Morgunblaðið - 11.04.1997, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 25
LISTIR
HEKLA LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 569 5775
9IR: HEIMSKRINGLAN, KRINGLUNNI,
MUM, SELFOSSI, JÓKÓ, AKUREYRI, 1--
I, MIÐBÆ, HAFNARFIRÐI, REYNlí
3INGEYINGA, HÚSAVÍK, HLJÓf,
Yortónleikar
Rökkurkórsins
Bjorgunbladid. Sauðárkróki.
RÖKKURKÓRINN í Skagafirði er
nú í söngferð syðra eftir vortón-
leika, sem haldnir voru í félagsheim-
ilinu Miðgarði sl. föstudagskvöld
fyrir fullu húsi. í kvöld, föstudags-
kvöld, syngur kórinn á Akranesi.
Á söngskrá eru lög eftir innlenda
og erlenda höfunda, og var kórnum
mjög vel teki og varð hann að syngja
fjölmörg aukahlutverk.
Einsöngvarar voru Hallfríður
Hafsteinsdóttir, Sigurlaug Marons-
dóttir og Einar Valur Valgarðsson,
en einnig kom fram sönghópurinn
Sunnan sjö og Muni, en það eru
félagar úr Rökkurkórnum, og fluttu
þau nokkur létt lög.
Milli atriða voru flutt gamamál,
og fór þar Bjarni Maronsson mikinn,
og skemmti tónleikagestum ágæt-
lega.
Söngstjóri kórsins er Sveinn
Árnason og undirleik annast Páll
Barna Szabó.
Þórey Helgadóttir, formaður
Rökkurkórsins, sagði vortónleikana
nú heldur í seinna lagi, og væri það
eingöngu vegna tímaskorts, það ein-
faldlega vantaði fleiri helgar til að
koma starfmu fyrir. Þórey sagði að
í söngferðalaginu syðra yrði byijað
á tónleikum í Vinaminni á Akranesi
föstudagskvöldið 11. apríl en á laug-
ardag kl. 15 í Seltjamarneskirkju og
um kvöldið kl. 21 í Breiðholtskirkju.
Á sunnudeginum liggur leið kórs-
ins til Hveragerðis og verður sungið
í kirkjunni þar kl. 15 en í félagsheim-
ilinu í Aratungu um kvöldið kl. 21.
Þar sagði Þórey að Sveinn söng-
stjóri myndi taka fram nikkuna og
vonuðust þeir félagarnir í Rökk-
urkórnum eftir því að Tungnamenn
tækju með þeim lagið.
Morgunblaðið/Björn Bjömsson
RÖKKURKÓRINN úr Skagafirði.
LÚÐRASVEIT Seltjarnarness með stjórnanda sínum, Kára Einarssyni.
Lúðra-
sveitar-
tónleikar
LÚÐRASVEIT Seltjarnarness held-
ur sína árlegu „stórtónleika" í ís-
lensku óperunni á morgun, laugar-
dag 12. apríl, kl. 14. Stjórnandi er
Kári Einarsson og kynnir Jón Karl
Einarsson.
í kynningu segir, að á undanförn-
um árum hafi stjórnandi sveitarinnar
lagt áherslu á hefðbundna lúðra-
sveitartónlist ásamt óperuforleikjum
og annarri sígildri tónlist. Að þessu
sinni verði efnisskráin með öðru
sniði, því slegið verði á létta strengi
með ýmsum djass- og dægurlögum
liðinna ára eftir íslenska og erlenda
höfunda, m.a. Birdland, Garden-
party, Bad, Some Skunk Funk, tón-
list úr kvikmyndinni Konungur ljón-
anna.
Einnig koma fram tvær yngri lúð-
rasveitir Tónlistarskóla Seltjarnar-
ness.
Richard Wagner-félagið
Ragnarök í Norræna húsinu
RICHARD Wagner-félagið á ís-
landi sýnir óperuna Götterdám-
merung eða Ragnarök í Norræna
húsinu sunnudaginn 13. apríl kl.
15.,
Óperan er hin síðasta í röðinni
úr fjórleik Richards Wagners, Nifl-
ungahringnum, en sýningar á
Hringóperunum fjórum hafa nú
staðið yfír á vegum Wagner-félags-
ins frá því í janúar.
Niflungahringurinn var frum-
fluttur í Bayreuth árið 1876. Við
samningu þessa lengsta verks
óperusögunnar leitaði Richard
Wagner mjög fanga í íslenskum
fornbókmenntum svo sem Eddu-
kvæðum, Snorra-Eddu og Völs-
ungasögu.
Á undan sýningunni halda þau
Anna M. Magnúsdóttir og Reynir
Axelsson stuttan fyrirlestur með
tóndæmum þar sem leiðarfrymi
(Leitmotiv) úr óperunum verða
kynnt.
Sýnt verður af myndgeisladiski
á stórum sjónvarpsskermi með
enskum skjátexta. Uppfærslan er
frá Bayreuth og er hljómsveitar-
stjórn í höndum Daniels Barenbo-
ims en leikstjóri er Harry Kaupfer.
Aðgangur að sýningunum er
ókeypis.
Afek.
GE þvottavél, 800 snúninga. Rétt verð kr. 61.900 stgr.
'Vcar
úg Aiimar
frd