Morgunblaðið - 11.04.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 21
ERLENT
Prodi
hvetur til
samstöðu
Róm. Reuter.
ROMANO Prodi, forsætisráðherra
Ítalíu, skoraði í gær á flokkana, sem
standa að stjóminni, að snúa bökum
saman en við lá, að stjórnin félli
þegar einn þeirra, Kommúnísk end-
urreisn, neitaði að styðja tillögu um
að senda ítalskt herlið til Albaníu.
Vegna þessa efast margir um, að
stjórninni verði langra lífdaga auðið.
Þrátt fyrir andstöðu Komm-
únískrar endurreisnar var tillagan
um að senda herlið til Albaníu sam-
þykkt en með stuðningj nokkurra
stjórnarandstöðuflokka. í framhaldi
af því hófst í gær þriggja daga
umræða í báðum þingdeildum um
traust eða vantraust á stjórnina.
Prodi sagði, að þörf væri á styrkri
stjórn til að koma á óhjákvæmileg-
um umbótum og búa í haginn fyrir
þátttöku ítala í myntbandalagi Evr-
ópusambandsríkj anna.
Talsmaður Kommúnískrar ein-
ingar sagði, að nú þegar Albaníu-
málið væri frá, myndi flokkurinn
styðja traustsyfirlýsingu á stjórnina.
Reuter
KONGOLU, sonur Mobutus forseta, og fleiri sljórnarhermenn stugguðu við fólki, sem safnaðist
saman til mótmæla í Kinshasa í fyrradag. Handtóku hermennirnir Etienne Tshisekedi, sem kjörinn
var forsætisráðherra í síðustu viku, og er ekki vitað hvar honum er haldið.
Skæruliðar í Zaire ætla að beijast gegn spillingu og breyta hugarfari
Fyrrverandi embættis-
menn verði ekki saksóttir
Kisangani. Reuter.
SKÆRULIÐAR í Zaire hafa lýst
yfir, að engir verði sóttir til saka
fyrir spillingu eða annað misferli í
stjórnartíð Mobutu Sese Sekos, for-
seta landsins. Þeir leggja hins vegar
áherslu á, að undir þeirra stjórn
verði krafist dugnaðar og heiðar-
leika af öllum, ekki síst opinberum
embættismönnum.
Skæruliðar ráða nú um helmingi
Zaires, þriðja stærsta ríki í Afríku,
og náðu Lumumbashi, annarri
stærstu borg landsins, á sitt vald á
miðvikudag. í gær lýstu þeir yfir,
að þeir ætluðu að gera þriggja daga
hlé á sókn sinni í átt tii Kinshasa,
höfuðborgarinnar, til að gefa Mob-
utu tækifæri til að láta af völdum.
Yagi Sitolo, einn af hinum nýju
héraðsstjórum skæruliða, sagði, að
með nýrri stjórn yrði strokað yfir
gamlar syndir og byrjað upp á nýtt.
Var hann að útskýra hvers vegna
Laurent Kabila, leiðtogi skæruliða,
hefði skipað aftur marga embættis-
menn Mobutu-stjórnarinnar á þeim
svæðum, sem skæruliðar ráða.
Léttir í Kisangani
Almenningur í Kisangani er mjög
feginn yfirráðum skæruliða og fólk
getur nú aftur gengið óhrætt um
borgina að kvöldlagi. Það var ekki
hægt fyrir 15. mars en þá réðu
stjórnarhermenn borginni og kúg-
uðu fé út úr fólki við hvert fótmál.
Fóru þeir síðan ránshendi um borg-
ina áður en þeir flýðu.
Opinberir embættismenn voru
ekki hótinu skárri en hermennirnir
og þeir lyftu aldrei fingri nema fyr-
ir mútufé. „Nú þora þeir ekki leng-
ur að þiggja eitt kóka-kóla-glas,“
sagði Yagi.
Flestir æðstu embættismann-
anna flýðu ásamt stjórnarhernum
undan sókn skæruliða enda eru
þeir yfirleitt af Ngbandi-ættbálkn-
um í norðvesturhluta landsins, ætt-
flokki Mobutus. Svo er einnig um
forsetalífvörðinn, 10.000 manns, en
hann einn hefur sýnt skæruliðum
nokkra mótspyrnu. Ngbandi-fólkið
býst ekki við neinu góðu frá skæru-
liðum.
Skæruliðar vita sem er, að refs-
uðu þeir öllum fyrrverandi embætt-
ismönnum, myndi stjórnkerfið
hrynja en margir eru samt ósáttir
við að sjá sömu mennina áfram í
háu stöðunum. Raunar var embætt-
ismönnum og stjórnarhermönnum
nokkur vorkunn að því leyti, að
Mobutu-stjórnin greiddi þeim lítil
eða engin laun og í raun var ætlast
til, að þeir lifðu á því að kúga fé
út úr fóiki.
15. greinin í hávegum höfð
„Við verðum að breyta hugsunar-
hættinum. í 32 ár höfum við búið
við kerfi þar sem allt stóð á haus
og þjófnaður og spilling voru höfð
i hávegum,“ sagði Yagi. Hér verður
þó vafalaust við ramman reip að
draga því að Zairebúar eru orðnir
vanir að fara eftir 15. grein stjórn-
arskrárinnar, sem er að vísu skáld-
skapur, en samkvæmt henni mega
menn stela öllu steini léttara.
