Morgunblaðið - 11.04.1997, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
Myndarleg þorskhrogn
ÞESSI myndarlegu þorsk-
hrogn voru til sölu í Hagkaup-
um í Kringlunni í gær og ger-
ast þau vart miklu stærri.
Hrognin komu með 30 kg
þorski í afla Steinunnar SH
167. Þau vega 8 kg en oftast
eru þorskhrogn ekki mikið
þyngri en kringum eitt kíló.
Það er Esther Gísladóttir sem
býður þau svöngum kaupend-
um.
Fyrirtækin sem standa að Fríkortinu orðin tíu talsins
Utanlandsferð fyrir
kaup á bifreið
P. SAMÚELSSON, umboðsaðili Toyota, bætist nú í hóp
Fríkortsfyrirtækja.
FIMM ný fyrirtæki bættust í gær
í hóp þeirra fyrirtækja sem standa
að Fríkortinu og eru fyrirtækin
sem bjóða punkta gegn framvísun
Fríkortsins nú orðin tíu talsins.
Fyrirtækin sem bæst hafa í hópinn
eru Toyota umboðið, Tæknival,
IKEA, Kodak Express - Hans
Petersen og Virgin Megastore. Þá
hefur verið ákveðið að Flugleiðir
innanlands verði einnig aðili að
Fríkortinu.
Hjá Toyota umboðinu fást gegn
framvísun Fríkortsins 10 punktar
fyrir hveijar 1.000 kr. þegar keypt-
ur er nýr bíil og 20 punktar fyrir
hveijar 1.000 kr. þegar keyptur
er notaður bíll eða annað hjá um-
boðinu. Tvöfaldir punktar fást hins
vegar fyrir kaup á nýjum og notuð-
um bílum á sérstöku opnunartil-
boði sem væntanlega stendur til
næstu mánaðamóta.
Að sögn Boga Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra Toyota umboðsins,
kosta algengustu Toyota Corolla
bílarnir um 1.300 þúsund krónur
og fást þannig 26 þúsund punktar
á meðan opnunartilboðið stendur
en annars 13 þúsund punktar.
Fyrir kaup á Toyota Landcruiser
sem kostar 3.725 þúsund krónur
fást 74.500 punktar á meðan til-
boðið gildir en annars 37.250
punktar. Sé keyptur notaður bíll
fyrir eina milljón króna fást 40
þúsund punktar á meðan opnunar-
tilboðið stendur, en 20 þúsund
punktar að því loknu. „Það má því
segja að það sé utanlandsferð með
hveijum bíl,“ sagði Bogi.
Óháð greiðslumáta
Bogi sagði að þegar notaður bíll
væri tekinn upp í nýjan hjá umboð-
inu fáist punktar fyrir andvirði
gamla bílsins á sama hátt og ef
greitt væri með peningum.
„Það eru engar hindranir í þessu
að undanskildu því að það gilda
ekki afslættir með öðrum afslátt-
um. Þetta er einungis einn valkost-
urinn í viðbót fyrir viðskiptavinina
og gildir skilyrðisiaust af öllu aug-
lýstu verði hjá okkur og þá óháð
því hvernig greitt er,“ sagði Bogi.
Gegn framvísun Fríkortsins fást
10 punktar hjá Flugleiðum innan-
lands í pakkaferðum og 20 punktar
í almennu fargjaldi, hjá Tæknivali
og umboðsmönnum þess um allt
land fást 20 punktar fyrir hveijar
1.000 kr. á allar vörur, hjá IKEA
og Virgin Megastore fást 25 punkt-
ar á hverjar 1.000 kr. á allar vörur
og hjá Kodak Express - Hans
Petersen fást 50 punktar fyrir
hverjar 1.000 kr. sem greiddar eru
fyrir framköllun og vörur.
■ Virk/18
Mikil óánægja með lífeyrisfrumvarpið á sjóðfélagafundi ALVIB
Frumvarpið þvert á þró-
unina í lífeyrismálum
MIKIL óánægja með iífeyrisfrum-
varp ríkisstjórnarinnar kom fram á
almennum fundi sjóðfélaga í Al-
mennum Hfeyrissjóði Verðbréfa-
markaðar íslandsbanka (ALVÍB) í
gær. ALVÍB er Qölmennasti sér-
eignarsjóður landsins, með um
5.000 sjóðfélaga. Fundurinn sam-
þykkti ályktun, þar sem frumvarp-
inu er harðlega mótmælt.
Samkvæmt lífeyrisfrumvarpinu
verða þeir, sem hingað til hafa greitt
í séreignarsjóði eingöngu, til dæmis
sjálfstæðir atvinnurekendur og aðr-
ir, sem standa utan stéttarfélaga,
skyidaðir til að greiða 10% af tekjum
sínum í sameignarsjóð, þar sem inn-
eign erfist ekki til maka eða barna
við andlát sjóðfélaga. Viiji þeir halda
áfram að greiða í séreignarsjóð
verður það að vera viðbótariðgjald,
sem bætist ofan á 10% lágmarksið-
gjaldið.
Gunnar Baldvinsson, forstöðu-
maður ALVÍB, sagði á fundinum
að yrði frumvarpið að lögum, yrði
þeim stóra hópi, sem hefði greitt í
ALVÍB og aðra séreignarsjóði, ein-
göngu heimilt að greiða í þá viðbót-
ariðgjald.
