Morgunblaðið - 09.03.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 9. MARZ 1997 37
ÞÓRUNN
SIG URÐARDÓTTIR
arra á þessu sviði. Ætla má að það
I hafi vakið furðu sumra að þessi
" maður skuli hafa verið alinn upp í
Flókadal.
Sveinn og Unnur hófu búskap í
Vestur-Fljótum og 1951 fluttust
þau að Berglandi sem var nýbýli
út úr jörðinni Berghyl, sem var í
eigu foreldra Unnar og tengdafor-
eldra Sveins.
Það hefur reynst mörgum borg-
arbúum erfitt að koma börnum sín-
um í sveit á sumrin. Við nutum
| þess að eiga frændur og vini í Fljót-
um, hjá þeim fengum við sumar-
dvöl fyrir strákana okkar. Við það
hafa skapast varanleg vinatengsl
við æskustöðvarnar og fólkið sem
þar býr. Yngsti sonurinn, Stefán
Ragnar, var mörg ár í sumardvöl
á Berglandi hjá Unni og Sveini og
æ síðan hafa þau litið á hann sem
I sinn son. Tengslin við Unni og
Svein hafa verið fastur þáttur í lífs-
mynstri okkar í rúm 30 ár.
) Sveinn gekkst undir aðgerð í
Reykjavík vegna btjóskeyðingar í
mjaðmalið. Þessi aðgerð heppnaðist
ekki eins og vænst var, sem orsak-
aði fötlun og skerta hreyfigetu, það
var því ekki hjá því komist að
breyta lífsstíl og bregða búi. Jörð
hafði áður verið seld Rafmagn-
sveitu Siglufjarðar og nú keypti
\ hún húsin en seljendumir fengu
I afnot af íbúðarhúsinu um óákveð-
inn tíma. Sveinn var langdvölum
9 undir læknishendi í Reykjavík og
þjálfun í Hveragerði og Reykja-
lundi, á þeim tíma hafði hann tengsl
við okkar heimili. Þá gafst okkur
kærkomið tækifæri til að endur-
gjalda sumardvöl sonarins.
Fyrir 6 árum keyptu þau hjónin
notalega íbúð á Skógargötu 6 á
Sauðárkróki. Þar voru okkar síð-
j ustu samfundir síðla á liðnu sumri.
Q Þá vorum við að fylgja til grafar
— öðmm tendasyni hennar Jónu frá
9 Berghyl, Kristni Jónassyni, en hann
hafði eins og Sveinn helgað sveit-
inni sína starfskrafta og þá helst
á sviði félagsmála. Jóna dvelur nú
í hárri elli á öldrunardeild Sjúkra-
húss Sauðárkróks, andlega hress,
komin hátt á tíræðisaldur.
Við hjónin höfum átt ótaldar
ánægjustundir með þeim hjónum
Unni og Sveini. í minningunni ber
| hæst samveran í sveitinni okkar. Á
m móti okkur var tekið líkt og þar
væm þjóðhöfðingjar á ferð. Við
keyrðum um sveitina og nærliggj-
andi staði og kynntum okkur
tækninýjungar í búskaparháttum.
Fundum kennileiti sem geyma
minningar frá þeim tíma er við lék-
um okkur þar sem börn. Þá má
ekki gleyma öllum gjöfunum sem
• höfðu að geyma lostæti, svo rausn-
arlega útilátið að það nægði til að
íj gefa vinum og ættingjum í Reykja-
0 vík.
Sveinn naut trausts og virðingar
sveitunga sinna. Vom falin ótal
trúnaðarstörf innan og utan sveit-
ar, var hreppstjóri og oddviti um
margra ára skeið svo eitthvað sé
nefnt. Skýrasti dómur um störf
Sveins er vitnisburður sveitunga
og samstarfsmanna, í þeim hópi
r:j er ekki að fínna gagnrýnisrödd svo
ég viti. Sveinn var skarpgreindur
^ og hafði skoðanir á flestum málum
4 utan lands og innan, sannur heims-
borgari í bændastétt. Þeir sem best
þekktu vissu að hann var örgeðja
en hafði vald á að beita því ekki í
samskiptum við aðra.
I mínum huga var Sveinn glæsi-
iegur ungur maður. Meira en
meðalmaður á hæð, grannur og
beinvaxinn með gerðarlegt andlit,
g hóflega stórt kónganef og skarp-
g legan augnsvip sem hvoru tveggja
a tengdist ættinni. Með dökkbrúnt
™ hár sem orðið var silfurgrátt. Oft
brá fyrir glettni í munnsvip og
augum, enda var honum tamt að
ræða um björtu hliðar lífsins og
draga fram það sem vakti gleði
með viðmælandanum (húmoristi af
guðsnáð).