Vissu um
efnavopna-
geymslu
BANDARÍSKA leyniþjónust-
an (CIA) vissi um staðsetn-
ingu íraskrar efnavopna-
geymslu en láðist að vara
heri bandamanna við áður en
bandarískar sveitir sprengdu
hana í loft upp í lok Persaflóa-
stríðsins með þeim afleiðing-
um, að hugsanlega hafa allt
að 20.000 hermenn komist í
snertingu við eiturgas. Kemur
þetta fram í skýrslu CIA, sem
birt var í gær. Þar segir að
stofnunin hafi fylgst með og
aflað gagna um eiturvopna-
geymsluna allt frá 1984.
Lögreglu-
kona skotin
LÖGREGLUKONA særðist í
bænum Londonderry á Norð-
ur-írlandi í gær er á hana var
skotið skammt frá dómhúsi
borgarinnar. Talið er að
hryðjuverkamenn írska lýð-
veldishersins (IRA) hafi verið
að verki.
Mistókst
sakbending
VITNI að morðinu á Ennis
Cosby, syni leikarans Bills
Cosby, mistókst að benda á
meintan banamann hans við
sakbendingu, að sögn Los
Angeles Times. Blaðið sagði
það geta orðið til þess að
veikja mjög mál á hendur
sakborningnum Mikail Mark-
hasev.
Fækkað í
landamæra-
sveitum
JIANG Zemin forseti Kína
heimsækir Rússlands 22.-26.
apríl og mun þá m.a. undir-
rita samkomulag ásamt for-
setum Rússlands, Tadjíkíst-
ans, Kazakhstans og Kírgízt-
ans um sameiginlega landa-
mæri þessara ríkja og veru-
lega fækkun herafla meðfram
þeim.
Herþota hverf-
ur sporlaust
Washington. Reuter, Daily Telegraph.
TALSMENN bandaríska flughers-
ins sögðu í gær að ekkert benti
til þess að rekja mætti hvarf A-10
sprengjuþotu til þjófnaðar eða
skemmdarverks. í ljósi nýrra vís-
bendinga og upplýsingar vitna
beinist nú leit að þotunni að fjalls-
tindum 25 kílómetra vestur af
skíðabænum Vail í Colorado-ríki.
Þotunnar hefur verið saknað frá
2. apríl, skömmu eftir að hún fór
í æfingaflug frá Davis-Monthan
herstöðinni skammt frá Tucson í
Arizona-ríki. Fluginaðurinn, Craig
Button ofursti, sem er 32 ára, var
á leið til að æfa loftárás á skot-
mörk í suðvesturhluta ríkisins.
Tóku félagar hans ekki eftir því
er hann varð viðskila enda rétt
fyrir aftan þá í samflugi er leiðir
skildu. Um borð voru fjórar Mark
82-sprengjur sem vega 250 kíló
hver.
„Æðsta takmarkið er að finna
þotuna og flugmanninn," sagði í
yfirlýsingu yfirmanna Davis-
Monthan stöðvarinnar í gær. Ný
gögn úr ratsjá bandarísku flug-
málastjórnarinnar í Denver í Col-
orado-ríki hafa orðið til þess að
beina eftirgrennslan eftir þotunni
að svæði sem er 25 km vestur af
Vail í Colorado. Skíðagöngumenn
á þeim slóðum hafa skýrt frá því
að þeir hafi um það leyti sem þot-
an hvarf heyrt gífurlegan sprengi-
dynk og séð síðan risastórt og
kolsvart ský stíga upp af svæði
handan hryggjar sem þeir voru á.
Urðu þeir þó aldrei þotunnar varir.
Ekki stuldur
Talsmenn bandaríska varnar-
málaráðuneytisins vísuðu á bug
öllum vangaveltum þess efnis að
þotunni hefði hugsanlega verið stol-
ið. Snjóað hefur í fjöllum Colorado
frá því þotan hvarf. Mörg dæmi eru
um frá þessum slóðum, að flugvélar
sem hafa horfið sporlaust að vetri
til hafi fundist að sumarlagi eftir
að snjó hafði tekið upp.
Þingmenn
misnota
heimildir
Helsinki. Morgunbladið.
FINNAR eru mjög hneykslaðir á
sumum þingmanna sinna um þessar
mundir en í byijun þessa mánaðar
gafst þingmönnum kostur á að ráða
sér aðstoðarmenn á kostnað ríkis-
sjóðs. Allnokkrir þingmannanna
ákváðu þá að sækja sér aðstoðar-
manninn í eigin Qölskyldu og hefur
það vakið reiði landsmanna, einkum
vegna þess, að hátt í hálf milljón
manna er atvinnulaus.
Riitta Uosukainen þingforseti
hefur lýst yfir hneykslun sinni, m.a.
á því að flokksbróðir hennar úr
Hægri flokknum hafi ráðið sextán
ára son sinn, enda er sonurinn enn-
þá við skyldunám í grunnskóla.
Nokkrir þingmenn hafa leyst fjöl-
skyldumeðlimi sína frá starfi vegna
mótmæla almennings. Anssi Raur-
amo þingmaður hægri manna seg-
ist hins vegar ekki láta hræða sig
til að segja upp syni sínum. Að
mati Rauramo er 16 ára drengur
sem stundar ráðgjafastörf í frítíma
einmitt hinn besti aðstoðarmaður.
Kynning í Kópavogsapóteki
í dag kl. 14-18
Fæst eingöngu i apotekum
Skemmtileg sumartaska með þremur lúxusprufum
fylgir kaupum á nýja kreminu Lift Activ eða
ef keypt er fyrir kr. 2000 eða meira *
VICHYS
LABORATOIRES
HEILSULIND HÚÐARINNAR