Morgunblaðið - 09.03.1997, Side 4
4 SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ .
VIKAN 2/3 - 8/3.
►BJÖRK Guðmundsdóttur
söngkonu voru í vikunni
afhent tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs við hátíð-
lega athöfn í ráðhúsi Osló-
borgar.
►HÆSTIRÉTTUR hafn-
aði í vikunni kröfu Hreins
Loftssonar hæstaréttariög-
manns, fyrir hönd Verk-
smiðjunnar Vífilfells, um
endurupptöku máls fyrir-
tækisins gegn Gjaldheimt-
unni í Reykjavík vegna
meints vanhæfis Péturs Kr.
Hafstein, hæstaréttardóm-
ara og fyrrverandi forseta-
frambjóðanda.
►ÍSAKHalimAlvar
dæmdur til þriggja mánaða
og tuttugu og sex daga
fangelsisvistar í sakadómi
í Istanbúl sl. föstudag
veg^na itrekaðra brota
sinna á umgengnisrétti
Sophiu Hansen við dætur
þeirra. Hann hefur viku
frest til að áfrýja dómnum
til Hæstaréttar.
►GUÐMUNDUR Einars-
son forstjóri járnblendi- og
kísilmálmsviðs Elkem í
Noregi kvaðst í vikunni
vonast til þess að samning-
ar gætu tekist á milli Elkem
og íslenskra stjórnvalda
um sölu á ákveðnum eign-
arhlut ríkisins í Jámblendi-
verksmiðjunni á Grundart-
anga. Jón Sveinsson stjóra-
arformaður Járnblendifé-
lagsins sagði hins vegar að
eins og staðan væri i dag
væri ekkert útlit fyrir að
verksmiðjan yrði stækkuð,
og að ekki yrði farið fram
á frekari framlengingu á
fresti Landsvirkjunar af
hálfu stjórnar félagsins.
Þýskt flutningaskip
strandar við Þjórsárós
NÍTJÁN skipbrotsmenn af þýska flutn-
ingaskipinu Vikartindi björguðust
giftusamlega um borð í þyrlu Land-
helgisgæslunnar, TF-LÍF, eftir að skip-
ið strandaði skammt frá Þjórsárósi um
klukkan 20.30 á miðvikudagskvöld.
Skömmu áður hafði varðskipið Ægir
gert tvær árangurslausar tilraunir til
að koma dráttartaug í skipið þar sem
það lá vélarvana fyrir akkerum um tvo
kílómetra frá landi. Varðskipið varð
fyrir broti í seinni tilrauninni, með þeim
afleiðingum að skipveiji á Ægi féll
fyrir borð. Hans er enn saknað.
Þýska skipafélagið Peter Döhle er
eigandi Vikartinds, en Eimskip hafði
haft skipið á leigu um sjö mánaða skeið.
Um 2.700 tonn af vöru voru um borð,
en erfítt er að meta andvirði farmsins.
Skipið er hins vegar metið á 1,4 til 1,5
milljarða króna og gámar Eimskips um
borð á 100 milljónir. Skældir og snún-
ir vörugámar og annað brak hefur
dreifst um fjörur.
Þijú hundruð tonn af svartolíu eru
í geymum Vikartinds, þar sem skipið
liggur í fjörunni, auk minna magns af
smurolíu. Tryggingafélög skipsins hafa
sent tankbíla að skipinu til að freista
þess að dæla svartolíunni yfir í bílana.
Sjópróf stóðu yfír allan föstudaginn
og var fram haldið á laugardag. Þar
kom m.a. fram að Landhelgisgæslan
og Eimskip höfðu hvatt skipstjóra
flutningaskipsins til að taka ákvörðun
um að leita aðstoðar vegna yfirvofandi
hættu. Skipstóri taldi hins vegar ekki
að hætta væri á ferðum fyrr en akkeri
skipsins misstu festu og skipið rak á
skammri stundu upp í íj'öru.
Fátt virðist koma í
veg fyrir verkföll
MIKILL ágreiningur er á milli vinnu-
veitenda og landssambanda og verka-
lýðsfélaga inna ASÍ. Gagntilboði vinnu-
veitenda sem lagt var fram á fimmtu-
dag var illa tekið af launþegahreyfíng-
unni. í gær slitnaði upp úr viðræðum
Dagsbrúnar og VSÍ og fátt virðist geta
komið í veg fyrir verkföll í þessari viku.
