Morgunblaðið - 09.03.1997, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Þing um tölvumálrækt
Miðvikudaginn 12. mars gengst Fagráð í upp-
lýsingatækni fyrir málþingi um tölvumálrækt
í þingsal Hótels Loftleiða.
Þingið hefst kl. 13:00 með ávarpi menntamálaráðherra
og lýkur stundvíslega klukkan 17.00.
Leitast verður við að svara þessum spumingum:
- Verður mælt á íslensku máli alla næstu öld?
- Hver spornar gegn ásókn enskunnar?
- Verður íslenskan áfram inni í tölvum?
- Hvað hefur verið gert fyrir íslenskt mál í tölvum?
- Hvað þarf að gera í nánustu framtíð?
Málshefjendur verða fulltrúar fyrirtækja og stofnana,
sem hafa verið í fararbroddi þeirra er nota íslenskt mál
í og á tölvum: Apple umboðsins, Fagráðs í upplýsinga-
tækni, Námsgagnastofnunar, Nýherja, Orðabókar
Háskólans, íslenskrar málstöðvar, Skýrr, Tölvuorða-
nefndar, Þýðingastöðvar utanríkisráðuneytisins o.fl.
Meðal annars verður fjallað um: Orðabanka, talandi
tölvur, tungumálaverkfræði, Tölvuorðasafn, tölvur sem
skilja mælt mál, Þ sem 27. staf latneska stafrófsins og
þýðingar í tölvum.
Málþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir.
Þátttökugiald er 1.000 kr. Hópafsláttur.
Skráning er hjá Staðlaráði íslands í síma 587 7000.
Fagráð í upplýsingatækni þakkar Nýherja, RUT-nefnd og Skýrslutækni-
félaginu veittan stuðning.
Átt þú rétt á endurgreiðslu
vegna tannréttinga?
Þeir sem voru yngri en 21 árs þegar tannréttinga-
meðferð með spöngum eða teinum hófst, geta átt rétt
á endurgreiðslu hluta kostnaðar sem hér segir:
Ef meðferð hófst eftir 1. janúar 1997
greiðir Tryggingastofnun allt að 70.000 kr. styrk.
Ef meðferð hófst á árunum 1995-1996
greiðir Tryggingastofnun hluta styrks upp í kostnað
meðferðar á árinu 1997, hafi umsækjandi ekki áður
fengið endurgreiðslu vegna tannréttinga.
Eldri umsóknir
Þeir sem fengu endurgreiðslu samþykkta skv. eldri
reglum og eru enn í meðferð, halda óskertum rétti.
Umsóknir, sem fengu þá afgreiðslu að þær þyrfti að
endurnýja að forréttingum eða tannskiptum loknum,
eru fallnar úr gildi. Umsækjendur eiga þó rétt á ofan-
greindum styrk ef þeir þurfa meðferð með spöngum
eða teinum.
Meðferð með lausum tækjum
Ekki er endurgreiddur kostnaður við tannréttinga-
meðferð sem eingöngu er með lausum tækjum, svo
sem gómum, plötum og beislum.
Hvernig er sótt um?
Sækja þarf um styrki til tannlæknadeildar Trygginga-
stofnunar á sérstökum eyðublöðum. Styrkirnir eru
óháðir tekjum umsækjenda og forráðamanna.
Hvað kosta tannréttingar?
Það ríkir frjáls verðsamkeppni í tannréttingum. Því
er rétt að leita eftir áliti og áætlun um kostnað hjá
fleiri en einum tannréttingasérfræðingi. Tannlækna-
deild Tryggingastofnunar veitir frekari upplýsingar.
TRYGGINGASTOFNUN^? RÍKISINS
©
Sigríður Ella Magnúsdóttir í Listaklúbbnum
Ljóð úr hjörtum kvenna
LISTIR
Morgunblaðið/Emilía
SIGRÍÐUR Ella Magnúsdóttir lofar fjölbreyttum tónleikum í
Listaklúbbnum annað kvöld.
