Morgunblaðið - 22.03.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997 19
ERLENT
Vaxandi
útlend-
ingahatur
NÆSTUM tveir af hveijum
þremur Frökkum telja, að of
mikið sé af aröbum í landinu
jafnvel þótt þeir séu flestir
andvígir kynþáttamismunun.
Kemur þetta fram í skýrslu frá
frönsku mannréttindanefnd-
inni og segir hún, að hatur á
útlendingum sé orðið hættu-
lega mikið í Frakklandi. Bein-
ist það ekki síst gegn aröbum
eða múslimum og svertingjum.
Þá telja um 80%, að framferði
sumra innflytjendahópa rétt-
læti aðgerðir gegn þeim.
Vinstrisigur
í Mexíkó
HELSTI vinstriflokkurinn í
Mexikó, Lýðræðisbyltingin,
vann mikinn sigur í kosningum
í ríkinu Morales sl. sunnudag.
Náði hann völdum í 13 bæjum
og borgum af 33 í ríkinu en
stjórnarflokkurinn í Mexikó,
Byltingarflokkurinn, réð áður
öllum borgunum nema einni.
Nú vann hann í 17. Þjóðar-
flokkurinn, sem er hægrisinn-
aður og hefur verið helsti and-
stæðingur Byltingarflokksins,
sigraði aðeins í einum litlum
bæ.
Kjarnorku-
sprengja á
Washington
JAPANSKI sértrúarsöfnuður-
inn Hinn æðsti sannleikur, sem
stóð fýrir taugagasárás í neð-
anjarðarlestakerfi Tókýóborg-
ar 1995, ætlaði að gera sams
konar árás í Bandaríkjunum.
Kom það fram hjá einum fé-
laga safnaðarins fyrir rétti í
gær. Þá sagði hann, að leið-
togi safnaðarins, Shoko Asa-
hara, hefði rætt um leiðir til
að komast yfir kjamorku-
sprengju, sem varpa mætti á
Washington.
Bílsprengja
í Moskvu
EINN af starfsmönnum þing-
flokks rússneska þjóðem-
isöfgamannsins Vladímírs
Zhírínovskís lét lífið í gær þeg-
ar sprengja sprakk undir bíl
hans. Gerðist það á einni mestu
umferðargötu í Moskvu og
hafði sprengjunni verið komið
fyrir undir sæti ökumannsins.
Annar maður í bílnum slasaðist
mikið. Alls hafa fimm starfs-
menn rússnesku stjómmála-
flokkanna verið myrtir.
Serbíusljórn
söm við sig
STJÓRNVÖLD í Serbíu hafa
lokað fyrir útsendingar sjón-
varpsstöðvarinnar BK TV til
stórs hluta landsins. Er stöðin
óháð og samkvæmt skoðana-
könnunum bera landsmenn
langmest traust til hennar og
miklu meira en til ríkissjón-
varpsins. Er það talið vera
ástæðan fyrir ákvörðun stjórn-
valda, sem óttast fréttaflutn-
ing hennar og ekki síst vegna
þess, að þingkosningar verða
í Serbíu í haust. Eigandi stöðv-
arinnar, Bogoljub Karic, var
áður bandamaður Slobodans
Milosevic, forseta Serbíu, en
sneri við honum baki vegna
kosningasvikanna sl. haust.
Reuter
Vorkoma
áMars
BANDARÍ SKA geimferða-
stofnunin birti í fyrradag skýr-
ustu myndir af Mars, sem tekn-
ar hafa verið frá jörðu. Voru
þær teknar með Hubble-sjón-
aukanum þegar Rauða reiki-
stjarnan var hvað næst jörðu
eða aðeins í 100 milljón km
fjarlægð. Myndirnar sýna vor-
komuna á norðurhveli Mars
þegar koltvísýringurinn, þurr-
ísinn, er að gufa upp og þá
kemur hinn eiginlegi ís á norð-
urskautinu betur í ljós.
Páskakassi
í kassanum er:
Páskaliljur silki
6 páskakerti
2 kertahringir
og servíettur
Páskaskreyting
Kr. 495,-
Norttóand
3 Páskaplöntur í hakka
kr. 999,-
I bakkanum er:
L Begonía - pottakrýsi
f ogpáskaliljupottur
Arinkubbar
Birkigreinar í búnti