Uppreisnarástand
í Albaníu
UPPREISNARÁSTAND ríkir í Albaníu
og hafa óbreyttir borgarar, vel vopnum
búnir, suðurhluta landsins á valdi sínu.
Sali Berisha, forseti landsins, og for-
ystumenn níu stjórnarandstöðuflokka
samþykktu á fimmtudag, að herinn
hætti aðgerðum sínum í tvo daga og
var uppreisnarmönnum gefínn frestur
til klukkan fímm á sunnudagsmorgni
til skila vopnum sínum. Á móti var
þeim heitið sakaruppgjöf. Nokkrir tug-
ir manna hafa fallið í átökunum. For-
ystumenn Evrópusambandsins reyna
hvað þeir geta til að bera klæði á vopn-
in en leiðtogar stjómarandstöðunnar í
Albaníu segja, að Berisha forseti fallist
ekki á myndun samsteypustjómar í
landinu. Stjórnarandstaðan krefst þess,
að mynduð verði stjóm sérfræðinga til
bráðabirgða og boðað verði til nýrra
kosninga.
Gremja Palestínu-
manna vex
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, sagði í Washington í vik-
unni, að ekki væri um annan kost
að ræða en halda
áfram friðarviðræð-
um við ísraelsstjóm
þrátt fyrir þá
ákvörðun hennar að
reisa nýtt hverfi fyr-
ir gyðinga í Austur-
Jerúsalem. Benjam-
in Netanyahu, for-
sætisráðherra ísra-
els, hefur fyrirskip-
að, að fjórum skrif-
stofum palestínsku heimastjómarinn-
ar í Austur-Jerúsalem verði lokað og
mun sú ákvörðun ýta enn frekar
undir reiði Palestínumanna. Bill Clin-
ton, forseti Bandaríkjanna, hefur
gagnrýnt fyrirætlanir um ný hverfi
gyðinga í Austur-Jerúsalem.
►BORÍS Jeltsín, forseti
Rússlands, flutti stefnuræðu
sína á fimmtudag og kom
víða við. Gaf hann ófagra
lýsingu á ástandinu í efna-
hagsmálunum og boðaði
jafnframt verulegar breyt-
ingar á ríkisstjórninni.
Kvaðst hann mundu skýra
frá þeim á næstu dögum en
búist var við, að Anatolí
Tsjúbaís, skrifstofustjóri
forsetans, yrði skipaður
fyrsti aðstoðarforsætisráð-
herra með víðtækt vald I
efnahagsmálum. Jeltsín hét
þvi einnig að koma á lögum
og reglu í ríkinu. Virðist
Jeltsín vera búinn að ná sér
vel eftir veikindin.
►ÁLIT aðallögmanns Evr-
ópudómstólsins, sem birt
var i vikunni, um að áfeng-
iseinkasala sænska ríkisins
standist ekki gagnvart regl-
um Evrópusambandsins
hefur vakið mikinn úlfaþyt
í Svíþjóð. Vilja stjórnvöld
finna leið til að viðhalda
einkasölunni en almenning-
ur og kaupmenn fagna nið-
urstöðu lögmannsins.
►MIKLAR umræður hafa
verið um einræktun eftir að
skoskir vísindamenn kynntu
ána Dolly, sem er svo sann-
arlega lifandi eftirmynd
móður sinnar. Víða um lönd
hefur verið hvatt til, að ein-
ræktun manna verði bönnuð
með lögum, og vísinda-
menn, sem hafa lýst yfir
stuðningi við hana, hafa
verið fordæmdir. í Banda-
ríkjunum hafa opinberir
styrkir til slíkra tilrauna
verið bannaðir.
Arafat
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
HJÓNIN Eygló og Karl eru svartsýn á að takist að bjarga bú-
slóð þeirra og bíl úr Vikartindi. Sonurinn Nökkvi gerir sér
væntanlega ekki grein fyrir vandræðum foreldra sinna sem
dvelja nú hjá foreldrum Eyglóar.