Einstaklingar fái að velja sér
Iífeyrissjóð
í ályktun fundarins er lýst and-
stöðu við þau áform að meina sjóðfé-
lögum að greiða lágmarksiðgjöld í
séreignarsjóð. „Fundurinn bendir á
að frumvarpið gengur þvert gegn
þróun í lífeyrismálum bæði á íslandi
og erlendis en séreignarsjóðir njóta
víðast hvar vaxandi vinsælda," seg-
ir í ályktuninni. „Ástæðurnar fyrir
auknum vinsældum séreignarsjóða
má rekja til þess að nú geta sjóðfé-
lagar keypt tryggingavernd frá við-
urkenndum tryggingafélögum og
notið þannig hliðstæðra réttinda og
í samtryggingarsjóðum. Réttindi
sjóðfélaga eru mjög skýr þar sem
þau eru mæld í krónum og inneign
erfist við andlát."
Þá segir í ályktuninni að fundur-
inn lýsi furðu yfir þeirri meginhug-
mynd frumvarpsins að einstaklingar
skuli áfram vera skyldaðir til að
greiða í ákveðna lífeyrissjóði.
„Fundurinn telur það réttlætismál
að einstaklingar fái að velja hvert
lífeyris- og eftirlaunasparnaður
þeirra rennur þar sem hann er mjög
stór hluti af sparnaði og eignum
fólks. Auk þess er nauðsynlegt að
einstaklingar fái að velja sér lífeyris-
sjóð til að tryggja nauðsynlegt að-
hald við rekstur þeirra."
í umræðum á fundinum kom fram
mikil reiði nokkurra fundarmanna,
sem höfðu kynnt sér frumvarp ríkis-
stjórnarinnar og töldu fótunum kippt
undan áformum sínum um lífeyris-
sparnað til elliáranna. Meðal annars
komu fram á fundinum kröfur um
að fjármálaráðherra og forsætisráð-
hen'a yrðu látnir svara fyrir frum-
varpið augliti til auglitis við sjóðfé-
laga á almennum sjóðfélagafundi.
Gámar af þilfari
Víkartinds komnir
ALLIR gámarnir sem hafa verið los-
aðir af þilfari Víkartinds hafa verið
fluttir frá Háfsfjöru á athafnasvæði
Eimskips í Sundahöfn, alls 41 gám-
ur. Gámarnir eru losaðir og vörurnar
fluttar í vörugeymslur Eimskips eft-
ir að ástand þeirra hefur verið skoð-
að af fulltrúa tollyfirvalda og hlut-
lausum skoðunarmanni. Búið er að
kanna ástand vöru í 19 gámum og
er það almennt gott, samkvæmt
upplýsingum frá Eimskipi.
I fréttatilkynningu frá Eimskipi
segir að farmur verði ekki afhentur
eigendum nema lögð hafi verið fram
trygging af þeirra hálfu eða vá-
tryggjenda vegna hugsanlegrar
hlutdeiidar í kostnaði við björgun eða
niðutjöfnun sjótjóns. Þetta er gert
að beiðni sýslumanns í Rangárvalla-
sýsiu, sem hefur forræði um björgun
farmsins. Sýslumaðurinn hafi hins
vegar ekki tekið ákvörðun um upp-
hæð slíkrar tryggingar né heldur
hver muni annast innheimtu hennar.
„Þegar ákvörðun liggur fyrir er
ekkert því til fyrirstöðu af hendi
Eimskips að afhenda vörurnar rétt-
um eigendum. Vörur verða tollaf-
greiddar á grundvelii matsverðs eft-
ir að tjónaskoðun hefur farið fram,“
segir í fréttatilkynningunni.
Morgunblaðið/Ásdís
ALLIR gámarnir sem losaðir voru af þilfari Víkartinds eru
komnir á athafnasvæði Eimskips í Sundahöfn.
Andlát
JON
ÞÓRIR
ÁRNASON
JÓN Þórir Árnason verslunarmaður
og greinahöfundur lést i Landspítal-
anum síðastliðinn fimmtudag, 10.
apríl.
Jón Þórir fæddist að Karlsskálum
við Reyðarfjörð 26. desember 1917.
Hann ólst upp á Eskifirði til fimm-
tán ára aldurs. Foreldrar hans voru
Guðrún J. Einarsdóttir húsmóðir og
Árni Jónsson kaupmaður á Eski-
firði. Þá fluttist Jón Þórir til Reykja-
víkur og hóf nám í Verslunarskóla
íslands og lauk þar námi. Hann
vann við ýmis verslunarstörf í
Reykjavík allt þar til hann hóf störf
hjá Fiskifélagi íslands. Þar starfaði
hann um árabil.
1952 hóf hann innflutning á
þýskum dagblöðum og tímaritum
samhliða starfi sínu hjá Fiskifélag-
inu en þar hætti hann störfum
1963. Jón Þórir skrifaði greina-
flokkinn Lífríki og lífshættir sem
birtur var í Morgunblaðinu um
margra ára skeið.
Eftirlifandi eiginkona Jóns Þóris
er Elín J. Þórðardóttir. Þau eiga
þijár uppkomnar dætur.