Morgunblaðið - 11.04.1997, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
4
Hádegisverðarfundur ímarks um fríkortið
Virk fríkort eru
um 33 þúsund
ÞRJÁTÍU og þrjú þúsund fríkort eru
virk og mest hefur verið safnað 45
þúsund punktum á eitt kort um það
bil mánuði eftir að byijað var með
fríkortið og það sent öllum íslending-
um á aldrinum 18 til 75 ára. Mar-
grét Guðmundsdóttir, forstöðumað-
ur markaðssviðs Skeljungs, segir að
þessi viðbrögð væru betri en þau
hefðu gert ráð fyrir er þau settu
fríkortið á markað því áætlanir
hefðu gert ráð fyrir að 20 þúsund
kort yrðu virk eftir fyrsta mánuðinn.
Þetta kom fram á hádegisverðar-
fundi ímarks í gær, en þar fjöiluðu
Margrét og Páll Þór Ármann, fram-
kvæmdastjóri Fríkortsins, um að-
draganda, þróunarferil og markaðs-
setningu Fríkortsins. Fundurinn var
íjölsóttur, en að loknum framsöguer-
indum var svarað fyrirspurnum frá
fundarmönnum.
Að fríkortinu stóðu upphaflega
fimm fyrirtæki, Hagkaup, Skeljung-
ur, Húsasmiðjan, Islandsbanki og
Flugleiðir, en nú hafa bæst við fimm
fyrirtæki til viðbótar, IKEA,
Tæknival, Toyota, Hans Petersen
og Virgin. Við notkun fríkortsins við
kaup hjá þessum aðilum ávinnur
fólk sér punkta, sem geta nýst fólki
í tómstundum þess, meðal annars
til utanlandsferða. Ætlunin er að
fjölga fyrirtækjunum enn frekar og
er gert ráð fyrir að aðildarfyrirtæki
fríkortsins verði endanlega 15 til 20,
en búast má við næstu fjölgun fyrir-
tækja um mánaðamótin.
Markvissara
markaðsstarf
Margrét sagði að fríkortið væri
umdeild markaðsnýjung, en þarna
væri um að ræða stærsta markaðsá-
tak á neytendamarkaði til þessa. Það
gæfi auk þess möguleika á markviss-
ara markaðsstarfi þar sem fyrirtæk-
in gætu betur fylgst með hegðun
viðskiptavinarins í gegnum notkun
fríkortsins. Fyrirtækin sem stæðu
að fríkortinu ætluðu sér að fá þann
kostnað ríkulega til baka sem þau
hefðu sett í það.
Margrét sagði að Shell væri þátt-
Opnum í dag eftir breytingar
nýja og glæsilega verslun
MARBERT kynning veröur
föstudag og laugardag.
Snyrtifræðingur frá MARBERT
J veitir ráðgjöf.
GLesilegt opnunartilboð, 50fyrstu fá svörtu hliðartöskuna
að gjöfþegar keypt er fyrir 3.100 kr. í MARBERT.
BRÁ
Laugavegi 66,sími 551 2170.
Póstsenum. Visa - Euro.
Morgunblaðið/Ásdís
MARGRÉT Guðmundsdóttir, forstöðumaður
markaðssviðs Skeljungs, á fundi ímarks í gær.
takandi í sams konar kortum víða
um heim og það væri sammerkt með
þeim verkefnum að þau hefðu alls
staðar gengið mjög vel. í Hollandi
hefðu 18 fyrirtæki, þ.á m. Shell,
sett svona kort á laggirnar á árinu
1994 og nú væru 25% fjölskyldna
þar í landi þátttakendur og markaðs-
hlutdeild fyrirtækjanna hefði aukist
mikið.
Hún sagði að neikvæð viðbrögð
samkeppnisaðila við útgáfu kortsins
hefðu ekki komið á óvart. Það væri
eðlilegt og hún hefði sjálf brugðist
illa við hefði einhver samkeppnisaðil-
anna orðið á undan að koma fram
með svona kort. Hins vegar hefði
neikvæð afstaða Neytendasamtak-
anna til kortsins komið mjög á óvart
og í bakið á þeim og það að f|ölmiðl-
ar hefðu trúað útreikningum þeirra
og tekið þá gilda án þess að bera
þá undir útgefendur fríkortsins. Hún
sagðist ekki hafa neinar áhyggjur
af því þó umræðan um kortið hafi
orðið neikvæð til að byija með, því
neytandinn eigi síðasta orðið og
hann muni sjá og kunna að meta
kosti kortsins. Þau muni halda sínu
striki, en lykilatriði sé að þjálfa
starfsfólk vel, því það þurfi að svara
fyrir kortið gagnvart viðskiptavinin-
um.
Fór hljótt
Páll Þór Ármann sagði að þær
markaðsuppiýsingar sem öfluðust
með notkun fríkortsins væru mikil-
vægar, en gagnagrunnurinn væri
tvískiptur. Annars vegar væri haldið
utan um korthafana og viðskipti
þeirra og hins vegar stöðu hvers
fyrirtækis. Stofnaður hefði verið sér-
stakur rekstraraðili sem sæi um út-
gáfu kortsins, dreifingu og alla þjón-
ustu við það. Undirbúningur að út-
gáfu kortsins hefði farið afar hljótt
og sem dæmi um það hefði ekki
nema 4-5 aðilum innan hvers fyrir-
tækis verið kunnugt um fyrirætlan-
irnar 10-15 dögum fyrir útgáfu
kortsins. Mikil innri markaðssetning
gagnvart starfsfólki hefði farið fram
meðal annars með sameiginlegri
starfsmannahátíð og kynningar-
fundum innan hvers fyrirtækis.