Við hjónin sendum Unni og nán-
,;j um ættingjum hugheilar samúðar-
kveðjur. Við viljum gjarnan mega
Q deila minningunni um góðan dreng
4 með ykkur.
Hjálmar og Stefanía.
+ Þórunn Sigurðardóttir
fæddist á Þingeyri við
Dýrafjörð 24. mars 1907. Hún
lést að morgni 13. febrúar og
fór útför hennar fram í kyrr-
Þey-
Er ég minnist systur minnar,
koma þær ljóslifandi í huga minn
systurnar frá Patreksfirði, Nanna,
Helga og Freyja Guðmundsdætur.
Á milli þeirra var óslítanlegt
tryggðarband. Þær voru svo hug-
ljúfar, með tæra sál. Nú eru þær
allar famar yfir móðuna miklu og
ég bið góðan Guð að vera með
þeim. Ég ætla ekki að rifja upp
nein sérstök atriði úr lífi systur
minnar. Hún var kona sem var
ávallt viðbúin að takast á við það
sem hún þurfti að fara í gegnum
í þessu lífi. Við vitum það öll að
þetta líf er ekki alltaf dans á rós-
um, án mótlætis og erfíðleika
mundum við ekki ná þeim þroska
sem er nauðsynlegur hverri sál.
Guð sér fýrir öllu. Tóta giftist
yndislegum og góðum manni sem
var einnig Dýrfirðingur. Hann var
ekkjumaður og átti tvær yndisleg-
ar ungar dætur. Hann hét Jens
Viborg og var fyrsti vélstjóri á
togaranum Verði. Hann var einn
af þeim sem lést í Varðarslysinu.
Eftir að þau byijuðu búskap á
Patreksfirði var ég send til þeirra
Tótu systur til hjálpar. Það var
mér lærdómsríkt því á heimili
þeirra ríkti hamingja og friður.
Tóta tók þessum litlu, fallegu
börnum sem móðir þeirraj ég var
stolt að fá að passa þær. Árin liðu
eitt af öðru og allt gekk að óskum.
Síðar tóku þau að sér dreng, nokk-
urra daga gamlan. Hann hét Dav-
íð Jensson. Hann var myndardr-
emgur, góður og vel gefinn. Hann
andaðist ungur að árum. Þá voru
þær þrjár eftir. Nú dró fyrir sólu
á fallega heimilinu þeirra en dætur
hennar voru móður sinni mikill
styrkur og svo voru vinirnir með
útréttar hendur því þeir voru heil-
ir og sannir jafnt í sorg sem gleði.
Elsku Auður og Þyri, við Fjóla
þökkum ykkur fyrir það hvað þið
hafíð verið duglegar að undirbúa
jarðarförina og allt það sem því
tilheyrði. Við og makar okkar vott-
um og öllum ástvinum ykkar okk-
ar dýpstu samúð.
Guð blessi okkar elskulegu syst-
ur.
Hvíli hún í friði.
Þú ert mitt leiftrandi ljós, og
lýsandi stjarna, sem greiðir mína
braut. Þú gullkomum slærð, frá
þínu glóandi hjarta, og gefur mér
von í þraut. Þú ert sendiboði allra
manna, sem engill hér á jörð. Þú
ert holdleg vera með himneskan
ljóma, þú heldur um oss vörð. Þú
ert sem guðsmóðir mildasta vina
þín verk eru þakkargjörð.
Fjóla og Hrefna
Sigurðardætur.
(t
FASTEIGNA
MARKAÐURINN ehf
\=
ÓÐINSGðTU 4. SÍMAR 551-1540. 552-1700, FAX 562-0540
Verslunar- eða skrif-
stofuhúsnæði nærri Sundahöfn
233 fm verslunar- eða skrifstofuhúsnæði til sölu eða
leigu nærri Sundahöfn. Næg bílastæði.
FASTEIGNAMARKAÐUBINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540 =
rtOlt LI
m j** j'drei jmcm w**
EIGULISTINN
Vantar þig 1.000 fm í vesturbænum
Til sölu eða leigu allt að 3000 fm úr SÍF skemmunum við Keilugranda í
vesturbænum. Laust til afhendingar 1. október 1997. Um er að ræða tvær
skemmur sem hvor um sig er ca 1.350 fm með 4,7 m lofthæð undir lægsta
punkt. Skemmurnar eru nánast einn geymur með möguleika á millilofti með
þakglugga eftir endilöngu og geta hentað undir margskonar starfsemi s.s.
iðnað, heildverslanir o.fl. I húsinu eru kælibunkt sem gætu t.d. nýst aðilum [
matvælaiðnaði. Öflugt iðnaðarhúsnæði á góðum stað með mikla möguleika.
eða 1.000 fm í austurbænum
Krókháls Lyngháls
pTF
l—*
Óinnréttað 960 fm skrifstofuhús- Allt að 3.300 fm rými á tveimur
næði á 2. hæð þ.e. 200 fm milliloft, hæðum, til leigu, þ.e. 2.100 fm
til sölu eða leigu. Húsnæðið getur iðnaðarhúsnæði á jarðhæð með 3
verið til afhendingar fullinnréttað innkeyrsludyrum og allt að 7 m
eftir þörfum hvers og eins. Mikið lofthæð. Á 2. hæð eru 1.200 fm
áhvílandi. Hagstæð leigukjör. með aðkomu að ofanverðu.
Upplýsingar í síma 511 1600.
Sigurður Óskarsson lögg. fasteigna- og skipasaii.
Berglind Björnsdóttir sölumaður.
Sveinn Óskar Sigurðsson sölum.
Sími 588 0150 Fax 588 0140
VITASTÍGUR
Til sölu þessi glæsilega 195,9 fm vcrslunarhæð með 45,6 fm lagerhúsnæði í kjallara. Frábær
staðsetning rén við Laugaveginn. Nánari upplýsingar hjá faslcignasölunni.
Karlagata
Til sölu 63 hn íbúð á 2. hæð í þríbýli. Nýiegar eldhúsinnréttingar. Verð 5,1 millj. Ahv. 2,6 niillj
Dofraborgir 38-40
Erum að hefja sölu á sí’ðara stigahúsinu í Dofraborgum 38-40 í
Grafarvogi. Um er að ræða nýjar og glæsilegar íbúðir ásamt
bílskúrum. íbúðirnar verða til sýnis í dag milli kl. 13.00 og 15.00.
íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum og
tækjum en án gólfefna. Til afhendingar nú þegar. Einungis fjórar
íbúðir í stigahúsi. Fallegt útsýni.
4ra herbergja rúmgóðar íbúðir með bílskúr.
Verð aðeins kr. 8,9 millj.
3ja herb. íbúðir með bílskúr.
Verð aðeins kr. 7,9 millj.
GOTT VERÐ - VANDAÐAR ÍBÚÐIR
Abyrg þjónusta í áratugi
Sími 588 9090 - Síðumúli 21
X
- HÓLL -
af lífi og sál!
5510090
Miðleiti
Gullfalleg 125 fm 4ra herb. íbúð á 3ju hæð ásamt stæði í bílskýli. Fallegt
fjölbýli. Rúmgóð herb., góð stofa. Þvottahús í íbúð, suðursvalir.
Innangengt í bílskýli. Áhv. 5 millj. húsbréf. V 11,9 m.
Opið hús í dag frá 14 - 17
Laugarnesvegur 108-4. hæð
Virkilega hugguleg 73 fm 3ja herb. íbúð á efstu hæð í 4ra hæða fjölbýli
ásamt aukaherb. í kjallara sem er tilvalið til útleigu. (búðin er mikið
endurnýjuð, sérlega sjarmerandi. Áhv. 3,9 millj. húsbréf/byggingarsj. Verð
6,7 millj. Oddný og Einar bjóða ykkur velkomin í dag milli 14 og 17. (3097)
Arnartangi 72 - Mos.
Fallegt 94 fm endaraðhús, auk frístandandi bílskúrs. 3 svefnherb., góður
aarður. Hér er nú aldeildis gott að búa með börnin í sveitarómantíkinni.
Áhv. 1700 þús. húsþréf. Verð 8,8 millj. Sigríður býður ykkur velkomin í dag
milli kl. 14 og 17. (6717).
Einarsnes 34 - Skerjaf.
Nýlegt og sérstaklega skemmtilegt 105 fm parhús á tveimur hæðum á
þessum eftirsótta stað. Fallegt parket og innréttingar prýða húsið.
Sérbílastæði og suðurverönd. Áhv. 3,5 millj. húsbréf og bygg.sj. Verð 9,7
millj. Þórhallur verður í opnu húsi í dag milli 14 og 17. (6741).