SIGRÍÐUR Ella Magnúsdóttir söng-
kona heldur einsöngstónleika í Lista-
klúbbi Leikhúskjallarans annað
kvöld, mánudagskvöld, kl. 21 við
undiríeik Ólafs Vignis Albertssonar
píanóleikara. Flytja þau lög úr ýms-
um áttum þar sem konur og kven-
hetjur tjá tilfinningar sínar.
Að sögn Sigríðar Ellu er kveikjan
að tónleikunum langsótt. „Síðastliðið
haust rakst ég á grein í bresku blaði
þar sem verið var að kynna uppboð
hjá Sotheby’s á bréfum sem AÍbert
Einstein mun hafa skrifað snemma
á öldinni. Var þar meðal annars vitn-
að í bréf til eiginkonu hans, þar sem
hann setur henni kosti - nokkuð sem
mér þótti ekki sæma þessu mikil-
menni. Upp frá því fór ég, einhverra
hluta vegna, að gefa lögum, þar sem
konur tjá tilfinningar sínar, meiri
gaum og þegar mér bauðst að halda
tónleika í Listaklúbbnum datt mér í
hug að setja saman sérstaka dagskrá
með efni af þessum toga.“
Sigríður Ella lofar fjölbreyttum
tónleikum en verkin sem hún ætlar
að syngja eru allt frá Monteverdi til
Bernsteins en af öðrum tónskáldum
má nefna Schubert, Schumann,
Brahms og Verdi en jafnframt verða
íslensk lög í brennidepli. „Mér fannst
nauðsynlegt að hafa íslensk verk á
efnisskránni," segir söngkonan sem
búið hefur í Bretlandi í tæpa tvo
áratugi. „Þegar allt kemur til alls
standa þau manni næst - bæði lögin
og ljóðin."
Börnin til Islands
Sigríður Ella mun jafnframt nýta
ferðina til að halda söngnámskeið á
Akureyri í næstu viku og sækja
Vestmannaeyjar heim en þar kveðst
hún eiga góða „söngvini". „Ég kem
eins oft til íslands og ég get enda
er mér í mun að viðhalda tengslum
mínum við vini og vandamenn - og
auðvitað menningarlífið. í sumar
ætla ég því að dveljast í fáeinar vik-
ur hér á landi með fjölskyldunni en
ég stefni leynt og ljóst að því að fá
börnin mín þrjú til að flytjast hingað
og eignast íslenska maka,“ segir
söngkonan og skellir upp úr en bæt-
ir svo við: „En því miður fæ ég víst
engu um það ráðið."
Eiginmaður Sigríðar Ellu er bassa-
söngvarinn Simon Vaughan og eru
þau bæði virk í bresku tónlistarlífi.
Hún er um þessar mundir að und-
irbúa Schubert-tónleika fyrir As-
hwell-hátíðina og Durufle Requiem
með Collegiate Singers en hann
syngur í uppfærslu European Cham-
ber Opera á Leðurblökunni.
Eðli málsins samkvæmt hafa börn
þeirra hjóna drukkið tónlistina í sig
með móðurmjólkinni, þótt þau hafí
róið á önnur mið en foreldramir.
„Dóttir okkar hefur mikið dálæti á
Blur [poppsveit sem flestir íslending-
ar ættu að vera famir að kannast við
eftir tíðar heimsóknir forsprakkans
hingað til lands] en synimir eru meira
fyrir þyngri tónlist. Annar þeirra er
meira að segja farinn að spila í þunga-
rokkshljómsveit sem hljóðritaði sín
fýrstu lög á dögunum," segir móðirin
og áhuginn leynir sér ekki í röddinni.
Skyldi þungarokkið vera klassík
framtíðarinnar?
NEMENDUR óperudeildar Söngskólans.
Söngleikjatónlist í
Leikhúskjallaranum
NEMENDUR óperudeildar Söng-
skólans í Reykjavík flytja lög úr
leikritum og söngleikjum í Leikhús-
kjallaranum í dag, sunnudag, kl. 17.
í vetur hafa nemendur óperu-
deildar Söngskólans æft tónlist úr
leikritum og söngleikjum undir
stjórn Magnúsar Ingimarssonar.
Óperudeildin efnir nú til tónleika í
Leikhúskjallaranum þar sem flutt
verða þekkt lög úr íslenskum leikrit-
um og amerískum söngleikjum við
píanóundirleik Magnúsar Ingimars-
sonar.