Ung hjón eiga búslóð í Vikartindi
„Sorglegt að aðstoð
hafi verið neitað“
EYGLÓ Ingólfsdóttir uppeldis-
fræðingur og Karl M. Karlsson
arkitekt eru meðal þeirra sem
bíða þess hvort takist að bjarga
einhverjum verðmætum úr farmi
Vikartinds sem strandaði við
Þjórsárósa fyrr í vikunni.Hjónin
ungu eru nýflutt heim til íslands
eftir níu ára námsdvöl í Berlín og
þau áttu von á allri búslóð sinni
og bíl með Vikartindi.
„Það er mjög skrýtin tilfinning
að standa með aðeins tvær ferða-
töskur. Allar persónulegar eigur
okkar, námsgögn, bækur, bréf og
myndir auk húsgagna eru í einum
gámi og bifreið okkar í öðrum,“
sagði Eygló í viðtali við Morgun-
blaðið í gærmorgun. „Sárast er
að sjá á eftir persónulegum eigum
okkar en allt lítur nú út fyrir að
10 ár i lífi okkar hafi þurrkast út.“
Eygló hefur fengið þær upplýs-
ingar að gámarnir með búslóðinni
og bílnum séu enn í lest flutninga-
skipsins. Hún kveðst þó alls ekki
vera vongóð um að búslóð þeirra
sé heil og að það takist að bjarga
verðmætum. Aðspurð segir hún
að búslóðin sé tryggð en bíllinn
ekki.
Ekki er enn vitað hvenær reynt
verður að bjarga gámum úr lest
flutningaskipsins. „Við vonumst
til fá að skoða í gáminn, ef á ann-
að borð tekst að ná honum á land,
þannig að við getum jafnvel bjarg-
að hluta af persónulegum eigum
okkar."
Eygló neitar því ekki að þeim
þyki sérkennilegt hvernig óhappið
atvikaðist. „Okkur þykir mjög
sorglegt að skipsljóri skipsins
skyldi neita aðstoð jafn lengi og
raun ber vitni,“ sagði hún.
Hjónin eru ennfremur ekki alls
kostar ánægð með þjónustu Eim-
skips bæði fyrir ferð skipsins og
eftir strandið. Eygló segir að þau
hafi ekki fengið nægilega skýr
svör á skrifstofu Eimskips í Ham-
borg þegar leitað hafi verið upp-
lýsinga þar. Segir hún að auðvitað
sé það þeirra mistök að láta ekki
tryggja bílinn en á hinn bóginn
sé nijög óþægilegt að fá ekki skýr-
ar leiðbeiningar um það hvemig
eigi að bera sig að við sjóflutn-
inga, t.d. með því að minna menn
á að tryggja sig i bak og fyrir.
„Það er ekki hægt að segja að við
höfum fengið þjónustu að fyrra
bragði frá starfsmönnum Eim-
skips,“ sagði hún.
Strand Vikartinds
Fjörur
gengn-
arum
helgina
MENN úr björgunarsveitum
víða á Suðurlandi gengu í gær
fjörur milli Skógasands og vest-
ur fyrir Þjórsá og leituðu báts-
mannsins af varðskipinu Ægi
sem tók út af skipinu á miðviku-
dagskvöld þegar þess var frei-
stað að koma flutningaskipinu
Vikartindi til hjálpar. Sjö sér-
fræðingar frá hollensku björg-
unarfyrirtæki, Weissmuller,
sem hefur tekið að sér að ná
olíunni úr skipinu, komu til
landsins í gær og hluti búnaðar
þeirra er þegar kominn á
strandstað. Verður reynt að
hefjast handa við það verk í
dag. Fulltrúar eigenda Vikart-
inds og tryggingafélags skips-
ins sátu á fundum við strand-
stað fram eftir degi til að skipu-
leggja björgunaraðgerðir á
farmi sem hrundið verður af
stað eftir helgi.
