáform enn inni á
framtíðaráætlun Landsvirkjunar.
Allar þessar framkvæmdir
myndu leiða til þess að að hálendi
Austurlands yrði aldrei framar það
ósnortna víðerni sem við viljum
hafa. Virkjanir hafa aðeins 100
ára líftíma. Ef unnið er ________
skipulega er óspillt land
miklu verðmætara fyrir
komandi kynslóðir."
- Við þurfum hagvöxt
til að lifa eðlilegu iífí í
landinu og virkjun fa.ll-
vatnanna er talin mikilvæg undir-
staða þess. Hvaða lausnir bjóðið
þið í staðinn?
„Við þurfum að snúa frá stór-
iðjustefnunni. Það eru möguleikar
á smærri virkjunum, meðal annars
hér fyrir austan, sem myndu
nægja okkur til atvinnuuppbygg-
ingar án stóriðju.
Við bendum á möguleika ferða-
þjónustu og tengsl hennar við hin
ósnortnu víðerni. Við megum ekki
skemma þá ímynd sem ísland hef-
ur í augum erlendra ferðamanna.
Þórhallur Þorsteinsson
► Þórhallur Þorsteinsson er
fæddur 24. júní 1948. Hann
vann ýmis störf tii sjós og lands
þar til hann var ráðinn rafveitu-
virki (línumaður) hjá Rafmagn-
sveitum ríkisins á Egilsstöðum
fyrir tólf árum. Þórhallur er
áhugamaður um útivist og
ferðalög. Hefur setið í stjórn
Ferðafélags Fljótsdalshéraðs
frá 1985, þar af formaður í tiu
ár, og er einn af forystumönn-
um Félags áhugahóps um há-
lendi Austurlands. Þórhallur er
i sambúð með Dagnýju Páls-
dóttur og á þijár dætur.
Að mínu mati verður aldrei hægt
að reka stórar virkjanir svo að það
fari saman við ósnortna náttúru
og ferðaþjónustu.
Með skipulagningu, jafnvel tak-
mörkun á fjölda ferðafólks, er
hægt að vemda hálendið."
- Ég hef heyrt talað um ykkur
sem skæruliðahóp eða hóp sérvitr-
inga. Hvað eruð þið reiðubúin að
ganga langt í andstöðunni?
„Eg met það svo að fólk sé til-
búið að ganga ótrúlega langt ef
það á að þjösna þessum virkjana-
áformum áfram, til dæmis ef
Fljótsdalsvirkjun verður byggð án
þess að fyrst fari fram mat á
umhverfisáhrifum hennar. Lög um
virkjunina voru samþykkt árið
1981, fyrir tíma laga um umhverf-
ismat. Margt hefur breyst á þess-
um tíma. Eg trúi því ekki fyrr en
ég tek á því að Landsvirkjun vilji
efna til stríðs við almenning með
því að veita honum ekki þann rétt
til að hafa áhrif á virkjunina sem
umhverfísmati fýlgir.
Vissulega hefur verið talað um
okkur sem skæruliða og sérvitr-
inga en það er að breytast. Eg
man til dæmis eftir því að á Nátt-
úruverndarþingi árið 1990 var tal-
__________ að um menn af mínu
sauðahúsi sem öfga-
sinnaða umhverfis-
vemdarmenn. Á síðsta
Náttúruverndarþingi
var hins vegar talað um
virkjanamenn sem vilja
Tllbúin að
ganga ótrú
lega langt
sökkva öllu undir vatn sem öfga-
menn.“
- Hvaða árangri hefur starf
áhugahópsins skilað?
„Við höfum getað kynnt al-
menningi afleiðingar áformaðra
virkjanaframkvæmda með fund-
um, blaðagreinum og getað miðlað
upplýsingum sem við höfum náð
erlendis. En það þýðir ekki að
blekkja sig, þetta gengur hægt,
enda getum við ekki gengið í jafn
digra sjóði og virkjanamenn virð-
ast hafa aðgang að.“