Á efnisskránni er tónlist úr leik-
ritinu Gísl eftir Jónas Árnason, sem
frumflutt var í Þjóðleikhúsinu 1963.
Jónas semur þar texta sína við írsk
og skosk þjóðlög. Þá verða flutt lög
úr gamanóperunni Ringulreið eftir
Magnús Ingimarsson og Flosa Ól-
afsson, sem flutt var í Þjóðleikhús-
inu 1975 og loks úr leikritum þeirra
Jóns Múla og Jónasar Árnasonar;
Delerium Bubonis, Allra meina bót
og Jámhausnum.
1 erlenda hlutanum verður flutt
syrpa úr ameríska söngleiknum
Carousel sem þeir Richard Rogers
og Oscar Hammerstein II sömdu
og frumfluttur var 1945 og loks
er lagasyrpa úr söngleiknum Show
Boat eftir Jerome Kern og Oscar
Hammerstein II, frá árinu 1927.
27 nemendur í óperudeild koma
fram á tónleikunum og syngja bæði
kór og einsöngshlutverk: Arndís
Fannberg, Davíð Ólafsson, Elma
Atladóttir, Elísa Sigríður Vilbergs-
dóttir, Elísabet Hermundardóttir,
Garðar Thór Cortes, Gunnar Krist-
mannsson, Helgi Hinriksson,
Hjálmar P. Pétursson, Ingibjörg
Aldís Ólafsdóttir, Jóhann Friðgeir
Valdimarsson, Jóna Fanney Svav-
arsdóttir, Linda P. Sigurðardóttir,
Lovísa Sigfúsdóttir, Peter John
Buchan, Rósalind Gísladóttir, Sig-
ríður Pálsdóttir, Sigrún Pálmadótt-
ir, Sigurlaug Knudsen, Sigurður
Haukur Gíslason, Soffía Stefáns-
dóttir, Stefán Helgi Stefánsson,
Valgerður G. Guðnadóttir, Þórhall-
ur Barðason, Þórunn Stefánsdóttir,
Þórunn Elfa Stefánsdóttir og Örvar
Már Kristinsson.
Gag’nrýn-
endur og-
leikstjórar
söðla um
London. Reuter.
FJÓRIR breskir gagnrýnendur
hafa fallist á að bregða sér hinum
megin við borðið og setja upp leik-
rit til að kynnast því hvernig það
sé að láta gagnrýna sig. Leikstjór-
ar og jafnvel leikarar munu bregða
sér í hlutverk gagnrýnendanna.
Undanfarna mánuði hefur
breskt leikhúsfólk séð sig knúið
til að svara leiklistargagnrýni sem
það hefur talið óvenju óvægna.
Meðal þeirra sem ráðist hafa gegn
gagnrýnendunum er leikarinn og
leikstjórinn Steven Berkoff, sem
sakaði einn leikhúsgagnrýnanda á
síðasta ári fyrir að „spúa út úr sér
eitri og vonbrigðum vegna [eigin]
lífs sem er samsafn mistaka“.
Einn fjórmenninganna, Michael
Billington, gagnrýnandi The Gu-
ardian, mun setja upp verk eftir
Harold Pinter. Kveðst hann hlakka
til þess og væntir þess að verða
margs vísari um það starf sem
fram fari að tjaldabaki. „Það
myndi bera vott um hræðslu að
grípa ekki tækifæri sem þetta ...
það væri leitt ef það væri einung-
is nýtt af fólki í hefndarhug,“ sagði
Billington.
Stephen Daldry, leikstjóri hjá
Royal Court-leikhúsinu, mun
gagnrýna uppsetningu gagnrýn-
anda The Evening Standard, Nic-
holas de Jongh, á verki eftir Jean
Anouilh. „Ef til vill mun ég, eða
við allir, reynast vera refsiglaðir
með afbrigðum og gagnrýna
vægðarlaust,“ segir Daldry.
Ekki hefur verið ákveðið hvaða
leikstjórar aðrir bregða sér í hlut-
verk gagnrýnenda en verkin fjögur
verða sett upp í apríl í London.