Einar Brynjólfsson formaður
svæðisstjómar í Rangárvalla-
sýslu stjómaði leit í gær og
sagði hann að nokkrir tugir
manna gengju fjörurnar. Átti
að fínkemba fjörumar allt frá
Skógasandi, vestur að strand-
staðnum og nokkm vestur fyrir
Þjórsá. Var ráðgert að hefja
leitina um klukkan 6.30 en
vegna veðurs var því frestað
fram yfír klukkan 9. Nýta átti
tímann sem best milli flóða en
síðdegisflóð er um klukkan
16.30. Veður var áfram slæmt,
rok og rigning en Einar sagði
útlit fyrir að takast myndi að
ganga fyrirhugað svæði fyrir
síðdegisflóðið.
Tvö hollensk björgunarfyrir-
tæki og eitt bandarískí 'eru að
skoða hvemig haga megi björg-
un á farmi og koma honum frá
strandstað og munu gera tilboð
í verkið. Von var á fulltrúum
þeirra á strandstað í gær til
fundar við fulltrúa útgerðar og
tryggingafélags. Koma átti upp
stjórnstöð fyrir aðgerðimar sem
skipulagðar verða um heigina
og heijast þær að líkindum á
mánudag. Þijá til fímm gáma
tók út af skipinu á flóðinu í
fyrrinótt enda ganga brotin
stöðugt yfír það.
Kjaradeila í fiskimjölsverksmiðjum í Eyjum
Öll starfsemi stöðvuð ef
yfirvinnubann skellur á
ÓTÍMABUNDIÐ yfírvinnubann 40
verkamanna í báðum fískimjölsverk-
smiðjunum í Vestmannaeyjum hefst
að öllu óbreyttu kl. 17 á morgun.
Skelli yfírvinnubannið á þýðir það í
reynd að starfsemi verksmiðjanna
stöðvast, þar sem ekki er talið borga
sig að gangsetja verksmiðjumar fyr-
ir átta stunda vinnutíma, að sögn
Arnars Sigurmundssonar, formanns
Samtaka fískvinnslustöðva.
Boðað var til sáttafundar í deilu
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja
(VFV) og viðsemjenda eftir hádegi
í gær en skv. upplýsingum deiluaðila
fyrir fundinn bar töluvert í milli og
var óvíst að samkomulag næðist í
tæka tíð. VSÍ efast um lögmæti boð-
aðs yfírvinnubanns og em hugsanleg
viðbrögð nú til skoðunar.
„Yfirvinnubannið hefur nú þegar
haft töluverð áhrif í Eyjum og nokkr-
um skipum hefur verið stefnt annað.
En tíðarfarið hefur verið erfítt og
lítið hefur gengið í hrognatöku,
þannig að áhrifín hafa verið minni
af þeim sökurn," segir Amar.
Verkalýðsfélagið hefur einnig
samþykkt í atkvæðagreiðslu með 19
atkvæðum gegn 7 fulla vinnustöðvun
sem á að hefjast næstkomandi föstu-
dag hafí samningar ekki tekist. Jón
Kjartansson, formaður VFV, segir
að ef samskonar samningar yrðu
gerðir í Eyjum og gerðir hafa verið
í loðnuverksmiðjum á Austfjörðum
hefðu þeir í för með sér töluvert tekj-
utap fyrir starfsmenn verksmiðjanna
í Vestmannaeyjum á bræðslutímum.
„Vikuvaktin kæmi út með um tíu
þúsund krónum lægri launum hér
miðað við það sem samið var um
fyrir austan, þar stendur hnífurinn
í kúnni. Það er líka verið að troða
upp á okkur vinnukerfí sem gengur
ágætlega í háþróuðum iðnaðarlönd-
um, þar sem menn lifa af dagvinn-
unni. Hér hafa menn hins vegar
haft þokkalegar tekjur með því að
vinna myrkranna á milli. Þessu á að
skella á hér án þess að það kosti
atvinnureksturinn nokkuð," segir
Jón.
„Það er búið að semja við starfs-
menn í flestum verksmiðjum á land-
inu og aðeins fjórar eru eftir og það
er von okkar að okkur takist að ljúka
þessu um helgina. Það bar talsvert
í milli í byijun en sá munur hefur
minnkað verulega,“ segir Arnar.
Einnig var ósamið í gær við starfs-
menn fiskimjölsverksmiðju HB á
Akranesi, starfsmenn í Faxamjöli,
Hafnarmjöli í Þorlákshöfn og Krossa-
nesverksmiðjunni.
I